Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1988, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1988, Qupperneq 6
30 FÖSTUDAGUR 8. APRfL 1988. Kvikmyndir - Kvikmyndir - Kvikmyndir Bíóhöllin Þrír menn og bam Þremenningarnir Tom Selleck, Steve Guttenberg og Ted Danson, er leika aðalhlutverkin í Þrír menn og barn (Three Men and a Baby), verða heldur betur undrandi þegar þeir finna dag einn sex mánaða gamalt barn fyrir utan dymar hjá sér. Þeir hafa hingað til lifað áhyggjulausu pipar- sveinalífi og deilt með sér lúxusíbúð þar sem ósjaldan er glaumur og gleði með víni og vífum. Einn þeirra er faðir barnsins og hefur móðirin í ör- væntingu skilið það eftir hjá föðurnum i þeirri von að hann taki það að sér. Það verður snögg breyting á lífi þeirra. Allt í einu þurfa þeir aö hafa áhyggjur af bleium og barnamat og barnið spyr að sjálfsögðu ekki hvort það er dagur éða nótt þegar það vantar eitthvað... Þetta er byrjunin á einhverri vinsælustu kvikmynd vestanhafs á síöasta ári. Þykir vel hafa tekist til og þótt þessum ágætu leikurum hafi verið hælt þá er það barn- ið sem stelur senunni. í raun er hér um tvíbura aö ræða sem leika stúlkubarnið. Stjömubíó Skólastjórinn Skólastjórinn (The Principal) fjallar um Rick Latimer sem er mis- heppnaöur sonur, eiginmaöur og kennari. Það kemur honum því á óvart þegar honum er boðin skólastjórastaða við skóla sem er harla óvenjuleg- ur. Það kemur sem sagt í ljós að nemendur gera yfirleitt allt annað en að læra og stunda frekar íkveikjur, rán og eiturlyfjasölu. Latimer kynn- ist öryggisverðinum Jake Philips og saman ákveða þeir herferö gegn ofbeldismönnunum sem virðast allsráðandi innan veggja skólans. Aðal- hlutverkin leika James Belushi, Louis Gossett jr. og Rae Dawn Chong. Þá má geta þess að Stjörnubíó sýnir hina ágætu en nokkuö gamaldags sakamálamynd Einhver til að gæta mín (Somewhone to Watch over Me) sem fjallar um lögregluþjón sem fær það verkefni að gæta ríkrar konu sem er mikilvægt vitni í morðmáli. Laugarásbíó Hróp á frelsi Hróp á frelsi (Cry Freedom) er ein þeirra kvikmynda sem vakið hatá ' hvað mesta athygli og aðdáun á undanfórnum misserum. Hún segir frá ævi blökkumannaleiðtogans Steve Biko er lést í fangelsi í Suður-Afríku vegna barsmíða sem hann varð fyrir. Myndin er gerð eftir bók vinar Bikos, Donalds Woods, blaðamanns og ritstjóra í Suður-Afríku, er tók eindregna afstöðu með mannréttindabaráttu svarta kynstofnsins og kynntist þannig Biko. Leikstjóri myndarinnar er Richard Attenborough sem er sjálfsagt þekktastur fyrir Gandhi. Þykir honum hafa tekist vel að skapa rétt andrúmsloft og þrátt fyrir að Hróp á frelsi sé þriggja klukku- stunda löng er athygli áhorfandans alltaf haldið með stórfenglegum senum, senum sem Attenborough virðist vera orðinn sérfræðingur í. Donald Woods, sá er skrifaði bókina, ér leikinn af Kevin Kline. Það er veigamikið hlutverk vegna þess að Woods er til staðar alla myndina. Það er óþekktur leikari, Denzel Washington, sem leikur Biko og leitaði Atten- borough lengi áður en hann fann rétta leikarann. Háskólabíó Trúfélagið The Believers er dularfull spennumynd sem fjallar um svartagaldur og annað álíka. Myndin gerist í New York nútímans en fortíðin er aldrei fjarri. Aðalpersóna myndarinnar er Cal Jamison sem Martin Sheen leik- ur. Hann kemur til New York til að forðast fortíðina. Eiginkona hans hafði dáið í dularfullu slysi og ætlun hans er að byrja nýtt líf á nýjum stað. Jamison er sálfræðingur og vinir hans fá hann til að sálgreina ung- an lögregluþjón sem hefur orðiö fyrir alvarlegu sálrænu áfalli. Jamison kemst að því að áfallið tengist morðum sem lögregluþjónninn var að rannsaka. Hann hefur sínar grunsemdir sem stangast á við grunsemdir lögreglunnar og brátt er hann flæktur í mál sem hann heföi ekki getað órað fyrir að hann mundi lenda í... Það er úrvalslið sem stendur að myndinni. Leikstjóri er John Schlesinger sem þekktur er fyrir vönduð vinnubrögð og auk Martins Sheen leika Helen Shaver og Robert Loggia. Gaspard Manesse og Rapohael Fejtö leika aðalhlutverkin í Bless, krakkar. Regnboginn Bless, krakkar Fyrir utan aö frönsk kvikmynda- vika er í Regnboganum er sýnd þar úrvalsmyndin Bless, krakkar, Au revoir, les enfants, kvikmynd sem hinn þekkti leikstjóri Louis Malle gerði og byggir á æskuminningum sínum. Fjallar myndin um tvo unga drengi sem ganga saman í kaþólsk- an klausturskóla. Annar þeirra er gyðingur og þegar nasistar hertaka Frakkland vofir yfir honum hand- taka. Louis Malle, sem ekki haföi gert kvikmynd í heimalandi sínu í tíu ár, þykir hafa gert eftirminnilega kvikmynd sem á næman hátt lýsir náinni vináttu tveggja drengja á stríðstímum. Bless, krakkar fékk fyrir stuttu flest aðalverðlaun við afhendingu Cesar-verðlaunanna sem í Frakklandi jafngilda óskars- verðlaunum. Þá má geta þess að á mánudaginn keppir hún um titil- inn besta erlenda kvikmyndin við afhendingu óskarsverðlaunanna. HK Frönsk kvikmyndavika verður í Regnboganum næstu viku. Verða sýndar sjö kvikmyndir, allt nýlegar myndir. Á sérstakri frumsýningu á laugardaginn verður sýnd myndin Á veraldar vegi (Le Grand Chemin) sem á dögunum fékk nokkur Cesar-verðlaun. Á myndinni er aðalleikonan, Anémone, sem fékk Cesar-verðlaun sem besta leikkonan fyrir leik sinn i Á hjara veraldar. Nánar er fjallað um frönsku kvikmyndavikuna á öðrum stað í blaðinu. Á mánudaginnn verður Ijóst hvort Cher hlýtur óskarsverðlaunin eftir- sóttu fyrir hlutverk sitt í Moon- struck. Bíóborgin Moonstruck Meðal þeirra kvikmynda sem fá nokkrar tilnefningar til óskarsverð- launa þetta árið er Moonstruck sem Norman Jewison leikstýrir. Aðal- hlutverkið leikur söngkonan og upprennandi leikkonan Cher og eru hún og Jewison bæði tilnefnd ásamt því að myndin er í hópi fimm kvikmynda sem tilnefndar eru sem besta mynd. Cher leikur Lorettu Castorini, ekkju sem býr í Brooklyn ásamt foreldrum sínum. Hún ákveður að giftast Johnny Cammareri sem er fyrirmynd ungra manna. En meðan hann er á Sikiiey að hjúkra aldraðri móður fellur Loretta fyrir öðrum í Cammar- eri-íjölskyldunni, manni sem ekki hefur alla þá kosti sem prýða Johnny. Moonstruck er gamanmynd sem fæstum ætti að leiðast að horfa á. Cher, sem í dag er ein eftirsóttasta leikkonan vestanhafs, þykir fara á kostum, svo er og um meðleikara hennar og er þar helst að nefna Nicholas Cage er leikur aðalhlutverkið á móti henni. Sýningar Gallerí Borg Pósthússtrœti 9 Elías B. Halldórsson sýnir í Gallerí Borg. Á sýningunni eru nýlegar olíumyndir. Elias hefur haldið margar einkasýningar um allt land og tekið þátt í fjölda samsýn- inga hér heima og erlendis. Gallerí Gangskör Amtmannsstíg 1 Lísbet Sveinsdóttir sýnir verk sín í Gal- lerí Gangskör. Sýningin verður opin alla daga frá kl. 12-18 og um helgar kl. 14-18. Henni lýkur sunnudaginn 10. apríl. Gallerí list Skipholti 50b í Galleríinu eru til sölu og sýnis ýmis listaverk. Opið 10.00-18.00 virka daga. En um helgar frá kl. frá kl. 14.00-18.00. Gallerí Langbrók Bókhlöðustig 2 textílgallerí. Opið þriðjudaga til fóstu- daga kl. 12-18 og laugardaga kl. 11-14. Gallerí Nes Nýja-Bæ v/Eiðistorg Opnaður hefur verið nýr sýningarsalur, Gallerí Nes, í verslunarhúsnæði Nýja- Bæjar við Eiðistorg, III. hæð. Opið er virka daga kl. 16-19 og laugardaga og sunnudaga kl. 13-16. Gallerí Svart á hvítu Norski listamaðurinn Yngve Zakarias sýnir verk sín í Galleri Svart á hvítu. Hann hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum. Sýningin stendur til 10. apríl. Hafnargallerí Hafnarstræti 4 Opnuð hefur verið sýning á 14 olíumynd- um eftir Ástu Guðrúnu Eyvindardóttur á loftinu í Bókaverslun Snæbjarnar. Sýn- ingin, sem er sölusýning, stendur til 24. apríl. Kjarvalsstaðir viö Miklatún Þar standa yfir þrjár sýningar. Guð- mundur Björgvinsson sýnir málverk. f Kjarvalssal sýnir Sigþrúður Pálsdóttir (Sissú) málverk og á vesturgangi sýnir Jens Kristleifsson landslagsverk. Listasafn ASÍ Grensúsvegi 16 Guðbjartur Gunnarsson sýnir myndir byggðar á ljósmyndum, þrykktar á mis- munandi litan pappír og handlitaðar með pastellitum. Sýningin er opin virka daga kl. 16.00-20.00 laugardaga og sunnudaga kl. 14.00-20.00. Listasafn Einars Jónssonar við Njarðargötu er opið alla laugardaga og sunnudaga kl. 13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn daglega frá kl. 11-17. Listasafn Háskóla íslands í Odda, nýja hugvísindahúsinu, er opið daglega kl. 13.30-17. Þar eru til sýnis 90 verk í eigu safnsins, aðallega eftir yngri listamenn þjóðarinnar. Aðgangur aö safninu er ókeypis. Listasafn íslands Fríkirkjuvegi 7 Safnið er opið alla daga nema mánudaga kl. 11-17. Leiðsögn sérfræðings alla fóstu- daga kl. 13.30-13.45. Kaffistofa hússins er opin á sama tíma og safnið. Myntsafn Seðlabanka og Þjóðminjasafns Einholti 4 Opiö á sunnudögum kl. 14-16. Nýlistasafnið v/Vatnsstíg Ráðhildur Ingadóttir sýnir verk sín til 17. apríl. Norræna húsið Björg Þorsteinsdóttir opnar á morgun kl. 14 sýningu á verkum sínum. Á sýning- unni eru á milli 40 og 50 málverk, pastel- myndir og teikningar. Þetta er 12. einkasýning Bjargar. Sýningin verður opin milli kl. 14-22 daglega til og með 24. apríl. Þá stendur einnig yfir þar sýningin Norræn bókbandslist sem haldin er á vegum Félags bókagerðarmanna í sam- vinnu við Norræna húsið. Sýndar eru 66 bækur sem skiptast í 4 flokka, alskinn, skinn á kjöl og horn, pappírsband og shirtingsband. Auk þess 10 sett af hliðar- pappír. Jafnframt eru sýndir ýmsir merkir prentgripir svo sem Guðbrands- biblía í ýmsum útgáfum og bókbandi og sitthvað fleira. Nýhöfn Hafnarstræti 18 Laugardaginn 9. apríi kl. 14 verður opn- uð sýning á verkum Gerðar Helgadóttur myndhöggvara. Það er lista- og fnenning- aráð Kópavogs sem heldur sýninguna í tilefni af því að hinn 11. apríl hefði Gerð- ur orðið 60 ára. Stofnun Árna Magnússonar Handritasýning Áma Magnússonar er í Ámagarði við Suðurgötu á þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum kl. 14-16. Sjóminjasafn íslands Vesturgötu 8, Hafnarfirði Safnið er opið í vetur laugardaga og sunnudaga kl. 14-18. Skólafólk óg hópar geta pantað tíma í síma 52502 alla daga vikunnar. Póst- og símaminjasafnið Austurgötu 11 Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl. 15-18. Aðgangur ókeypis. Þjóðminjasafn íslands Þar stendur yfir sýning á teikningum skólabarna í Bogasal Þjóðminjasafnsins. Sýningin stendur fram í mai og er opin á venjulegum opnunartíma safnsins. Bókasafn Kópavogs Liststofa Nú stendur yfir sýning á 18 ljósmyndum eftir Svölu Sigurleifsdóttur í Listastofu Bókasafns Kópavogs. Ljósmyndirnar em teknar á seinustu sex árum á ísafirði og Homströndum. Myndefnið er fiöll, fugl- ar, sjór og fiskar. Myndimar em svart/ hvítar, litaðar með oliulitum. Sýningin er opin á sama tíma og bókasafnið, mánu- daga til föstudaga kl. 9-21, laugardaga kl. 11-14. Sýningin stendur til 15. apríl og er aðgangur að henni ókeypis og öllum heimill. AKUREYRI Gallerí Glugginn Glerárgötu 34 í dag opnar Gunnar Öm málverkasýn- ingu í'gallerí Glugganum. Sýningin er opin daglega kl. 14-18. Lokaö á mánudög- um.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.