Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1988, Qupperneq 29
MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 1988.
29
Eyyindur
meðhor
/
- íslenskt mál ekki auðugt af slangri
Lífestm
DV-mynd Brynjar Gauti
Sjómenn eru oft á tiöum frumlegir í sköpun slanguryrða. Ætli þessir
borði Sæmund á sparifötunum?
Slangur og slanguryrði eru af flest-
um talin vitni um slæmt málfar og
litla máltilfmningu. Það er þó alr-
angt að líta svo á, því oftar en ekki
er um frumlega málsköpun að
ræða sem auðgar tungumálið og
um leið tungutak manna.
Oft á tiðum ruglar fólk saman
slangri og slettum, en mörkin þar
þar á milli geta oft á tíöum veriö
óljós. En þessi ruglingur gerir það
oftar en ekki að verkum að almenn-
ingur og stjórnvöld fordæma
slangrið og vilja það burtrækt úr
málinu.
Tíðarandi
Talmál ekki ritmál
Slangurorðasöfn eru ekki mörg í
íslensku talmáli og lítið hefur verið
gert til að safna þeim. Elías Mar
rithöfundur er einn fárra sem hafa
safnaö slanguryrðum. Hann hóf
sína söfnun í stríðunu en hætti
henni upp úr 1950. Orðabók um
slangur, slettur, bannorð og annað
utangarðsmál kom út fyrir nokkr-
um árum og vakti mikla hneykslan
sumra. Alltént voru skrifuð mörg
bréf í lesendadálka dagblaðanna
þar sem hneykslast var á framtak-
inu og talið betra að reyna að
útrýma slangrinu með þögn.
í formála að Slangurórðabókinni,
sem þeir Svavar Sigmundsson,
Mörður Árnason og Örn Thorsson
eru höfundar að, segir um slangur-
yrði:
„í upphafl eru slanguryrði yfir-
leitt tengd ákveðnum þjóöfélags-
hópum. Slangur nota menn í sinn
hóp, síður við þá sem standa fyrir
utan hópinn, og mjög sjaldan við
formlegar aðstæður. Það er fyrst
og fremst talmál, þó því bregði fyr-
ir í dægurlagatextum og einstaka
skáldsögum. Það hefur yflrleitt
beina tilfmningalega skírskotun og
er yfirleitt kraftmikið og auöugt
líkingamál; oft eru þar ýkjur á ferð
og gamansemi eitt af meginein-
kennum þess.“
íslenskt mál ekki auðugt
af slangri
„Það er gömul hefð fyrir því að
skapa ný íslensk orð í stað erlendra
hér á landi, til að mynda höfum viö
nú síðast búið til ný orð fyrir aids
og video og ef til vill dregur þessi
hreinsunarárátta að einhveriu
leyti úr krafti til nýsköpunar á
sviði slangurmáls," segir Ornólfur
íþróttamenn bursta hver annan.
Thorsson íslenskufræðingur.
„Þegar viö vorum að vinna við
Slangurorðabókina rákum viö
okkur á að íslenskt slangur er ekki
litskrúöugur orðaforöi, miklu
meira ber á allskyns erlendum
slettum sem fá íslenskar endingar.
Annars er skilgreining á slangri
ekki ýkja auðveld, það er eiginlega
auðveldara að nota útilokunarað-
ferðina til aö komast að raun um
hvaö sé slangur og hvað ekki. Þeg-
ar við vorum að vinna að slangur-
orðabókinni tókum við meðal
annars tillit til þess hvaða orða-
forði hafði áður komist á bók og
því er ef til vill meira af tökuorðum
í okkar bók en ef tfl hefði veriö
tökuorðabók, í íslensku. Slangur-
orðaforðinn tengist meðal annars
rokki, eiturlyijum og ýmsum slík-
um menningarkimum eöa súb-
kúltúrum. Og þar voru erlendar
slettur og slangurlán býsna algeng
Þegar maöur veltir fyrir sér út-
breiðslu og lifdögum slanguryrða
er það oft á tíðum spurningin um
það hversu menningarhóparnir
eru stórir og hversu áhrifamáttur
þeirra í þjófélaginu er mikill. Til
dæmis eiga blaöamenn miklu mun
auðveldara með að koma sínu
slangri á framfæri en blikksmiðir.
Það sama má raunar segja um
popptónlistarmenn sem eru vin-
sælir viömælendur í flölmiðlum,
þeir eiga auðveldara með að koma
málfari sínu á framfæri en þeir sem
stýra upptökutækjunum.
Slangur er fyrst og fremst ný-
sköpun og skapandi afstaöa til
tungumálsins, og það verður aö
segjast eins og er að íslendingar
hafa ekki náð miklum árangri á því
sviði eins og grannar okkar í austri
og vestri. Danir eru til að mynda
dyglegir viö aö búa til slangur og
orðaforði þeirra að mörgu leyti
skemmtilegri en okkar,“ sagði Öm-
ólfur að lokum.
Eyvindur með hor
Mikið af slangurorðum, slettum
og bannorðum tengist íþróttum,
tónlistarmönnum, áfengis- og eit-
urlyíjaneyslu, unghngamáh og
kynlífssviðinu.
Orðið asnaeymapungur er prýði-
lega heppnað orð en það er haft um
skip sem hefur tvo strompa. Ástar-
slanga, sem notað er um kynfæri
karla, er dæmi um orð þar sem
merkingin er hvorutveggja í senn,
nokkuö augljós og það er fyndið
eins og slanguryrði eiga að vera.
Eyvindur með hor og Sæmundur í
Tökuroró með islenskum ending-
um og viðskeytum vaða uppi i
máli rokktónlistarmanna.
skítagallanum, Sæmundur í spari-
fotunum, hlandsíur eru orð úr
sjómannamáli þar sem átt er við
ákveðnar matartegundir, lamba-
kjöt í karrí, matarkex, kremkex og
nýru. Það hefur lengi veriö svo að
sjómenn hafa verið sú stétt manna
sem er hvað frumlegust í sköpun
slanguryrða hér á landi. Á síðustu
árum hefur sjómönnum fækkað og
minna virðist vera um nýsköpun á
slangurorðasviöinu hjá þeim nú en
fyrir nokkrum árum.
Slangurorðaforðinn, sem tengist
bameignum, kynlífi og kynfæmm
karla og kvenna, er nokkuð stór,
má þar nefna bamamaskína, vera
meö í bakaraofninum, banani,
krani, jafnaldri, kviðmágur, kussa,
mús, stóðlíf og kompa. Og svona
mætti lengi halda áfram að telja.
Útvarpsstöövarnar opna
slangrinu nýja leið
„Það hefur htið sem ekkert verið
unnið að slanguroröasöfnun hér á
landi síðan Slangurorðabókin kom
út. Ég veit ekki hvort hægt er að
segja aö verið sé aö þegja slangriö
í hel af opinberri hálfu. Þaö hefur
verið talað um aö gera einhverjar
rannsóknir á þessu sviði en engar
ákvaröanir hafa verið teknar þar
að lútandi. Tilhneigingin virðist
vera sú aö reyna að þegja slangriö
í hel,“ segir Svavar Sigmundsson
málfræðinugur.
„Annars varð ég dáhtið var viö
að fólk hætti að nota ýmis slangur-
yrði eftir að orðabókin kom út, það
var eins og fólki þætti ekki eins fínt
aö nota það eftir að búið var koma
því á bók.
Slangurorðasafn þarf stöðugrar
endumýjunar við og stöðugt þarf
að skrá það sem nýtt kemur fram.
Það má til dæmis nefna að ný leið
fyrir útbreiðslu slangurs hefur
opnast í kjölfar allra þessara nýju
útvarpsstöðva. Því þar er hrein-
tungustefnan ekki eins rík í fólki
og var þegar ríkisfjölmiðlamir og
prentmiölarnir réðu einir ríkjum á
flölmiðlasviðinu. í þessum miðlum
hafa lengst af verið skráð og óskráfT
lög varðandi það hvað væri æski-
legt tungutak og hvað ekki, hvort
sem um meðvitaða ritskoðun hefur
nú verið að ræða.“
-J.Mar
Unglingar eru sá hópur í þjóðfélaginu „sem slettir" hvað mest, en þeir
eru lika einn mikilvirkasti hópurinn I nýsköpun á slangri. DV-mynd KAE