Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1988, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1988, Síða 8
40 LAUGARDAGUR 14. MAÍ 1988. DV Bflar Umferðarmerkingar við vinnusvæði Lélegar og rangar merkingar vegna framkvæmda við lýsingu á Vesturlandsvegi eru kveikjan að þessari umræöu um umferðarmerkingar á vinnusvæðum. „Það var mál til komið að taka á þessu máli. Merkingar í kringum vinnu á götum eða við þær eru oftast nær út í hött, engar eða svo kjánaleg- ar að enginn fer eftir þeim,“ sagði atvinnubílstjóri sem hafði samband við DV-Bíla eftir síðustu helgi. Hann var þar að ræða um baksíðugrein blaðsins þar sem fjallað var um for- kastanlegar merkingar vinnuflokks er setti upp götulýsingu við Vestur- landsveg. DV-Bílum hefur einnig borist bréf frá umferðardeild lögreglunnar í Reykjavík sem hér er birt í heild saxnkvæmt beiðni. Jafnframt er rétt að taka fram að viðkomandi verktaki hefði átt að leita heimildar fyrir merkingum viö þetta tiitekna verk til vegamálastjóra en ekki lögregl- unnar þar sem Vesturlandsvegur telst til þjóövega. Bréf lögreglunnar er svohijóðandi: Undirritaður vill þakka fyrir grein í Dagblaðinu-Vísi sl. laugardag þar sem vakin er athygh á ófullnægj- andi, röngum og ótímabærum merk- ingum vegna framkvæmda á Vestur- landsvegi nýverið. Lestur greinar- innar ætti að verða mörgum mannin- um umhugsunarefni. í framhaldi af þessari grein vill undirritaður biðja um að vekja at- hygli þessara sömu aðila á eftirfar- andi greinum umferðarlaga og lög- reglusamþykktar: ** 85. gr. umferðarlaga: Lögreglu- stjóri skal sjá um, að merki samkv. 1, mgr. 84. gr. [dómsmálaráðherra setur reglur um gerð og notkun um- ferðarmerkja, umferðarljósa og hljóðmerkja og annarra merkja á eða við veg tfl stjómunar á eða leiðbein- ingar fyrir umferð, svo og hvað þau táknaj verði sett á eða við veg, þar sem sérreglur gilda um umferð eða þörf er á tfl stjómunar eða leiðbein- ingar. Vegamálastjóri skal þó sjá um, að slík merki veröi sett á eða við þjóð- veg utan kaupstaða og kauptúna og sýsluveg. Eigi má án leyfis lögreglustjóra (vegamálastjóra) setja merki skv. 1. mgr. 84. gr. á eða við veg. 86. gr. umferðarlaga: Þar sem vega- vinna fer fram eða vegi raskaö af öðrum ástæðum, þannig að hætta stafi af, er þeim, sem stjórna verki, skylt að sjá um, að staðurinn verði merktur á fullnægjandi hátt. 77. gr. umferðarlaga: Leyfi lög- reglustjóra þarf til að geyma á vegi muni, tæki eða vegagerðarefni, sem getur haft í for með sér óþægindi fyrir umferðina, nema sérstakar ástæður geri geymslu tfl bráðabirgða nauðsynlega. Ef eigi er unnt að setja slíka muni, tæki eða efni út fyrir akbraut, skal þeim komið fyrir eins utarlega á henni og unnt er og staö- urinn auðkenndur viðvörunar- merkjum. 19. gr. lögreglusamþykktar: Á al- mannafæri má ekki leggja eöa setja neitt, sem hindrar umferð. 26. gr. lögreglusamþykktar: Ekki má gera skurð í gangstéttir, götur eða torg borgarinnar né raska þeim á annan hátt, nema með leyfi borgar- verkfræðings og samþykki lögreglu- stjóra. Að verki loknu skál færa það í samt lag, sem raskað var. Lögreglustjóri getur, ef hann telur framkvæmdir. dragast um of, látið setja í samt lag það, sem raskað var, á kostnaö þess, sem verkið átti að vinna. 31. gr. lögreglusamþykktar: Ef ein- hver lætur ógert, sem honum er skylt að gera samkvæmt samþykktinni, getur lögreglustjóri látið fram- kvæma það eða gert nauðsynlegar ráðstafanir til aö hindra að van- rækslan valdi tjóni. Kostnaður við þetta og kostnaður sem leiðir af þeim ráðstöfunum er lögreglustjóri gerir tfl þess að hindra brot gegn því sem bannað er í samþykktinni, greiðist af brotamanninum eða, ef hann er eigi fær um það, úr ríkissjóði. Virðingarfyllst, Ómar Smári Ármannsson, aðalvarðstjóri umferðardeildar lögreglunnar í Reykjavík. inn GOTT VERÐ - GÖÐ KJÖR VOLVOSALURINN SKEIFUNNM5 SÍMI 691600 Opiö alla daga frá kl. 9.00 til 18.00. Laugardaga frá kl. 10.00 til 16.00. Alltað 18 mánaða VOLVO- kjör NÖTAÐIR BÍLAR Saab 900 GLS árg. 1981, ekinn 115.000 km, Ijósblár, beinskiptur. Verð 300.000. Góð kjör. Volvo 244 GL árg. 1982, ekinn 110.000 km, Ijósblár metal, sjálf- skiptur, toppeintak. Veró 400.000. Góó kjör. Plussáklæði. Mazda 323 GLX 1500 árg. 1986, Ijósgrænn, ekinn 32.000 km, sjálf- skiptur. Veró 465.000. Góð kjör. Volvo 244 GL árg. 1984, ekinn 73.000 km, brúnn metal, sjálfskipt- ur. Verð 580.000. Volvo 264 árg. 1986, ekinn km, sjálfskiptur, vökvastýri, topp- lúga, eins og nýr. Verð 265.000. Volvo 340 DL árg. 1986, ekinn 33.000 km, Ijósblár metal, bein- skiptur. Verð 525.000. Góð kjör. Volvo 340 DL árg. 1983, beinskipt- ur, vínrauður, ekinn 56.000 km. Verð 310.000. Góð kjör. Volvo 740 GLE árg. 1986, silfurgrár metal, beinskiptur, 5 gíra, ekinn 12.000 km, topplúga, læst drif og margt fleira, toppeintak. Verð 1.150.000. Góð kjör. Ath. Toyota Carina II árg. 1986, silfur metal, ekinn 33.000 km, sjálfskiptur, fallegur bíll. Verð 525.000. Góð kjör. Audi 100 cc árg. 1984, ekinn 96.000 km, hvitur, beinskiptur með od. Verð aðeins 610.000. Góð kjör.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.