Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1988, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1988, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 1988. 19 Dansstaðir ABRACADABRA, Laugavegi 116 Diskótek föstudags- og laugardags- kvöld. ÁRTÚN, Vagnhöfða 11, sími 685090 Gömlu dansarnir fóstudagskvöld kl. 21-3. Danssporið ásamt söngvurun- um Ömu Karls og Grétari. Á laugar- dagskvöldið nýju og gömlu dansarnir, hljómsveitin Danssporið ásamt Ömu Karls og Grétari. BÍÓKJALLARINN Lækjargötu 2, sími 11340 Gleðimunkarnir' leika af fmgrum fram fóstudags- og laugardagskvöld, opið kl. 22-3. BROADWAY, Álfabakka 8, Reykjavík, sími 77500 Lokað fóstudagskvöld fyrir almenn- ing vegná einkasámkvæmis. Allt í gamni með Ríó á laugardagskvöld. CASABLANCA, Skúlagötu 30 Diskótek fóstudags- og laugardags- kvöld. DUUS-HÚS, Fischersundi, sími 14446 Diskótek fóstudags- og laugardags- kvöld. Á sunnudagskvöld leikur Tríó Kristjáns Magnússonar í Heita pott- inum. EVRÓPA v/Borgartún Diskótek fóstudagskvöld. Sálin hans Jóns míns leikur fyrir dansi á laugar- dagskvöld. GLÆSIBÆR, Álfheimum Hljómsveitin Goðgá leikur fyrir dansi fóstudags- og laugardagskvöld. Opið kl. 22.00-3.00. HOLLYWOOD, Ármúla 5, Reykjavik Á fóstudags- og laugardagskvöld spila The Lonely Blue Boys fyrir dansi, einnig kemur hljómsveitin „mín“ fram. HÓTEL BORG, Pósthússtræti 10, Reykjavík, sími 11440 Diskótek fóstudags- og laugardags- kvöld. HÓTEL ESJA, SKÁLAFELL, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík, sími 82200 Dansleikir fóstudags- og laugardags- kvöld. Lifandi tónlist. Tískusýningar öll fimmtudagskvöld. Opið frá kl. 19-1. HÓTEL ÍSLAND Rokksýningin Allt vitlaust fóstu- dagskvöld. KK-sextett leikur á laugardagskvöld. HÓTEL SAGA, SÚLNA- SALUR, v/Hagatorg, Reykjavík, sími 20221 Á fóstudags- og laúgardagskvöld veröur sýndur söngleikurinn „Næt- urgalinn - ekki dauður enn“ sem byggist á tónlist Magnúsar Kjartans- sonar í gegnum tíðina. Á Mímisbar leika Einar Júlíusson og félagar. LEIKHÚSKJALLARINN, Hverfisgötu Diskótek fóstudags- og laugardags- kvöld. LENNON v/Austurvöll, Reykjavík, sími 11630 Diskótek fóstudags- og laugardags- kvöld. LÆKJARTUNGL, Lækjargötu 2, simi 621625 í kvöld og annað kvöld snýst tónlist tunglsins í takt við tilveruna undir stjórn þeirra Hlyns og Dadda. ÚTÓPÍA, Suðurlandbraut Diskótek fóstudags- og laugardags- kvöld. ÞÓRSCAFÉ, Brautarholti, s. 23333 Síðasta helgi Tommy Hunt. Þýsk helgi á vegum Amarflugs og Þórsc- afé. Föstudags- og laugardagskvöld verður boöið upp á þýskan mat og þýska skemmtun. ÖLVER Álfheimum 74, s. 686220 Opið frá kl. 18-3 fóstudags- og laug- ardagskvöld. Markó Póló spilar frá kl. 21 fimmtudaga til sunnudaga. AKUREYRI SJALLINN „Rokkskór og bítlahár" í Sjallanum föstudags- og laugardagskvöld. „Verkin sex, sem verða flutt eftir mig á tónleikunum á sunnudag, eiga það sameiginlegt að vera af trúarlegum rótum runnin. Þar af eru þrjú beinlínis við trúarlega texta. Þau endurspegla afstöðu mína til kristinnar trúar og um leið eflaust þær tilfinningar sem bærast í bijósti mínu. Það má kannski segja að þetta sé tónlist mikillar ástríðu og átaka. Yrkisefni mín í tónlistinni eru yfir- leitt ástin og dauöinn og þær þjáningar sem óhjákvæmilega tengjast ástinni og dauðanum. Þetta er það sem raunverulega skiptir mestu máli í lífi hvers manns,“ segir Hjálmar H. Ragnars- son, tónskáld og kórstjóri. Á sunnudag Á sunnudag kl. 17.00 verða tón- leikar í Kristskirkju þar sem sönghópurinn Hljómeyki og Mar- teinn H. Friðriksson flytja kórverk eftir Hjálmar undir stjóm hans sjálfs. Hjálmar hefur verið áberandi í tónlistarlífi Reykjavíkurborgar á Sönghópurinn Hljómeyki er skipaóur 12 atvinnusöngvurum. Undirleikari er Marteinn H. Friðriksson en stjóm- andi Hjálmar H. Ragnarsson. Hjálmar H. Ragnarsson: Þjáning, dauði og ást Á tónleikum í Kristskirkju næstkomandi sunnudag verða flutt sex verk eftir Hjálmar H. Ragnarsson tónskáld; Gamalt vers, Kvöldvísur um sum- armál, Lauffall, Gloria, Credo og Ave Maria. DV-mynd KAE síðustu árum. Eftir hann liggur mikill fjöldi kórverka. Hjálmar hef- ur einnig samið tónlist fyrir ein- leikshljóðfæri og kammerhópa. Þá hefur hann og verið afkastamikill á sviði tónlistar fyrir leikhús og sjónvarp og er skemmst aö minnast tónhstar hans við uppfærslu Þjóð- leikhússins á Yermu eftir Garcia Lorca. Glorla - Hvenær byijaðir þú að semja trú- arleg verk? „Fyrsta verkið, sem ég gerði viö trúarlegan texta, var verkið Gloria og það var fyrir beiðni Dómkórsins á árinu 1982. Gloria er fom kristinn trúartexti. Venjulega er hún tónsett sem gleði- söngur sem táknar trúarvissu. Fyrir mig var ekki hægt að horfast í augu við þetta verkefni nema ég geröi mér grein fyrir því fyrst hver • væri afstaða mín til almættisins. Þegar ég settist niður meö textann fyrir framan mig gat ég ekki falsað og þóst vera fullur trúarvissu. Þess vegna er mín Glória, Gloria efa- semdarmannsins. Hún lýsir í senn flrringu og þjáningu nútíma- mannsins. Hún er dapurleg í byrjun og endi. En í miðkaflanum opnast hún líkt og blómknappur sem er að springa út. En einmitt í þeim kafla er Drottinn ákallaður um miskunn til handa okkur mönnum. Credo Credo er samið við hinn latneska texta trúaijátningarinnar. Verkið samdi ég á síðasta ári fyrir Hljóm- eyki. Credo er ofsafengið og ákaft verk. Það er óp þess sem þráir og hrópar til almættisins. Credo og Gloria eru af sama toga þó ólík séu. Annars vegar kyrrlátt og dapurlegt verk og hins vegar ofsafengið verk. Þau endurspegla manninn í vest- rænu samfélagi, samfélagi sem einkennist fyrst og fremst af skeyt- ingarleysi fyrir tilfmningum og rétti náungans. í Ave Maria ríkir hins vegar meira tilfinningalegt jafnvægi. Verkið byggir á stefi sem ég samdi upphaflega fyrir sýningu Leikfé- lags Reykjavíkur á leikritinu Agnes, bam Guðs. í verkinu er ég að tala við Maríu guðsmóður og þaö er hægara aö tala viö hana en Drottin. Hún er í senn ímynd þess mjúka í heiminum, fulltrúi kon- unnar og móðurinnar. Hún er éitthvað sem maður telur sig þekkja og geta nálgast. íslenskir textar Hin verkin þijú eru gerð við ís- lenska texta. Gamalt vers byggir á gamalli íslenskri bæn sem ort var í orðastað barns. Ég samdi það verk upphaflega fyrir Háskólakórinn árið 1980. Kvöldvísur um sumarmál eru skrifaðar fyrir Hamrahlíðarkórinn 1984 við texta Stefáns Harðar Grímssonar. í þeim birtist undur- falleg minning skáldsins um ást- vinu sem hvarf honum. í ljóðinu kemur fram einhver sú fallegasta konumynd sem um getur í íslensk- um skáldskap. í verkinu reyni ég að samræma tónlistina anda text- ans og orðum hans. Aliar myndlík- ingar í textanum eiga sér hliðstæður í tónlistinni. Lauffall er gert við texta eftir Snorra Hjartarson. Ég samdi þetta verk í minningu Snorra sem var náfrændi minn en hann lést á síð- asta ári. Verkið var fyrst sungið af Kristni Sigmundssyni við jarðar- för skáldsins, 7. janúar 1987.“ Hollt hverjum listamanni - Hvers viröi er það fyrir tónskáld að halda tónleika á borð við þessa. „Það er mjög hollt fyrir hsta- manninn aö fá yflrlit yfir eigin verk á einum tónleikum. Þá fær hann betri yfirsýn yfir verkin. Annars er hætta á því að maður sjái ekki samhengið í eigin tónsmiðum. Tónskáldið verður að kunna að kasta í músíkinni. Ég hef samiö verk og sett ofan í skúffu og reynt að gleyma þeim. Metnaöarfyllsta verk sem ég hefi nokkru sinni sa- mið hafiiaði þar. Það var held ég vel unnið og mikið í það lagt í öflum smáatriðum en heildjn var hræði- leg. En þetta verk hefur hins vegar nýst mér sem aflgjafi margra ann- arra tónverka." -J.Mar Heiti Pottuiinn: TJÍÓ Kristjáns Magnussonar Á sunnudagskvöldið kl. 21.30 hefjast tónleikar með Triói Kristj- áns Magnússonar í Heita pottinum í Duus-húsi. Sérstakur gestur kvöldsins er Þorleifur Gíslason saxófónleikari. Píanóleikarinn Krislján Magnús- son hóf sinn hijómlistarferil skömmu fyrir 1950. Hann hefur leikið með fjölmörgum hijómsveit- um í gegnum tíðina en lengst af var hann með KK-sextettinum, eða á annan áratug. Með tríói þessa gam- alreynda píanista spilar trommu- leikarinn Guömundur R. Einars- son, sem haldið hefur fullum damþi í áslættinum í 50 ár. Þriðji félagi tríósins er kontrabassaleikarinn Tómas R. Einarsson, sem djass- unnendur ættu meðal annars að minnast fyrir leik sinn á plötunni Hinsegin blús sem kom út á síðast- hðnu ári. Þorleifur Gíslason hefur sphaö á saxófóna í rúma tvo áratugi. Það eru þó ekki nema tæplega 10 ár síð- an hann varð verulega kunnur meðal djassfólks. Þorleifur hefur verið einn af aðalsólóistum Stór- sveitar Ríkisútvarpsins síðasthðin 10 ár. Kristján Magnússon, Tómas R. Einarsson og Guðmundur R. Elnarsson munu skemmta gestum Heita pottsins um helgina.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.