Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1988, Side 11
MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 1988.
11
UÓNSTILKVNNING
VEGNA ÖKUTÆKJA
LEIÐBEININGAR UM NOTKUN
rHvenœr á að nota tjónstilkynninguna?
Tjónstilkynningin er að evrópskri fyrirmynd og eru tilkynningar af þessu tagi notaðar
í flestum ríkjum Vestur-Evrópu. Tjónstilkynninguna á að nota vegna tjóna á ökutækj-
um eða tjóna sem rakin verða til ökutækja. Kveðja ber til lögreglu verði slys á
fólki.
'Árekstur
Við árekstur milli tveggja ökutækja ber að nota eitt sett tjónstilkynningarinnar. Hafi
fleiri en tvö ökutæki lent í árekstri verður að nota fleiri sett en eitt. Skulu þá upplýs-
ingar varðcindi öll hlutaðeigandi ökutæki koma fram eins og unnt er á hverju setti til-
kynningar sem notað er og þau undirrituð af öllum ökumönniinum. Afstaða cillra öku-
tækjanna (merkt A, B, C, D OA.frv.) skal þannig gefin til kynna með afstöðumynd cif
vettvangi (13. liður tjónstilkynningarinncir).
Útafakstur, ekið á gangandi vegfaranda o.þ.h.
Eigi aðeins eitt ökutæki hlut að máli, t.d. við útafakstur, þegar ekið er á gangandi veg-
faranda, ökutæki brennur eða því stolið, ber einungis að fylla út framhlið tilkynning-
arinnar vinstra megin (A) auk bcikhliðar.
'Á vettvangi
Ökumaður A og ökumaður B útfylla báðir framhlið tilkynningarinnar vegna ökutækja
sinna. Getið um nafn og heimili hugsanlegra vitna (5. liður), en það er afar brýnt ef
ökumenn eru ósammála um málsatvik. í 12. lið ber að merkja með x í viðeigandi reiti.
Reitir vinstra megin eiga við ökutæki A en hægra megin eiga við ökutæki B. Mikilsvert
er að fjöldi merktra reita sé tilgreindur fyrir hvort ökutæki um sig. Munið að merkja
ökutækin A og B á afstöðumynd af vettvangi (13. liður). Tjónstilkynningin skal undir-
, rituð af báðum ökumönnum og tekur hvor sitt eintak.
Við heimkomu
Þegar heim er komið fylla aðilar sjálfir út bakhlið tilkynningarinneir. Alls ekki má breyta
nokkru atriði eða bæta við á framhlið tilkynningarinnar eftir að aðilar hafa undirrtitað
hana. Aðilum ber síðan að koma tjónstilkynningunni til vátryggingarfélaga sinna hið
allra fyrsta.
Árekstur við erlent ökutœki
Verði árekstur við ökutæki sem skráð er erlendis og ökumaður þess hefur þessa
evrópsku tjónstilkynningu á erlendu máli mega báðir aðilar nota framhlið þeirrar til-
kynningar og eftir atvikum undirrita hana. Einstakir liðir tjónstilkynningarinnar og
númer þeirra eru eins þótt tilkynningin sé prentuð á öðru máli.
'Athugið vel!
Notið kúlupenna eða velyddan blýant við útfyllingu tilkynningarinnar þannig að bæði
frumrit og afrit verði læsileg. Skrifið ekki á bakhlið tilkynningarínnar fyrr en ein-
tökin, þ.e. frumrit og afrit, hafa verið skiiin að. Hafi tjónstilkynning verið notuð,
hún skemmst eða týnst ber mönnum að fá nýtt eintak hjá vátryggingarfélagi sínu.
f SJÓNVARPINU f KVÖLD
verður sýndur leiðbeiningar- og kynningarþáttur
um notkun tjónstilkynningarinnar.
RÚV kl. 20.35
STÖÐ2 í 19:19
VERTUMEÐ
- ÞVf ÞETTA ÞARFTU AÐ VITA!
BIFREIÐATRYGGINGAFÉLÖGIN
Utlönd
Flýðu til
Miðjarðarhaf
Fjórir líbýskir orrustuflugmenn
lentu í gær orrustuþotum sínum,
sem eru sovéskar og af geröinni
MIG 23, á herflugvelli í vesturhluta
Egyptalands og taliö er að þeir
hyggist biðjast hælis þar í landi
sem flóttamenn.
Flugmennimir fjórir voru í gær
fluttir til Kaíró þar sem þeir veröa
yíirheyrðir um þaö hvaö þeim gekk
til meö komunni til Egyptalands.
Fjórmenningamir flugu þotum sínum mjög lágt yflr landamæri Líbýu
og Egyptalands, aö því er viröist til þess að forðast líbýskar ratsjárstöðvar.
Hosni Mubarak, forseti Egyptalands, sagði í gær að flugmennirnir fjór-
ir væru velkommr í Egyptalandi.
Talið er fullvíst að atvik þetta eigi eftir að valda verulegum vand-
kvæðum í sambúð Egyptalands og Líbýu, en til landamæraátaka kom á
milli þeirra áriö 1977 og hafa samskipti þeirra verið stirð undanfarin ár.
Vopn frá Libýu
Sérstök rannsóknamefnd, sem
skipuö var af Duarte, forseta E1
Salvador, hélt í gær sýningu á
vopnabúnaði sem tekinn hefur ve-
rið af skæruliðum vinstrisinna i
landinu undanfariö. Formaður
rannsóknamefndarinnar, Ricardo
Perdomo, sagði viö þetta tækifæri
að stór hluti vopna þessara hefði
verið rakinn beint til Líbýu. Hefðu
vopnin verið hluti af sendingu frá
vopnaverksmiöjum til líbýska flug-
hersins á áttunda áratug aldarinn-
ar. Þessi vígbúnaður væri hins
vegar nú notaður af sveitum
skæmliða í E1 Salvador, nánar til-
tekið hópum borgarskæruliða i San
Salvador, höfuðborg landsins.
Bush og Dukakis unnu
Michael Dukakis, fylkisstjóri Massachusetts, vann auðveldan sigur í
forkosningum demókrata í Vermont í Bandaríkjunum í gær og George
Bush varaforseti vann sigur í forkosningum repúblikana í fylkinu.
Sigur þeirra tveggja kom lítið á óvart því búist hafði verið við aö þeir
leiddu baráttuna í þessu fylki.
Frammistaöa Jesse. Jackson, eina blökkumannsins sem sækist eftir
útnefhingu sem forsetaefni, kom hins vegar nokkuð á óvart. Jackson
hlaut nær þrjátíu prósent atkvæða demókrata, þrátt fyrir að í Vermont
búi mjög fáir blökkumenn.
Óveður á Spáni
Mikil snjókoma hefur gengið yfir
hluta Spánar undanfama daga.
Víða í norðurhluta landsins dengdi
niöur allt að sextiu sentímetra
djúpurn jafnfollnum srrjó sem veld-
ur miklum vandkvæöum í sam-
göngum, auk þess að valda öðrum
búsifjum. Spánverjar eru ákaflega
óvamr veðrabrigðum af þessu tagi
og því illa búnir undir þau.
Lika í Þýskalandi
Þá hefur gengið mikið vetrarveð-
ur yfir hluta af Vestur-Þýskalandi
undanfarið og hefur spjókoma og
hálka valdið miklum vandkvæöum
í samgöngum, þótt Vestur-Þjóð-
veijar séu auðvitaö mun vanari
snjókomu heldur en Spánverjar.
Nauðsynlegt hefur veriö að nýta
mikið af vinnutækjum til að að-
stoða illa stadda ökumenn á
þjóðvegum landsins.
Þessi vetur hefur hins vegar ekki verið verulega harður í Evrópu og
hvergi nærri jafnkaldur eða ógnvekjandi og siðastliðinn vetur var.