Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1988, Qupperneq 20
20
MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 1988.
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta á fasteigninni Mánabraut 6B, þingl. eigendur Hilmar
Guðmundsson og Anna Antonsdóttir, fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn
4. mars 1988 kl. 11.30. Uppboðsbeiðendur eru Veðdeild Landsbanka ís-
lands, Andri Arnarson hdl., Asmundur Jóhannsson hdl. og Jón Sveinsson
hdl.
________________________Bæjarfógetinn á Akranesi
íþróttir
Enska knattspyman:
Jafnt hjá
Tottenham
og Derby
Derby County fékk dýrmætt
stig í fallbaráttu 1. deildar í gær-
kvöldi með 0-0 jafntefli gegn
Toftenham á White Hart Lane í
London. í öðrum leik í deildinni
skildu Southampton og New-
castle jöfn, 1-1.
• Bradford tapaði mjög óvænt
fyrir botnliði Huddersfield, 0-1, á
heimavelli í 2. deild.
• Dundee vann St. Mirren 2-1
í skosku úrvalsdeildinni. -VS
Reykjawíkurmótið:
Þróttur og
Fylkir í
fyrsta leik
Það verða Þróttur og Fylkir sem
hefja Reykjavíkurmótið í meist-
araflokki karla í knattspymu á
þessu vori. Annarrar deildar fé-
lögin tvö mætast á gervigrasinu
í Laugardal þriðjudagskvöldið 22.
mars kl. 20.30. Mótinu lýkur síðan
8. maí með úrslitaleik. -VS
SIÓNVARPSBINGÓ Á STÖD 2
Mánudagskvöldið 29. febrúar 1988
Vinningar í fyrri umferð þegar spilað var
um eina lárétta línu.
Spilað var um 10 aukavinninga, hvern að
verðmæti kr. 50.000, frá Hljómbæ.
23, 61, 49, 13, 8, 84, 33, 59, 44, 11, 24, 30,
81, 58, 43, 19, 63
Spjöld nr. 18825
Þegar talan 63 kom upp var hætt að spila
upp á aukavinningana.
Þegar spilað var um bílinn komu eftirfarandi
tölur upp. Spilað var um þrjár láréttar línur
(eitt spjald).
2, 25, 31, 66, 42, 83, 15, 60, 29, 55, 67, 36,
76, 65, 37, 90, 45, 74, 20, 69, 16, 32, 79
Spjald nr. 12467
ki
OGUR
STYRKTARFELAG
SÍMAR 673560 OG 673561
Handbolti -1. deild:
Sigurður
áffam í
efsta sæti
Sigurður Gunnarsson úr Vík-
ingi heldur forystunni í marka-
kóngskeppni 1. deildarinnar eftir
14. umferð. Hann skoraði 6 mörk
gegn KA og sama gerði Hans
Guðmundsson fyrir Breiðabhk
gegn Val og því skilja tvö mörk
þá félaga áfram.
í efstu sætum eru þessir, í svig-
um mörk í 14. umferð:
SigurðurGunnarss.,Vík(6) 80/22
Hans Guðmundss., UBK .(6) 78/21
Þorg. Ó. Mathiesen, FH ...(5) 77/0
Héðinn Gilsson, FH..(3) 75/0
ValdimarGrímsson,Val.(6) 74/4
Stefán Kristjánss., KR.(4) 74/19
SigurpállAðalsteins,Þór(5) 74/36
Konráð Olavsson, KR....(4) 72/12
-VS
Evrópuleikimir:
Stórfé
víða í húfi
Sigurður Bjönisson, DV, Þýskalandú
Það er mikið í húfi fyrir knatt-
spymumennina sem leika í
Evrópukeppninni í kvöld - meira
fyrir suma en aðra. Real Madrid
mætir Bayem Munchen og þar
er um margt að tefla. Leikmenn
Bayern fá 12 þúsund mörk (265
jús. ísl. kr.) í vasann hver sem
aukagreiðslu ef þeir slá spænsku
meistarana úr kepþninni. Liðs-
menn Real fá hins vegar hver um
sig þýskan sportbíl, metinn á 2
milljónir íslenskra króna, ef þeir
verða Evrópumeistarar!
• Jóhannes Kristbjörnsson, KR-ingur, í hörkubaráttu við Þorvald Geirsson, Vals-
mann. Jóhann Bjarnason, Val, fyigist með darraðardansinum.
DV-mynd Brynjar Gauti
Bikarkeppni KKÍ - 8 liða úrsllt:
Naumur sigur hjá
vesturbæingum
- KR lagði Val 74-72 í Hagaskóla
KR hafði betur í fyrri viðureign sinrú
við Val í 8 liða úrslitum bikarkeppni KKÍ.
Leikurinn, sem fór fram í Hagaskóla í
gærkvöldi, endaði 74-72, heimamönnum í
vil. - Staðan var 52-39 í leikhléi.
Valsmenn hófu leikinn raunar betur og
náðu skammvinnri forystu á upphafsmín-
útunum. Er á leið jókst hins vegar barátta
Vesturbæinga og tók leikurinn mestan lit
af krafti þeirra og sigurvilja.
Um miðþik fyrri háfleiks var forystan
orðin þeirra og létu vesturbæingar hana
aldrei af hendi eftir það. Þó fór nokkuð
að fara um stuðningsmenn liðsins á loka-
mínútunum en Valur rétti fullseint úr
kútnum. Tvö stig skildu liðin að er KR-
ingar héldu í síöustu sókn sína. Varð hún
lítið annað en vandræðalegt þóf sem tók
enda er Valsmenn náðu boltanum, nánast
á sömu sekúndu og leikurinn fjaraði út.
Ástþór Ingason fór í fylkingarbrjósti
KR-inga í leiknum. Var hann sérlega
kröftugur fram að hléinu, bæði í sókn og
vörn.
Þá var Guðni Guðnason hittinn að vanda
og Birgir Mikaelsson drjúgur með svipuðu
lagi.
Vaismenn voru hins vegar flestir fremur
dáufir í þessum leik. Réð þar miklu föst
vörn vesturbæinganna. Tómas Holton,
sem verið hefur burðarásinn í Valshðinu
í vetur, sýndi til að mynda lítið, hitti illa
og skoraði aðeins 6 stig.
Gamh jaxlinn, Torfi Magnússon, var
hins vegar með liprasta móti undir körf-
unni - gerði talsvert af stigum en gaf sér
þó tíma til að senda mótherjum sínum
tóninn annaö slagið.
• Stig KR: Birgir Mikaelsson 18, Guðni
Guönason 16, Ástþór Ingason 15, Símon
Ólafsson 11, Jóhannes Kristbjörnsson 11,
Matthías Einarsson 2 og Jón Sigurðsson 1.
• Stig Vals: Torfi Magnússon 14, Jó-
hann Bjarnason 13, Einar Ólafsson 13,
Þorvaldur Geirsson 12, Leifur Gústafsson
10, Tómas Holton 6, Svah Björgvinsson 4.
Naumt tap finnska liðsins
Finnsku bikarmeistararnir Rovaniemen töpuöu naumlega, 0-1, fyrir Paris St.
Germain frá Frakklandi í fyrri leik liðanna í Evrópukeppni bikarhafa í gærkvöldi.
Þetta var heimaleikur Finnanna, en hann fór fram í Lecce á Ítalíu þar sem vallar-
skilyrði eru ekki góð í heimalandi þeirra á þessum árstíma. Jean-Pierre Papin
skoraöi sigurmark Frakkanna. Leik Young Boys frá Sviss og Ajax frá Hollandi var
frestað. -VS