Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1988, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1988, Blaðsíða 6
SVONA GEfíUM VIÐ 28 óhreinindi festist viö rúöur og Ijós. íþróttir Tíu ára bið KR-inga á enda: Ross er masttur! - Pétur afgreiddi Fram með tveimur mörkum Ian Ross er mættur til starfa í vest- urbænum, þaö fer ekki á milli mála. Skotinn, sem leiddi Val til tveggja íslandsmejstaratitla á síðustu fjórum árum, var ekki lengi aö binda enda á tíu ára biö KR-inga eftir titli - í gærkvöldi tryggðu hinir nýju læri- sveinar hans sér sigur í Reykjavíkur- mótinu með mjög sannfærandi sigri á Fram, 2-0, að viðstöddum um 1500 áhorfendum á gervigrasinu. Og sá sigur bar vörumerki Ross því KR- ingar böröust af gífurlegum krafti allan tímann og gáfu Frömurum aldrei stundlegan frið til að byggja upp sóknir. Og - vesturbæingar höföu Pétur Pétursson. Pétur skoraöi bæði mörkin. Það fyrra gerði hann á 14. mínútu, fékk þá góða stungusendingu frá Þor- steini Halldórssyni og renndi boltan- um yfirvegað framhjá Birki mark- verði. Seinna markið, á 49. mínútu, var sérlega glæsilegt. Sæbjörn Guð- mundsson tók hornspyrnu frá hægri, boltinn lenti í miðjum teig og spýttist að stönginni fjær. Þar kom Pétur, kastaði sér fram og skallaði af krafti beint upp undir markvinkilinn, 2-0. Með því voru úrslitin svo gott sem ráðin. Besta færi Fram í leiknum kom á 20. mínútu þegar Guömundur Steins- son komst inn fyrir vörn KR, lyfti boltanum yfir Stefán Arnarsson markvörð en boltinn datt aftan á þaknetið. Annars gaf flrnasterk vörn KR með Þorstein Guðjónsson sem besta mann lítinn höggstað á sér. „Liðinu hefur farið fram með hverjum leik og það var allt annað að sjá til strákanna en í fyrri leiknum gegn Fram. Þeir hafa æft mjög vel, lagt meira að sér en áður, og nú sjá þeir uppskeruna af því. Þetta var hörkuleikur og lofar góðu fyrir sumarið enda þótt gervigrasið bjóði ekki upp á sérlega góða knattspyrnu og mörk Péturs voru virkilega góð. Ég er sérlega ánægður með að þessir strákar skuli loksins vinna eitthvað. Ég spurði þá fyrir leikinn hvað þeir ættu af verðlaunapeningum og að- eins Sæbjörn átti einn, tíu ára gaml- an!“ sagði Ian Ross í samtali við DV eftir leikinn í gærkvöldi. Þetta var fyrsti titillinn sem KR vinnur í meistaraflokki í tíu ár, síð- ast varð félagið Reykjavíkurmeistari og 2. deildarmeistari árið 1978. Haldi liðið áfram á þessari braut hefur þaö burði til að bæta frekar við safniö í ár. -VS • Haraldur Ingólfsson, ÍA, skýlir boltanum fyrir Óla Þór Magnússyni, Kefl- vikingi. DV-mynd Ægir Már Kárason Litli bikarinn: Farrell sá um Skagamennina Ægir Mar Kárason, DV, Suðumesjum; Keflvíkingar tryggðu sér sigur í litlu bikarkeppninni í knattspyrnu á laugardaginn þegar þeir unnu Akur- nesinga 1-0 í úrslitaleik sem fram fór í Keflavík. Leikurinn var furðu góður miðað við aðstæður, rigningu og strekking. Skagamenn sóttu talsvert undan vindinum í fyrri hálfleik en síðan snerist dæmið viö eftir hlé. Það var Englendingurinn Peter Farrell sem skoraði sigurmark ÍBK á þriðju mín- útu síðari hálfleiks. MÁNUDAGUR 9. MAÍ 1988. MÁNUDAGUR 9. MAÍ 1988. 29 • Guðmundur Steinsson, Fram, og Willum Þórsson, KR, heyja skallaeinvígi í úrslitaleiknum í gærkvöldi. Ekki má á milli sjá hvor hefur betur en Wiilum og félagar höfðu undirtökin í leiknum og unnu nokkuð öruggan sigur. DV-mynd Brynjar Gauti Tillaga um inntöku eriendra leikmanna var felld: Engir útlendingar í úrvalsdeildinni á næsta leikári - breytt keppnisfýrirkomulag í úwalsdeildinni Ársþing Körfuknattleikssambands íslands fór fram um helgina. Voru flölmörg mál tekin fyrir og bar þar einna hæst tillögu fráfarandi stjórn- ar þess efnis heimila erlenda leik- menn að nýju í úrvalsdeildarkeppn- inni. Sú tillaga náði ekki fram að ganga og var hún felld með yflrgnæf- andi meirihluta í leynilegri atkvæða- greiðslu. Féllu atkvæði þannig aO 28 voru hugmyndinni andvígir en 14 voru henni hlynntir. Breytt keppnisfyrirkomulag Þá kom fram á þinginu tillaga um breytt keppnisfyrirkomulag í úrvals- deildinni. Var tillagan þróuð áfram og samþykkt í þeirri mynd aö tíu lið munu spila í deildinni á næsta tíma- bili í stað níu. Verður leikið í tveimur fimm liða riðlum og í þá raöað með hliðsjón af styrkleika sjálfra liðanna. Riðlarnir eru þannig: A-riðill Haukar, ÍBK, KR, ÍR og Tindastóll. B-riðill UMFN, Valur, UMFG, Þór og UBK eða ÍS. Leikin verður flórfóld umferð inn- an hvors riðils og síðan spila lið úr A-riðli við félög úr þeim gagnstæða, heima og heiman. Fjögur lið, þau tvö efstu úr hvorum riðli, eigast síðan sérstaklega við í úrslitakeppni. Þar verður keppt með því móti að efsta liðiö úr riðli A glímir við annað besta liðið úr riðli B og öfugt. Þau lið sem fyrr vinna tvo leiki mætast síðan í úrslitum um meist- aratitilinn og hreppir það félagið tit- ilinn sem fyrr vinnur tvo leiki. Kolbeinn Pálsson tekur við for- mennsku hjá KKÍ. Ný stjórn kjörin Ný stjórn tekur við störfum í kjöl- far þessa þings KKÍ. Breyting þess efnis að láta sjö menn sitja í stjórn í staö fimm og þrjá varamenn í stað tveggja var jafnframt samþykkt. Sú lagabreyting er þó háð samþykki íþróttaþings ÍSÍ sem mun fara fram 'í haust. Þessir menn voru kjörnir í stjórn- ina: Kolbeinn Pálsson formaður, Einar Bollason, Siguröur Hjörleifsson, Kristinn Albertsson og Ingvar Krist- insson. Þeir Gunnar Þorvarðarson og Kristinn Stefánsson voru einnig kosnir en teljast varamenn þar til íþróttaþing ÍSÍ samþykkir lagabreyt- inguna. Varamenn eru Kolbrún Jónsdóttir, Eiríkur Sigurðsson og Friðrik Jónsson. Þá má geta þess að á þinginu var samþykkt sérstaklega að styrkja þau félagslið er taka þátt í Evrópu- keppni. Felst styrkur KKÍ í aö bera kostnað af dómgæslu á heimaleikj- um íslensku liðanna en hingaö þurfa að koma dómarar erlendis frá. -JÖG íþróttir Knattspyma: Skúli í uppskurð Einar Ásbjöm meiddur Ægir Már Kárason, DV, Suðumasjum; Skúli Rósantsson, leikmaður með 1. deildar liði ÍBK, þarf að gangast undir uppskurö vegna meiðsla á hné. Hætta er á að hann missi þar með að mestu af kom- andi keppnistímabili. Einar Asbjörn Ólafsson, sem er nýgenginn yfir í ÍBK úr Fram, meiddist á sinni fyrstu æfingu með liðinu en ætti að vera orðinn heill þegar hann verður löglegur um næstu mánaðamót. Norska knattspyman: Aftur töp hjá Moss og Brann Liðum íslendinganna gekk illa í 2. uraferö norsku 1. deildarinnar í gær, rétt eins og i fyrstu um- ferðinni, og bæði máttu þola sitt annað tap. Gunnar Gíslason og félagar í meistaraliði Moss töpuöu óvænt á heimavelli fyrir nýliöunum Djerv 1919, leikurinn endaði 0-1. Brann, lið Bjarna Sigurðssonar, tapaði fyrir Kongsvinger á úti- veiii, 1-0. -VS Reykjavíkurmótið í knattspymu: Víkingar nældu í bronsverðlaunin unnu Valsmenn, 1-0 „Arangur okkar í Reykjavíkur- mótinu sýnir að við erum á svipuðu reki og hin Reykjavíkurliðin í fyrstu deildinni, Valur, KR og Fram. Við getum því verið bjartsýnir á sumar- ið. Okkur fer fram með hverjum leik og ég veit að það veröur stígandi í þessu hjá okkur í sumar.“ Þetta sagði Jóhann Þorvarðarsou, fyrirliði Víkings, í spjalli við DV en Hæðargarðsliðið hreppti brons í Reykjavíkurmótinu með því að leggja Valsmenn að velli á laugardag. Gerðu Víkingar eitt mark en Vals- menn ekkert. Mark Hæðargarðsliðsins kom í fyrri hálfleiknum, há og löng sending kom inn í vítateig Vals og féll boltinn fyrir fætur Hlyns Stefánssonar. Þrumaði hann boltanum í stöngina. Af henni hrökk knötturinn til Andra Marteinssonar sem kom honum í opið markið. Viðureignin tók annars lit af háv- aðaroki mestan hlutann úr fyrri hálf- leik en eftir hléið lægði og brá þá fyrir samleiksköflum annað slagiö. Fengu þá bæði liðin færi sem ekki tókst að nýta. -JÖG Styrkur fyrir Skagamenn: Ólafur orðinn heill Ægir Mar Kárason, DV, Suöumesjum; Allar líkur eru á því að Kefl- víkingurinn Ólafur Gottskálks- son geti leikiö í marki Skaga- manna gegn Leiftri í 1. umferð 1. deildarinnar í knattspyrnu um næstu helgi. Ólafur ökklabrotnaði í leik með ÍBK I úrvalsdeildinni í körfuknattleik seinni part vetr- ar og litlar líkur voru taldar á að hann gæti haflð íslandsmó- tiö með Skagamönnum. En hann lék í marki þeirra seinni hálfleikinn gegn ÍBK i Litlu bik- arkeppninni á laugardaginn og i spjalli við DV sagðist Ólafur mjög bjartsýnn á að geta leikiö gegn Leiftri á sunnudaginn kemur. Hlynur Stefánsson átti þrumuskot i markstöng Vals í leik Vals og Vikings á laugar- dag. Að baki honum á myndinni standa þeir Ingvar Guðmundsson og Óttar Sveinsson. DV-mynd Brynjar Gauti Stórieikur Fram og Vals í 1. umferð: Frestun eða gewígras? Svo kann að fara að stórleikur 1. um- ferðar íslandsmótins í knattspyrnu næsta mánudagskvöld, milli íslandsmeistara Vals og bikarmeistara Fram, verði leikinn á gervigrasvellinum í Laugardal. Þá yrði brotið blað í sögu 1. deildarinnar því til þessa hefur enginn leikur í henni farið fram á gervigrasi. Framarar, sem eiga heimaleik, eru hlynntir því að leikið verði á gervigrasinu en Valsmenn eru því andvígir. Mótanefnd þarf að taka afstöðu til málsins en frestun er slæmur kostur fyrir hana vegna þess hve þétt er leikið í sumar. Sýnt er að leik KA og Þórs í 1. umferö verði frestað fram í júní þar sem vellirnir á Akureyri eiga langt í land og sömuleiðis hafa Valsmenn hug á að fá sínum fyrsta heimaleik, gegn Leiftri í 2. umferð þann 19. maí, frestað af sömu ástæðum. -VS BMW 318i, árgerð 1987, 4 dyra, ekinn aðeins 13.000 km, sjáíf- skiptur, vökvastýri, áifelgur, sumar-/vetrardekk, útvarp/seg- ulband, litur steingrár. Skipti gætu komið til greina á ódýrari bifreið, einnig greiðsla með skuldabréfi. Verð 1.000.000. GMC JIMMY, árgérð 1987, einn með öllu, ekinn 20.000 km, ál- felgur, rafmagn í rúðum og læsingum, cruisecontrol, leðurá- klæði, 6 cyl., sjálfskiptur o.fl. ofl. Skipti gætu komið til greina á nýlegum fólksbíl. Verð 1.340.000. Mercedes Benz 190 E, árgerð 1984, gullfallegur, hvítur, ekinn 108.000 km, ABS bremsukerfi, beinskiptur, vökvastýri, sóllúga, álfelgur, útvarp/segulband, höf- uðpúðar að aftan. Skipti gætu komið til greina á ódýrari smábil. Verð 980.000. GLÆSIVAGNAR Á G MMC Pajero, turbo, dísil, lengri gerð, 1986, ekinn 78.000 km, 5 gíra, vökvastýri, breið dekk og White Spoke felgur, hvort tveggja nýtt, aukadekk á felgum, útvarp/segulband, litur brúnn. Skipti gætu komið til greina á ódýrari bifreið, einnig greiðsla með skuldabréfi. Verð 1.090.000. OPIÐ LAUGARDAG KL. 10-17.30. Subaru 1800 station, 4x4, árgerð 1988, ekinrt aðeins 5.000 km, sjálfskiptur, vökvastýri, rafmagn í rúðum og speglum, centrallæs- ingar, útvarp/segulband, sílsa- listar, litur rauður. Skipti gætu komið til greina á ódýrari nýleg- um bíl. Verð 850.000. Subaru Justy J-12, 4x4, árgerð 1987, sem nýr, ekinn aðeins 3.000 km, álfelgur, 5 gíra, topp- lúga, sumar/vetrardekk, útvarp/ segulband, litur blár/silfur. Engin skipti, aðeins bein sala. Verð 460.000. Væntanlegir kaupendur ath.: Mikið úrval nýlegra bifreiða á söluskrá. Verð við flestra hæfi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.