Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1988, Page 3
LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 1988.
41
Þetta
Felumynd
3?
•3G
'35
Tengdu punktana frá 1 til 2, 2 til 3, 3 til 4
o.s.frv. Þá kemur felumyndin í ljós. Litaðu
myndina síðan vel.
HITT!
Ilát fyrir
blýanta
og liti
Ilátið er gert úr tómri plastflösku undan uppþvotta-
legi. Þú þværð hana fyrst vel og þurrkar. Biddu
einhvern fullorðinn um að skera efri hluta flöskunnar
af, en skálja eftir egglaga stykki eins og sýnt er á teikn-
ingunni. Teiknaðu andlit á þann hluta með merki-
penna. Límdu hendur og skraut á kjólinn. Hárið
fléttarðu úr gami og límir á höfuðið. Nú áttu fyrir-
taks ílát fyrir blýanta og liti og getur reyndar búið
til mörg og haft allt í röð og reglu á skrifborðinu þínu.
Hvað eru gæsirnar margar?
Sendið svar til: BARNA-DV,
Þverholti 11,105 Reykja-
vík.
~ ▼ 1 / —r l r 1 L -
Hvaða leið eiga krakkarnir að velja til að
komast til kisu? Er það leið nr. 1 - 2 eða 3?
Sendið svar til: BARNA-DV, Þverholti 11,
„Komdu nú að
kveðast á..
Fríða
Þetta er hún Fríða.
Úti er sól og blíða.
Hún fór út að leika sér með mér.
Anna Valsdóttir,
Nýjabæjarbraut 5B, Vestmannaeyjum.
Gamla húsið
Ég fór inn í gamalt hús.
Þar var lítil mús.
Ég reyndi að ná í síma
því þetta varð að ríma.
Herborg Rósa Árnadóttir,
Keilusíðu 12 D, Akureyri.
Barna-DV
Barna-DV er besta blað.
Ekkert jafnast á við það.
Við lesum skrifum og svörum
og í Barna-DV við förum.
Dýrin
Beljan étur og étur gras
og baular ef hún vill meira.
Hún vill ekki hafa neitt þras
því þetta er beljan hans Geira.
Lambið jarmar og líður vel
og étur úti í móa.
Lambinu verður ekki um sel
ef þar birtist tófa.
Kötturinn lepur mjólk úr skál
malar og eltir mýs.
Hann kann ekki íslenskt mál
og ekki étur hann lýs.
Kristín Rúnarsdóttir,
11 ára,
Arnartanga 81,
270 Varmá.
Thelma Björk Sigurðardóttir, 10 ára,
Unufelli 31.