Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1988, Qupperneq 7
MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 1988.
7
Fréttir
Guðjón B. Ólafsson, forstjóri Sam-
bandsins. Samstarfsmenn hans hafa
borið á hann ásakanir sem ekki er
hægt að túlka á annan hátt en að
hann hafi tekið sér umtalsverðar
fjárhæðir, umfram launasamninga,
frá lceland Seafood Corporation.
aði rannsókn á einkahögum forstjóra
Sambandsins.
Þessar upplýsingar, sem komið
hafa fram á síðustu dögum, hafa orð-
ið til þess að fyrirhuguðum fundi
stjómar Sambandsins, þar sem ræða
átti um hvernig staðið var að brott-
vikningu Eysteins og Geirs frá
Iceland Seafood, var skotið á frest. í
stað þess að forstjóri fyrirtækisins
fengi á sig ákúrur virðist sem stjóm-
in verði einnig að taka afstöðu til
formanns síns og ekki síður fyrrver-
andi forstjóra.
Áfall fyrir Sambandið
Eftir heimkomu Guðjóns mun
koma í ljós á allra næstu dögum
hveijar lyktir þessa máls verða. All-
ar ákvarðanir í þessu máli eru í
Axel Gislason, aðstoðarforstjóri
Sambandsins. Samkvæmt heimild-
um DV tók steininn úr, að mati Vals
og Erlends, þegar Guðjón neitaði
alfarið að gera hann að fram-
kvæmdastjóra verslunardeildar.
höndum stjómar Sambandsins. Fyr-
ir tveimur ámm átti Valur þar
tryggan stuðning ef hann hefði viljað
sefjast í forstjórastóhnn. Meirihluti
stjómarinnar em kaupfélagsstjórar
en Guðjón hefur að undantomu ver-
ið gerður persónugervingur harðrar
afstöðu Sambandsins til rekstrarerf-
iðleika kaupfélaganna. Atburðir
síðustu daga og viðbrögð manna við
þeim, að ógleymdum niðurstöðum
rannsóknar Geirs Geirssonar, munu
þó sjálfsagt vega þungt.
Hvemig sem fer þá hefur Sam-
bandiö orðið fyrir miklu áfalli.
Reyndar er það ekki í fyrsta sinn en
upplausnin innan þess hefur aldrei
verið í líkingu við það sem nú er.
Allavega hefur hún ekki áður orðið
jafnáberandi í umfjöllun fjölmiðla.
Óánægja innan lceland Seafood:
Eysteinn hlustaði
bara á tvo af
starfsmönnunum
því urðu innkaup hans oft furðuleg
Ólafur Amaison, DV, Harriaburg
Samkvæmt áreiöanlegum heim-
ildum, sem DV hefur aflað sér
innan Iceland Seafood Corporati-
on, mun ástandið innan fyrirtækis-
ins hafa verið orðiö óbærilegt
síðustu mánuði og vikur. Sölustjóri
fyrirtækisins var á fömm og sömu
sögu er að segja um marga háttsett-
ustu starfsmennina.
Að sögn heimilda DV var starfs-
fólk óánægt með óeðlileg afskipti
Geirs Magnússonar af starfsemi
deilda sem ekki heyröu undir
hann. Einnig var megn óánægja
með það að Eysteinn Helgason
skyldi ekki sjá til þess aö Geir heföi
sig ekki í frammi. Enn fremur
höfðu samskipti milh forstjóra og
starfsmanna breyst mjög eftir að
Eysteinn tók við af Guðjóni B. Ól-
afssyni. Sarakvæmt heimildum DV
tíðkaðist það undir stjórn Guðjóns
að starfsraennimir af öllum stigum
í fyrirtækinu leituöu til hans .með
sín mál, bæði vandamál og ýmsar
hugmyndir. Eftir að Eysteinn tók
við mun hafa verið skorið miög á
slíkt og í raun hafa einungis tveir
menn í fyrirtækinu haft aðgang að
Eysteini. Það munu hafa veriö þeir
Geir Magnússon og Gunnar Jónas-
son. Heimildarmenn DV kvörtuðu
undan því að Eysteinn hefði treyst
nær eingöngu á ráð þessara tveggja
manna og ekki hlustað á aöra.
Segja þeir það eina helstu ástæöu
þess aö innkaup hafi verið mjög
undarleg í tíð Eysteins og ekki í
samræmi viö markaðinn.
Heimildir DV halda því fram að
ástæða þess að Eysteinn Helgason
lét ekki afskrifa of hátt verömetnar
birgðir Iceland Seafood á síðasta
ári hafi verið sú að hann hafi átt
von á aö starf hans yrði tekið til
gagnrýninnar endurskoðunar og
að hann hafi viljaö beita öhum ráð-
um til að láta afkomu fyrirtækisins
1987 líta sem best út.
Ef birgðir Iceland Seafood yröu
afskrifaðar og færðar á réttu veröi
tU reikninga myndi staða fyrirtæk-
isins árið 1987 versna um eina til
tvær núlljónir doUara þannig að
niðurstaðan yrði þriggja til fjög-
urra milljóna dollara hagnaður en
ekki hagnaður upp á fimm milljón-
ir, að sögn heimUdarmanna DV.
Ökuskírteinið giidir til sjötugs
Breyting er orðin á gUdistíma öku-
skírteina. Nú eru gefin út tvenns
konar ökuskírteini, bráðabirgða- og
fullnaðarskírteini., Bráðabirgðaskír-
teini eru gefin út fyrir byrjendur og
gjlda þau í tvö ár. Fullnaðarskírteini
gUda þar tíl skírteinishafi er 70 ára.
Dómsmálaráðherra setur reglur
um gildistíma ökuskírteina sem gefm
eru út til þeirra sem orðnir eru sjötíu
ára. Ráðherra getur ennfremur
ákveðið aö ökuskírteini gildi skemur
en til sj ötugs ef aðstæður eru þannig.
Þegar fólk er orðiö sjötíu ára er það
á valdi lögreglustjóra að ákveða
hvort hlutaðeigandi skuli taka próf á
ný. Dómsmálaráðherra getur sett
reglur um hvort próf skuh tekið að
nýju.
Dómsmálaráðherra getur ákveðið
hvort meiraprófsréttindi skuli gilda
skemur en almenn réttindi. -sme
Albert Jóhannesson, fyrwerandi formaður LH:
Jafnsekur öðrum
rítnefndarmönnum
Þegar stjóm Landssambands
hestamannafélaga kaus nýja rit-
nefnd að blaði sambandsins, Hests-
ins okkar, var einn ritnefndarfuhtrúi
kosinn til áframhaldandi starfa. Það
var Albert Jóhannesson, fyrrverandi
formaður LH. Hann var formaður í
12 ár og átti auk þess sæti í ritnefnd
í nærri tuttugu ár. Albert sagði sig
fljótt úr hinni nýju ritnefnd. DV innti
Albert eftir ástæðum þess að hann
sagði sig úr ritnefndinni.
„Ég gerði það af þeirri einföldu
ástæðu að félögum mínum hafði ver-
ið sagt upp. Ef ástæða var til þess að
segja þeim upp, og ef þeir höfðu unn-
ið til þess, þá voru alveg sömu
ástæður til þess að segja mér upp
ritnefndarstörfum. Ég haföi enga
sérstöðu fram yfir þá.“
- Var ekki um eðlilegt endurkjör í
ritnefnd að ræða, eins og formaður
LH hefur sagt?
„Það finnst mér ekki. Þetta var
a.m.k. ekki samkvæmt þeim hefðum
sem hafa ríkt. í raun og veru hefur
það verið þannig aö menn hafa verið
kosnir í þessa nefnd og setið þar eins
lengi og þeir hafa viljað.
Við voram ekki einu sinni búnir
að skila af okkur starfsárinu þegar
ný nefnd var kjörin. Síðasta blaöið
var ekki komið út.“
- Grein, sem fyrrverandi formaður
ritnefndar, Kristján Guðmundsson,
ritaði í blaðið, hefur greinilega orðið
til þess að ný ritnefnd var kjörin.
Fannst þér greinin vera það alvarleg
að hún réttlætti þessar aðgerðir
stjórnar LH?
„Mér fannst það ekki. Að vísu er
hart að fá gagnrýni á sig úr sínu eig-
in blaöi. I greininni var ekki sagt
annað en að það bæri að harma að
stjórn LH skyldi ekki á landsþinginu
'hafa lagt fram lausn á þeim vanda
sem við er að ghma. Það hljóta allir
sem þessum samtökum unna að
harma hvemig þetta hefur farið."
- Hvemig þykir þér, sem fyrrver-
andi formanni Landssambandsins,
að horfa á þær deilur og sundrung
sem óneitanlega eru uppi meðal
hestamanna?
„Ég er náttúrlega engan veginn
sáttur við þetta. Það er meðal annars
verið að ógilda mín störf. Þegar ég
var í stjórn gerði stjórnin samkomu-
lag um skiptingu móta á Norður-
landi, það er Varmalandssamþykkt-
ina. Þvi þykir mér núverandi stjóm
hafa brugðist þegar ekki er farið eft-
ir samkomulagi sem öh félögin á
Norðurlandi samþykktu. Mér dettur
ekki í hug að halda því fram aö
Varmalandssamþykktin hafi haft
bindandi áhrif á núverandi stjórn.
Það var óþarfi að láta máhn fara á
þennan veg,“ sagði Albert Jóhannes-
son.
-sme
Jóreykur, glæsireið og
glens í Reiðhöllinni
Bakkabræður og tvær úr Tungunum bregða fyrir sig betri fætinum,
heimsækja höfuðstaðinn og hittast i Reiðhöllinni.
DV-mynd E.J.
Miklar framkvæmdir hafa áti sér
stað í Reiðhölhnni undanfarið og
er starfsemi þar á fuliu. Reiðnám-
skeið eru mjög vinsæl og uppselt í
alla tíma. Þrátt fyrir að hafa ekki
fengið að halda hlöðuball í Reið-
höllinni hafa þeir aðilar, sem stóðu
að byggingu Reiöhallarinnar, ekki
látið deigan síga og hafa ákveðið
að hafa uppákomur tengdar ís-
lenska hestinum i Reiðhöhinni um
næstu helgi. Sýningar verða báða
dagana 5. og 6. mars og hefjast
klukkan 15.00 og 21.00.
Blásarasveit þeytir lúðra sína á
meðan gestir koma sér fyrir en
sýningin hefst með fánareið Félags
tamningamanna (F.T.). Böm og
unglingar úr Reykjavík og ná-
grenni sýna tölt og tjórgang og sýnd
verða kynbótahross, bæði hryssur
og stóðhestar. Laddi og Júlíus
Bijánsson verða með glens og
skens og nokkrir snjallir knapar
úr F.T. sýna tölt og skeið. Edda
Heiðrún Backman verður með
bamagaman og Bakkabræöur í
kvennaleit hitta tvær úr Tungun-
um. Söluhross verða kynnt óg börn
koma fram í gervi þekktra teikni-
myndapersóna. Einnig verða
sýndar hlýðniæfingar og hind-
runarstökk og heimsmeistararnir
íslensku verða kynntir. Búist er við
að sýningin taki um það bil tvo og
hálfan klukkutíma.
Aðstaða fyrir áhorfendur er orð-
in nokkuð góð og komast tæplega
þrjú þúsund manns fyrir í sætum.
E.J.
Á fallegum orlofsstað við sjóinn, í East-
boume á suðurströnd Englands. Nám-
skeið frá þrem vikum upp í eitt ár.
Heimavist eða gisting á heimilum.
Vinsamlega útfyllið eyðublaðið og sendið
það til. l"""vinsanilega sendið bælding ykkar. Ég hef áhuga á:
Principal (DV),
LTC College of English Tumó»*
Compton Park, Compton Place Road,
m
□ Itarlegu ahnennu enskunámi
| □ Ensku fyiii einkaiitara
I
□ Ensku fyiii veislun, viðsldpti og
hótelstjóm
□ Sumamámskeiðum
Nafn..
Eastboume, Sussex, Éngland BN21 ÍEH j HeiimMan9.............................-.....|
I
..Jfr/Fi |
Tel: 27755 Tlx. 878763 LTC G
1
Ltc college
OFENGUSH
Rccogniscd as cfficicnt by Thc British Council