Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1988, Side 2
24
MÁNUDAGUR 9. MAÍ 1988.
Iþróttir
• Tómas Ragnarsson fer léttilega með fák sinn yfir samfastar Skodabifreiðar. DV-mynd E.J.
• Sigurbjörn Bárðarson lætur Hræring stökkva yfir dúkað borð. DV-mynd E.J.
• KVEIKJUHLUTIR • BREMSUKLOSSAR • STÝRISENDAR • HJÖRULIÐIR • HÖGGDEYFAR •
ORYGGISBELTIFRA
FYRIR FRAMSÆTI, AFTURSÆTI, BARNABELTI, BURÐARRLJMSFESTINGAR
OG RALLBELTI.
IVARA
/A "
ItúkJÚX
wr
HLIITIR
Opið
laugardaga
kl.9-12.
V A R A HLUTAVERS L U N I N
S I Ð U M U L A 3
3 7 2 7 3
• VATNSDÆLUR • HJOLATJAKKAR • BUKKAR • HJOLKOPPAR • SÆTAÁKLÆÐI • AUKAHLUTIR
Fjölbreyttar sýningar í Reiðhöllinni:
Djarfhuga
ofurknapar
og fáguð
glæsireið!
Glæsilegar sýningar hestamanna
vöktu mikla hrifningu meöal sýning-
argesta í Reiðhöllinni um helgina.
Djarfhuga ofurknapar og fáguð
glæsireið í bland komu vel út og er
greinilegt að þrátt fyrir ungan aldur
Reiðhallarinnar hafa orðið miklar
framfarir í sýningarhaldi þar.
Fjölbreytni var aðalsmerki sýning-
arinnar. Hestamenn svifu um á jóum
sínum á öllum gangtegundum, marg-
ir saman eða einir sér. Norðlenskir
knapar og norðlenskir hestar voru
áberandi á þessari sýningu. Stóð-
hestasýning stóðhestastöðvarinnar í
Gunnarsholti var haldin á laugar-
daginn þannig aö margir norðan-
manna geröu góða ferð á Suður-
landið. Norðlenskir knapar sýndu
verðlaunahesta að norðan en einnig
komu fram norðlenskir kvenknapar
og norölenskir hrossaræktendur.
Slökkt í alelda ofurknapa
með handslökkvitækjum
Knapar í Félagi tamningamanna
settu og svip sinn á mótið og tengd-
ust flestum atriðum sýningarinnar.
Að öðrum atriðum ólöstuðum vakti
alls konar sprell mesta athygli. Póló-
hð hafnfirskra hestamanna, sem
kepptu undir merkjum íþrótta-
bandalags Akraness og Fimleikafé-
lags Hafnarfjarðar, áttust við og sigr-
uðu höin til skiptis. Hetjuatriði Úlf-
ars Guðmundssonar, sem lét hest
draga sig út úr hölhnni logandi enda
á milli, þótti djarft, sérstaklega þegar
Úlfar missti takið á bandinu, sem
hann var dreginn í, þannig að hann
lá eftir á jörðinni alelda. Hjálpar-
menn hans brugðust skjótt við,
geystust inn í salinn með hand-
slökkvitæki og slökktu samstundis í
Úlfari sem lét sér hvergi bregða. Fé-
lagar í Stjörnuklúbbnum, Tómas
Ragnarsson, Orri Snorrason og Þórð-
ur Þorgeirsson létu hesta sína
stökkva yfir eldveggi og Skodabif-
reiðar og Sigurbjörn Bárðarson lét
hestinn Hræring stökkva yfir dúkað
borð.
Skeiðsýningar undir dynjandi tón-
list ollu skjótum viðbrögðum hjá
áhorfendum og var ávaht klappað
mikið er Aðalsteinn Aðalsteinsson
lét hinn kunna vekring Börk draga
kerru á eftir sér á flugskeiði. Á milli
var rólegra yfirbragð á sýningum.
Kristinn Hákonarson lét hestinn
Snata leggjast og lét hann leika ýms-
ar kúnstir sem hingað til hafa verið
kallaðar hundakúnstir. Snati velti
sér, hoppaði og skoppaði. Strump-
arnir sáust á ferh og krakkar úr
Reiðskólanum í Vestra-Geldingaholti
sýndu ýmsa leikfimi á hesti sem var
stjórnað með löngum taumi af Annie
Sigfúsdóttur.
Ræktunarmenn hylltir
Ræktunarmennimir Sveinn Guð-
mundsson, Jón Guðmundsson, Sig-
urður Haraldsson, Gísli Höskulds-
son, Jón Bergsson og Magni Kjart-
ansson voru hylltir sérstaklega enda
eru hross frá þeim í fremstu viglínu
á öhum stórmótum þar sem íslensk
hross eru samankomin.
Ungar stúlkur erlendar, sem hafa
tekið sér bólfestu á íslandi og skapað
sér nafn meðal íslenskra knapa,
sýndu nokkra góðhesta og
kvenknapar sýndu tölthesta. Einnig
voru sýnd þekkt og óþekkt kynbóta-
hross.
Eftir þvi sem sýningum fjölgaði
slípuðust hestar og menn, jafnt þeir
sem tóku beinan þátt í sýningum og
hinir sem sáu um að stjórna og störf-
uöu viö sýninguna.
Það er greinilegt að ýmislegt er
hægt að gera þegar sýningar eru
annars vegar. Atriði þurfa að vera
stutt og hnitmiðuð, jafnt stórsýning-
ar margra hesta og knapa sem og
einstakhngsatriöi, sprell og róman-
tík. Þekktur hestamaður hefur
stungið upp á því að burtreiðar verði
á dagskrá næst þegar haldin er sýn-
ing. Það er ekki vitlaus hugmynd.
E.J.
• Halla Margrét Jónsdóttir söng hægt og hljótt, böðuð eltiljósum