Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1988, Page 1

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1988, Page 1
Fjölbreytt fjöl- skylduhátíð - til styrktár Halldóri Halldórssyni, hjarta- og lungnaþega Mikil fjölskylduhátíö veröur í Laugardalshöllinni á sunnudag- inn. Skemmtmún hefst klukkan fmuntán og er tilgangur hennar að styrkja Halldór Halldórsson, hjarta- og lungnaþega og fjölskyldu hans. Eins og menn sjálfsagt muna fór Halldór í hjarta- og lungnaskipta- aðgerð í London í byrjun febrúar. Þá var hann búinn að bíða í fimm mánuði í London eftir aðgerðinni og allan þann tíma voru foreldrar hans hjá honum. Vera þeirra og heimsóknir systkinanna hafa mjög orðið til þess að létta undir með Halldóri og gera honum dvölina bærilegri. En að sjálfsögðu hafa töluverð útgjöld verið þessu sam- fara þar sem hvorugt foreldranna hefur getað unnið allan þennan tíma. Nú er svo komið að fjölskyld- an þarf sennilega að selja húsið sitt til að greiða upp skuldahalann þeg- ar hún snýr heim. Allirgefa vinnu sína Þessi styrktarhátíð kemur sér því mjög vel fyrir Halldór og fjölskyldu hans en allir sem koma fram gefa vinnu sína og íþrótta- og tómstund- Halldór Halldórsson, hjarta- og lungnaþegi. Myndin er tekin fáeinum dögum eftir aðgerðina en nú eru liðnir rúmir tveir mánuðir frá því hann fékk nýtt hjarta og lungu. DV-mynd -ATA Halldór með foreldrum sínum, Aðalheiði Guðmundsdóttur og Halldóri Sigurðssynl. Þau hafa reynst syni sinum ómetanleg stoð í veikindum hans og hafa dvalið hjá honum í London frá því i september. DV-mynd VAJ aráð Reykjavíkur hefur gefið eftir leiguna á Laugardalshöllinni. Þeir sem koma fram eru Valgeir Guðjónsson og Bjartmar Guðlaugs- son og fleiri listamenn. Þá leikur Breiðablik við úrval fyrstu deildar- leikmanna í handknattleik. Kristj- án Sigmundsson leikur þar sinn síðasta leik en aðrir leikmenn verða Einar Þorvarðarson, Júlíus Jónasson, Héðinn Gilsson, Þorgils Óttar Mathiesen, Sigurður Gunn- arsson og fleiri landsliðskappar. Að leik loknum fara leikmenn í vítakeppni og keppa um titilinn „Vítaskytta 1. deildar 1988“. Æviráðning í leikhléi verður knattspymu- leikur þar sem leiða saman hesta' sína menn frá Reykjavíkurborg og bæjarstjórn Kópavogs. Þeir sem standa að fjölskylduhá- tíðinni á sunnudag er einkaklúb- bur sem nefnist Aðall og íþróttafé- lögin Breiðablik og Augnablik í Kópavogi. Þess má til gamans geta að Halldór er varaformaöur Augnabliks og hefur hlotið ævi- langa kosningu í þá stöðu. Fólk er hvatt til að mæta í Höllina á sunnudaginn og slá þar með tvær flugur í einu höggi. Fá góða skemmtun og styðja um leið gott málefni. -ATA Þórscacé: Þýskir dagar Ferðamálaráð Hamborgar, Arnarflug og Þórscafé gangast fyrir Þýskaland- skynningu í Þórscafé í kvöld og annað kvöld. Tveir matreiðslumeistarar koma frá Hamborg og framreiða þýska rétti og þaðan kemur einnig fjögurra manna hljómsveit sem mun ásamt hljómsveit hússins halda uppi þýskri stemningu og fjöri. í Þýskalandi er mikið framleitt af tískufatnaði og Unnur Arngrímsdóttir mun stjórna tískusýningu þar sem sýndur verður þýskur fatnaður. Einnig verða ýmsar aðrar vörur frá Þýskalandi kynntar. Kynnir verður Júlíus Brjánsson. Hin nýja hljómsveit Grétars örvars- sonar, Stjórn. Grétar Örvarsson: Myndar Stjóm Nýlega stofnaði Grétar Örvarsson hljóðfæraleikari hljómsveit. Nefnist hin nýja hljómsveit Grétars Sljórn. Félagar í hljómsveitinni eru Eiður Axelsson á bassa, Einar Bragi Braga- son á saxófón, Grétar Örvarsson, sem leikur á hljómborð og syngur ásamt Öldu Ólafsdóttur, og Matthías Hemstock Íeikur á trommur. Sfjómarsamstarfiö hófst fyrir mánuði og hafa æfingar staðið síðan. Frumraun sveitarinnar verður í Glaumbergi í Keflavík á laugardags- kvöldið, síðan heldur hljómsveitin til Vestmannaeyja og mun skemmta gestum Skansins næstu fjórar helg- ar. Efnilegur lög- fræðingur - sjá bls. 32 Dönsk bóka- kynning Það verður þýskt andrúmsloft i Þórscafé um helgina. Sjá ennfremur bls. 20.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.