Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1988, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1988, Síða 8
,30 FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR 1988. Mynd- bönd Umsjón: Sigurður M. Jónsson Hilmar Karlsson K DV-LISTINN Nokkrar breytingar eru á listan- um aö þessu sinni enda hefur hann ekki birst síðan 23. desember. Hæst stekkur stríðsmyndin Platoon sem er komin í 2. sæti þrátt fyrir að vera tiltölulega nýútkomin. Forvitnilegt er að fylgjast með íslensku myndinni Eins og skepn- an deyr sem er gefin út undir erlendu merki en íslenskar myndir eru sjaldséðar á listanum. Djöfla- þrillerinn Angel Heart er í efsta sæti listans en myndin hefur vakið mikla athygh þótt umdeild sé. 1. 2. (9) (-) 3- (1) 4. (4) 5. 6. (-) (8) 7. (3) 8. (-) 9. (-) 10. (5) Angel Heart Platoon Tres Amigos Let’s Get Harry Wisdom Peggy Sue Got Married 52 Pick up Half Moon Street Eins og skepnan deyr Golden Child ★★★ Á amerískri heljarslóð MAJOR DUNDEE Útgefandi: Skifan. Leikstjóri: Sam Peckinpha. Framleið- andi: Jerry Bresler. Aðalhlutverk: Charlton Heston, Richard Harris, Jim Hutton, James Coburn og Michael And- erson. Bandarisk 1964. 115 mín. Það er ótvírætt að saga Sam Peck- inpah verður skrifuð samhhða sögu bandarísku vestranna, svo nátengdur er þessi gamli harðjaxl kvikmyndasögunni. Peckinpah, sem lést fyrir þrem árum, þótti ávallt mjög óheflaður leikstjóri, allt að því grófur. Getur það stafað af því aö hann sýndi yfirleitt ofbeldi í myndum sínum á ákaflega mark- vissan hátt - svo mjög að stundum fór hann yfir velssæmismörk og átti þá til að velta sér upp úr hæg- gengum (slow-motion) atriðum þar til þolimæði áhorfandans þraut. Hér heitir hann hins vegar engum slíkum tilþrifum heldur segir sögu Major Dundee á kraftmikinn og einfaldan hátt. Dundee leggur upp í ferð með samansafn af fyllibyttum, Suður- ríkjamönnum og hermönnum. Hann fer í leit að illræmdum in- díánahöfðingja sem hefur murkað niður hersveit og stolið þrem böm- um, svo fátt eitt sé upptalið af hans illvirkjum. í hefndarreiö sinni tekst Dundee á við bæði menn og máttarvöld. Heston og Harris era báðir kraft- mikhr vestraleikarar og samspil þeirra með ágætum. Myndin er að vísu ofhlaðin í efni en fyrir vestra- aðdáendur hefur hún inni að halda flest það sem vestra má prýða. -SMJ ★★★ Nútímavestri EXTREME PREJUDICE Útgefandi: JB-myndbönd. Leikstjóri: Walter Hill. Aðalleikarar: Nick Nolte, Powers Boothe og Maria Conchita Alonso. Bandarísk 1987-Sýningartími: 97 mín. Extreme Prejudice er hröö og spennandi mynd sem helst mætti hkja við vestra að. uppbyggingu þótt hún gerist í nútímanum. Aðal- breytingin er að bhar eru í stað . hesta. Myndin fjahar um tvo *skufé- laga, Jack Benteen og Cash Bailey, sem hafa farið hvor í sína áttina; Jack er lögreglumaður og er hinn ötulasti í baráttu við glæpamenn, Cash er aftur á móti eiturlyfja- smyglari og fantur hinn versti. Eins og í sönnum vestra eru báðir hrifnir af sömu stúlkunni og hefur með árunum myndast óstöðvandi hatur sem ekki er hægt aö uppræta nema í banvænu uppgjöri. Inn í þennan söguþráð blandast svo víkingasveit frá alríkislögregl- unni sem er að reyna að ná tangar- haldi á Cash. Jack hefur samstarf við víkingasveitina en hann grunar þó að ekki sé allt eins og eigi að vera með starfsemi sveitarinnar.... Extreme Prejudice er hin besta afþreying, alltaf eitthvað að gerast, nóg af ofbeldi og öðru álíka og Nick Nolte, sem gerist betri með hverju ári sem færist yfir hann, veldur ekki vonbrigðum frekar en fyrri daginn. Einnig standa þeir velfyrir sínu, Powers Boothe í hlutverki hins úrkynjaða Cash og Michael Ironside í hlutverki hins tvöfalda foringja víkingasveitarinnar. Sem sagt ákjósanleg kvikmynd fyrir alla spennumyndaaðdáendur. HK DraumastúJkan GINAN (MANNEQUIN). Útgefandi: Háskólabió. Leíkstjóri: Michael Gottlieb. Aðalhlutverk: Andrew McCarthy og Kim Cattrall. Bandarísk 1987 - Sýningartimi: 89 mín. Það er víst óhætt að segja að hug- myndin að baki Gínunni er nokkuð frumleg. Hveijum nema Banda- ríkjamönnum dytti í hug að láta gínu vera í aðalhlutverki í gaman- mynd? Að vísu er ekki um neina venju- lega gínu að ræða í þessu tilfelli heldur er hún prinssessa sem uppi var nokkrum öldum fyrir Krists burð og hefur í aldanna rás þurft að bera þann kross að vera gína á daginn en vakna til lífsins af og til. En einn maður í senn er aðeins aðnjótandi þeirrar gæfu að njóta félagsskapar hennar. Emmy, en svo nefnist gínan, hef- ur lifað margt og mikið á löngu lífshlaupi. Fórnarlamb hennar í þetta skiptið er Jonathan, ungur og vægast sagt misheppnaður mað- ur sem nýhúinn er að fá starf sem búðarþjónn í stórri verslun. Nótt eina uppgötvar hann að ein gínan lifnar við og er sú aldeilis til í tuskið. Með tímanum verður Jonathan alvarlega ástfanginn og starfsfélag- ar hans skilja ekkert í því að hann skuli oft á daginn þvælast um með gínu í annarri hendinni. Honum stendur á sama og með aðstoð gín- unnar kemur hann í veg fyrir að völdin í versluninni eru tekin úr hendi gamallar konu af samkeppn- isaðilum með hjálp aðstoðarfor- stjóra verslunarinnar. Gínan er saklaust grín og Andrew McCarthy og Kim Cattrall eru sjarmerandi í hlutverkum sín- um. Alhr þeir sem geta leitt hjá sér fáránlegan söguþráð ættu aö geta skemmt sér sæmilega. HK. Berrassaður diplómat HALF MOON STREET Útgefandi: Skífan Leikstjóri: Bob Swaim. Handrit: Bob Swaim og Edward Behr, byggt á sögu Pauls Theroux. Aðalhlutverk: Siogour- ney Weaver og Michael Caine. Bresk 1986. 86 min. Lúxusvændi hefur öðru hvoru borið á góma víða um lönd og við íslendingar ekki einu sinni farið varhluta af því. Hvað það er sem rekur konur í þægilegri þjóðfélags- stétt til að leggja þessa fomu atvinnugrein fyrir sig vita liklega fáir fyrir víst en hér er fyrst og fremst gefið í skyn að það stafi af peningaleysi og _er það líklega nokkuð nærri lagi. Hér segir frá dr. Slaugter sem er sérfræðingur í alþjóðastjómmálum. Hún vinnur fyrir lúsarlaunum hjá hinu opin- hera og finnst hún líða fyrir kyn sitt hvað starfsframa varðar. Til að tryggja efnahagslega hagsæld sína fer hún að vinna hjá fyrirtæki sem leigir „fylgdarkonur". Henni ★★ Bonney og Clyde nútímans WISDOM Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri og handritshöfundur: Emilo Estevez. Aðalhlutverk: Emilio Estevez og Demi Moore. Bandarísk 1987. Bönnuð yngri en 16 ára. Esteves skortir ekki sjálfstraus- tið því þrátt fyrir ungan aldur heldur hann um flesta þræði sem skipta máli í þessari mynd. Það er greinilegt að einhverjir hafa trú á pilti því varla hefur hann fengið allt fé til framleiðslu myndarinnar frá karli fóður sínum, Martin She- en. Myndin segir frá ungum pilti úr efnamannastétt sem hefur litillega komist í kast við lögin. Hann vill ekki fara að beðni foreldra og leggja á menntabrautina en gengur hins vegar illa að fá vinnu sem honum líkar. Honum fmnst þjóðfélagið vera sér andsnúið og að lokum ákveður hann að feta glæpabraut- ina, enda þykir honum sem allir vísi honum þann veg. Hann byrjar á að ráðast á banka - ekki tíl að stela heldur til að eyðileggja gögn um skuldara. Við það nýtur hann aðstoðar elsku sinnar og fyrr en varir eru þau orðin að alþýðuhetj- um í ætt við Hróa Hött. Það er ekki að ósekju sem mynd Arthurs Penn um Bonney og Clyde kemur upp í hugann þegar horft er á þessa mynd því mikla samlík- ingu má fmna með þessum ungu skötuhjúum og því fræga glæpap- ari. Hér er hins vegar skotið mildar þannig að jaðrar við væmni. Upp- hafning á þessu glæpadóti er hvimleið og þó að vissulega megi finna smá skírskotun í þjóðfélag nútímans í USA, jafnvel með gagn- rýnisbroddi, þá ristir það allt .of grunnt til að vera tekið alvarlega. Estevez á þó tvímælalaust framtíð fyrir sér. -SMJ líkar starfið vel, að því er virðist, og kynnist mörgum mönnum í gegnum starf sitt sem vonlegt er. Einn þeirra er valdamikil maður og þegar takast með þeim góð kynni. Um síðir virðist samband þeirra ætla að stofna honum í voða enda dr. Slaugter aðeins peð í valdatafli óprúttinna náunga. Þessi þriller, sem á að saman- standa af pólitík og kynlífi, verður því miður aldrei mjög hragðmikill. Þrátt fyrir bragðmikið talmál skortir allan kraft og spennu í handritið en höfundar þess virðast ekki hafa skoðað endinn í upphafi. Um frammistöðu leikara er fátt að segja. Weaver striplast heilmikið en Caine virðist áhugalaus um það og annað. -SMJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.