Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1988, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1988, Page 19
GOLF Fréttir af NM í gotfi Ægii Már Kárason, DV, Suðurnesjum; Landsliðið æfir í dag Landslið íslands í golfi kemur saman kl. 17 í dag til æfinga fyrir Norður- landamótíð sem fram fer á Hólms- velli í Leiru um næstu helgi. Loka- undirbúningur liðsins fyrir mótið hefst með þessari æfingu. Ailir kylf- ingarnir áttu erfiða helgi því þeir voru á ferðinni í hinum ýmsu mót- um. Tvísýnt með Bergvík Enn er óljóst hvort hin fræga Berg- víkurhola í Leinmni verður notuð á Norðurlandamótinu. Hún kom illa undan vetri og veðurfarið undanfar- iö hefur ekki flýtt fyrir því að hún kæmist í gott lag. Verði veður þurrt verður hún líklega notuð, annars ekki. Til vara er svonefnd „vetrar- flöt“ en þá styttíst vegalengdin all- nokkuð. Vetrarflötin er 110 metra frá teig en Bergvíkurholan 181 metra. Þúsund áhorfendur? „Við reiknum með því aö meira en eitt þúsund áhorfendur komi og fylg- ist meö Norðurlandamótinu. Það ræðst þó auðvitað mikið af því hvort við verðum heppnir með veður eða ekki,“ sagði Omar Jóhannsson, framkvæmdastjóri Norðurlanda- mótsins, í samtali við DV í gær. Kæran í 4. deild: Uð Lettis ólöglegt í DV í gær var sagt aö Ármenning- ar hygöust kæra Hvergerðinga vegna ólöglegs leikmanns í 4. deildar keppninni í' knattspymu. Þetta reyndist á misskilningi þyggt, en það rétta í málinu er að Ármenningar ætla að kæra lið Léttis og fara fram á aö því verði vísað úr mótinu. Aö mati Ármenninga hafa Léttís- menn iðulega í sumar teflt fram leik- mönnum sem ekki hafa gengiö frá félagaskiptum yfir í þeirra raöir. Léttir náði jafntefli við Ármann fyrr í sumar og einmitt þau úrslit skipta sköpum þegar upp er staðiö - Hvera- gerði fer í úrslitakeppni 4. deildar að öllu óbreyttu, en það kæmi í hlut Ármenninga ef Léttismönnum yrði vísaö úr mótinu. -VS Fram leikur sannkallaða hollenska knattspymu sagði aðstoðarþjálfari Barcelona eftir 2-0 sigur Fram á IBK „Framliðið kom mér mjög á óvart í þessum leik. Það leikur sannkallaða hollenska knattspyrnu - knatt- spyrnu sem er mér mjög að skapi og þaö var ánægju- legt að horfa á það leika,“ sagði Tonnij Bruins Slot, aðstoðarþjálfari spænsku bikarmeistaranna Barcel- pna, í samtali við DV í gærkvöldi, eftir leik Fram og ÍBK í 1. deildar keppninni á Laugardalsvellinum sem Fram vann 2-0. hreyfingu og það var unun að fylgj- ast með honum í leiknum. Númer 13 (Ómar Torfason) lék einnig mjög vel. Hann er jafnvigur í sókn og vörn og er alltaf til taks þar sem á þarf aö halda. En ég sá Framliðið aðeins sækja, ekki verjast, því mót- heijar þess voru frekar slakir og komu vöminni aldrei í vandræði,“ sagði Bruins. Hann kvaöst ekki kviða því sér- staklega að leika á Laugardalsvell- inum, sagði að hverjum velli yröi að taka eins og hann væri. Fyrri leikur Frara og Barcelona fer fram hérlendis 7. september en sá síðari á Nou Carap í Barcelona 5. október. Bruins kom til landsins á sunnu- dag, gagngert til aö skoöa lið Fram sem veröur andstæðingur Barcel- ona í Evrópukeppni bikarhafa í haust, og hann hélt aftur til Spánar í morgun. Hann stjómar liði Barce- lona ásarat hinum fræga Johan Cruyff og kom með honum frá Ajax í sumar. Þar störfuöu þeir saman í þijú ár og Bruins var hjá hol- lenska félaginu þtjú ár þar á und- an. „Leikstíll Fram er mjög áferöar- fallegur og í liðinu era margir mjög góöir leikmenn sem viö þurfum aö varast í haust. Númer 10 (Arnljótur Davíðsson) er mjög góður sóknar- • Amljótur Daviðsson snýr á Einar Ásbjörn Ólafsson i eitt skiptið af mörgum i leiknum við ÍBK i gærkvöldi. Bruins, aðstoðarþjálfari Barce- lona, sagðl að þaö heföl verið unun aö fylgjast með honum i lelknum. maöur, snöggur, sterkur og alltaf á - VS DV-mynd Brynjar Gauti NHján umsóknir frá erlendum þjálfurum - um stöðu landsliðsþjálfara íslands 1 sundi Eins og fram hefur komið í fréttum hættir Guðmundur Harðarson sem landsliðsþjálfari í sundi eftir ólymp- íuleikana í Seoul. Sundsamband Is- lands auglýsti stöðuna fyrir nokkru hér heima og einnig í erlendum sundtímaritum. Umsóknarfrestur rann út í gær og kom þá í Ijós að 19 þjáfarar sóttu um stöðuna og era all- ir innsækjendur erlendir. „í fijótu bragði virðast mjög færir þjálfarar hafa sótt um stöðuna. Allir þjálfararnir hafa góð meðmæli og þaö verður ekki létt verk að fara yfir allar þessar umsóknir. Áhugi útlend- inganna kemur okkur nokkuð á óvart en þjálfarastaðan er áhugaverö því stefnt verður að mörgum verk- efnum á næstu áram “ sagði Guð- finnur Ólafsson, formaður Sundsam- bands íslands, í samtali við DV í gær. Flestir umsækjendanna koma frá Svíþjóð, Danmörku, Englandi, Vest- ur-Þýskalandi og ein umsókn kom frá Tékkóslóvakíu. Ráðið veröur í stöðuna til 4 ára eða fram yfir ólymp- íuleikana sem haldnir verða í Barcel- ona 1992. „Landsliðsþjálfarinn í sundi kem- ur ekki eingöngu til með aö hafa þjálfun landsliðsins á siirni könnu. Hann mun einnig sjá um fræðslumál og aðstoða við uppbyggingu á sund- íþróttínni um allt land. Landsliðs- nefnd mun á næstu dögum fara yfir umsóknirnar og leggja mat sitt á þær en endanleg ákvörðun er í höndum Sundsambands íslands. Ég hef trú á að búið verði að ráða í stööuna í lok þessar mánaöar,“ sagði Guðfinnur Ólafsson. -JKS • Atli Eðvaldsson - sá þriöji Irá upphafi sem nær 50 landsleikjum. Atfli með sinn 50. landsleik - gegn Svíum á fimmtudagskvöldiö Atli Eövaldsson, fyrirliöi íslenska landsliösins í knattspyrnu, leikur sinn 50. landsleik fyrir íslands hönd á fimmtudaginn. Þá mætír ísland ólympíulandsliöi Svía á Laugardals- vellinum og hefst leikurinn kl. 18.30. Atli verður aðeins þriðji leikmaður- inn frá upphafi til að ná þessum áfanga en Marteinn Geirsson lék 67 leiki og Árni Sveinsson 50. Þorsteini Þorsteinssyni, vamar- manni úr Fram, var í gær bætt í landsliöshóp íslands fyrir leikinn. Breytingarnar á hópnum frá leikn- um við Búlgaríu era því þær að Gunnar Gíslason, Bjarni Sigurðsson og Þorsteinn koma inn í hann í stað Friöriks Friörikssonar, Sigurðar Jónssonar og Sigurðar Grétarssonar. Byrjunarliö íslands á fimmtudag- inn verður væntanlega þannig skip- aö: Bjarni Sigurösson, Guðni Bergs- son, Sævar Jónsson, Atli Eðvaldsson, Ólafur Þórðarson, Viöar Þorkelsson, Gunnar Gíslason, Ómar Torfason, Pétur Ormslev, Ragnar Margeirsson og Halldór Áskelsson. Varamenn era þá Guðmundur Hreiöarsson, Þor- steinn Þorsteinsson, Amljótur Dav- íðsson, Þorvaldur Örlygsson og Pét- ur Amþórsson. • Óskar Ármannsson. Óskar kyrr hjáFH — fer ekki til GUIF „Ég hef tekið endanlega ákvörðun um að vera áfram þjá FH á komandi keppnistímabili. Ég fékk mjög freistandi tilboð frá sænska liöinu GUIF en eftir aö hafa spáö vel í þetta ákvað ég aö vera áfram meö FH-ingum, alla vega í eitt ár,“ sagði Oskar Ár- mannsson, handknattleiksmað- urinn spjalli, í samtali við DV í gærkvöldi. „Svíamir geröu mér mjög gott tilboð, því veröur ekki neitaö. Ég vil hugsa mig betur um áður en ég fer út í atvinnumennskuna enda hef ég nógan tíma. Eins og er hugsa ég bara um að leika vel með FH í vetur og mér líst ann- ars mjög vel á komandi keppnis- tímabil. Þetta kemur til með verða spennandi mót og liöin tefla nú fram mjög sterkum leik- mönnum. Viö FH-ingar erum staöráönir í aö gera stóra hlutí en lið okkar verður að öllum lik- indum óbreytt frá því í fyrra,“ sagði Óskar ennfremur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.