Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1988, Qupperneq 4
4
MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 1988.
Fréttir
Ahrif reglugerðar um fasteignamiðlun:
Olöglegum fasteignasölum
lokað um næstu manaðamot
Búist við að þeim fækki um allt að helming
Um næstu mánaöamót má búast
viö að reglugerðar um fasteignasölur
fari að hafa áhrif. Þá er gert ráð fyr-
ir að samningur dómsmálaráöuneyt-
isins og Félags fasteignasala um
ábyrgðasjóð félagsins verði frágeng-
inn. Að því loknu mun ráðunetið
heíja aðgerðir til þess að loka þeim
fasteignasölum sem ekki eru í félag-
inu eða uppfylla ekki skilyrði reglu-
gerðarinnar. Það má búast við því
aö fasteignasölum, fækki um helming
við þessar aðgeröir.
Frá því reglugerðin var sett hafa
fjölmargir fasteignasalar sótt um
inngöngu í Félag fasteignasala og eru
þeir nú orðnir um 40 talsins. Aðeins
einum fasteignasala hefur verið
meinuð aöild að félaginu, þar sem
hann haföi ekki starfsstöð þar sem
salan fór fram, en það er eitt ákvæði
reglugerðarinnar. Ráðuneytið hefur
enn ekki samþykkt ábyrgðarsjóð fé-
lagsins sem fullgildan sem sjálf-
skuldarábyrgðartryggingu fyrir
félagsmenn, en samkvæmt reglu-
gerðin ber fasteignasölum að hafa
slíka tryggingu að upphæð 3 milljón-
ir króna. Ábyrgðartryggingin sjálf,
að upphæð 7 milljónir króna, er einn-
ig ófrágengin, en Félag fasteignasala
hyggst sjálft selja félagsmönnum sín-
um hana. Samkvæmt upplýsingum
Jóns Thors, skrifstofustjóra dóms-
málaráðuneytisins, og Þórólfi Hall-
dórssyni, formanns Félags fasteigna-
sala, er búist viö því að gengið verði
frá þessum málum fyrir lok þessa
mánaðar.
Ákvörðunum um ábyrgðasjóðinn
var frestað á fundi Félags fasteigna-
sala fyrir helgi. Að sögn fasteignasala
sem DV ræddi við má búast við ein-
hverjum andmælum við aðild
tveggja eða þriggja félagsmanna að
ábyrgðasjóðnum. Hann taldi að í
reynslunnar vildu aðrir tæpast deila
ábyrgð með þessum aðilum.
Einungis tvær fasteignasölur utan
Félags fasteignasala hafa uppfyllt
skilyrði reglugerðarinnar og fengið
löggiltingu ráðuneytisins. Það er
Fasteignasala Árna Gunnlaugssonar
og Skipasala LÍÚ. Fáeinar aðrar fast-
eignasölur hafa lagt inn umsókn hjá
ráðuneytinu en ekki fengið sam-
þykki enn. Ef fer sem horfir má því
búast við að einungis helmingur af
fasteigiiasölunum verði löglegar í lok
þessa mánaðar.
Meðal stórra fasteignasala sem
ekki eru í Félagi fasteignasala og
ekki hafa fengið samþykki ráðuneyt-
isins má nefna; Almennu fasteigna-
söluna, Eignamarkaðinn, Fasteigna-
söluna Garð og Fasteignasölu
Sverris Kristjánssonar. Mikill íjöldi
minni fasteignasala hefur sömuleiðis
ekki fengið samþykki og má búast
við að þeim verði lokað af ráðuneyt-
inu um og upp úr næstu mánaðamót-
um.
í kjölfar reglugerðarinnar ákvað
dómsmálaráðuneytið aö standa fyrir
námskeiði fyrir þá sem höfðu hug á
að öðlast réttindi sem löggiltir fast-
eignasalar. Á íjórða tug manna sóttu
námskeiðið. Stór hluti þeirra hefur
starfað á fasteignasölum áður. Marg-
ir þeirra reka fasteignasölurnar í
skjóli lög- eða viðskiptafræðinga sem
ekki hafá aðstöðu fasteignasölunni.
Þeir munu ekki ljúka námi fyrr en
um vorið 1989.
-gse
Atriði úr leikritinu Hjálparsveitin. DV-mynd Snorri
Sprellfjörugur gamanleikur
Snoni Kristleifeson, DV.’Borgaifiröi:
Ungmennafélag Reykdæla frum-
sýndi á laugardagskvöld leikritið
Hjálparsveitina eftir Jón Steinar
Ragnarsson. Hjálparsveitin er sprell-
fiörugur gamanleikur um alvarleg
mál. Það var fyrst sýnt á ísafirði í
tilefni af ári aldraöra 1982.
í leikskrá segir m.a.: „Bjartmar
Hannesson endurbætti, afbakaði og
frumsamdi söngtexta eftir óskum
leikstjóra og á hans ábyrgð og án
mótmæla höfundar leikrits enda án
hans vitundar".
Hulda K. Guðjónsdóttir og Örn
Haröárson týndu til sönglög úr ýms-
um áttum og frumsömdu önnur.
Leikstjóri er Magnús Guðmundsson,
gamalreynd kempa á því sviði. Leik-
persónur eru 19. Ungmennafélag
Reykdæla verður 80 ára á sumardag-
inn fyrsta. Félagið á og rekur
samkomuhúsið Logaland. Leikritið
verður næst sýnt á fóstudagskvöld.
Samningar Verkamannasambandsins:
Ríkisstjómin torveldaði
samninga frekar en hitt
- segir Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ
„Það var samdóma álit samn-
inganefndar Verkamannasam-
bandsins að ekki hefði verið
mögulegt að ná lengra án verkfalla.
Ég er sannfæröur um að þeir hafi
verið þeirrar skoðunar að það hefði
mátt hækka meira. En þeir sitja
ekki einir við samningaborðið og
það var þeirra mat að rétt væri að
staldra við og taka þessari niður-
stöðu.
Ég held að það sé ekki rétt af
minni hálfu aö leggja mat á þessa
samninga vegna þeirra félaga sem
eftir eiga að semja,“ sagði Ásmund-
ur Stefánsson, forseti Alþýðusam-
bands íslands, þegar DV leitaði
álits hans á samningum Verka-
mannasambandsins og stööunni
hjá verkalýðshreyfingunni.
- Nú er þetta í fyrsta sinn um
nokkurn tíma að landssamböndin
semja hvert fyrir sig. Má búast við
að frekari árangur hefði náðst ef
um samflot hefði verið að ræða?
„Það er alltaf erfitt að svara
spurningum sem hafa mörg „ef‘.
Samflot í samningum á síöustu
árum hefur orðið til vegna þess að
megináherslan hefur verið lögð á
sameiginleg mál sem mörg hver
hafa snúið að ríkisvaldinu. Mér
sýnist á öllu að vilji ríkisins til þess
að koma inn í samninga nú hafi
verið fyrir neðan núllpunktinn. Þá
á ég fyrst og fremst við matarskatt-
inn sem hækkaði framfærslubyrð-
ar hinna verst settu langt umfram
aðra. Ég sé ekki betur en ríkið hafi
frekar torveldað samninga en hitt.“
-gse
Sláturtíð hjá SIS
Heimkomu Eysteins Helgasonar
var beðið með mikilli eftirvænt-
ingu. Það er ekki á hveijum degi
sem menn eru reknir úr vinnunni
með slíkum bravör að samanlögð
fiölmiðlapressan bíður í ofvæni og
haldinn er blaðamannafundur fyr-
ir hinn brottrekna. Blaðamanna-
fundurinn gekk út á það að
Eysteinn lýsti því fyrir mönnum
hvemig hann hefði blásaklaus ve-
rið rekinn ur starfi og mun hafa
komið kökkur í hálsinn á áheyr-
endum þegar lýsingin náði hám-
arki óg blaöamenn heyrðu hvað illa
haföi verið farið með Eystein.
í stuttu máli var raunasaga Ey-
steins Helgasonar á þessa leið:
Guðjón vildi reka Geir. Eysteinn
vildi ekki reka Geir. Guðjón sagði
að ef Eysteinn vildi ekki reka Geir
þá mundi Guðjón reka Eystein fyr-
ir að vilja ekki reka Geir. Eysteinn
vildi halda fund með Guðjóni til að
vita af hverju hann ætti að reka
Geir. Guðjón vildi ekki halda fund
með Eysteini. Guðjón vildi ekki
halda fund með stjórninni, enda
þótt stjómin gæti ein rekið Geir.
Og af því að stjórnin gat ein rekið
Geir og Guðjón vildi ekki kalla
saman stjómina gat Eysteinn auð-
vitað ekki rekið Geir vegna þess
að hann hafði ekki umboð til að
reka Geir. Þá rak Guðjón bæði
Eystein og Geir og nú er Eysteinn
kominn heim til að segja frá því
af hverju Guðjón rak bæði Eystein
og Geir. Með öðrum orðum: Ey-
steinn fórnaði sér fyrir Geir og
hann fórnaði sér líka fyrir Iceland
Seafood enda þykir Eysteini vænt
um Iceland Seafood.
Nú gætu menn haldið að Ey-
steinn væri góði strákurinn en
Guðjón vondi strákurinn. En Guð-
jón er líka góður og þykir vænt um
Iceland Seafood. Hann vill hag fyr-
irtækisins sem mestan og Eysteins
líka. Þaö var Bysteini sjálfum að
kenna að hann var rekinn en ekki
Guðjóni. Guöjón var bara að vinna
fyrir kaupinu sínu.
Já, kaupið, vel á minnst. Nú hefur
líka komiö í ljós að milljónirnar,
sem Guðjón fékk í aukasporslu
þegar hann var að vinna Iceland
Seafood allt það gagn sem í hans
valdi stóð, voru milljónir sem hann
hefur unnið til samkvæmt samn-
ingum. Guðjón segir sjálfur svo frá
að eltingaleikurinn viö . þessar
milljónir sé ekki tilgangurinn með
þessum látum öllum. Það er ekki
verið að ræna Guðjón kaupinu. Það
er verið að ræna hann mannorð-
inu.
Af Geir Magnússyni er ekki ann-
að að frétta en að það er búið að
reka hann. Geir hefur ekki haldið
blaðamannafund ennþá eins og nú
tíðkast hjá þeim sem eru reknir en
ef aö líkum lætur er Geir þessi blás-
aklaus eins og hinir enda húinn að
vinna vel og lengi fyrir Iceland
Seafood og er sjálfsagt hinn vænsti
maður úr því að búið er að reka
hann. Segjá má að Sambandið hafi
notið frábærra starfskrafta fyrr og
síðar þar sem allir eru blásaklausir
hugsjónamenn í anda samvinnu-
hreyfingarinnar. Örlög þeirra allra
eru einfaldlega þau að vera svo
góðir í starfinu að ekki er hægt að
una því og þess vegna er tekið upp
á að reka þá úr starfi eða dreifa
um þá gróusögum um launakjör til
að reyta af þeim æruna. Þetta er
illa gert gagnvart heiöarlegum
mönnum sem ekki mega vamm sitt
vita og hafa ekki hugmynd um af
hveiju þeir eru reknir eða af hverju
verið er að tala illa um þá.
Nú væri þetta skiljanlegt ef óvin-
ir þessara valinkunnu sæmdar-
manna heijuðu á þá úr launsátri
til að grafa undan SÍS-veldinu. En
þaö er nú öðru nær. Þeir höggva
hver annan. Þetta er heimatilbúið
vandamál hjá Sambandinu sjálfu
sem virðist haldið einhverri sjálf-
seyðingarhvöt gagnvart stálheiöar-
legum starfsmönnum sínum.
Sláturtíðin hjá SÍS er þess eigin
slátrun og það sama gildir um
mennina sem slátrað er. Ýmist eru
þeir svo góðir starfsmenn að þeir
vita ekki af hveiju þeir eru reknir
eða þá að þeir eru á svo góðum
launum að þeir vita það ekki sjálf-
ir. Og allir mega þeir tapa mann-
orðinu vegna þess að fyrirtækið,
sem þeir vinna hjá, vill ekki að
menn með flekklaust mannorð
starfi þar of lengi. Allir muna jú
eftir Olíufélagshneykslinu og kaffi-
baunamálinu og SÍS hefur ekki efni
á að hafa blásaklausa og valin-
kunna sæmdarmenn í störfum.
Þess vegna eru hirt af þeim bæði
störfin og mannorðin.
Dagfari