Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1988, Side 19
MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 1988.
19
Frammi á ganginum, fyrir framan Kristalsalinn, sátu Þorsteinn Þorsteins-
son, framkvæmdastjóri Skáksambands íslands, hinn þekkti skákdómari og
fyrrverandi rektor, Guðmundur Arnlaugsson, og stórmeistarinn Helgi Ólafs-
son sem fyrr um daginn gerði jafntefli við Gurevich.
DV-myndir GVA
Fjölmemú á Hótel Lofúeiðum
Þrettánda Reykjavíkurskákmótið
stendur nú sem hæst á Hótel Loft-
leiðum og spennan eykst með hverri
umferðinni sem líður. Vegna hins
góða árangurs Jóhanns Hjartarsonar
hefur áhugi manna á skák aukist
mjög og menn, sem hefði ekki dottið
það í hug fyrir hálfu ári, koma og
fylgjast með mótinu.
íslendingarnir á skákmótinu á Hót-
el Loftleiðum standa sig líka mjög
v'el og ekki dregur það úr áhuganum.
Blaðamaður og ljósmyndari brugðu
sér á fimmtu umferðina á sunnudag-
inn og var þar fjöldi áhorfenda
saman kominn til þess að fylgjast
með atganginum.
Miðasölufólk áætlaði að rúmlega
tvö hundruð miðar hefðu verið seldir
þann daginn og var þá ótalinn stór
hópur boðsgesta. Þarna mátti þekkja
Skákáhugamennirnir Högni Torfason og Jón Þorsteinsson voru að vonum
ánægðir með frammistöðu íslensku keppendanna í fimmtu umferðinni.
margan frægan manninn skeggræða
stöðurnar og frammistöðu okkar
manna. Sjónvarpið var búið að koma
upp aðstöðu til þess að spá í stöðurn-
ar í beinni útsendingu og sjónvarps-
skjáir voru um allt þar sem
áhorfendur gátu fylgst með stöðum
í skemmtilegustu skákunum. Er
óhætt að segja að vel sé gert við
áhorfendur sem kunna gott að meta.
Þegar blaðamann bar að garði á
sunnudaginn um fimmleytið var Jón
L. Árnason nýbúinn að leggja meist-
ara Polugaevski og ekki löngu síðar
lagði Þröstur Þórhallsson Banda-
ríkjamanninn Browne að velli.
Virtist almenn ánægja meðal gestá
með frammistöðu íslendinganna
þennan dag en þó eru íslenskir áhorf-
endur sjálfsagt þeir kröfuhörðustu í
heiminum.
í opiiíberri
heimsókn í
Bandaríkj unum
Hertogahjónin af Jórvík eru nú um þessar mundir stödd í Bandaríkjun-
um í opinberri heirasókn sem mun taka tíu daga. Þau byrjuðu á að koma
til Los Angeles í Kalifomíu en Kalifomía er fjölmennasta fylki Bandaríkj-
anna.
Veörið leikur við Söm Ferguson og Andrew, enda er víst oftast sól og
gott veður árið um kring í Kaliforhíu. Sara Ferguson á von á sér í ágúst
en enn er ekki farið að sjá á henni að hún sé með barni því hún virðist
lítið hafa þykknað undir belti.
Tvær litlar stúlkur af kinverskum ættum komu hertogahjónunum af Jór-
vik á óvart með þvi að færa þeim gjafir er þau heimsóttu kínverska
hluta borgarinnar Los Angeles. Simamynd Reuter
Kannaði skermndir
í Suður-Englandi
i\ai i uiciapimo vaiu au laid ____ w„Ml
stígvélum þegar hann skrapp til Suður-Englands að kam
skemmdirnar af völdum fárviðris sem geysaði þar fy
stuttu. Simamynd Reut
Fyrir fáum
dögum gekk
yfirmikiðfár-
viðri í Suður-
Englandi og
olli miklu
tjóni. Veðu-
rofsinn var
svo mikill að
stór tré rifn-
uðu upp með
rótum, svo
ekki sé
minnst á
hreyfingar
annarra
hluta, minna
rótfastra.
Karl Breta-
prins ■ er í
forsvari fyrir
samtökum
sem einbeita
sér að því að
bæta tjón úr
veðrahami
sem þessum
og hann fór
því til Sheffi-
eld Park í
Suður-Eng-
landi, þar sem
skemmdir
urðu hvað
mestar, til
þess að kynna
sér þær og
áætla hvaö
gera þyrfti til
að bæta tjó-
nið.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði..
Joan Collins
brá aldeilis við upptökur á
Dynasty-þætti fyrir skömmu.
Hún átti að leika í atriði þar
sem hún liggur uppi í rúmi
og rekst á hálsmen sem elsk-
hugi hennar átti að hafa
gleymt eftir ástarævintýri
með annarri konu. Upptakan
tókst ekki allt of vel svo beð-
ið var um 15 mínútna hlé fyrir
næstu töku. Svo þegar Joan
fór að leita aftur í rúminu brá
henni mjög þegar hún dró
hlutinn undan ábreiðunni því
að einhver hrekkjalómur
hafði skipt á hálsmeninu og
hjálpartæki úr ástalífinu.
Angela
Lansbury
hefur verið að velta fyrir sér
hvað hún eigi að gera þegar
vinsældir þáttanna Morðsaga
dvína, þó ekkert útlit sé fyrir
það. Hún hefur fengið tilboð
frá CBS sjónvarpsstöðinni
um leik í þáttum sem eiga að
heita Act Your Age og eru
um konu á sjötugsaldri sem
fer til Hollywood að freista
gæfunnar sem leikkona.
Angelu líst mjög vel á hug-
myndina.
Patty Hearst
- dóttir milljarðamæringsins
Randolphs Hearst-semfræg
varð þegar hún gekk í Symbi-
oníska frelsisherinn og framdi
bankarán er nú að leiðbeina
við tökur á kvikmynd um ævi
hennar. Hún gaf út sjálfsævi-
sögu sem heitir Every Secret
Thing og er myndin byggð á
henni. Natasha Richardson,
dóttir Vanessu Redgrave,
leikur Patty Hearst í mynd-
inni.