Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1988, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1988, Qupperneq 8
32 FÖSTUDAGUR 8. APRÍL 1988. ( Listinn í dag sýnir hvaöa myndir voru vinsælastar á páskujjum og skal engan undra að nýjustu mynd- imar tróna á toppinum. Að vísu blandar Stella í orlofi sér í topp- baráttuna og er vafalaust vinsæl- asta íslenska kvikmyndin sem komið hefur út á myndbandi hing- að til. La Bamba tók við fyrsta sætinu af hryllingsmyndinni The Fly sem dettur niður í sjöunda sætið. The Living Daylight er svo í öðru sætinu. Þrjár nýjar myndir koma inn á listann. RoboCop stekkur beint í þriðja sætið og kemur það engum á óvart. Tvö síðustu sætin skipa svo gamanmyndirnar Jumping Jack Flash, sem skartar Whoopi Gold- berg í aðalhlutverki, og Wise Guys með þeim litla en skemmtilega Danny deVito. ★★★ Goðsögn verður til DV-LISTINN 1. (2) La Bamba 2. (3) The Living Daylight 3. (-) RoboCop 4. (7) Big Easy 5. (4) Stella í orlofi 6. (8) Blind Date 7. (1) The Fly 8. (5) April Fools Day 9. (-) Jumping Jack Flash 10. (-) Wise Guys Mynd- bönd Umsjón: Sigurður M. Jónsson Hilmar Karlsson: LA BAMBA Útgefandi: Skífan hf. Leikstjóri og handritshöfundur: Luis Valdez. Myndataka: Adam Greenberg. Framleióendur: Taylor Hackford og Bill Borden. Aðalhlutverk: Esai Morales, Rosana DeSoto, Elisabeth Pena og Joe Pantoliano. Bandarisk 1987. 104 mín. Öllum leyfð. Það er ekki erfitt að skilja vin- sældir þessarar myndar sem þrátt fyrir þröngan fjárhag náði að slá 'ærlega í gegn á síðasta ári og hefur halað inn sem svarar 54 milljónum dollara í Bandaríkjunum til þessa. Á íslandi hefur ekki verið að sjá neina undantekningu á þessum vinsældum og viöbrögðin á mynd- bandaleigum til þessa sýna vel hug fólks til þessarar vel gerðu myndar. Myndin segir frá Ritchie Valens sem var á góðri leið með að verða þjóðsaga í rokkheiminum aðeins 17 ára gamall árið 1958. Þá fórst hann í flugslysi ásamt Buddy Holly og Big Bopper. Þann dag má örugg- lega gráta þvi samkvæmt mynd- inni var Valens líklegur til að gefa rokktónlistinni nýjan tón. Sá tónn hefði byggst á sterkum mexíkönsk- um hefðum eins og glögglega má sjá í vinsælasta lagi hans, La Bamba. La Bamba hefur orðið til að gefa nýjan tón í myndir byggðar á rómönskum uppruna og má þeg- ar sjá merki þess að fleiri slíkar myndir séu á leiðinni, þó ekki séu það rokkmyndir. Myndin spannar ekki langan tíma en segir frá því þegar Valens er að reyna fyrir sér sem gítarleik- ari og söngvari. Þegar í upphafi leynir sér ekki að hann býr yfir hinum sanna neista og eru söngat- riðin feikiskemmtilega uppbyggð. wwí ffew- • * w* ffjwi mw* ! U í/JHl m KWfeii tífitó* IxM ■ ÍI&HHTi KW K fffW.ll'B' tíi yi/MJith WiUft tjURffJjjMU WS liSS:wtytft j m. vi wúíiil m;>» p-1 iJAfettiQ ^ i SgljgffP! Má sem dæmi nefna stutt atriði á krá þar sem Valens treður upp með bróður sínum sem undirleikara. Þrátt fyrir andsnúið andrúmsloft tekst honum að fanga athygli áhorfenda. Söngatriðin eru ekki mörg (enda entist Valens ekki tími til að semja mörg lög) en gegna auðvitað mikilvægu hlutverki. • Flugslysið hangir eins og reidd öxi yfir myndinni og með margs konar táknum eru væntanleg örlög Va- lens sterklega gefin til kynna. Þó að leikarar verði að teljast óþekktir standa þeir vel fyrir sínu. Fremstur fer Morales í hlutverki Valens og stendur hann sig frábær- lega. Er þess að vænta að margir þeirra sem að myndinni unnu eigi eftir að birtast fljótlega aftur á hvíta tjaldinu. -SMJ KING Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: Abby Mann. Aðalhlutverk: Paul Winfield, Ossie Davis, Cycile Tyson og Clift de Young. Bandarisk 1978. - Sýningartími u.þ.b. 5 klsL (2 spólur). í þessari viku eru liðin tuttugu ár frá því Martin Luther King var myrtur. Féll þar í vaiinn mikill baráttumaður fyrir jafnrétti svartra og hvítra manna. Margt hefur breyst til betri vegar á tutt- ugu árum og er það ekki síst skeleggri og markvissri baráttu Kings að þakka. King er löng sjónvarpsmynd sem byggð er á ævi þessa mikilmennis. Myndin byrjar þegar hann er að ljúka háskólanámi og fer á fjörurn- ar við tilvonandi eiginkonu sína, Corettu, sem á eftir að reynast hon- um vel. Það kemur fljótt í ljós að ein- göngu preststarfið nægir ekki hinum mælska King. Uppruni hans er í Suðurríkjunum og þar hefur hann starf sitt til að bæta kjör svartra. Við fylgjumst svo með honum á leið hans sem liggur vítt og breitt um Suðurríkin. Hvíti meirihlutinn, sem enn lítur á svarta kýnstofninn sem þræla, lí tur starf hans illu auga og er hann handtekinn hvað eftir annað. Þess má geta að allt í allt var Martin Luther King handtekinn 125 sinn- um á stuttri ævi sinni. Starf hans vekur þjóöarathygli og verður til þess að þáverandi for- seti, John F. Kennedy, og bróðir hans, Robert, sem var dómsmála- ráðherra, taka tillit til baráttu hans og lögum er breytt. Skömmu síðar er Kennedy forseti myrtur og Lyn- don Johnson tekur við. Hann er hliöhollur baráttu Kings í orði en tekur að sama skapi ekki eins ein- dregna afstöðu og fyrirrennari hans. Látið er að því liggja að einn þeirra er reyndu hvaö mest að eyði- leggja starf Martins Luthers King sé J. Edgar Hoover, þáverandi yfir- maöur FBI, og er það ekki í fyrsta skipti sem sá maður hefur verið bendlaður við stórglæpi síðari tíma. Myndin endar svo á hinu til- gangslausa morði á King. Ekkert er farið út í að tilgreina morðingj- ann, aðeins í lokin sýnt morðiö á einum mesta friðarsinna nútím- ans, manni sem ekki aöeins barðist fyrir rétti svartra heldur var einnig einn af fyrstu stórmennunum til að fordæma Vietnamstríðið og gerði það í óþökk starfsfélaga sinna. Martin Luther King var geysi- mikill ræðumaður og náði heljar- tökum á áheyrendum sínum. Ræður hans geymast og hefur ver- ið tekin sú stefna í myndinni að skoðanir hans komi fram í ræðum. Því fer mikill tími í ræðuhöldin er gera myndina nokkuð langdregna en ræðurnar eru nauðsynlegar til að skýra baráttu og réttlætiskennd þessa mikilmennis. Það er erfitt hlutverk sem Paul Winfield hefur fengið til að glíma við. Til er mikið af eftirminnilegum myndum af King þar sem hann þrumar yfir milljónum manna en leikarinn leysir verk sitt mjög vel af hendi. Hann verður að sjálfsögðu aldrei Martin Luther King en betur er varla hægt að leika sögupersónu sem er jafnlifandi í hugum manna og Martin Luther King er. HK Tónlist næturinnar ROUND MIDNIGHT Útgefandi: Steinar hf. Leikstjóri: Bertrand Tavernier. Aðalieikarar: Dexter Gordon, Francois Cluzet, Christine Pascal og Lonette McKee. Frönsk 1986. - Sýningartími 126 min. Það hafa verið gerðar margar ágætismyndir þar sem heillandi djasstónlist er umgjörð. Langflest- ar eru bandarískar, um bandaríska djassleikara, enda stendur djassinn næst Bandaríkjamönnum. Engin mynd hefur þó verið gerð af jafnnæmum skilningi á lííi djass- leikara, draumum þeirra og blá- köldum veruleika og kvikmynd Bertrands Tavemiers, Round Mid- night. Það þurfti sem sagt franskan kvikmyndagerðarmann til að gera hina fullkomnu mynd um líf djass- leikara. Tavernier hefur látið hafa eftir sér að hann hafi alltaf dreymt um að gera kvikmynd sem fjallaði um djass. Sjálfur hafi hann á unglings- árunum í kringum 1960 verið fastagestur á djassbúllum Parísar þar sem þekktir bandariskir djass- leikarar léku, menn á borð við Bud Powell og Lester Young, en einmitt þessum tveimur tileinkar hann mynd sína. Round Midnight fjallar um Dale Tumer, drykkfelldan saxófónleik- ara sem Dexter Gordon leikur snilldarlega. Turner er kominn til Parísar til að leika í Blue Note klúbbnum. í raun er hann á síðasta snúningi. Hann fær ekki kaup því hann mundi drekka sig útúrfullan og ekki mæta til að leika, Þrátt fyrir það leikur hann djass á hverju kvöldi öllum til ánægju því hann veit að án tónlistarinnar þrifist hann ekki. Meðal aðdáenda hans er ungur Parísarbúi sem býr einn með ungri dóttur sinni sem hann vanrækir vegna aðdáunar sinnar á Dale Tumer. Kunningsskapur tekst með þeim, kunningsskapur sem þróast í innilega vináttu. Parísar- búinn reynir hvað hann getur að halda Turner frá brennivíninu, sem og tekst og Turner verður til þess að faðir og dóttir fmna aftur hvort annað en þráhyggja unga mannsins var farin að hafa slæm áhrif á dótturina. Allt virðist ganga vel. Þau þrjú búa saman í sátt og samlyndi. Tón- hstin er í fyrirrúmi og Tumer finnur hjá sér þörf að leika inn á plötu eftir langt hlé. Turner langar heim, sem er New York. Þar bera freistingarnar gamla manninn ofurliði og þá eru endalokin skammt undan... Round Midnight er ekki aðeins mynd um djass, hún er mynd um vináttu, vináttu sem birtist í ást og umhyggju. Tavernier hefur gert mynd sem flestum unnendum kvikmynda er ógleymanleg. Stóran þátt í þessari vel heppn- uðu kvikmynd á Dexter Gordon. Þessi aldni en viðurkenndi saxó- fónleikari sýnir snilldarleik, ef leik er hægt að kalla því vitað er að hann hefur veriö hollur Bakkusi gegnum árin og þekkir því afleið- ingar ofdrykkju. Haft hefur verið á oröi að hann sé hér að miklu leyti að leika sjálfan sig. Annars skiptir það engu máU. Hann er burðarás myndarinnar og er stórkostlegur á að horfa og hlusta. HK DOWNPAYMENT ON MURDER Útgefandi: Steinar. Leikstjóri: Waris Hussein. Aóalhlutverk: Ben Gazzara og Connie Sellecca. Bandarísk. 95 min. Bönnuð yngri en 12 ára. Þessi bandaríska sjónvarpsmynd byggir á fjölskyldudrama sem tek- ur dáUtið óvenjulega stefnu þegar eiginmanninum dettur í hug að ráða leigumorðingja til aö drepa konu sína. Hjónaband Cardell hjónanna er í rúst vegna fjárhagsvanda eigin- mannsins og ofstopafulls skapferlis hans. Eiginkonan ákveður að skUja við hann og flytur að heiman. Það dugir þó ekki til því karhnn eltir hana og hefur sífeUt í hótunum sem endar með því að hún fer að óttast um Uf sitt, ekki að ástæðulausu. Þessi mynd er svo sannarlega ekkert tímamótaverk en hún dugir þó tU einhverrar afþreyingar á síð- kvöldum. AUt er nokkuð faglega unnið, leikur þokkalegur en þó sýnu bestur hjá þeim gamla ref, Gazzara, sem sýnir tilþrif. Hins vegar skortir mikið á að myndin nái nokkru flugi og varla að það takist að mynda spennu í kringum hápunkt myndarinnar. Þessi mynd telst til þeirrar fjöldaframleiðslu sem streymir stöðugt frá Banda- ríkjunum og fer vel í suma en síður í aöra. -SMJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.