Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1988, Page 3
LAUGARDAGUR 9. APRÍL 1988.
ÞETTA
Myndagáta
Hvaða orð má lesa úr þessai mynd? Sendið
svar til: BARNA-DV.
Besta BARNA-DV
Ég heiti Þorkell Hróar Björnsson og er
10 ára. Ég á heima að Bláskógum 12 á
Egilsstöðum. Núna er ég fótbrotinn. Ég fót-
brotnaði í skíðalyftunni á leiðinni upp
brekkuna. Það verður komið sumar þegar
ég losna við gifsið. Mér leiðist ofsalega
mikið núna því ég ligg í rúminu. Ég fæ
ekki hækjur strax. Mér finnst verst að missa
af fótboltanum og frjálsu íþróttunum. Það
er gaman að BARNA-DV. Við erum fjórir
bræður (12, 10, 8 og 6) og rífumst alltaf um
BARNA-DV þegar það kemur. Svo eigum
við litla systur sem er 2 mánaða.
Bless, bless,
Hróar
Kæri Hróar.
Bestu þakkir fyrir bréfið. Vonandi líður
þér eitthvað betur núna og tíminn líður svo
hratt að fyrr en varir verður þú laus við
gifsið og byrjar að sparka bolta.
Kannski gætir þú stytt þér stundir við að
teikna í rúminu? Geturðu ekki sent okkur
nokkrar myndir? Eða skrifað stutta sögu?
Hvað ætlar þú að gera í sumar? Hvað gerð-
ir þú í fyrrasumar? Skrifaðu okkur og segðu
frá því.
Með ósk um góðan bata.
BARNA-DV
41
HITT!
Kveðjur
Mig langar að senda Þórunni Bjarnadótt-
ur, Kóngsbakka 12, Breiðholti, alveg meiri
háttar stuð-símakveðjur. Svo vil ég senda
öllum fermingarkrökkunum á þessu ári
æðislegar fermingarkveðjur.
Ásthildur Björnsdóttir,
Aratúni 42 í Garðabæ
Ég vil senda Huldu Egilsdóttur afmælis-
kveðjur en hún átti afmæli 24. mars.
Hanna Maja
Ég var í sumarbúðum í Laugargerði sum-
arið 1986 og þar kynntist ég strák sem
heitir Halldór. Ég skrifaðist á við hann
lengi en svo fluttist hann til Vestmanna-
eyja og þá hætti hann að skrifa mér. Ég
vona að Halldór lesi þetta og skrifi mér
aftur. Svo sendi ég pottþéttar kveðjur til
allra sem voru í seinasta hópi uppi í Kerl-
ingarfjöllum í sumar.
Jóhanna María Ævarsdóttir,
Móatúni 6, Tálknafirði.
Ég vil senda Fríðu Ellu í Reykjavík og
pabba á Eskifirði æðislegar kveðjur. Pabba
vil ég senda afmæliskveðjur og velgengnis-
kveðjur, en hann er kokkur á skipi og átti
afmæli 1. apríl. Ég vil líka senda frænku
minni hamingjuóskir en hún fermdist á
annan í páskum.
íris Stefánsdóttir,
Blikanesi 10, Garðabæ.
Ég ætla að senda kveðjur til bestu vin-
kvenna minna, þeirra Svövu og Sillu. Svo
fær Svava eina afmæliskveðju því hún átti
afmæli 30. mars. Afganginn af kveðjunum
fær 5. IM. Bless, bless.
Kiddý, 5.-IM.
Sendi kveðju að Sumardvalarheimilinu
að Kjarnaholtum. Kærar þakkir fyrir
kortið og ljósmyndina.
Helgi, 10 ára.
. (r WMVNuzaoi r,fí
1168 “S pí. rog?;,
'I f'7AV'!.V«Krf.y ftf J
!
‘Sati.
.... á
m-72 f
Einu sinni var stelpa sem hét Sigrún. Hún
átti þríburabræður sem hétu Ólafur, Sig-
urður og Magnús og mamma þeirra hét
Lísa og pabbi hét Valgeir.
Sandra Guðmundsdóttir
7 ára
BojcuWrvi H g
loo tcópar*Mj>
■ L*
0%
Elínborg Óskarsdóttir,
Bæjartúni 4, 200 Kóparvogi
Jóna Hrund, 12 ára.
„Cheerios-kökur“
200 g flórsykur
3 msk. kakó
2 egg
200 g plöntufeiti
tæpur pakki (lítill) af Cheerios
Plöntufeitin brædd. Sett í skál með flórsykr-
inum, kakói og eggjum. Hrært vel saman.
Cheeriosið er síðan sett út í og hrært. Sett
í form og fryst. Borið fram beint úr frysti.
Bestu kveðjur
Guðrún Eva
Hversu
margar múr-
steina þarf í
viðbót til að
fullgera ten-
inginn?
Sendið svar
til:
BARNA-
DV,
Þverholti
11,105
Reykjavík.
Dragðu beina línu frá einum bókstaf til tölustafs, þannig að línan
skipti stjörnunum jafn í tvo hluta. (Jafnmargar stjömur báðum megin
við strikið) Milli hvaða bókstafs og tölustafs á að draga línuna? Send-
ið svar til BARNA-DV, Þverholti 11, Reykjavík.