Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1988, Page 26
42
FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1988.
Menning
Andlit í spegli
Sjátfsmyndasýning að Kjarvalsstöðum
Sjálfsmyndir heitir sýning sem
nú hangir uppi að Kjarvalsstöðum.
Þar hafa verið dregnar saman 70
myndir sem íslenskir myndlistar-
menn hafa gert af sjálfum sér á
þeim rúmlega 100 árum sem hðin
eru síðan við eignuðumst atvinnu-
menn í listinni.
Hér er út af fyrir sig um ágæta
uppátekt að ræða því í sjálfsmynd-
um Ustamanna kristallast einatt
hugmyndir þeirra, réttar og rang-
ar, um sjálfa sig, stöðu í myndlist-
arsögunni og samtímanum.
Það er til dæmis óravegur frá blý-
antsteikningu Amgríms Gíslason-
ar, sem tekur góða og gilda ímynd
ljósmyndavélarinnar, eða þeim
myndum sem Þórarinn B. Þorláks-
son dregur upp af sjálfum sér sem
rómantískum gruflara af milhstétt,
til sjálfsmyndar Vignis Jóhannes-
sonar frá því á þessu ári þar sem
Ustamaðurinn sýnir sig ekki sem
„persónuleika" heldur sem villtan
og lostafuhan skógarpúka, saman-
safn af ástríðum fremur en vits-
munum.
Þetta segir svo auðvitað allt
mögulegt um andrúmsloftið í Usta-
íieiminum um þessar mundir.
Ástæður þess, að myndUstar-
menn gera myndir af sjálfum sér,
eru ansi margar. Sumir eru í og
með að ítreka þjóðfélagslega stöðu
Þórarinn B. Þorláksson - Sjálfs-
mynd.
Myndlist
Aðalsteinn Ingólfsson
sína (sjá myndir Þórarins B. og
Jóns Stefánssonar), aðrir eru að
leita að sínum innra manni (Ás-
grímur, Júlíana), aðrir skrá tímann
eins og hann birtist í eigin andlits-
dráttum eða aðstæðum (Ásgrímur,
Hreinn Friðfinnsson), enn aðrir
nota andlit sitt sem hreina átyflu
til formrænna ígrundana (Jón Stef-
ánsson) eða velta fyrir sér Ukam-
legu ástandi sínu (Guðrún
Tryggvadóttir).
Kveðja til Parísar
Á endanum verður sá sem tekur
saman svona sýningu aö gera upp
við sig hvort allar myndir, sem
bera heitið „sjálfsmynd", séu það í
raun og veru. Og þá erum við auð-
vitað, komin út í heimspekilegar
pælingar.
Harpa Bjömsdóttir málar til
dæmis mynd af hálf-kúbískri fig-
úru sem er kveðja hennar til
Parísar („Au revoir“ hljóðar texti
í myndinni).
Hvers vegna er þetta mynd af
henni sjálfri?
Af hveiju er Árni Ingólfsson með
poka yfir höfðinu í sinni mynd.
Getum við verið viss um að mynd-
in sé af honum sjálfum? Skiptir það
máU?
Og hvað er myndefni af gjörningi
eftir Rúrí að gera þama þegar hún
notar sjálfa sig aðeins sem „instrú-
ment“ tU að myndgera viðtekin
hegðunarmynstur í þjóðfélaginu?
Að skýra og skoða
AUt þetta, og meira tíl, hefði mátt
skýra og skoða, jafnvel gera að
pedagógískri upplifun, en það tæki-
Jón Engilberts - Sjálfsmynd, 1965.
færi hafa skipuleggjendur látið
ganga úr greipum sér.
Þetta heitir víst að „stikla í gegn-
um íslenska Ustasögu" og reyna
„eftir megni að velja margbreytileg
og góð verk Ustunnendum tU
skemmtunar og yndisauka" í stað
þess að gera „sögulega eða fræði-
lega úttekt á sjálfsmyndum ís-
lenskra Ustamanna" (sjá sýningar-
skrá) - eins og slík úttekt geti ekki
verið til skemmtunar og yndis-
auka, svo ekki sé horft fram hjá
fróðleiknum.
Er ekki bara verið að réttlæta
handahófskenndan samtíning?
í fljótu bragði gæti ég nefnt sjálfs-
myndir eftir sex aöra Ustamenn
sem alUr hefðu aukið á gildi þessar-
ar sýningar: Sölva Helgason,
Halldór Pétursson, Hörð Ágústs-
son, Erró, Diter Rot og Leif Breið-
fjörð.
Verst er að þegar búið er að setja
upp og klúðra einni sUkri sýningu
er alltaf löng bið á því að önnur
sýning með svipuðum markmiðum
veröi sett upp á landinu.
Heimild til verkfallsboðunar samþykkt á Dagsbrúnarfundi:
Menn komnir á suðumark
- segir Guðmundur J. Guðmundsson, formaður félagsins
Fjölmennt var á Dagsbrúnarfundinum I gær og mikill stuðningur við heimild til verkfallsboðunar I atkvæðagreiðsl-
unni. DV-mynd GVA
Jarðarfarir
Útför Eyþórs Hallssonar, fyrrver-
andi skipstjóra, Sigluflrði, verður
gerð frá Sigluíjarðarkirkju 13. febrú-
ar kl. 14.
Guðmundur Jósefsson, fyrrv. hús-
vörður á Hallveigarstöðum, Hátúni
4, verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju í dag; 12. febrúar, kl. 15.
Ásdís Katrín Einarsdóttir, er lést
sunnudaginn 7. febrúar, verður jarð-
sungin frá ísafjaröarkapellu laugar-
daginn 13. febrúar kl. 14.
Ársæll Jóhannsson, bóndi, Ljótar-
stöðum, Austur-Landeyjum, sem
andaðist í Landspítalanúm 8. febrú-
ar, verður jarðsunginn frá Akurey-
jarkirkju laugardaginn 13. febrúar
kl. 14.
_ Minningarathöfn um Grétar Halld-
órsson, Hábæ, Vestmannaeyjum,
sem fórst í Bandaríkjunum þann 19.
september 1987, verður haldin laug-
ardaginn 13. febrúar kl. 14 í Landa-
kirkju í Vestmannaeyjum.
Jónfríður Jónsdóttir lést 5. febrúar
sl. Hún fæddist að Tungu í Örlygs-
höfn 22. september 1904. Foreldrar
hennar voru Jón Einarsson og Ing-
veldur Jónsdóttir. Eftirlifandi eigin-
maður Jónfríðar er Konráð
Júlíusson. Þeim hjónum varð ekki
barna auðið. Útför Jónfríðar verður
gerð frá kapellunni við Hafnarfjarð-
arkirkjugarð í dag kl. 13.30.
Jón I. Jónsson lést 5. febrúar sl.
Hann fæddist að Hafnarhólmi 12.
janúar 1917. Foreldrar hans voru Jón
Konráðsson og Guðbjörg Gestsdóttir.
Jón lærði múraraiðn við Iðnskólann
í Reykjavík og lauk þaðan sveins-
prófi árið 1955. Við iðn sína starfaði
hann allt til haustsins 1981 er hann
varð að láta af störfum vegna heilsu-
brests. Eftirlifandi eiginkona hans
er Helga Charlotte Klitch. Þeim hjón-
um varð fimm barna auðið. Útfór
Jóns verður gerð frá Bústaðakirkju
í dag kl. 13.30.
Sæmundur Dúason lést 4. febrúar
sl. Hann fæddist í Langhúsum í Fljót-
um 10. nóvember 1889. Foreldrar
hans voru Eugenía Jónsdóttir Norð-
mann og Dúi Kristján Grímsson.
Sæmundur lauk námi frá Kennara-
skóla íslands 1934. Hann kenndi fyrst
í Fljótum, síðan í Grimsey og loks á
Siglufirði. Hann kvæntist Guðrúnu
Valdnýju Þorláksdóttur. Þau hjónin
eignuðust sex börn og komust fjögur
til fullorðinsára. Einnig ólu þau upp
tvö fósturböm. Útför Sæmundar
verður gerð frá Akureyrarkirkju í
dag kl. 13.30.
Fundir
Félag áhugamanna um réttar-
sögu
Mánudaginn 15. febrúar nk. kl. 20.30
verður haldinn fræðafundur á vegum
Félags áhugamanna um réttarsögu.
Fundurinn verður haldinn í Lögbergi,
húsi lagadeildar Háskóla íslands, stofu
103. Á fundinum mun Inga Huld Hákon-
ardóttir, blaðamaður og rithöfundur,
flytja erindi sem hún nefnir Uppruna
stóra-dóms. Að loknu erindinu verður
- gert stutt kaífihlé og síðan verða almenn-
ar umræður um efni erindisins. Félags-
„Það er rosalegur hugur í fólki, rosa-
leg harka. Menn eru komnir á
suðumark,“ sagði Guðmundur J.
Guðmundsson, formaður Verka-
mannafélagsins Dagsbrúnar, í
samtali við DV, en á íjölmennum
fundi Dagsbrúnar í gær var sam-
þykkt tillaga um aö veita stjóm og
trúnaðarmannaráði félagsins heim-
ild til verkfallsboðunar. Var tillaga
þess efnis samþykkt með nær öllum
atkvæðum gegn tveimur. Fundurinn
var haldinn í Austurbæjarbíói og var
húsfyllir og taldi Guðmundur að þar
hefðu verið um 800 manns.
„Því var lýst yfir þama að menn
myndu hyggja að veðri og veðurút-
hti áður en verðfall yrði boðaö en það
verður ekki setið í marga daga áður
en verkfallsvopninu verður beitt,"
sagði Guðmundur.
„Ef einhver sýnilegur árangur
verður af viðræðunum munum við
halda áfram en ef árengurinn verður
lítill er stutt í að verkfallsvopninu
verði beitt,“ sagði Guðmundur.
menn og aðrir áhugamenn eru hvattir til
að mæta á fundinn. Fundurinn er öllum
opinn.
Tilkyrtningar
Félag Eskfirðinga
og Reyðfirðinga
heldur þorrablót í Goðheimum, Sigtúni
3, í kvöld, 12. febrúar, og hefst það með
borðhaldi kl. 20. Húsið opnað kl. 19.30.
Neskirkja -félagstarf
aldraðra
Samverustund á morgun, laugardag, kl.
15 í safnaðarheimili kirkjunnar. Spilað
verður bingó.
Bókmenntakynning á
Kjarvalsstöðum
í úlefni af sýningunni Sjálfsmyndir efna
Kjarvalsstaðir til bókmenntakynningar á
sjálfsævisögum íslenskra rithöfunda. Þar
verður lesið úr verkum Þórbergs Þórðar-
sonar, Halldórs Laxness og Sigurðar Á.
Magnússonar, auk þess sem rithöfund-
amir Ami Bergmarm og Pétur Gunnars-
Á fundinum var kjarabaráttunni
undanfarið lýst og farið í gegnum
kröfur Verkamannasambandsins Uð
fyrir lið og síðan var lögð fram tillaga
um heimild fil verkfallsboðunar.
sön koma og lesa úr verkum sínum.
Dagskráin hefst kl. 15 laugardaginn 13.
febrúar að Kjarvalsstöðum.
Tónleikar
Tónleikar í Hallgrímskirkju
Á morgun, laugardag 6. febr. kl. 14, verða
haldnir tónleikar í Hallgrimskirkju þar
sem fluttir verða tveir konsertar eftir
Vivaldi fyrir tvö óbó, tvær klarínettur,
'strengi og sembal. Hvorugur þessara
konserta hefur áður verið fluttur opin-
beriega á tónleikum hér á landi.
Námskeið
Reykjavíkurdeild RKIjheldur námskeið í
skyndihjálp. Það hefst þriðjudaginn 16.
feb. að Ármúla 34 (Múlabæ) kl. 20 og
stendur yfir 5 kvöld. Skráning í síma
28222. Námskeiðsgjald er kr. 1000. Leið-
beinandi verður Guðlaugur Leósson.
Öllum er heimil þátttaka. Á námskeiðinu
verðrn- leitast við að veita sem almenn-
Guömundur sagði að það hefði verið
mikil stemning á fundinum og hugur
í fólki.
„Það var gifurleg harka í mönnum
og á þessum fundi var mikið af ungu
asta þekkingu um skyndihjálp. M.a.
verða kennd viðbrögð við öndunarstoppi,
beinbrotum, bruna og sýnd myndbönd
um ýmsa þætti skyndihjálpar. Nú er gott
tækifæri fyrir fólk til að læra fyrstu við-
brögð við slysum eða endurbæta fyrri
þekkingu. Taliö er nauðsynlegt að fólk
fólki og þó að aðeins séu um hundrað
konur í Dagsbrún þá voru þrjátíu eða
fjörutíu mættar þarna,“ sagði Guð-
fari í gegnum allt námskeiðið á 3 ára
fresti til að halda þekkingunni við en fari
á 2 kvölda upprifjunamámskeið einu
sinni á ári. Boðið verður upp á slik nám-
skeið á næstunni ef þátttaka fæst.
Námskeiðinu lýkur með verkefni sem
hægt er aö fá metið í ýmsum skólum.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug vegna fráfalls og
útfarar
SIGURÐAR STEINARS SIGURÐSSONAR OG
JÓNÍNU GUÐRÚNAR SIGURÐARDÓTTUR
GRUNDARBRAUT 12
ÓLAFSVÍK
Sérstakar þakkir til allra sem veittu okkur aöstoö
vegna minningarathafnar og jarðarfararinnar.
Siguröur Valdimarsson
Guörún Siguröardóttir
Ragnhildur Guömundsdóttir
mundur.
-OJ