Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1988, Page 5
MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 1988.
5
Fréttir
Guðmundur J.:
Eftirköst Dagsbrúnarfundarins:
er búið
- kæran breytir engu
„Þaö verður ekkert frekar aö-
hafst í þessu máli. Það er fullkom-
lega löglegt aö notast viö
handauppréttingu og það hreyföi
enginn mótmælum viö því fyrr
en eför á. Ef einhver heíöi óskað
eftir skriflegri kosningu hefði
hun aö sjálfsögðu verið viðhöíö
en úr þessu verður niðurstöðum
fundarins ekki breytt," sagði
Guðmundur J. Guðmundsson,
formaður Dagsbrúnar, í samtali
við DV í gær.
Guðmundur sagðist bera fullt
traust til þeirra manna sem töldu
á fundinum, þeir væru allir vanir
fundamenn og vanir talningar-
menn á Dagsbrúnarfundum.
Hann sagði að tvítalið heföi verið
og einn hluti fundarmanna var
þrítalinn vegna þess að teljurum
bar ekki saman en það var hópur-
inn sem var með samningunum
og heföi þeim fækkað þegar talið
var í þriðja sinn.
„Ég hef sagt það áður að ég bjóst
við meiri mun en raun varð á.
Ég hygg að ég hefði sjálfur óskað
eftir skriflegri atkvæðagreiðslu
ef mig heföi grunað að munurinn
yrði svona lítill,“ sagði Guð-
mundur.
Hann sagðist ekki eiga von á
neinum eftirköstum í Dagsbrún
vegna þessa máls, enda myndu
Dagsbrúnarmenn sjá það aö sam-
staöa væri nauðsynleg á komandi
mánuðum sem hann taldi að yrðu
erfiðir vegna rauðu strikanna
sem eru í samningunum.
„Ég vO taka það fram aö það
er enginn fögnuður í mínum huga
vegna þessara samninga. Ég mat
bara stöðuna þannig að lengra
yröi ekki komist nema með verk-
föllum með ófyrirsjáanlegum
aíleiðingum. Ég skil því vel reiöi
þessara manna sem horfa upp á
vaxandi launamisrétti 1 þjóðfé-
láginu. En ég endurtek að það
hefði kostað of miklar fórnir að
reyna að komast lengra,“ sagöi
Guðmundur J. Guðmundsson.
-S.dór
„Þeir fölsuðu bara
kosningaúrslrtin“
- segir Páll Amarson sem kært hefur kosninguna á Dagsbrúnarfundinum til Alþýðusambandsins
„Það er rétt, ég hef skrifað mið-
stjórn Alþýðusambands íslands bréf
og kært kosninguna á Dagsbrúnar-
fundinum, enda voru úrslitin fölsuð.
Þeir bara fölsuðu þau þegar þeim
varö ljóst aö meirihluti fundar-
manna var á móti samningunum,“
sagði Páll Amarson, verkamaður hjá
Granda hf., í samtali við DV í gær.
Hann sagðist hafa farið á skrifstofu
Alþýðusambandsins og beðið Ás-
mund Stefánsson, forseta þess, að
hjálpa sér að skrifa kærubréfið, hvað
hann og gerði, að sögn Páls.
Páll sagðist ekki vongóður um að
kæran hefði eitthvað að segja þar
sem henni mun veröa vísað til
Verkamannasambandsins eftir að
hafa veriö tekin fyrir hjá Alþýðu-
sambandinu.
„Það verða svo sömu menn og
stóðu að kosningafölsuninni á Dags-
brúnarfundinum sem munu fjalla
um kæruna hjá Verkamannasam-
bandinu þannig að ég á ekki von á
því að kæran beri árangur. En auð-
vitað á að efna til annars fundar og
kjósa aftur. Það er hart þegar menn
eru farnir að beita sömu aðferðum
við kosningar hér og í Chile eða Nic-
aragua," sagði Páll Arnarson.
Honum var bent á að teljararnir
hefðu verið íjórir en þá benti hann á
að 3 af þessurri 4 teljurum hefðu ve-
rið í samninganefndinni sem skrifaði
undir samninginn. Páll tók fram að
hann stæði ekki einn að þessu kæru-
bréfi þótt hann hefði einn skrifað
undir það.
„Það stendur stór hópur félaga
minna á bak við mig í þessu máli,“
sagði Páll Arnarson að lokum.
-S.dór
Páll Arnarson, verkamaður hjá Granda hf., bendir á mánaðarlaun sin fyrir
og eftir samninga. DV-mynd KAE
Ólafur Ólafsson, stjórnarmaður í
Dagsbrún og einn af teljurum á fund-
inum. DV-mynd Brynjar Gauti
Mistalning er útilokuð
segir Olafur Olafsson, einn af teljurunum fjórum á Dagsbrunarfundinum
„Að mínum dómi er útilokað að
mistalning hafi átt sér staö. Munur-
inn var 23 atkvæöi og við vorum
fjórir teljarar úr hinum ýmsu hópum
í Dagsbrún. Ég er líka sannfærður
um að hver og einn þeirra gerði sitt
besta,“ sagði Olafur Olafsson, stjórn-
armaður í Dagsbrún og einn af
fjórmenningunum sem töldu at-
kvæði við handauppréttingu á
Dagsbrúnarfundinum harða á
mánudaginn.
Ólafur sagði að í lögum Dagsbrún-
ar væri gert ráð fyrir skriílegri
kosningu ef ósk um það kæmi frá
einhverjum. Það gerðist ekki á þess-
um fundi. Hann sagði auðvelt að vera
vitur eftir á og segja sem svo að það
hefði átt aö viðhafa skriílega kosn-
ingu, það hefði bara engum dottiö
það í hug og enginn mótmælti neinu
fyrr en úrslitin lágu fyrir.
„Á þeim Dagsbrúnarfundum sem
ég hef setið, og þeir eru margir, hefur
handaupprétting við kosningar alltaf
veriö notuð og henni aldrei verið
mótmælt og aldrei neinar ásakanir
komið fram fyrr en nú,“ sagði Ólafur.
Hann sagði að útilokað væri að
halda annan fund og láta kjósa um
samningana, slíkt væri hreint lög-
brot. Að kosningunni og talningunni
hefði verið staðið með fullkomlega
löglegum hætti.
„Mér þykir ómaklega'að okkur
vegið sem töldum á fundinum og al-
veg sérstaklega þykir mér það
ósmekklegt að blanda saman setu
minni í bankaráði Alþýðubankans
og að ég skyldi valinn til talningar-
innar eins og gert var af einum
Dagsbrúnarfélaga,“ sagði Ólafur Ól-
afsson.
-S.dór
Vextir lækkuðu um mánaðamótin
Vextir lækkuðu í gær, 1. mars,
en síðast lækkuðu vextir 21. febrú-
ar síðastliðinn. Samkvæmt upplýs-
ingum, sem DV fékk hjá Ólafi K.
Ólafs, viöskiptafræðingi hjá Seðla-
banka íslands, breyta þær innláns-
stofnanir vöxtum mest nú sem
breyttu vöxtum lítt eða ekki í fe-
brúar.
Ólafur sagði að eftir vaxtabreyt-
inguna hefði vaxtamunur á milli
banka minnkað verulega. Sam-
vinnubankinn, sem ekki lækkaði
vextina 21. febrúar, lækkar vexti
núna. Sparisjóðirnir lækkuðuvexti
mest 21. febrúar og Iðnaðarbank-
inn nær eins mikið og sparisjóðirn-
ir og nú sagði Ólafur þróunina vera
þá að aðrir bankar væru að nálgast
vexti sparisjóðanna.
Forvextir víxla eru nú 4,4% lægri
en þeir voru að meðaltali fyrir 21.
febrúar. Vextir af yfirdráttarlánum
lækkuðu úr 38% í 33,5% á sama
tímabili og vextir af almennum
skuldabréfum lækkuðu úr 37% í
33,9%. Þá hafa nafnvextir óverð-
tryggðra útlána lækkaö um 4%. Þá
hafa innlánsvextir lækkað um 3%
að meðaltali og dráttarvextir hafa
lækkað úr 4,3% á mánuði í 3,8% á
mánuði eða úr 51,6% í 45,6% á ári
en dráttarvextir eru ákveðnir með
hliðsjón af meðalútlánsvöxtum
banka og sparisjóða. -ój
TUNGUMALANAMSKE
ENSKA SPÆNSKA PORTUGALSKA
ÞÝSKA DANSKA ÍSLENSKA
FRANSKA ÍTALSKA fyrir útlendinga
Upplýsingar og innritun i sima 10004/2165S
Mímir
■ANANAUSTUM 15MB