Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1988, Page 6
30
FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 1988.
Kvikmyndir - Kvikmyndir - Kvikmyndir - Kvikmyndir -
Háskoiabíó Hentu mömmu af lestinni
Hinn litli og skemmtilegi Danny
DeVito tekur aö sér tvöfalt hlut-
verk í gamanmyndinni Hentu
mömmu af lestinni (Throw
Momma From The Train). Hann
leikur aðalhlutverkið og leikstýrir
myndinni. DeVito hefur getið sér
gott orð sem gamanleikari á und-
anfómum árum. Hann er minna
þekktur leikstjóri, Hann er þó eng-
inn nýgræðingur bak við mynda-
vélina. Hefur hann leikstýrt
fjöldanum öllum af stuttum sjón-
varpsþáttum við góðan orðstír.
Hentu mömmu af lestinni fjallar
um tvo rithöfunda, Larry Donner
(Billy Crystal), og Owen Lift
(Danny DeVito). Þeir eiga sameig-
inlegt vandamál. Larry þolir ekki
ejginkonu sína og Owen á móður
sem er að gera hann vitlausan.
Þeir ákveða því að best sé að losna
við þær og á Owen að sjá um eigin-
konu Larrys og Larry um móður
Owens. Rithöfundarnir eru ekki
lengi að upphugsa snjalla áætlun
en eins og í góðri gamanmynd fer
ekki allt eins og ætlað var...
Danny DeVito og Billy Crystal I hlutverkum sínum I Hentu mömmu af lestinni.
Tveir leikara i kvikmyndinni Fullt tungl fengu óskarsverðlaun í vikunni,
Cher og Olympia Dukakis. Þær geta eins og svo margir aðrir leikarar á
undan þeim þakkað að hluta til leikstjóranum, Norman Jewison, en hann
hefur áður leikstýrt leikurum er svo hafa fengið óskarsverlaun fyrir leik
sinn. Jewison sést hér leiðbeina Vincent Gardenia og Cher.
Bíóborgin
Fullt tungl
Ekki fékk Fullt tungl (Moonstruck) óskarsverðlaunin sem besta kvik-
mynd þetta árið. Leikkonur myndarinnar geta aftur á móti verið ánægðar
með sinn hlut því Cher fékk óskarinn fyrir aðalhlutverk og Olympia
Dukakis fyrir leik sinn í aukahlutverki. Cher, sem verður nú að teljast
meðal allra vinsælustu leikkvenna, leikur Lorettu Castorini, ekkju, sem
býr í Brooklyn ásamt foreldrum sínum. Hún ákveður að giftast Johnny
Cammareri sem er fyrirmynd ungra manna. En meðan hann er á Sikiley
að hjúkra aldraðri móður sinni fellur Loretta fyrir öðrum í Cammareri-
ljölskyldunni, manni sem ekki hefur alla þá kosti sem prýða Johnny.
Fullt tungl er gamanmynd sem fæstum ætti að leiðast að horfa á. Cher fer
á kostum og svo er einnig um aðra leikara og ber myndin þess greinileg
merki að við stjórnvölinn er mjög hæfur maður.
Kyle MacLachlan og Michael Nouri í hlutverkum sinum í Skelfinum.
Laugarásbíó
Skelfirinn
Skelfirinn (The Hidden) er spennumynd sem ætti að fá hárin til að rísa
á áhorfendum því myndin fjallar um veru utan úr geimnum sem kemur
sér fyrir í likömum sakleysingja og þá er ekki sökum að spyrja að fólkið
breytist til hins verra. Þemað er ekki nýtt. Má nefna Invasion Of the
Body Snatchers sem gerö hefur verið tvisvar og fjallar um líkt efni. Aðal-
hlutverkiö leikur Kyle MacLachlan. Þá er sjálfsagt að geta þess að
Laugarásbíó sýnir stórmyndina Hróp á frelsi (Cry Freedom) hina mögn-
uðu kvikmynd Richard Attenboroughs um aðskilnaðarstefnu stjórnvalda
í Suður-Afríku og þá sérstaklega ævi blökkumannaleiðtogans Steve Biko.
HK
Regnböginn
Bless, krakkar
Fyrir utan að frönsk kvikmyndavika er í Regnboganum er sýnd þar
úrvalsmyndin Bless, krakkar, Au revoir, les enfants, kvikmynd sem hinn
þekkti leikstjóri Louis Malle gerði og byggir á æskuminningum sínum.
Fjallar myndin um tvo unga drengi sem ganga saman í kaþólskan klaust-
urskóla. Annar þeirra er gyðingur og þegar nasistar hertaka Frakkland
vofir yfir honum handtaka.
Louis Malle, sem ekki hafði gert kvikmynd í heimalandi sínu í tíu ár,
þykir hafa gert eftirminnilega kvikmynd sem á næman hátt lýsir náinni
vináttu tveggja drengja á stríðstímum. Bless, krakkar fékk fyrir stuttu
flest aðalverðlaun við afhendingu cesar-verðlaunanna sem í Frakklandi
jafngilda óskarsverðlaunum. Þá má geta þess að á mánudaginn keppir
hún um titilinn besta erlenda kvikmyndin við afhendingu óskarsverð-
launanna.
Stjömubíó
Skólastjórinn
Skólastjórinn (The Principal) fjallar um Rick Latimer sem er mis-
heppnaður sonur, eiginmaður og kennari. Þaö kemur honum því á óvart
þegar honum er boðin skólastjórastaða við skóla sem er harla óvenjuleg-
ur. Það kemur sem sagt í ljós að nemendur gera yfirleitt aflt annað en
að læra og stunda frekar íkveikjur, rán og eiturlyfjasölu. Latimer kynn-
ist öryggisverðinum Jake Philips og saman ákveða þeir herferð gegn
ofbeldismönnunum sem virðast allsráðandi innan veggja skólans. Aðal-
hlutverkin leika James Belushi, Louis Gossett jr. og Rae Dawn Chong.
Þá má geta þess að Stjörnubíó sýnir hina ágætu en nokkuð gamaldags
sakamálamynd Einhver til að gæta mín (Someone to Watch over Me) sem
fjallar um lögregluþjón sem fær það verkefni að gæta ríkrar konu sem
er mikilvægt vitni í morðmáli.
Regnboginn sýnir einnig níföldu
óskarsverðlaunamyndina Siðasti
keisarinn og ef einhver áhugamaður
um kvikmyndir á eftir að sjá úrvals-
mynd ítalska leikstjórans Bernardo
Bertolucci þá er sem sagt enn tæki-
færi en hún hefur verið sýnd nær
látlaust síðan á jólum í Regnbogan-
um.
Sýningar
>
Gallerí Gangskör,
Amtmannsstíg 1
Lísbet Sveinsdóttir sýnir verk sín í Gall-
erí Gangskör. Sýningin verður opin alla
daga frá kl. 12-18 og um helgar kl. 14-18.
Henni lýkur sunnudaginn 10. apríl.
Gallerí List,
Skipholti 50b
í galleríinu eru til sölu og sýnis ýmis
listaverk. Opið kl. 10-18 virka daga. En
um helgar frá kl. 14-18.
Gallerí Langbrók,
Bókhlöðustig 2,
textílgallerí. Opið þriðjudaga til fóstu-
daga kl. 12-18 og laugardaga kl. 11-14.
Gallerí Nes,
Nýjabæ v/Eiðistorg
Opnaður hefur verið nýr sýningarsalur,
Gallerí Nes, í verslunarhúsnæði Nýja-
bæjar við Eiðistorg, III. hæð. Opið er
virka daga kl. 16-19 og laugardaga og
sunnudaga kl. 13-16.
Gallerí Svart á hvítu
Laugardaginn 16. apríl kl. 14 opnar í
Gallerí Svárt á hvítu sýning á blýants-
teikningum Valgerðar Bergsdóttur. Á
sýningupni verða verk unnin á árunum
1987-1988, allt blýantsteikningar á papp-
ír. Valgerður hefur haldið fjölda einka-
sýninga og tekið þátt í samsýningum.
Hafnargallerí,
Hafnarstræti 4,
Opnuð hefur verið sýning á 14 olímnynd-
um eftir Ástu Guðrúnu Eyvindardóttur
á loftinu í Bókaverslun Snæbjarnar. Sýn-
ingin, sem er sölusýning, stendur til 24.
aprfl.
FIM salurinn,
Garðastræti 6. Sýning Mattheu Jónas-
dóttur, Vorvindar, verður opnuð laugar-
daginn 16. aprfl kl. 14 og stendur tfl 1. maí.
Kjarvalsstaðir
við Miklatún
Þar standa yfir þijár sýningar. Guð-
mundur Björgvinsson sýnir málverk. Á
vesturgangi sýnir Jens Kristleifsson
landslagsverk og í Kjarvalssal sýnir Sig-
ríður Pálsdóttir (Sússú) málverk, þetta
er síðasta sýningarhelgi Sússúar.
Listasafn ASÍ,
Grensásvegi 16,
Guðbjartiur Gunnarsson sýnir myndir
byggðar á ljósmyndum, þrykktar á mis-
munandi litan pappír og handlitaðar með
pastellitum. Sýningin er opin virka daga
kl. 16-20 og laugardaga og sunnudaga kl.
14-20.
Listasafn Einars Jónssonar
við Njarðargötu
er opiö álla laugardaga og sunnudaga kl.
13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn
daglega frá kl. 11-17.
Listasafn Háskóla íslands
í Odda, nýja hugvísindahúsinu, er opið
daglega kl. 13.30-17. Þar eru tfl sýnis 90
verk í eigu safnsins, aðaflega eftir yngri
listamenn þjóðarinnar. Aðgangur að
safninu er ókeypis.
Listasafn íslands,
Fríkirkjuvegi 7
Safnið er opið'alla daga nema mánudaga
kl. 11-17. Leiösögn fer fram í fylgd sér-
fræðings alla fóstudaga kl. 13.30-13.45.
Kaflistofa hússins er opin á sama tima
og safnið. Laugardaginn 16. aprfl kl. 15
verður opnuð sýning á verkum franska
listmálarans Pierre Soulage.
Myntsafn Seðlabanka og
Þjóðminjasafns,
Einholti 4
Opið á sunnudögum kl. 14-16.
Nýlistasafnið
v/Vatnsstíg
Ráðhildur Ingadóttir sýnir verk sín tfl 17.
apríl.
Norræna húsið
Norræn farandsýning á efni úr norræn-
um kortabókum verður opnuð laugar-
daginn 16. aprfl kl. 15 í andyrri Norræna
hússins og verður hún opin daglega kl.
9-19 tfl 8. maí. Sýnd verða kort og annað
efni úr norrænum ritum.
Nýhöfn,
Hafnarstræti 18
Nú stendur yfir sýning á verkum Gerð-
ar Helgadóttur myndhöggvara. Það er
Lista- og menningarráð Kópavogs sem
stendur fyrir sýningunni í tilefni af þvi
að hinn 11. aprfl s.l. hefði Gerður orðið
60 ára.
Stofnun Árna Magnússonar
Handritasýning Áma Magnússonar er í
Ámagarði við Suðurgötu á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugardögum kl. 14-16
Sjóminjasafn íslands,
Vesturgötu 8, Hafnarfirði
Opið verður í vetur er, laugardaga og
sunnudaga kl. 14-18. Skólafólk og hópar
geta pantað tíma í síma 52502 alla daga
vikunnar.
Póst- og símaminjasafnið,
Austurgötu 11
Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl.
15-18. Aðgangur ókeypis.
Þjóðminjasafn íslands
Nú stendur yflr sýning á teikningum
skólabama í Bogasal Þjóðminjasafnsins.
Sýningin stendur fram í maí og er opin
á venjulegum opnunartíma safnsins.
Bókasafn Kópavogs,
Liststofa
Nú stendur yflr sýning á 18 ljósmyndum
eftir Svölu Sigurleifsdóttur í Listastofu
Bókasafns Kópavogs. Ljósmyndimar em
teknar á seinustu sex árum á ísafirði og
á Hornströndum. Myndefnið er fjöll, fugl-
ar, sjór og fiskar. Myndirnar em svart-
hvitar, litaðar með olíulitum. Sýningin
er opin á sama tíma og bókasafnið, mánu-
daga til fóstudaga kl. 9-21, laugardaga
kl. 11-14. Sýningin stendur til 15. apríl
og er aðgangur að henni ókeypis og öllum
heimill.
AKUREYRI
Gallerí Glugginn,
Glerárgötu 34
Nú stendur yfir sýning á verkum Gunn-
ars Amar, listmálara í Gallerí Glugga-
num. Sýningin er opin daglega kl. 14-18.
Lokað á mánudögum.