Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1988, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1988, Qupperneq 7
FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR 1988. 29 • Kvenfólkið lætur ekki deigan síga um helgina en þá verða fjórir leikir á dagskrá i 1. deild kvenna. Á myndinni sést Ingunn Bernódusdóttir úr Fram skora í leik gegn KR fyrr í vetur. Röleg helgi á sviði íþrótta Lítið verður um að vera á sviði íþrótta hér innanlands um þessa helgi. íþróttafólk er varla komið af stað eftir hátíðirnar. íslenska landsliðið í handknattleik tekur þátt í World Cup í Svíþjóð og af þeim sökum verður ekkert leikiö í 1. deild karla. Hins vegar verða leikir á dagskrá í 2. deild karla og 1. deild kvenna. • í kvöld leika í 2. deild karla Grótta og Ármann og hefst leikur- inn kl. 20.00 í íþróttahúsinu á Seltjarnamesi. Á sunnudag leika að Varmá kl. 14.00 Afturelding og HK. • í 1. deild kvenna verða fjórir leikir á dagskrá. Á laugardag verð- ur einn leikur og eigast þá við Stjarnan og Valur í íþróttahúsinu á Digranesi kl. 14.00. Á sunnudag verða þrír leikir. í Hafnarfirði kl. 14.00 leika Haukar og Víkingur og á sama tíma leika Þróttur og Fram í Laugardalshöllinni. Strax að þeim leik loknum leika KR og FH. -JKS ■jf ^ í t 1? BLAD BURDARFÓLK t, ejjtx/tt&jíiw /weAsjjC : Nýlendugötu Tryggvagötu 1-9 Mýrargötu ******************** Eskihlíð Blönduhlíð ******************** Brávallagötu Ásvallagötu 1-17 Sólvallagötu 1-10 Blómvallagötu ******************* Eiríksgötu Barónstig 49-út Fjölnisveg ***************** Hverfisgötu 2-66 Smiðjustíg ***************** Sörlaskjól Faxaskjól Nesveg 21 út ***************** Skagasel Skriðusel Skógarsel Staðarsel Stafnasel Stekkjarsel ****************** Miklubraut ****************** Hraunbæ 100-150 ****************** í t if í ÞVERHOLTI 11 AFGREIÐSLA í it i SIMI 27022 HELGARBLAÐ Frjálst, óháö dágblað Á MORGUN Anna Bjarnason og Atli Steinarsson hafa um árabil verið í röð fremstu blaðamanna á Is- landi. Nú um áramótin ákváðu þau að söðla um og yfirgefa landið til að setjast að í Bandaríkjunum. Þau segja frá þessu uppátæki sínu í helgarblaðinu. Ólafur Unnsteinsson, íþróttakappi af gamla skólanum, fór í frægðarför til Ástralíu og lagði þar margan kappann í harðri keppni öldunga. Hann segir frá víkingaför sinni í helgarblaðinu. Jóhannes Kristjánsson eft- irherma sló í gegn í gervi Halls Hallssonar í ára- mótaskaupi sjónvarpsins. En hvernig brást Hallur við? Þeir félagar taka létta syrpu í helgarblaðinu. Á síðustu árum hafa íslenskar stúlkur náð frama sem fyrirsætur eftir að hafa tekið þátt í keppni sem umboðsfyrir- tæki kennt við Eileen Ford efnir árlega til. í ár hefur DV veg og vanda af keppninni hér á landi og I helgarblað- inu á morgun hefst kynning hennar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.