Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1988, Qupperneq 6
30
FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1988.
Leikhús - Leikhús - Leikhús - Leikhús - Leikhús - Leikhús - Leikhús -
Ás-leikhúsið
Farðu ekki
Ás-leikhúsið varð til á þann veg
að leikstjóri þessarar sýningar,
Ásdís Skúladóttir, fékk áhuga á að
setja upp þetta leikverk eftir að
hafa kynnst því á leikhstarhátíð í
Osló. I framhaldi af því sótti hún
um styrk til menntamálaráöuneyt-
isins til þess verkefnis og .hlaut
hann.
Hún fékk til liðs við sig Ragn-
heiði Tryggvadóttur, Jakob Þór
Einarsson, Jón Þórisson og Gunnar
Gunnarsson til að standa sameigin-
lega að þessari sýningu án nok-
kurra fyrirséðra launa fyrir vinnu
sína.
Höfundur Farðu ekki, Margaret
Johansen, sem Ás-leikhópurinn
valdi sem sitt fyrsta verkefni, hafði
lagt gjörva hönd á margt áður en
hún sneri sér að ritstörfum fyrir
alvöru. Margaret fæddist árið 1923
en smásagnasafn hennar, Um kon-
ur, kom út 1971. Síðan þessi fyrsta’
bók hennar kom út hefur hún sleg-
ið í gegn og nýjasta bók hennar,
Mánudagsböm, sem kom út 1984,
vakti þjóðarathygU í Noregi.
Farðu ekki er samið upp úr
tveimur skáldsögum Margaretar, í
fyrmefndu bókinni fjallar Margar-
et um karlmanninn í hjónaband-
inu, en í þeirri síðari færir hún
athyglina á konuna. í leiktextanum
leitast hún við að góma bæði kyn-
in, báðar leikpersónurnar í eitt,
stutt leikrit.
Þegar Kvennaathvarflð var
stofnað í Reykjavík fyrir fáeinum
árum varð mörgum á að spyrja tfl
hvers slíkt skjól væri eiginlega og
margir efuðust um að konum og
bömum væri misþyrmt í stórum
stíl á íslenskum heimilum. Fljót-
lega vom menn leiddir í aÚan
sannleika um ofbeldi á heimflum
og þörfina fyrir kvennaathvarf; og
þörfina fyrir að við horfumst í augu
við samfélagsmeinsemd sem hlýtur
að teljast smánarblettur á þjóð-
félagi upplýstra manna.
Höfundur Farðu ekki skrifaði
leikritiö í þeim tilgangi að benda
fólki á að í fæstum tilvika geti kon-
ur, sem misþyrmingum sæta,
„bara farið".
Á sunnudagssýningu Ás-leik-
hússins ætla konur úr Kvennaat-
hvarfmu að koma og eftir
sýninguna verða umræður um
innihald verksins.
Jakob Þór Einarsson í hlutverki Jakobs í sýningu Ás-leikhússins, Farðu
ekki.
Kvikmyndahús - Kvikmyndahús
Stjörnubíó
Nadine er sakamálamynd með
gamansömu ívafi. Hún gerist í Tex-
as og fjallar um unga konu sem
verður vitni að morði og áður en
hún veit af er hún hundelt af
glæpamönnum. Fyrrverandi eigin-
maður hennar reynir að rétta
hjálparhönd en ekki fer betur en
svo að hann er ásamt Nadine grun-
aður um morðið. Jeff Bridges og
Kim Basinger eru í aðalhlutverk-
um. Leiksfjóri er Robert Benton
sem meðal annars á að baki Kra-
mer versus Kramer. Þá er hin
ágæta gamanmynd Roxanne með
Steve Martin einnig sýnd í
Sfjömubíói. Þetta er mynd sem
byggð er á hinu sígilda leikriti Cyr-
ano De Bergerac en snúið upp á
nútímann og gamansemin látin
vera í fyrirrúmi.
Háskólabíó
Kæri sáli (The Coach Trip) er
kostuleg gamanmynd þar sem Dan
Aykroyd fer á kostum í hlutverki
fanga á geðsjúkrahúsi. Hann er
vandræðagripur sem á frekar
heima í fangelsi en geðsjúkrahúsi.
Hann sleppur af hælinu og með
smásvindli fer hann að sfjóma út-
varpsþætti sem hefur það markmið
að aðstoða taugaveiklaða. Kæri sáli
er góð skemmtun og hefur Dan
Aykroyd ekki verið betri og Walter
Matthau stendur vel fyrir sínu sem
fyrri daginn.
Laugarásbíó
Fyrir um það bil tveimur áram leit
dagsins Ijós Creepshow nokkuð góð
hryllingsmynd sem gerö var eftir
smásögum Stephen King. Lék
meira að segja þessi konungur
hryllingssagnanna eitt aðalhlut-
verkið. Leikurinn hefur verið
endurtekinn. Hrollur 2 byggir enn
á smásögum Kings eða hugmynd-
um þótt ekki sé hann nálægur í
þetta skiptið. Þeir fjölmörgu unn-
endur ritverka Kings vita vafalaust
hveiju búast má við. Hugmynda-
leysið hefur aldrei hrjáð þann
mann. Þá má geta þess að hin frá-
bæra sakamálamynd Öll sund
lokuð (No Way Out) býður upp á
allt það sem góð sakamálamynd á
að hafa, spennu, rómantík og
óvæntan endi.
Bíóhöllin
Kvennabósinn (The Woo Woo
Kid) er enn ein bandarísk mynd
um kynþroska ungling sem þráir
að eiga kærustu. Honum verður að
ósk sinni. Gallinn á gjöf Njarðar
er sá að kærastan er nokkra eldri
en hann og tveggja bama móðir.
Regnboginn
Morð í
Af og til slæðast gæðamyndir frá
nágrannalöndum okkar inn fyrir
dyr kvikmyndahúsanna og svo
mun verða á laugardaginn þegar
Regnboginn frumsýnir dönsku
kvikmyndina Morð í myrkri (Mord
i Morket). Meðal viðstaddra verður
danski rithöfundurinn Dan Turéll
en hann er höfundur bókarinnar
sem myndin er gerð eftir.
Morð í myrkri er spennumynd
er sýnir skuggahliðar stórborgar
og gerist myndin meðal gleði-
kvenna og þjófa. Aðalpersónan er
nafnlaus blaðamaður er vinnur á
síðdegisblaöi. Hann er rannsóknar-
myrkri
blaðamaður er fer sínar eigin leiðir.
Þegar myndin byijar hefur hann
fengið nóg af ofbeldi, neitar að fara
að fyrirsögn ritstjóra síns og er
rekinn. Hann fer á heimaslóðir en
flækist fljótlega í hættulega at-
burðarás þegar vinur hans er
myrtur...
Morð í myrkri hefur alls staðar
fengið góða dóma þar sem hún hef-
ur verið sýnd og hefur myndin
verið vinsæl á Norðurlöndum. Að-
alhlutverkið, blaðamanninn, leik-
ur söngvarinn Michael Falch og
þykir hann standa sig með prýði.
-HK
Kvikmyndahús
Aðalhlutverkin leika Patrick
Dempsey og Bevery D’Angelo. Af
öðrumn myndum í Bíóhöllinni má
nefna nýjustu mynd Mel Brooks,
Spaceball, sem ekkert er heilagt.
Hann nær sér ágætlega á strik þótt
hann hafi áður gert betur. Brooks
hefur eins og alltaf ágætt lið leikara
með sér. í fremstu röð í þetta skipti
era John Candy og Rick Moranis.
Bíóborgin
Martin Puzo varð heimsfrægur
þegar hann skrifaöi The Godfather
og enn frægari þegar tvær gæða-
kvikmyndir vora gerðar eftir sögu
hans. Nýjasta skáldsaga hans, Sik-
ileyingurinn, er í óbeinum tengsl-
um við Guðfóðurinn. Corleone
ættin kemur viö sögu en aðalper-
sónan er Salvatore Giuliano, hetja
fólksins á Sikiley, maöur sem felur
sig fyrir yfirvöldum en er dýrkaður
af almenningi. Leikstjóri er Micha-
el Cimano sem á að baki eina
frábæra kvikmynd, Deer Hunter,
og aðrar mun síðri. Ekki hafa dóm-
ar erlendis verið honum vinsam-
legir. Þá hefur Christopher
Lambert, en hann fer með aöal-
hlutverkið, ekki farið varhluta af
lélegri gagnrýni. Þá má benda á
hina ágætu gamanmynd Á vakt-
inni (Stakeout) sem er gamanmynd
er fær alla til að brosa.
Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn - Söfn
Sýningar
Listasafn Háskóla íslands
í Odda, nýja hugvísindahúsinu, er opið
daglega kl. 13.30-17. Þar eru til sýnis 90
verk í eigu safnsins, aðallega eftir yngri
listamenp þjóðarinnar. Aðgangur að
safninu er ókeypis.
Listasafn íslands,
Fríkirkjuvegi 7
Safnið er opið alla daga kl. 11.30-16.30,
nema laugardaga og sunnudaga er opið
til kl. 19. Þar er nú uppi sýningin Aldar-
spegill, íslensk myndlist 1900-1987.
Leiðsögn fer fram í fylgd sérfræðings alla
föstudaga kl. 13.30-13.45. Kaföstofa húss-
ins er opin á sama tíma og safnið.
Mokka,
Skólavörðustíg
Þessa dagana sýnir Ameríkumaðurinn
James Francis Kwiecinski verk sín á
'Mokkakaffi. Sýningin stendur í þrjár vik-
ur.
Myntsafn Seðlabanka og
Þjóðminjasafns,
Einholti 4
Opið á sunnudögum kl. 14-16.
Norræna húsið
í kjallara Norræna hússins er síðasta
sýningarhelgi á málverkum Tuma Magn-
ússonar. Myndimar eru málaðar á
síðustu 18 mánuðum. Tumi hefur haldið
margar einkasýningar og tekið þátt í
samsýningum á íslandi og erlendis frá
1978. Sýningimni lýkur á sunnudags-
kvöld og er opin daglega kl. 14-19.
í anddyri hússins stendur yfir sýning á
grafikverkum eftir sænska listamanninn
Lennart Iverus. Á sýningunni eru teikn-
ingar og grafik, mestmegnis koparstung-
ur. Sýningin veröur opin daglega fram
til 28. febrúar.
Nýlistasafnið, Vatnsstíg 3
Ingólfur Amarsson sýnir í Nýhstasafn-
inu. Á sýningunni em lágmyndir og
teikningar. Sýningin er opin virka daga
kl. 16-20 og 14-20 um helgar. Sýningunni
lýkur 14. febrúar.
Stofnun Árna Magnússonar
Handritasýning Áma Magnússonar er í
Ámagarði við Suðurgötu á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugardögumkl. 14-16
Sjóminjasafn íslands,
Vesturgötu 8, Hafnarfirði
Opnimartími í vetur er laugardaga og
sunnudaga kl. 14-18. Skólafólk og hópar
geta pantaö tíma í síma 52502 alla daga
vikunnar.
Póst- og símaminjasafnið,
Austurgötu 11
Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl.
15-18. Aðgangur ókeypis.
Þjóðminjasafn íslands
Nýlega var opnuð sýning í forsal Þjóð-
minjasafns fslands á ýmsum mimum sem
fúndust við fomleifarannsóknir á Bessa-
stöðum á sl. ári. Safnið er opið þriðju-
daga, fimmtudaga, laugardaga og
sunnudaga kl. 13.30-16.
Sýning í Náttúrufræðistofu
Kópavogs
Nú hefur enn einu sinni verið opnuð sýn-
ing NFSK. í þetta skipti hefur hið fjöl-
breytta lífríki Kársnesfjöru orðið fyrir
valinu. Er reynt að gefa sem gleggsta
mynd af einni gróskumestu Qöru á höfuð-
borgarsvæðinu. Þá verða sýndar allar
tegundir andfugla sem finnast hér á
landi, auk þess eitt fullkomnasta lindýra-
safn (skeldýr) á íslandi o.fl. Opnunartími
kl. 13.30-16.30 á laugardögum, annar tími
eftir samkomulagi ef um skóla eða aðra
hópa er að ræða. Símar 40680 eða 40241.
Daði Guðbjörnsson sýnir hjá
Félagi
starfsfólks í húsgagnaiðnaði
í húsakynnum Félags starfsfólks í hús-
gagnaiðnaði, Suðurlandsbraut 30,2. hæð,
stendur nú yfir málverksýning Daða
Guðbjömssonar. Á sýningunni em 17
verk, unnin á síðustu þremur árum. Sýn-
ingin er opin alla virka daga kl. 10-17 en
laugardaga og sunnudaga kl. 15-17.
Henni lýkur sunnudaginn 14. febrúar.
AKUREYRI
Gallerí Glugginn,
Glerórgötu 34, Akureyri
Á morgun kl. 14 opnar Bjöm Bimir mál-
verkasýningu í Glugganum. Bjöm hefur
haldið sýningar hér heima og erlendis.
Sýningin stendur til sunnudagsins 21.
febrúar og er opin daglega kl. 14-18 en
lokað á mánudögum.
ÍSAFJÖRÐUR
Slunkaríki,
ísafirði,
Birgir Ándrésson sýnir myndverk sín í'
Slunkaríki. Sýningin er opin á auglýstum
opnunartíma sýningarsalarins. Birgir
hefur haldið fjölmargar einkasýningar
hér heima og erlendis og einnig tekiö
þátt í samsýningum.
Málverkasýning í Bókasafni
Kópavogs
Þórhallur Fihppusson sýnir málverk í
Bókasafni Kópavogs. Sýningin er opin
mánudaga til föstudaga kl. 9-21 og laug-
ardaga kl. 11-14. Sýningin stendur til 16.
febrúar.