Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1988, Síða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1988, Síða 30
 30 LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 1988. 4 .8881 ÍMÚI .BS flUaAWtf'QÚAJ LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 1988. 43 Sonurinn Phil er sendur sem hermaður til Víetnam að kröfu föður síns. Sjálfur hafði hann hug á að starfa sem Ijósmyndari. Hér er hann ásamt víetnamskri stúlku. Víetnam - nýir þættir á Stöð 2: Áhrif stríðsins á bítlaböm í Ástralíu Víetnam nefnist myndaflokkur í tíu þáttum sem Stöð 2 hefur sýningar á annað kvöld kl. 23.30 í læstri dag- skrá. Þættimir eru ástralskir og eins og margir þættir sem koma þaðan vel þess virði að fylgjast með þeim. Raunar eru Ástralir orðnir sérfræð- ingar í gerö myndaflokka sem höfða til flestra áhorfenda. Víetnam fjallar, eins og nafnið bendir til, um Víetnam og þær hörm- ungar er þar urðu er stríðið geisaði. Þó er Víetnam ekki í raun aðalefni fyrsta þáttar. Sögusviðið er Canberra í Ástralíu í nóvember 1964. í bænum gengur lífið sinn vanagang og eins og annars staðar í heiminum fylgjast unglingar með Bítlunum og hlusta á rokktónhst. Klæðnaður, dansleikir, bílar og annað umhverfi rifjar upp þessi fyrstu ár Bítlatímabilsins. í fyrsta þætti kynnumst við fjöl- skyldu. Faðirinn, Douglas, er stjórn- málamaður og leggur áherslu á framapot sitt innan flokksins. Hann er fremur geðstirður heima við og lætur skap sitt bitna á fjölskyldunni en leggur metnað sinn í að þóknast ráðamönnum í stjórn landsins. Hann er ráðríkur, þröngsýnn og ótrúr eig- inkonu sinni. Douglas á tvö stálpuð börn. Dóttir- in er á sextánda ári og sonurinn 19 ára. Þau eru bæði gagntekin af bítla- æðinu í kringum sig, spila tónlist og reyna að líta út eins og tískan segir til um. Móöirin er hins vegar afskap- lega værukær, brosir út í annað en segir fátt. Ball í „Glaumbæ“ í þessum fyrsta þætti skiptast á skin og skúrir. Víetnam-stríðiö er hafið með öllum sínum hörmungum og svo kemur að því að Bandaríkja- Dóttirin i myndaflokknum, skóla- stúlka sem langar aö verða fullorðin en kemst brátt að raun um að lífið er ekki bara leikur. Astralskir hermenn sem guldu fyrir mistök annarra í stríði Bandaríkjanna og Víetnam. menn biðja Astrala um aðstoð. Þar með eru stjórnmálin farin að bland- ast inn í, á milli þess sem við fylgj- umst með hressilegum unglingtun í „Glaumbæ“ þar sem dansinn líkist sundtökum í skriðsundi. Við fylgj- umst með er ráðamenn hittast og ræða um beiðni Bandaríkjamanna og hvernig þeim sjálfum verður við er þeir fá að fylgjast með kvikmynd- um frá Víetnam-svæöunum þar sem konur og böm eru pyntuð til dauða. Engu að síður fer Douglas fram á viö son sinn að hann gangi í herinn og nánast skipar honum það. Fyrsti þáttur Víetnam byggist á kynningu á fólki, við kynnumst hinu daglega, ánægjulega og tilkomumikla lífi bítlaunglinga og sannarlega er hægt að hlæja að einstökum atvikum. Ástamáhn blómstra hjá unga fólkinu en aht í einu skyggnumst við inn í aht annan heim, heim stjómmálanna og stríðsins sem síðar á eftir að breyta lífi og högum þessa fólks. Meistaraverk Blaðamanni DV gafst kostur á aö horfa á fyrsta þáttinn af Víetnam og getur fullyrt að hann lofar góðu. Hins vegar er erfitt að útlista af einum þætti hvað á eftir aö koma í næstu níu. Efnisþráðurinn gefur þó vís- bendingu um að hér sé á ferðinni vandað efni sem flokkað hefur verið til meistaraverka kvikmyndasög- unnar. Kennedy Miher, framleiöandi myndarinnar, hefur án efa lagt á sig mikiö til að fá sem réttasta mynd af því hvað gerðist í raun og veru. Kvik- myndir, sem sýndar eru mni á mihi, eru raunverulegar og öll þáttaröðin er á einhveiju leyti byggð á sann- Víetnamskar konur við störf. Ogæfan dundi yfir þjóðina. sögulegum atburðum. Því miöur höfum við ekki upplýs- ingar um leikara myndarinnar enda flestir óþekktir hér á landi. Með aðal- hlutverkin fara Barry Otto, Veronica Lang, Nicholas Eadie og Nicole Kid- man, sem allt eru ástralskir leikarar. Víetnam segir að miklu leyti frá syni Douglas, Phil, er hann er sendur sem hermaður th Víetnam. Við upp- lifum hvernig hermennirnir börðust í stríöinu og guldu fyrir mistök ann- arra. Hvernig stríðið setur mark sitt á líf allra einstaklinga sem við kynn- umst í fyrsta þættinum, það er fjöl- skyldu Douglas, sem sjálfur er æst- astur í að senda soninn í stríöið. Þættirnir gerast allt frá árinu 1964- 1972 á tímum Bítla og blómabama sem vissulega setja svip sinn á þætt- ina. Víetnam-þáttaröðin var frum- sýnd árið 1986 og eru hér á ferðinni nýir þættir. Mikið af efninu, sem fram kemur í þeim, er sótt til Banda- ríkjanna. Þar sem þættirnir eru byggðir upp frá annarri hlið en venjulega hefur verið sýnd frá Víet- nam-stríðinu ná þeir fremur til áhorfandans og hafa þeir því fengið góða dóma. ELA Nú ætlar þú líka að vinna! 0. í Fjarkanum nýju skafmiðahapp drætti - getur þú unnið Ford Escort m ut an landsfer ðir ICELANDAIR adídas margt f'jarkinn er nýtt og spennandi hraðhappdrætti Handknattleikssambands íslands og Skáksam- bands íslands og í því áttu von á vænum vinningi. I Fjarkanum eru 54.844 vinningar í boði og bíða eftir að þú skafir ofan af þeim. Vertu með og skafðu til vinnings því í Fjarkanum hefuralltaf einhver heppnina með sér. Vinningslikur eru með ólíkindum. Þín bíður vinningurað jafnaði í fjórða hverjum Fjarka og vinningshlutfall er 51%. Fjarkinn býðurþér tvo skemmtiiega og spennandi leiki. ÞÚ GETUR UNNIÐ FORD ESCORT í FJARKA-HAPPDRÆTTI ú skefur afskákreitunum og efþú færð fjórar • myndir eins hlýturðu vinning. Fjórir handbolt- ar gefa gullfallegan Ford Escort að verðmæti kr. 580.000. Nýjan glæsivagn - hvorki meira né minna. Fjórir kóngar gefa þér Accord skáktölvu að verð- . mæti kr. 10.000; fjórir hrókar gefa Goai hand- bolta að verðmæti kr. 2.000 og fjórir riddarar Adidas Miami íþróttatösku að verðmæti kr. 500. annað | og ótal Fyrir vinning í Fjarka-happdrætti að verðmæti kr. 10.000, kr. 2.000 og kr. 500 færðu VISA-vöruúttektarseðil, sem þú getur framvísað í verslunum og hjá þjónustu- aðilum VISA um land allt. Möguleikarnir í Fjarkanum eru óteljandi. FJARKINN BÝÐUR BÓNUS - UTANLANDSFERÐ MEÐ FLUGLEIÐUM /\llir safna einhverju, hvort sem það eru A* servíettur, frímerki eða myndir af frægum kvikmyndaleikurum ? En hefurðu safnað liði? í Fjarkanum skefur þú af handboltavellin- um og þá kemur í Ijós nafn stórmeistara í skák eða landsliðsmanns í handknattleik. Safnaðu Fjörkum með nöfnum sex stór- meistara í skák eðá nöfnum sjö lands- liðsmanna í handknattleik og þú ert lukkunnar pamfíll - þú hefur unnið utan landsferð að eigin vali með Flugleiðum Það vinna fleiri í Fjarkanum - fjórði hver Fjarki ber að jafnaði vinning. Fáðu þér fjóra Fjarka i einu. ■ sife

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.