Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1987, Side 7
FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1987.
Tveir leikir í
úrva]sdeildinni
og heil umferð í 2. deild karla í handknatú.eik
Um helgina eru'tveir leikir á dag-
skrá í úrvalsdeildinni í körfuknatt-
leik. Á laugardag leika Haukar og
KR í íþróttahúsinu í Hafnarfirði og
hefst viðureign liðanna klukkan
15.30.
• Valsmenn taka síðan á móti
ÍR-ingum á heimavelli sínum að
Hlíðarenda á sunnudagskvöld og
hefst leikurinn klukkan 20.00.
• í 1. deild kvenna í körfuknatt-
leik eru þrír leikir um helgina. Á
laugardag leika Haukar og Grinda-
vík í Hafnarfirði kíukkan 14.00. Á
sunnudag leika síðan KR-UMFN
klukkan 14.00 í Hagaskóla og ÍR og
ÍS leika á sama tíma í íþróttahúsi
Seljaskóla.
Handknattleikur
í 2. deild karla eru fimm leikir
um helgina, heil umferð. í kvöld,
fóstudag, leika HK og Fylkir í Di-
granesi klukkan 21.30 og í Sand-
gerði leika Reynir og Grótta
klukkan 20.00. Á morgun, laugar-
dag, leika Afturelding og ÍBV að
Varmá klukkan 14.00. Tveir leikir
eru síðan á dagskrá á sunnudag.
Þá leika Haukar og Njarðvík í
Hafnarfirði klukkan 15.15 og Ár-
mann og Selfoss í Laugardalshöll
klukkan 19.00.
TIL SÖLU
ER ALLT SEM ÞARF í GRILL,
s.s. kjúklingadjúpsteikingarpottur, hitaskápur fyrir
kjúklinga eða annað, 3 djúpsteikingarpottar, kæli-
skápur, 3 frystikistur, loftræstiháfur, kartöfIuhitari og
steikingarpanna og annað sem þarf til grillreksturs.
Góð greiðslukjör.
Upplýsingar í síma 96-26866 eftir kl. 4 og 96-2491 3.
Skautar
á góðu verði
Stærðir 34-40 k
Kr. 1.895,- ' »
Leðurfóðraðir ? ^
PÓSTSENDUM SAMDÆGURS
LAUGAVEGI 62 - SÍMI 13508
HELGARBLAÐ
Frjálst.óháö dágblaö
Á MORGUN
Hvað heldur Ómar Ragnarsson? Ja, hann hélt í það minnsta
uppi fjörinu í Borgarnesi þegar spurningaþáttur sjónvarpsins
Hvað heldurðu? var tekinn þar upp. Helgarblaðið var að sjálf-
sögðu á staðnum og færir ykkur fréttir af æsispennandi
keppni.
Guðlaugur Pálsson,
á Eyrar-
■ bakka, hefur staðið við
búðarborðið í verslun
sinni í 70 ár. Hann er
nú kominn á tíræðis-
aldur en lætur það ekki
aftra sér frá verslunar-
Íferðum til útlanda enda
hefur honum ekki orðið
misdægurt síðan hann
reis upp úr spönsku
veikinni árið 1918.
Helgarblaðið heimsótti
hann í tilefni af af-
mælinu.
Af hverju að byggja nýtt ráðhús þeg-
ar nóg er af gömlum og virðulegum
húsum til að hýsa það? Helgarblaðið
kannaði úrvalið af hugsanlegum ráð-
húsum.
Guðrún Helgadóttir segist vera af-
skaplega óskáldleg í þinghúsinu
enda skrifar hún bækur sínar utan
þess. í helgarblaðinu ræðir hún um
nýjustu bók sína og við birtum kafla
úr henni.