Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1988, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1988.
19
Dansstaðir
ABRACADABRA,
Laugavegi 116
Diskótek fostudags- og laugardags-
kvöld.
ÁRTÚN,
Vagnhöfða 11, sími 685090
Gömlu dansamir fóstudagskvöld kl.
21-03. Danssporið ásamt söngvurun-
um Ömu Karls og Grétari. Á laugar-
dagskvöldið nýju og gömlu
dansarnir, hijómsveitin Danssporið
ásamt Ömu Karls og Grétari.
BROADWAY,
Álfabakka 8, Reykjavik, sími 77500
Húsið lokað í kvöld vegna einkasam-
kvæmis. Á laugardagskvöld verður
húsiij opnað kl. 23.45. Hljómsveitin
Verðir laganna leikur fyrir dansi.
CASABLANCA,
Skúlagötu 30
Maggi Scheving, Gústi og Bjöggi
verða með aerobicflipp-show á föstu-
dags- og laugardagskvöld. Diskótek.
DUUS-HÚS,
Fischersundi, sími 14446
Diskótek fóstudags- og laugardags-
kvöld.
EVRÓPA
v/Borgartún
Diskótek föstudagskvöld. Á laugar-
dagskvöld leikur Músikbandið fyrir
dansi.
GLÆSIBÆR,
Álfheimum
Hljómsveitin Hafrót leikur fyrir
dansi á fóstudags- og laugardags-
kvöld. Opið kl. 22.00-03.00.
HOLLYWOOD,
Ármúla 5, Reykjavík
„Týnda kynslóðin" fóstudags- og
laugardagskvöld.
HÓTEL BORG,
Pósthússtræti 10, Reykjavík, sími
11440
Diskótek föstudags- og laugardags-
kvöld.
Hótel Esja, Skálafell,
Suðurlandsbraut 2 Reykjavík, simi
82200
Dansleikir fóstudags- og laugardags-
kvöld. Kaskó leikur. Tískusýningar
öll fimmtudagskvöld.
HÓTEL ÍSLAND
KK-sextett leikur um helgina.
HÓTEL SAGA, SÚLNASAL-
UR,
v/Hagatorg, Reykjavík, sími 20221
Súlpasalur lokaður fóstudagskvöld.
Á Íaugardagskvöld verður sýndur
söngleikurinn „Næturgalinn-ekki
dauður enn“ og byggist á tónhst
Magnúsar Kjartanssonar í gegnum
tíðina.
LEIKHÚSKJALLARINN
Hverfisgötu
Diskótek fóstudags- og laugardags-
kvöld.
LENNON
v/Austurvöll, Reykjavík, sími 11630
Diskótek föstudags- og íaugardags-
kvöld.
LÆKJARTUNGL,
Lækjargötu 2, simi 621625,
Á föstudags- og laugardagskvöld
verður leikin „tónlist Tunglsins". Á
sunnudagskvöld verða jazztónleikar
með jazzkvartettinum „Fars.
ÚTÓPÍA,
Suðurlandbraut,
Diskótek fóstudags- og laugardags-
kvöld.
ÞÓRCAFÉ,
Brautarholti, s. 23333
Þórskabarettinn Svart og hvitt, á tjá
og tundri bæði fóstudags- og laugar-
dagskvöld.Hljómsveitin Burgeisar
leika fyrir dansi að lokinni sýningu
bæði kvöldin.
ÖLVER
Álfheimum 74, s. 686220
Opið frá kl. 18-03 fóstudags- og laug-
ardagskvöld. Tríóið Prógramm spilar
frá kl. 22 fimmtudaga til sunnudaga.
Morð í myrkri frumsýnd á morgun:
Persónumar gjörbreyt-
ast í kvikmyndinni
- segir danski rithöfundurinn Dan Turéll
Bridgehátíð 1988 hefst í kvöld:
Heims- og Evrópumeistarar
og Zia meðal þátttakenda
Það verða margir heimsfrægir
spilarar með Zia Mahmood, Pakist-
an, Evrópumeistara Svía og Alan
Sontag, USA, fyrrum heimsmeist-
ara, fremsta í flokki, sem spila á
Bridgehátíð 1988. Hún hefst í kvöld
að Loftleiðahótelinu kl. 20. Davíð
Oddsson borgarstjóri, snjall
bridgemaður, setur hátíðina. Síðan
hefst tvímenningskeppni. Á sunnu-
dag verður sveitakeppni, Opna
Flugleiðamótið. Nær allir bestu
spilarar íslands eru einnig meðal
þátttakenda víðs vegar að af
landinu - keppendur hátt á þriðja
hundrað.
Erlendu keppendurnir eru 12,
auk Zia og Sontag, þeir Anders
Morath, P.O. Sundelin, Tommy
Gullherg og Hans Göthe, Svíþjóð,
Billy Smith, Billy Cohen, Pam og
Matt Granovetter, Bandaríkjun-
um, Mike Molson og George
Mittelman, Kanada. Hann mun
spila við Zia. Há peningaverðlaun
eru en að hátíðinni standa Bridge-
samband íslands, Bridgefélag
Reykjavíkur og Flugleiðir.
48 pör spila í tvímenningskeppn-
inni sem hefst í kvöld. Hún heldur
svo áfram kl. 10 á laugardag og lýk-
ur kl. 18. Sveitakeppnin hefst kl.
13 á sunnudag með þátttöku 48
Glæsimennið Zia Mahmood,
Pakistan, ferðast um heiminn
og spilar bridge með frábærum
árangri.
sveita. Metþátttaka og keppninni
lýkur á mánudagskvöld. Heldur
áfram kl. 16 á mánudag. Helstu
leikir verða sýndir á sýningartöflu
og sjónvarpsskermi og aðstaða fyr-
ir áhorfendur verður mjög góð.
Agnar Jörgensson verður keppnis-
stjóri, Sigmundur Stefánsson
mótsstjóri og Vigfús Pálsson
reiknimeistari.
-hsím
Danski rithöfundurinn, ljóöskáld-
ið, blaðamaðurinn og skemmti-
krafturinn, svo ekki sé fleira talið,
Dan Turéll, kom til landsins ásamt
eiginkonu sinni, Chili, og dóttur í
vikunni. Tilefni heimsóknarinnar
er sýning á kvikmyndinni Morð í
myrkri sem byggð er á samnefndri
sakamálasögu hans. Regnboginn
mun hefja sýningar á henni á
morgun, laugardag. Ennfremur
mun Turéll sýna á sér fleiri hliðar
meðan á íslandsdvöl hans stendur.
Hann mun ásamt eiginkonunni,
sem er leikkona, verða með kaba-
rettsýningar í dag kl. 13 í Há-
skólabíói og á sunnudagskvöld kl.
20.30 í Norræna húsinu. Þá véröur
Dan Turéll með fyrirlestur á veg-
um Háskóla íslands í Odda kl. 17 í
dag þar sem hann fjallar um ensk-
amerísku glæpasagnahefðina og að
síðustu mun hann segja frá sjálfum
sér og lesa úr bókum sínum í Nor-
ræna húsinu á sunnudag kl. 17.
Sjálfsagt vekur kvikmyndin
Morð í myrki einna mesta athygli
af því sem fyrir augu ber á þessum
Turéll dögum, eins og mætti kalla
þá. Samnefnd skáldsaga hans kom
út í íslenskri þýöingu Jóns Gunn-
arssonar árið 1985 og ætti því aö
vera þeim sem hana hafa lesið enn
í fersku minni. Kvikmyndin hefur
verið sýnd á annars staðar á Norð-
urlönd við fádæma undirtektir
gagnrýnenda sem og áhorfenda.
„Kynæsandi karlmaður í
aðalhlutverkinu“
DV hitti Dan Turéll að máli á
blaðamannafundi sem haldinn var
í vikunni í tilefni heimsóknar hans
þar sem hann var fyrst spurður að
því hversu mikinn þátt hann ætti
í gerð myndarinnar? Hann svaraði
Evrópa:
Músíkbandið skemmtir
„Músíkbandið er sprellijörugt dansband sem var stofnaö fyrir nokkr-
um mánuðum," sagði Þórður Bogason, söngvari hljómsveitarinnar.
Auk -Þórðar eru í hljómsveitinni þeir Einar Jónsson gítarleikari,
Oddur Sigurbjörnsson trommuleikari, Pétur Pétursson á hljómborð
og Kristófer K. á bassa.
„Við komum fram í fyrsta skipti í veitingahúsinu Evrópu á laugar-
dagskvöldið. Það leggst ágætlega i okkur að hefja ferilinn í Evrópu,
þaö er hvort sem er ekki nema fyrir bjartsýnismenn að standa í því
að spila í hljómsveitum;'
- Hvemig tónlist ætlið þið að leika á laugardagirm?
„Við ætlum að spila létta tóniist, tónlist sem aliir geta hafl gaman
af,“ sagöi Þórður að lokum.
því til aö hann hefði ekki komið
nálægt henni nema skrifa söguna
og ætti því engan þátt í kvikmynd-
inni sem slíkri. „Bókin og kvik-
myndin eru tveir ólíkir miðlar sem
ekki er hægt aö bera saman. Á
sama hátt getur bókin verið léleg
en kvikmyndin góð, eða bókin góö
en kvikmyndin slæm.“
- Varstu ánægður með útkomu
myndarinnar og leikaravalið?
„Eins og ég segi er ekki hægt að
bera þessa tvo miöla saman því þær
persónur, sem ég hef skapað og
haft í huga um lengri tíma, gjör-
breytast í höndum kvikmynda-
mannanna. Aö ööru leyti finnst
mér hún falleg og hrífandi." Varð-
andi aðalhlutverk í Morð í myrkri,
sem er í höndum danska rokk-
söngvarans Michael Falch, kvað
hann þaö mikinn kost fyrir mynd-
ina að fá hann í þetta hlutverk þar
sem hann væri mjög sjarmerandi
og kynæsandi karlmaður og hlyti
aö verka þannig á kvenfólkið. Að
þessum oröum sögöum leit hann á
konu sína, Chili, og spurði hana
hvað henni fyndist um Michael í
aðalhlutverkinu? „Það er of per-
sónulegt til þess að ég geti svarað
því,“ svaraði hún um hæl.
Tvær kvikmyndir í deiglunni
Á næstunni stendur fyrir dyrum
að kvikmynda tvær sakamála-
sagna hans til viðbótar og vinna
við aðra þeirra vel á veg komin.
Það verður því að teljast stór hlut-
inn sem Dan Turéll eignast í
danska kvikmyndaheiminum á
næstu árum ef fram heldur sem
horflr. í hlutfalli við íslendinga eru
Danir ekki afkastameiri í þeim efn-
um. Þeir framleiða 12 til 15 stór-
myndir árlega meðan íslendingar
framleiða að meðaltali 3 til 5 mynd-
ir ef undan er skilið síðasta ár. En
þetta er bara brot af skáldskap
Turélls, hann hefur skrifað yfir 70
bækur; ljóð, smásögur og saka-
málasögur, auk fastra dálka í
dagblaðið Politiken, skrifaðsöngva
og samiö útvarps- og sjónvarps-
þætti. Hann verður því að teljast
meö aíkastameiri rithöfundum þar
sem hann er ekki nema 42 ára aö
aldri enda er hann orðinn eins kon-
ar goðsögn í lifanda lífi. Er það
ekki síst síðan frá bítlaárunum þar
sem hann var einn af leiðandi rit-
höfundum þeirrar kynslóöar og
umdeildur mjög. -GK-
Mánaklúbbur:
Tommy Hunt skemmtir
Tommy Hunt er gestum Þórscafé
að góðu kunnur en hann tekur um
þessar mundir þátt í Þórscabarett
sem er verið að sýna þar.
En um helgina mun Tommy einn-
ig skemmta gestum Mánaklúbbs,
bæði föstudags- og laugardags-
kvöld.
Mánaklúbbur er frekar ungur
skemmtistaður en hann er á homi
Nóatúns og Brautarholts, salar-
kynnum staðarins má skipta í
þrennt „A la Carte“ veitingasal þar
sem boðið er upp á sérréttamatseð-
il. Bar með setustofu og danssal
með aðstöðu fyrir um 170 manns.
En þar er flutt lífleg tónlist og þar
er hægt að njóta veitinga í vistlegu
umhverfi.
Tommy Hunt skemmtir í Mána-
klúbb um helgina.
Chili og Dan Turéll slá á létta strengi í Norræna húsinu á sunnudagskvöldið.