Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1988, Blaðsíða 35
MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 1988.
35
Fólk í fréttum
Guðjón Baldvin Olafsson
Guðjón Baldvin Ólafsson, for-
stjóri Sambands íslenskra sam-
vinnufélaga, hefur verið í fréttum
DV vegna brottvikningar Eysteins
Helgasonar úr frámkvæmdastj óra-
stöðu Iceland Seafood Corporation.
Guðjón er fæddur 18. nóvember
1935 í Hnífsdal og ólst þar upp.
Hann lauk landsprófi frá Gagn-
fræðaskólanum á ísafirði og var í
framhaldsdeild á menntaskólastigi
við Gagnfræðaskólann á ísafirði.
Guðjón var í Samvinnuskólanum
1952-1954 og lauk Samvinnuskóla-
próíi 1954. Hann hóf störf í hagdeild
Sambands íslenskra samvinnufé-
laga 10. maí 1954 og vann hjá
Iceland Products í Bandaríkjunum
frá 1955, í nokkur ár. Guðjón vann
hjá útflutningsdeild SÍS í Rvík
þangað til hann varð fram-
kvæmdastjóri skrifstofu SÍS í
London, 1964-1968. Hann var fram-
kvæmdastjóri sjávarafurðadeildar
SÍS1968-1975 og framkvæmdastjóri
Iceland Seafood Corporation í
Bandaríkjunum 1975-1986. Guðjón
hefur verið forstjóri SÍS frá 1. sept-
ember 1986. Guðjón kvæntist 25.
júlí 1959 Guðlaugu Brynju Guð-
jónsdóttur, f. 23. febrúar 1935,
íþrótta- og teiknikennara. Foreldr-
ar Guðlaugar eru Guðjón E.
Jónsson, sem er látinn, bankafull-
trúi í Rvík, og kona hans, Jensína
Sigurveig Jóhannsdóttir. Börn
Guðjóns og Guðlaugar eru Guðjón
Jens, f. 23. nóvember 1960, mennt-
aður í viðskiptafræðum í Banda-
ríkjunum, starfar hjá Iceland
Seafood í Bandaríkjunum; Bryndís,
f. 18. júlí 1963, hjúkrunarfræðingur
í Rvík; Brynja, f. 11. apríl 1965, há-
skólanemi í Bandaríkjunum; Ása
Björk, f. 17. september 1967, há-
skólanemi í Bandaríkjunum; og
Ólafur Kjartan, f. 3. október 1973,
nemi.
Systir Guðjóns er Ásgerður, f. 12.
febrúar 1950, umferliskennari, gift
Sigurði Rúnari Jónssyni, hljómlist-
armanni í Rvík.
Foreldrar Guðjóns eru Ólafur
Kjartan Guðjónsson, verslunar-
maður á Akranési, og kona hans,
Filippía Jónsdóttir. Faðir Ólafs var
Guðjón, sjómaður í Hnífsdal, Ólafs-
son, b. á Fæti, bróður Rannveigar,
langömmu Valdimars, fóður Om-
ars varafréttastjóra. Ólafur var
sonur Sigurðar, b. á Strandseljum,
Þorsteinssonar, b. í Ögri, Sigurðs-
sonar, b. í Ögri, Ólafssonar, lög-
sagnara á Eyri í Seyðisfirði,
Jónssonar. Meöal systkina Sigurð-
ar í Ögri var Ingibjörg, amma Jóns
forseta og langamma Jóns, afa Jó-
hannesar Nordals. Meðal afkom-
enda Ólafs á Eyri eru Matthías Á.
Mathiesen ráðherra, Guðmundur
J. Guömundsson, formaður Dags-
brúnar, Haraldur Blöndal lögfræð-
ingur, Styrmir Gunnarsson
ritstjóri, Geir Hallgrímsson og Val-
ur Arnþórsson, stjórnarformaður
SÍS.
Móðir Ólafs var Ásgerður, systir
Jensínu, ömmu Páls Þorsteinsson-
ar og Kristínar Bjargar Þorsteins-
dóttur, dagskrárgerðarmanna.
Ásgerður var dóttir Jens, b. í Arn-
ardal, bróður Halldórs, langafa
Jóns Sigurðssonar viðskiptaráð-
herra. Systir Jens var Sigríður,
amma Jakobs Björnssonar orku-
málastjóra. Jens var sonur Jóns,
b. í Fremri-Arnardal, Halldórsson-
ar, b. í Fremri-Arnardal, Ásgríms-
sonar, b. í Fremri-Arnardal,
Bárðarsonar, b. í Arnardal, Illuga-
sonar, ættfóður Arnardalsættar-
innar.
Móðir Guðjóns, Filippía, er systir
Jóns, afa fréttamannanna Jóns
Baldvins og Atla Rúnars Halldórs-
sona. Faðir Filippíu var Jón
Baldvin, b. á Jarðbrú í Svarfaðar-
dal, Hallgrímsson, b. á Stóru-
Hámundarstöðum, bróður Þorláks,
langafa Björns Th. Björnssonar
listfræðings. Faðir Hallgríms var
Hallgrímur, b. á Stóru-Hámundar-
stöðum, Þorláksson, b. og
dannebrogsmanns á Skriðu í Hörg-
árdal, Hallgrímssonar, bróður
Gunnars, afa Tryggva Gunnars-
sonar bankastjóra og Kristjönu,
móður Hannesar Hafstein ráð-
herra. Móðir Þorláks var Halldóra
Þorláksdóttir, af Ásgeirsbrekku-
ættinni, systir Ásgríms, langafa
Áslaugar, langömmu Friðriks
Sóphussonar ráöherra. Móðir
Filippíu var Þóra, systir Jórunnar,
ömmu Hafliða Hallgrímssonar
sellóleikara, og Tryggva, afa Þór-
unnar Ashkenazy. Þóra var dóttir
Jóhanns, b. á Ytrahvarfi í Svarfað-
ardal, Jónssonar, b. á Ytrahvarfi,
Þórðarsonar, bróður Páls, langafa
Guðjón Baldvin Ólafsson.
Hermanns Jónassonar forsætis-
ráðherra, fööur Steingríms utan-
ríkisráöherra. Móðir þeirra
bræðra var Sigríöur, systir Jó-
hönnu, langömmu bræðranna
Hallgríms, fyrsta forstjóra SÍS; Sig-
urðar, forstjóra SÍS; Jakobs
fræðslumálastjóra; og Aðalsteins,
forstjóra innflutningsdeildar SÍS,
afa Árna Árnasonar, fyrrv. fram-
kvæmdastjóra Verslunarráðs.
Afmæli
Eylerf Jonsdottir
Eyleif Jónsdóttir, Breiðabliki, Mýr-
argötu 18, Neskaupstað, er áttræð
í dag. Eyleif fæddist að Horni í
Nesjum í Austur-Skaftafellssýslu.
Foreldrar hennar voru hjónin Guð-
björg Lússía Þorsteinsdóttir og Jón
Eyjólfsson, b. að Horni í Nesjum.
Móðurforeldar Eyleifar voru
Halldóra Jónsdóttir frá Hvalnesi
og Þorsteinn Þorsteinsson frá Upp-
sölum í Suðursveit. Föðurforeldrar
Eyleifar voru Guðleif Stefánsdóttir
frá Hvalnesi og Eyjólfur Jónsson
frá Eystri-Skógum undir EyjaQöll-
um, sem síðar flutti að Horni.
Maður Eyleifar var Gísli Berg-
sveinsson útgerðarmaður, f. 11.6.
1894, d. 20.3. 1971, sonur hjónanna
Sigríðar Gísladóttur og Bergsveins
Ásmundssonar frá Rima í Mjóa-
firði.
Gísli átti þrjú systkini sem öll eru
látin. Þau voru: Sigurbergur, sem
bjó í Neskaupstað og var ókvænt-
ur, og Halldóra og Sólveig sem
giftar voru bræðrunum Ólafi og
Þórarni Ástráði Sæmundssonum,
en þau voru búsett í Reykjavík.
Börn Eyleifar og Gísla eru: Ólöf
Sigríður, f. 1927, gift Gunnari Guð-
mundssyni húsverði, en þau eru
búsett í Reykjavík og eiga ijögur
börn; Jóna Guðbjörg, f. 1932, gift
ívari Hannessyni aðstoðaryfirlög-
regluþjóni, en þau eru búsett í
Reykjavík og eiga þrjú börn; Berg-
sveina Halldóra, f. 1935, gift Geir
Sigurjónssyni framkvæmdastjóra,
en þau eru búsett í Hafnarfirði og
eiga eitt barn; Gísli Sigurbergur
hafnarvörður, f. 1939, er kvæntur
Guðrúnu Jóhannsdóttur, en þau
búa í Neskaupstað og eiga fimm
börn; og Sólveig Sigurjóna, f. 1945,
er gift Hermanni Skúlasyni skip-
stjóra, en þau eru búsett á ísafirði
og eiga fimm börn. Afkomendur
Eyleifar og Gísla eru nú orðnir
flörutíu talsins.
Eyleif var næstelst sex systkina.
Systkini hennar: Hafsteinn var
ókvæntur og bjó á Hornafirði en
hann er látinn; Óli Sigurður, skip-
stjóri, er kvæntur Guðlaugu
Marteinsdóttur, en þau búa í
Garðabæ; Nanna Halldóra er bú-
Eyleif Jónsdóttir.
sett á Höfn, gift Stefáni Þorsteins-
syni; Ingibjörg er ókvænt og búsett
í Dalasýslu; og Guðni er sjómaður,
ókvæntur, búsettur á Höfn.
Eýleif stjórnaði lengst af mann-
mörgu heimili en oft var á heimil-
inu aðkomufólk og einnig skyldfólk
þeirra hjóna. Hún býr nú í ibúð
fyrir aldraða í Breiðabliki í Nes-
kaupstað.
Aðalsteinn Gunnarsson
Aðalsteinn Gunnarsson vélvirki,
Brekkugötu 20, Þingeyri, er sextug-
ur í dag. Aðalsteinn fæddist að
Hofi í Dýrafirði og ólst þar upp hjá
foreldrum sínum til átján ára ald-
urs en þá fór hann til Þingeyrar
og starfaði þar, fyrst viö almenna
verkamannavinnu en hóf síðan
nám í vélvirkjun 1946 hjá Guð-
mundi J. Sigurðssyni. Aðalsteinn
tók sveinspróf 1951 og öðlaðist
meistararéttindi í vélvirkjun 1953
og hefur síðan starfað við þá iðn.
Hann starfaði lengi hjá Vélsmiðju
Guðmundar J. Sigurðssonar en
hefur nú í rúm tíu ár veriö verk-
stjóri hjá viðgerðaþjónustu Kaup-
félags Bíldudals á Þingeyri.
Kona Aðalsteins er Guðlaug, f.
14.8.1938, dóttir Vagns Þorleifsson-
ar, sem nú er látinn en var lengi b.
á Álftamýri í Arnarfirði, og konu
hans, Sólveigar, sem einnig er lát-
in.
Aðalsteinn og Guðlaug eiga sex
börn. Þau eru Gunnar Vagn, starfs-
maður hjá viðgerðaþjónustu
Kaupfélags Bíldudals, kvæntur
Hrönn Magnúsdóttur húsmóður og
verkakonu; Sólveig, hjúkrunar-
fræðingur í Reykjavík, sambýlis-
maður hennar er Bjarni
Jóhannsson, vaktmaður í Alþingis-
húsinu; Hlynur, verkstjóri hjá
frystihúsinu á Þingeyri, kvæntur
Gróu Björnsdóttur húsmóður;
Brynjar Geir, bifvélavirki á Dalvík,
sambýliskona hans er Guðrún
Tómasdóttir húsmóðir; Aðalsteinn
Guðlaugur, verkamaður í Reykja-
vík; og ísleifur Bernhard, verka-
maður í frystihúsinu á Þingeyri,
sambýliskona hans er María Vals-
dóttir.
Foreldrar Aöalsteins: Gunnar
Guðmundsson, b. á Hofi í Kirkju-
bólsdal í Dýrafirði, f. 30.5. .1898, og
kona hans, Guðmunda Jónsdóttir,
f. 19.10.1905. Föðurforeldrar Aðal-
steins voru hin kunna refaskytta,
Guðmundur Einarsson, b. á
Brekku á Ingjaldssandi, og Katrín
Gunnarsdóttir. Foreldrar Guð-
mundar voru Einar Guðmundsson,
b. á Háhóli og Heggsstöðum í Anda-
kíl, og Steinþóra, dóttir Einars
Kortssonar á Tjarnarhúsum á Sel-
tjarnarnesi og Guðrúnar Gísladótt-
ur, b. á Seljalandi í Fljótshverfi,
Jónssonar og konu hans, Sigríðar
Lýðsdóttur, sýslumanns í Vík,
Guðmundssonar. Foreldrar Einars
á Heggsstöðum voru Guðmundur
Ólafsson Vestmann og Helga, dóttir
Horna-Salómons Bjarnasonar, b. í
Hólakoti í Álftaneshreppi, langafa
Kristjönu, móður Ingibjargar Þor-
bergs, og langafa þeirra bræðra
Helga Hjörvar rithöfundar; Gunn-
ars, Úrsus, aflraunamanns; Lárus-
ar lögregluþjóns; Péturs
Hoffmanns; og Haralds, fóður Auð-
ar rithöfundar. Móðurforeldrar
Aðalsteins voru Jón Guðmunds-
son, smiður og' b. á Kirkjubóli í
Valþjófsdal, og kona hans, Marsibil
Guðbjörg Kristjánsdóttir.
Vinsamlegast hafið samband við ættfræðideild DV í síma 2 70 22
Valgerður
Kristjánsdóttir
Valgerður Kristjánsdóttir,
Kleppsvegi 74, Reykjavík, er sjötug
í dag. Valgerður fæddist á bænum
Skoruvík á Langanesi en hún var
ein af fjórtán börnum hjónanna
Kristjáns Þorlákssonar og Krist-
bjargar Maríu Helgadóttur. Kristj-
án var lengi vitavörður á
Langanesi, en hann sá einnig um
veðurathuganir á staðnum fyrir
Veöurstofu íslands. Valgerður var
í foreldrahúsum fram yfir ferm-
ingu en fór þá í vist til eins bræðra
sinna og starfaði síðan við húshjálp
næstu árin. Síöar var hún svo við
síldarvinnslu á Siglufirði og Nes-
kaupstað. Hún var í vinnu-
mennsku til þrítugs, en stofnaöi þá
heimili með Sveini Guðmundssyni
úr Reykjavík, og eignuðust þau
saman íjögur börn. Þau eru: Krist-
björg Júlía, f. 4.10.1950; Guðmund-
ur Rúnar, f. 14.4. 1952; Kristján
Helgi, f. 18.2. 1958, en hann lést í
umferðarslysi 1981; og María, f.
Valgerður Kristjánsdóttir
22.9. 1959.
Valgerður verður á heimili dótt-
ur sinnar á afmælisdaginn, að
Jórufelli 6, Reykjavík, en þar mun
hún taka á móti gestum.
75 ára__________________________
Anna María Þorleifsdóttir, Fálka-
götu 17, Reykjavík, er sjötíu og
fimm ára í dag.
Sigurður Kristjánsson, Hrauni,
Akureyri, er sjötíu og fimm ára í
dag.
70 ára
Jóna Kristín Eiríksdóttir, Laugar-
nesvegi 116, Reykjavík, er sjötug í
dag.
Ásgeir H. Grímsson, Vatnsmýrar-
vegi 30, Reykjavík, er sjötugur í
dag.
Sigrún Ingólfsdóttir, Ásabraut 7,
Keflavík, er sjötug í dag.
60 ára
Kristin Ása Ragnarsdóttir, Urðar-
bakka 10, Reykjávík, er sextug í
dag.
Einar M. Jóhannsson, Bleikjukvfsl
18, Reykjavík, er sextugur í dag.
50 ára
Eggert Kristinn Jóhannesson, Ból-
staðarhlíð 48, Reykjavík, er fimm-
tugur í dag.
Guðrún Jóna Sigurjónsdóttir, Álf-
hólsvegi 92, Kópavogi, er fimmtug
í dag.
Elín Gissurardóttir, Nesbala 6, Sel-
tjarnarnesi, er fimmtug í dag.
Fanney Jórunn Óskarsdóttir,
Hringbraut 65, Hafnarfirði, er
fimmtug í dag.
Guðnjundur Wium Hansson,
Engidal 2, Bárðdælahreppi, er
fimmtugur í dag.
Arnþór Pálsson, Grænuási 3, Rauf-
arhöfn, er fimmtugur í dag.
40 ára
Ásta Halldórsdóttir, Bergþórugötu
31, Reykjavík, er fertug í dag.
Birna Edda Guðmundsdóttir, Álf-
heimum 9, Reykjavík, er fertug í
dag.
Ólína Sveinsdóttir, Þinghólsbraut
50, Kópavogi, er fertug í dag.
Matthias Guðmundsson, Norður-
vör 2, Grindavík, er fertugur í dag.
Ragnheiður Guðmundsdóttir, As-
felli II, Innri-Akraneshreppi, er
fertug í dag
Sigursveinn Þorsteinsson, Hrann-
arbyggð 3, Ólafsfirði, er fertugur í
dag.
Magnús Sveinsson, Fjólugötu 9,
Vestmannaeyjum, er fertugur í
dag.