Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1988, Side 2
34
LAUGARDAGUR 14. MAÍ 1988.
BQar
f—ÚRVALS NOTAÐIR---1
TEGUND ARG. EKINN VERÐ
Isuzu Trooper LS, 4 dyra 1988 2.000 1.335.000
OLS. M. Calais Brough. 1987 11.000 1.100.000
Ch. Monza SL/E, beinsk. 1987 15.000 495.000
Pontiac Grand Am 1987 21 .OOOrn 890.000
Toyota Carina II, 5 gíra 1987 480.000
Mmc Pajero, styttri 1986 44.000 850.000
Toyota Corolla, 2 dyra 1985 67.000 360.000
Ford Fiesta 1984 25.000 250.000
Honda Accord EX 1982 76.000 330.000
BMW316 1982 72.000 310.000
Opel Kadett, sjálfsk. 1982 62.000 235.000
Saab 99 GLI 1981 96.000 220.000
Toyota Tercel,4x4 1984 54.000 430.000
Ch. Blazer S10, m/öllu 1985 40.000m 990.000
Ch. Monza SL/E, sjálfsk. 1987 12.000 565.000
MMC Colt GLX1500 1986 39.000 300.000
Mazda 323,5 dyra 1984 72.000 250.000
Opel Corsa LS, 3 d. 1987 36.000 330.000
Ch. Monza SL/E, 4d. 1986 38.000 430.000
Range Rover 1982 81.000 800.000
Scout II, 4 cyl. m/vökvast. 1980 88.000 390.000
Bein lína - notaðir bílar 39810
Opið laugardag frá kl. 13-17
BSLVANGURsf
HÖFÐABAKKA 9 5ÍMI 687300
BILAR DAGSINS
TEGUND ARG. EKINN
Lada1300 1985 26.000
Lada Safir 1987 31.000
Lada Safir 1986 30.000
Lada Canada 1984 55.000
Lada Samara 1987 22.000
Lada Samara 1986 23.000
Lada Lux 1986 26.000
Lada Lux 1985 37.000
Lada station 1985 26.000
Lada Sport 1988 10.000
og miklu fleiri
Ath. góð greiðslukjör.
Opið 10-16.
Einnig á staðnum Pontac Grand Am 1985 og
Jeep Cherokee 1984 á góðum kjörum
B í I a&
Vélsleðasalan
BIFREIÐAR & LANDBÚNAÐARVÉLAR
84060 % m 681200
Suðurlandsbraut 14
Kynning á Saab 9000 CD:
Nýtt en sígilt útlit
- hljóðlátur og rásfastur á vegi
Frændur vorir Svíar hafa þótt
heldur íhaldssamir hvaö varöar bíla-
smíði og því vakti það nokkra at-
hygli fyrr í vetur þegar Saab kynnti
nýja gerö af 9000-bílnum með mikilli
viöhöfn í Nice í Suður-Frakklandi,
eins og áður hefur verið sagt frá í
DV-Bílum.
Heldur hefur dregist að þessi nýi
bíll kæmi hingað til lands en nú er
komið að því og mun hann verða
kynntur á sérstakri sýningu hjá
umboðsaðila Saab á íslandi, Glóbus
hf„ í þessari viku. Af því tilefni er
rétt að riíja upp þau kynni sem feng-
ust af reynsluakstri um frönsku Rivi-
eruna fyrr í vetur.
Sú meginbreyting, sem er á þessum
nýja bíl, 9000 CD, frá eldri gerðinni,
er sú að með honum hefur Saab kom-
ið fram með hefðbundinn þriggja
kubba bíl, eða bíl með venjulegu
skotti, í stað stóra afturhlerans sem
var bæði á 900 og 9000-bílunum fram
að þessu.
Mun hljóölátari
í tilefni af kynningunni í Nice
höfðu Saab-verksmiðjumar flutt um
hundrað CD-bíla til frönsku Rivier-
unnar og það var harla tilkomumikið
að sjá þá alla standa í einni röð í
morgunsólinni á Promenade de
Anglais, aðalgötunni í Nice, tilbúna
til reynsluaksturs.
Bíllinn sem okkur Gísla Sigurðs-
syni Lesbókarritstjóra var úthlutað
til reynsluaksturs þennan sólbjarta
janúarmorgun við Miðjarðarhafið
reyndist vera sjálfskiptur og að sjálf-
sögðu búinn mengunarvörn eins og
allir góðir bílar eiga víst að vera
þessa dagana í Evrópu. Sjálfskipting-
in og mengunarvömin gera sitt til
að draga vígtennurnar úr þessum
spræka bíl en samt er nóg eftir til
að þjóta eftir hraðbrautinni vestur
frá Nice í átt til Cannes þar sem kvik-
myndastjömurnar baða sig árlega í
dýrðarljóma kvikmyndahátíðarinn-
ar.
Þar sem hér er ekki í raun um
nýjan bíi að ræða heldur aöeins ann-
að útlit á bíl, sem við höfum fjallað
um hér á þessum síðum, þá er rétt
að bíða með frásögn af raunveruleg-
um reynsluakstri þar til tækifæri
gefst til að reyna bílinn við íslenskar
aðstæður. Á hinn bóginn er rétt að
gera grein fyrir þeirri tilfmningu
sem fékkst viö þennan 250 kílómetra
reynsluakstur í átt til Aix en Proven-
ce og aftur til baka til Nice.
Aðalbreytingin á bílnum, sem fyrst
kemur í ljós, er hve hljóðlátur hann
er orðinn. Nú berst veghljóðið ekki
lengur inn með stórum afturhleran-
um heldur sér góð hljóðeinangrunin
um að halda öllu veghljóði víðs fjarri.
Það var ekki fyrr en mesti hugsan-
legur hámarkshraöi á íslandi hafði
verið tvöfaldaður að það fór lítiö eitt
að hvína í bílnum og vindur guðaði
á glugga.
Annað sem græðst hefur við þessa
breytingu er það að nú er kominn
styrktur gafl fyrir aftan aftursætið
sem gerir þílinn mun stöðugri í
akstri þar eð yfirbyggingin nær ekki
að vinda upp á sig heldur situr bíllinn
eins og límdur við yfirborð vegarins.
Bestur að innan
Saab 9000 var, eins og flestir bíla-
áhugamenn vita, hannaður samtímis
Lancia Thema, Fiat Croma og Alfa
Romeo 164. Af þessum bílum, eða
þeim sem ég hef kynnst, því Alfan
hefur ekki enn komist undir mínar
hendur, þá er Saabinn best heppnað-
ur hvað innanrýmið varðar. Sam-
kvæmt alþjóðlegum stöðlum eru bíl-
ar flokkaðir í stærðarflokka. í slíkri
flokkun telst Saab 9000 CD stór bíll,
gagnstætt bílum eins og Volvo 760
og Audi 200 og fimmunni frá BMW,
sem teljast bílar í millistærðarflokki.
Fótarými í þessum bíl telst yfirdrif-
ið, bæði hvað varðar fram- og aftur-
sætisfarþega. Sætin eru heill kapítuli
út af fyrir sig. Þau hafa fengið hrós
á hrós ofan í erlendum bílablöðum
og verið meðal þeirra punkta sem
dregið hafa bílinn hvað mest upp á
viö í stigagjöf í erlendum bílaprófun-
um. Að sjálfsögðu eru þau upphituð
þannig að á köldum morgni þarf ekki
annað en að kveikja á rofa og morg-
unhrollurinn er á bak og burt.
Saab hefur einnig haldið sérstöðu
hvað varðar stjórntæki og mælaborð
og lítt eða ekki beygt sig undir þá
þróun, sem verið hefur að ryðja sér
til rúms í bílaheiminum undanfarið,
að æ fleiri bílar, jafnvel japanskir,
koma nú fram á sjónarsviðið með
„þýskum" mælaborðum. Með þessu
á ég við að mælaborð og stjómtæki
æ fleiri þíla eru farin að draga dám
af þeim staðli sem þýskir bílafram-
leiðendur virðast hanna bíla sína eft-
ir.
Sérlega rásfastur
Svo mikið hefur þegar verið íjallað
um Saab 9000 áður hér í DV-Bílum,
Farangursrýmið er með því stærsta sem gerist á bílum í þessum stærðar-
flokki eða um 512 lítrar.
TOYOTA LANDCRUISER II
Nýr LandCruiser bensínbíll til sölu.
Upplýsingar í síma
(91)-71316
TIL SÖLU
SCANIA AJOKKI
53 stillanleg sæti, ekinn 30.000, þ.á. Scania 740
vél, skoöuð '88 (vantar sjúkrakassa + neyðarút-
gangsskilti, þess vegna grænn miði). Nýjar hliðar,
tvöfalt litað gler. Nýjar lestir, loftræstikerfi og miðstöð
um allan bíl (tímastillanleg) o.fl. Nýlega sprautaður.
Mjög góður bíll. Verð 1.550 þús., fæst á skulda-
bréfi, ýmisskipti möguleg. Góðurstaðgreiðsluafslátt-
ur.
Uppl. í síma 686010 - 686030
Bílakaup, Reykjavík