Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1988, Blaðsíða 18
18________
Sviðsljós
ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 1988.
Ólyginn
sagði...
Michael Caine
er nú oröinn kráareigandi.
Hann opnaði sína eigin krá í Ox-
fordshire og hlaut hún nafnið
„Caine’s Mutiny". Michael hefur
sjálfur hug á þvi að standa fyrir
innan barinn og þjóna viðskipta-
vinunum eins oft og mögulegt er.
Það ætti þó allavega að trekkja
að kúnnana.
John McEnroe
missti algjörlega stjóm á skapi
sínu þegar eiginkona hans, leik-
konan Tatum ONeal, tilkynnti
honum að hún hefði tekið boði
um að leika í ítalskri kvikmynd.
John hélt því fram að hún væri
eiginhagsmunaseggur og sæi
ekkert nema sjálfa sig, en hann
kýs að hún sé bara heima og passi
börnin þeirra tvö. Tatum hefur
ekki sömu skoðun á málunum og
spurði hann hvernig hann vogaði
sér að reyna að stjóma lífi henn-
ar. Já, svona geta hlutirnir stund-
um verið.
Rob Lowe
vantar víst ekki peninga þessa
stundina. Fyrir aðeins nokkmm
mánuðum keypti hann sér nýtt
hús í Hollywood fyrir 42 milljónir
og fyrir aðeins nokkmm vikum
skrifaði hann undir kaupsamn-
ing á íbúö í New York fyrir sömu
upphæð. Rob sjálfum finnst hann
hafa sloppið ótrúlega vel við
kaupin og reyndar hafi húsnæðið
verið ódýrt.
Keppendur voru fjölmargir í Flipp-open eins og sjá má á þessari mynd sem fekin var við komuna í Hvammsvik. Tilhlökkunin leynir sér ekki í svip þátttakenda.
Árlegt golfmót starfsmanna DV haldið á Hvammsvíkiirvelli:
Metþátttaka í Flipp-open
Fhpp-open, golfmót starfsmanna
DV, var haldið í þrettánda skiptið á
hinu glæsilega útivistarsvæði í
Hvammsvík þar sem bæði er
skemmtilegur níu holu golfvöllur,
sem þeir Hvammsvíkurmenn hafa
ræktað upp á tæpu ári og verður
betri og betri með hverri vikunni, og
vinsælt veiðivatn sem alltaf er full-
bókað í.
Keppendur voru þrjátíu og fimm
og hafa aldrei verið fleiri. Keppt var
í tveimur flokkum og réð forgjöf í
Nokkrir starfsmenn DV voru það forsjálir að hafa með sér veiðistöng og
renndu fyrir silung í góðviðrinu.
Sigurvegari mótsins var Bergur Garðarsson. Sést hann hér taka við verð-
launum sínum úr hendi Jónasar Haraldssonar fréttastjóra.
hvorum flokknum keppendur lentu.
Að venju voru nokkrir gestir, fyrr-
verandi starfsmenn og velunnarar
blaðsins. Ekki leit vel út með gott
veður í byrjun en um leið og hinn
glæsilegi hópur birtist í Hvalfirðin-
um fóru veöurguðimir að brosa sínu
blíðasta og hélst sú veðurblíða fram
á kvöld.
Mikill hugur var í mönnum enda
verðlaun hin glæsilegustu og þótt
htla hvíta kúlan fæ'ri ekki alltaf þá
leið sem henni var ætlað er víst
Klæðnaður var óformlegur eins og sést á búningi Ragnars Sigurjónssonar
sem hér er í fríðum hópi samstarfsmanna.
Ýmis ný tilbrigcfi við golfíþróttina sáust á Hvammsvíkurvellinum. Hér sést
Gunnar Andrésson pútta. Félagar hans, Magnús Ólafsson, Bergur Garðars-
son og Jónas Haraldsson virðast, eftir svipnum að dæma, ekki vera alltof
bjartsýnir á að kúlan rati rétta leið.
Hér sjást verðlaunahafar í Flipp-open, talið frá vinstri, Hilmar Karlsson, Bergur Garðarsson, Þórður Geirsson,
Finnur Thorlacius, Þorbjörn Gíslason, Þráinn Þorleifsson og Halldór Bragason. Til hliðar sést svo hinn glæsilegi
Peugeot 205 sem var í verðlaun fyrir þann sem færi 1. braut í einu höggi. Enginn var þó svo heppinn í þetta skiptið.
óhætt að fullyrða að alhr höfðu gam-
an af.
Verðlaun voru einstaklega glæsi-
leg. Jöfur hf. eftirlét Peugeot 205 í
verðlaun fyrir þann sem færi holu í
höggi á fyrstu braut. Enginn var svo
heppinn í þetta skiptið. En sigurveg-
ari og aðrir verðlaunahafar fóru ekki
tómhentir heim heldur höfðu með
sér hin glæsilegustu verðlaun. Sigur-
vegarar í hvorum flokki fengu til
dæmis fallegar ullarpeysur frá Ár-
bliki. Önnur verðlaun voru einnig
glæsileg, vasadiskó frá Radíóbæ, út-
varpsvekjaraklukkur frá Japis, íjöl-
breyttar golfvörur frá Golfbúðinni í
Garðabæ, höfuðfónar og vídeóspólur
frá Sjónvarpsmiðstöðunni og höfuð-
fónar frá Faco. Verðlaun sem allir
voru ánægðir með. Þá má geta þess
að aðstandendur útivistarsvæðisins
í Hvammsvík leystu verðlaunahafa
út með reyktum regnbogasilungi frá
Eðalfiski í Borgarnesi.
Það var ánægður hópur starfs-
manna DV sem fór heimleiðis að
loknum viðburðaríkum degi.
HK