Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1988, Síða 1
Iistahátíð:
Brúðuleikhús
íyrir alla
Nú um helgina verða brúðuleikhús
í sviðsljósinu á Listahátíð. Á laug-
ardag og sunnudag kl. 14 sýnir Jón
E. Guðmundsson leikritið Maður
og kona. Heíjast sýningarnar, sem
eru í Lindarbæ, kl. 14.00 báöa dag-
ana. Hjá Leikbrúðulandi verða
sýningar kl. 16 á laugardag og
sunnudag að Fríkirkjuvegi 11. Þar
verður leikritið Mjallhvít sýnt.
Jón E. Guðmundsson er braut-
ryðjandi á sviði brúðuleikhúss hér
á landi, en hann stofnaði brúöu-
leikhús sitt árið 1954. Hann stund-
aði myndlistarnám hér á landi á
árunum 1933-38. Árið 1946 var
hann við nám í leirmótun og leik-
brúðugerð í Kaupmannahöfn en
1949 nam hann við Myndlista- og
handíðaskóla íslands. Hann stofn-
aði Brúðubílinn árið 1976 og stund-
aði myndlistarkennslu í meira en
30 ár. Síðustu fjögur árin hefur
hann eingöngu unnið við brúðu-
leikhús sitt. Að þessu sinni er Jón
einnig með sýningar á Hans og
Grétu í brúðuleikhúsi sínu að
Flyðrugranda 4, og eru upplýsingar
um sýningartíma veittar í síma
16167.
Mjallhvít
Leikbrúðuland hefur nú starf-
rækt brúðuleikhús í 20 ár eða frá
Tékkinn Petr Matásek ásamt Leikbruðulandskonum.
Jón E. Guðmundsson, brautryðjandi á sviði brúðuleikhúss hér á landi.
árinu 1968. Leikhúsið hefur sýnt í
kjallaranum að Fríkirkjuvegi 11
síðustu 15 árin og einnig tekið þátt
í sýningum bæði hjá Leikfélagi
Reykjavíkur og Þjóðleikhúsinu.
Leikhúsið sýndi Tröllaleiki í Iðnó
árið 1983-84, en með þá sýningu
hefur Leikbrúðuland ferðast um
síðastliðin 3 ár og tekið þátt í al-
þjóðlegum brúðuleikhúshátíðum
víðs vegar um heim.
Tékkneskur leikstjóri
Að þessu sinni hefur Leikbrúðu-
land fengið til liðs við sig tékkneska
brúðuleikhúsmanninn Petr Matá-
sek sem bjó til brúðurnar og leik-
tjöldin og hefur hann unnið með
þeim stöllum í Leikbrúðulandi
undanfarnar vikur. Efnið í leikrit-
inu Mjallhvít er sótt í ævintýrasafn
Grimmsbræðra. Tónlist í verkinu
er eftir Jónas Þóri.
Ájörð
ertu
kom-
inn
- sjá bls. 19
—
Nor-
ræni
kvart-
ettinn
- sjá bls. 29
Þor-
valdur í
Gallerí
Borg
- sjá bls. 20
listahátíð:
Þrjár kvikmyndir frumsýndar
Dagur
ljóðs-
ins
sjábls. 19
Mynd-
banda-
listi DV
- sjá bls. 32
Listahátíð frumsýnir á morgun,
laugardaginn 11. júní, þijár stuttar
kvikmyndir sem gerðar eru eftir
verðlaunahandritum. Á síðast-
liðnu ári efndi Listahátíð í Reykja-
vík til verðlaunasamkeppni um
handrit að stuttum kvikmyndum
og voru úrslitin kynnt viö opnun
kvikmyndahátíðar í haust.
Verðlaunin hlutu þau Erlingur
Gíslason, Lárus Ýmir Óskarsson
og Steinunn Jóhannesdóttir. í vet-
ur voru gerðar kvikmyndir eftir
handritum þeirra og verða þær nú
til sýnis gestum Listahátíðar. Hver
myndanna er um og innan við 20
mínútna löng.
Símon Pétur fullu nafni
nefnist mynd Erlings Gíslasonar.
Myndin gerist í Reykjavík i byrjun
seinni heimsstyrjaldar og fjallar
um vináttu lítils drengs og íjár-
hættuspilara. Leikstjóri er Brynja
Benediktsdóttir. Með aðalhlutverk
fara Erlingur Gíslason og Freyr
Ólafsson.
Ferðalag Fríðu
nefnist mynd Steinunnar Jóhanns-
dóttur. Myndin lýsir ferðalagi gam-
allar konu og fjallar um óttann við
hið ókunna. Leikstjóri er María
Kristjánsdóttir og með aðalhlut-
verk fer Sigríður Hagalín.
Kona ein
nefnist mynd Lárusar Ýmis
Óskarssonar. Hún fjallar um konu
sem er að koma heim til sín að
nóttu til - og trúlega oftar en einu
sinni. Leikstjórn annaðist Lárus
Ýmir Óskarsson en meö hlutverk
konunnar fer Guðrún Gísladóttir.
Myndirnar verða sýndar í Regn-
boganum og hefst frumsýningin kl.
19.30, en myndirnar verða sýndar
áfram á sama stað. Veitt verða
verðlaun fyrir bestu myndina að
mati dómnefndar og sýningagesta.
Hver aðgöngumiði gildir jafnframt
sem atkvæðaseðill og verður komið
fyrir kassa við anddyri Regnbog-
ans sem sýningagestir geta skilað
atkvæðum sínum i. Verðlaunin
fyrir bestu myndina verða síðan
æfhent við lok Listahátíðar 1988.
-gh