Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1988, Side 40
F R É T T A S K O T I Ð
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotið I hverri viku greiðast 5.000 krón-
þá i síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað f DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn.
Bftstjórn - Aisgtýsingar - Áskrift - Dreif^pg: Sírinl 27022
MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 1988.
Danskt skip
hætt komið á
* Þistilfirði
Danskt flutningaskip var hætt
komið á Þistilfirði í nótt. Skipið var
að koma frá Raufarhöfn er bilun
varð í aðalvél. Skipverjar létu bæði
akkeri skipsins falla en lítið hald er
í botninum og rak skipið undan
vindi, í átt til lands.
Slæmt veður var á þessum slóðum,
norðaustan 7 vindstig og snjókoma.
Vindur var vaxandi.
Skipverjum á togaranum Stálvik
frá Siglufirði tókst í morgun að koma
dráttartaug í skipið. Sóttist það verk
illa vegna veðursins. Skipin voru enn
á Þistilfirði í morgun.
-sme
Kjarasamningamir
Felldir í Grinda-
vík og Geröahreppi
Nýju kjarasamningarnir voru
felldir með 42 atkvæðum gegn 37 á
fundi í Verkalýðsfélagi Grindavíkur
og með 13 atkvæðum gegn 6 í Verka-
^iýðsfélagi Gerðahrepps í Garði, en
fundir þessir voru haldnir í gær-
kvöldi. Þá hefur Verkalýðsfélag
Vestmannaeyja fellt samningana.
í kvöld og annað kvöld verða víða
haldnir fundir um nýju samningana.
Meðal annars verður Verkakvenna-
félagið Framsókn í Reykjavík meö
fund annað kvöld.
-S.dór
JL þreifaði
á Hagkaupi
Stórmarkaðurinn JL þreifaöi fyrir
skömmu á Hagkaupi um það hvort
^íagkaup hefði áhuga á að kaupa JL.
Þetta er samkvæmt öruggum heim-
ildum DV. Ákveðinn aöili kom og
spurði Hagkaupsmenn hvort þeir
hefðu áhuga á kaupunum. Til ítar-
legra viðræðna kom ekki þar sem
Hagkaupsmenn reyndust ekki hafa
áHuga á kaupunum eftir að hafa
hugsað dæmið. Þar með var þeim
þreifingum lokið.
-JGH
Bílstjórarnir
aðstoða
SEJlDIBíLBSTÖÐin
Kratar eru
ósammála um
framtíð Jóhönnu
Ósamkomulag er í Alþýðu-
flokknum um framtíð. Jóhönnu
Sigurðardóttur sem ráðherra eftir
síðustu uppákomur. Gliðnun á sér
stað í stjómarsamstarfinu, þótt
fulltrúar stjómarflokkanna kæmu
sér saman um efnahagsaðgerðir á
síðustu stundu. Jóhanna segir, að
vegið hafi verið að sér með efna-
hagsaðgerðunum. Hún fékk ekki
að sitja í ráðherranefnd stjómar-
flokkanna um efnahagsaögeröir,
þar sem annars sátu formenn og
varaformenn flokkanna. Skorið
var af málaflokkum Jóhönnu, bæði
framlögum til sveitarstjóma vegna
verkaskiptingar ríkis og sveitarfé-
laga og einnig skorið af byggingar-
sjóði. Sumir alþýðuflokksmnn, sem
DV ræddi við, töldu að Jóhanna
ætti að segja af sér, þar sem hún
væri ekki í takt við stjómarliðið í
heild. Aðrir alþýðuflokksmenn
tóku upp hanskann fyrir Jóhönnu.
í stórnarliöinu era einnig aðrir,
sem eru í andstöðu viö stjórnar-
stefnuna. -HH
Mikið mæðir á Sambandinu þessa dagana en þó aldrei sem í gær en þá vann stór krani við að brjóta niður hluta
Sambandshússins á Kirkjusandi. Ósagt skal látið hvort niðurbrot gærdagsins megi tengja valdabaráttu innan
samvinnuhreyfingarinnar en samkvæmt upplýsigum sem DV fékk hjá blaðafulltrúa SÍS er hér um að ræða niðurbrot
á fiskmóttökuhúsi sem verður að víkja vegna fyrirhugaðra breytinga á notkun hússins á Kirkjusandi. Þar eiga
höfuðstöðvar Sambandsins að vera í framtíðinni. DV-mynd S
Jóhann með lakari stöðu
Skák þeirra Chandlers og Jó-
hanns Hjartarsonar í 7. umferð
skákmótsins á Linares á Spáni í
gærkvöldi fór í bið. Að sögn An-
tonios Garcia, starfsmanns á
mótinu, er það samdóma álit
manna að staða Jóhanns sé nokkru
lakari.
Önnur úrslit í gærkvöldi urðu
þau að skák Illescas og Gerogiev
fór í biö. Nicolic og Nunn gerðu
jafntefli, Beljavsky sigraði Portish
og Timman sigraði Mayu Chi-
burdanidze og Yusupov og
Ljubojevic gerðu jafntefli.
Staðan í mótinu að loknum 7
umferðum er þá þessi:
1. Timman 5,5 og biðskák
2. Beljavsky 4,5 og biðskák
3. Nunn 4
4. Ljubojevic 3,5 og biðskák
5. Yusupov 3,0 og þijár biðskákir
6. Jóhann 3,0 og biðskák
7. Illescas 2,5 og tvær biðskákir
8. Portish 2,5 og biðskák
9. Chandler 2,0 og tvær biðskákir
10. Georgiev 1,5 og þrjár biðskákir
11. Nicolic 1,5 og biðskák
12. Maya Chiburdanidze 1,5 og bið-
skák
í dag verða einhveijar biðskákir
tefldar, þó ekki allar, en 8. umferð
verður tefld á morgun. -S.dór
LOKI
Táknræn mynd
- eða hvað?
Veðrið á morgun:
Bjart
veður
suðvestan-
lands
Á morgun verður fremur hæg
norðlæg átt á landinu með éljum
viö norðaustur- og austurströndina
en björtu veðri víðast annars stað-
ar. Frost verður á bilinu 0 til 5 stig.
Jóhanna Sigurðardóttir:
„Enginn ráð-
herra hefur
fengið sömu
meðferð“
Við umræður á Alþingi í gær komst
félagsmálaráðherra, Jóhanna Sig-
urðardóttir, svo að orði að umræður
og árásir annarra stjómarhða í fjöl-
miðlum gerðu það að verkum að það
hvarflaði að henni að það ætti að
gera henni óbærilegt að starfa innan
ríkisstjórnarinnar. Því hefði hún
uppi efasemdir um stöðu sína þar.
„Þvi er ekki að neita að ég tel mig
hafa orðið fyrir ómaklegum árásum.
Ég hef reynt að halda þessari um-
ræðu við málefnin en orðið að láta
margt yfir mig ganga í fjölmiðlum,“
sagði Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra í samtah við DV. Hún
sagðist ekki að svo stöddu vilja ræða
nánar stööu sina innan rikisstjórnar-
innar eða hvort skhja mætti ummæh
hennar svo að hún ætlaði að segja
af sér.
„Það er ljóst að gera verður hveij-
um ráðherra kleift að starfa innan
ríkisstjórnarinnar. Enginn annar
ráðherra hefur orðið að þola sömu
meðferð og ég hef orðið fyrir. Það er
reynt að niðurlægja mig og störf mín
og dregin upp sú mynd af þeim að
öh min mál séu illa unnin."
Jóhanna sagði að eðlhega hefði
verið að málum staðið þegar hún
lagði frumvarpið fram enda hefði
verið komið samkomulag um öll
ágreiningsatriðin og ríkisstjórnin
samþykkt aö frumvarpið yrði lagt
fram.
-SMJ
Þingeyri:
Kona slegin
vegna óánægju
í hópbónusnum
Mikil óánægja er með hópbónusinn
eða hlutaskiptakerfið meðal starfs-
fólks í fiskvinnslu á Þingeyri. Fyrr í
vikunni kom til átaka á mhli tveggja
kvenna. Kona bar eftirlitskonu á
brýn að hún gerði allt th að tefja fyr-
ir og lækka bónusinn. Sú sem borin
var sökum réðst aftan að hinni og
sló hana í gólfiö. Við það fékk konan
áfah og varð að kaha th lækni.
Fiskvinnslukona á Þingeyri, sem
DV ræddi við, sagði að óánægjan
væri almenn. Áður þurfti hver aö
gæta síns en nú er það svo að ef ein-
hver starfsmaður þarf að bregða sér
frá saka vinnufélagarnir hann um
leti. Konan, sem rætt var við, sagði
að andrúmsloftið væri orðið ansi
þvingað og saknaði fólk gamla fyrir-
komulagsins.
-smc
Guðrún Á.
Símonar látin
Guðrún Á. Símonar óperasöng-
kona lést á heimili sínu í Reykjavík
sunnudaginn 28. febrúar. Hún var
64 ára að aldri.
Guðrún Á. Símonar var fædd i
Reykjavík 24. febrúar 1924. Hún
stundaði söngnám í Bretlandi og á
Ítalíu og hélt síðar tónleika víða um
heim auk þess sem hún söng í óper-
um og á plötum. Guðrún lætur eftir
sig uppkominn son, Ludvig Kára
Forberg.
-JBj