Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1988, Blaðsíða 1
. v
Blýlausa bensínið:
Flest bíla-
umboðin
hafa létt
áhyggjum
af bíleig-
endum
Áhyggjum flestra bíleigenda ætti
nú að vera lokið hvað varðar notkun
nýja, blýlausa bensínsins. Síðustu
daga hafa birst auglýsingar frá bíla-
umboöunum um þaö hvaða bílar frá
þeim megi nota þetta nýja bensín og
hveijir ekki.
Það var Toyota sem reið myndar-
lega á vaðið með greinargóðri aug-
lýsingu og síðan fylgdu aðrir í kjöl-
farið. Það fór fram hjá umsjónar-
manni DV-Bíla, þegar flallað var um
þessar upplýsingar frá bifreiðaum-
boðunum um síðustu helgi, að þá
hafði Hekla hf. þegar dreift upplýs-
ingunum til bensínstöðva í staö þess
að birta auglýsingu eins og flest
hinna umboðanna.
Enn eru þó bifreiðainnflytjendur
sem eiga eftir að gera kaupendum
bíla frá þeim grein fyrir því hvaða
bensín þeir mega nota.
Ljós allan
daginn
fækka slysum
Talsverð umræða hefur átt sér staö
að undanfórnu um ljósanotkun allan
sólarhringinn. Mönnum hefur sýnst
sitt hvað um þessa ákvörðun eins og
gerist og gengur. En hvenær og hvar
skyldi mönnum fyrst hafa dottið í
hug að láta ökuljósin loga á daginn?
Þetta má rekja allt il ársins 1961.
Þá var í gangi herferð i umferðarör-
yggismálum og meðal annars var
lögð áhersla á að ökumenn hefðu
Ijósin kveikt. Það voru síðan aðrir
aðilar í Bandaríkjunum sem héldu
áfram að leggja áherslu á mikilvægi
ökuljósa.
yUMFERÐAR
RAÐ
En hverju breytir ljósanotkunin? í
nýrri skýrslu frá sænskri rann-
sóknastofnun um vega- og umferðar-
mál er einmitt fjallað um þetta at-
riði. Spurningin sem leitast er við að
fá svar við er: Hefur ljósanotkun á
daginn einhver áhrif á umferðarör-
yggi?
Niðurstöður þessarar könnunar
eru, að 'bílar sjáist mun betur séu
ljósin kveikt, þá fækki slysum þar
sem fleiri en tveir bílar koma við
sögu og síðast en ekki síst, fækkar
slysum á gangandi fólki og hjólreiða-
mönnum með ljósanotkun á daginn.
Niðurstaða rannsóknarinnar er í
stuttu máli sú, að mjög sterk rök
mæh með ljósanotkun allan sólar-
hringinn og fátt eitt ef nokkuð bendi
til annars. Nefnt hefur verið að slys-
um hafi að jafnaði fækkað um 11
prósent með tilkomu ljósanotkunar.
she
Nýtt útlit á bil sem flestir þekkja í sjón eftir rækilega umfjöllun siðustu daga - Saab 9000 CD. Nú hefur Saab brotið upp fyrri hefð og komið fram
með hefðbundinn þriggja kassa bil, eða fólksbil með venjulegu „skotti". Á minni myndinni sést opinn blæjubíll af gerðinni Saab 900 Turbo sem
sérstaklega var fenginn hingað til lands vegna kynningarinnar á nýja 9000-bilnum, en hún byrjar í dag og mun standa hjá Glóbus í Lágmúlanum
næstu viku. Ekki er annað að sjá en bíllinn hafi hentað vel í blíðviðrinu í gær. DV-mynd KAE
Saab
9000 CD
- nýtt útlit á vel
heppnuðum bíl
- sjá næstu opnu
Charade CX árg. 1987, 4 dyra, 4 gira,
útv./kassetta, koppar, dökkgrár met-
allic, ek. 20.000 km. Verð 390.000.
Charade TX árg. 1986, 3 dyra, 5 gíra,
tvílitur dökkblár/silfurgrár, ek. 27.000
km. Verð 325.000.
Daihatsu Cuore árg. 1986, 5 dyra, 5
gíra, framdrif, útv./kassetta, liturblár,
ek. 37.000 km. Verð 260.000.
Daihatsu Charade CX árg. 1988, út-
varp/segulband, rauður, ek. 25.000
km, 5 gira. Verð 450.000.
Daihatsu Rocky Wagon disil turbo
árg. 1985, vél 2800 cc 4wd, dökk-
blár/silfurgrár, ek. 24.000 km aðeins,
álfelgur, rafspil, útvarp og segulband.
Verð 950.000.
Daihatsu Charmant LE 1600 árg.
1986, dökkblár, ek. aðeins 9.000 km,
útv./kassetta. Verð 490.000.
Daihatsu Charade CS árg. 1984, 5
gíra, koppar, gulur, ek. aðeins 27.000
km. Verð 250.000. a
Daihatsu Cab Van árg. 1985, fjór-
hjóladrifinn, útv./kassetta, vínrauður,
m/gluggum og aftursæti, ek. 55.000
km. Verð 360.000.
Opið frá kl. 9-18
virka daga
13-17
laugardaga
Daihatsu Rocky dísil 2800 cc árg.
1985, hvitur, ek. 23.000 km, álfelgur,
útv./kassetta. Verð 850.000.