Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1988, Page 3
MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 1988.
3
Fréttir
Króflugos í uppsiglingu?
Landns nu meira en
fyrir síðasta gos
Skyldutrygging bifreiða:
Hækkunin
á Akureyri
nemur allt
að 182%
-hveigi hærri á landinu
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Hækkun skyldutrygginga bifreiða
með A-númer er sú langmesta á
landinu og kemur það til af því að
bifreiðar með A-númer færast af
áhættusvæði 2 á áhættusvæði 1, og
tryggingin hækkar við það eitt um
8.000 krónur," segir Sigurður Harð-
arson, fulltrúi hjá Brunabótafélagi
íslands á Akureyri.
Grunnhækkun trygginganna fyrir
landiö allt er 60% en fyrir bifreiöar
með A-númer nemur hækkunin
108-156% og er þá einungis átt við
nettóiögjöld. Að auki kemur hækkun
á ökumanns- og farþegatryggingu úr
120 krónum í 3.200 krónur. Sú trygg-
ing, sem áður náði aðeins til dánar-
og örorkubóta, er nú mun víðtækari
og getur t.d. bætt atvinnutap.
Sigurður Harðarson sagði að trygg-
ing á smábíl með A-númeri, t.d. Colt,
hækkaði úr 9.651 kr. í 23.101 krónu
ef miðað væri við 50% bónus. Hækk-
un á iðgjaldi jeppabifreiðar með
A-númeri, miðað við sama bónus,
nemur hins vegar 182% og verður
30.227 kr. í stað 10.718 kr.
• „Ég held að það verði erfitt fyrir
marga að standa í skilum með þetta,
það liggur á borðinu. Ég vona að
menn dragi það ekki að koma til
tryggingafélaganna og semja um
ákveðið greiðsluplan og geymi það
ekki fram á sumarið, þegar kemur
að skoðun, að gera þaö. Tryggingafé-
lögin hljóta að gera sér grein fyrir
því að menn henda ekki þessum upp-
hæðum á borðið í einu lagi,“ sagði
Sigurður.
Akureyri:
Gott ástand
í umferðinni
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Við erum mjög ánægðir með
ástand mála í umferðinni, menn eru
nær undantekningarlaust með bíl-
beltin spennt og ljósin kveikt,“ sagði
Matthías Einarsson, varðstjóri hjá
Akureyrarlögreglunni, í samtali viö
DV í gær.
Matthías sagði að lögreglumenn
hefðu verið mikið á ferðinni og strax
í gærmorgun fylgdust þeir meö um-
ferð á fjölfórnum gatnamótum.
„Reyndar kemur okkur ekki á óvart
að ástandið skúli vera svona gott, við
gerðum könnun á þessum hlutum í
umferðinni á dögunum og menn
voru þá mjög almennt með spennt
belti og ökuljósin á.“
Matthías sagði að ákveðið hefði
verið að taka mjúkum höndum á því
fyrstu dagana þótt menn gleymdu sér
og færu ekki eftir þessum tveimur
ákvæðum í nýju umferðarlögunum,
enda væri lögreglan ekki búin að fá
nýjar sektabækur .ennþá.
Efnahagsaðgerðimar:
Jóhanna mótmætti
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra lét bóka mótmæli sín
gegn efnahagsaðgerðum ríkisstjórn-
arinnar á ríkisstjórnarfundi í fyrra-
morgun.
Mótmæli Jóhönnu voru þríþætt.
Hún mótmælti því að lögfestingu á
frumvarpi um breytta verkaskipt-
ingu ríkis og sveitarfélaga væri
frestaö, aö framlag til Byggingar-
sjóös ríkisins væri skert um 100
milljónir og ennfremur mótmælti
hún skerðingu á framlagi til jöfnun-
arsjóðs sveitarfélaga um 260 milljón-
ir króna. -ój
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Ég held að þaö sé enn ekki neinn
uggur í fólki en menn fylgjast auð-
vitaö vel með framvindu mála,“
sagði Jón Pétur Líndal, sveitar-
stjóri Skútustaðahrepps, er DV
ræddi við hann um ástandið á
Kröflusvæðinu.
Landris á svæöinu er nú þaö
mesta sem orðið hefur í mörg ár,
talsvert meira en þaö varö þegar
síöast varð gos, síðla árs 1984. Jarð-
skjálftar mælast á hverjum degi en
Jón Pétur sagði að þótt þeir væru
2-3 stig þá væri landiö þannig að
þeirra yrði lítið vart nema rétt yfir
upptökunum.
„Við erum ekki með neinn sér-
stakan viðbúnað hér,“ sagði Jón
Pétur. „Viö fylgjumst með mælum
og viðvörunarkerfi sem hér er var
prófað í byrjun febrúar og reyndist
þá í góöu lagi. Ég reikna þó með
að við höldum fund meö almanna-
varnanefnd nú i vikunni, svona til
þess að fara yfir hlutina.“
1\a'daJ.„oia\ds
Frvmili
GJALDDAGI
.FYRIRSKIL .
A STAÐGREBSLUFE
Launagreiðendum ber að
skila afdreginni staðgreiðslu
af launum og reiknuðu endur-
gjaldi mánaðarlega. Ekki
skiptir máli í þessu sambandi
hversu oft í mánuði laun eru
greidd'né hvort þau eru greidd
fyrirfram eða eftir á.
Gjalddagi skila er 1.
Með greiðslu skal fylgja grein-
argerð á sérstöku eyðublaði
„skilagrein". Skilagrein berað
skila, þó svo að engin stað-
greiðsla hafi verið dregin af í
mánuðinum.
Allar fjárhæðir skulu
vera í heilum krónum.
Allir launagreiðendur og sjálf-
stæðir rekstraraðilar eiga að
hafa fengið eyðublöð fyrir
skilagrein send. Þeir sem ein-
hverra hluta vegna hafa ekki
fengið þau snúi sér til skatt-
stjóra, ríkisskattstjóra, gjald-
heimtna eða innheimtumanna
ríkissjóðs.
hvers mánaðar en eindagi
Þann 15 -Geríð skil tímanlega
og forðist öríröð síðustu dagana.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI