Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1988, Page 2
2
MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 1988.
Fréttir
Ólafur Ragnar Grímsson flármálaráðherra:
Boðar skatt á bifreiðar
„í fyrsta lagi veröa þeir einstakl-
ingar og fyrirtæki, sem hafa notað
verulega f]ármuni á undanfornum
árum til fjárfestingar og umfram-
eyðslu, að skila sínum hlut til sam-
neyslunnar. í öðru lagi verður að
miða við að tekjuöflunin minnki við-
skiptahallann. í þriðja lagi verður að
tryggja að ákveðins réttlætis sé gætt
í skattlagningunni," sagði Ólafur
Ragnar Grímsson fjármálaráðherra
aðspurður um hvar hann mundi bera
niður með þá 2,5 milljarða skatt-
heimtu sem ríkisstjórnin hefur boð-
að.
Á aðalfundi Bílgreinasambandsins
boðaði Ólafur meðal annars hugsan-
lega skattlagningu bifreiöa.
„Ein af þeim leiðum, sem fjár-
magninu hefur verið ráðstafað eftir,
er í gífurlegan bílainnflutning. Á ár-
inu 1985 voru fluttir inn rúmlega 6
þúsund bílar. Á síðasta ári voru þeir
hins vegar rúmlega 23 þúsund. Á síð-
ustu þremur árum hefur fjölgað í
bifreiðaeign landsmanna um 21 þús-
und á sama tíma'og landsmönnum
hefur einungis fjölgað um 7 þúsund.
Þaö hafa því bæst þrír nýir bílar á
hvem íslending," sagði Ólafur.
- Skattur á bifreiðaeign eða bílainn-
flutning fellur því undir fyrstu tvö
atriöin sem þú nefnir sem grundvall-
aratriði undir nýja skattheimtu?
„Já. En hins vegar hefur engin
ákvörðun verið tekin um í hvaða
formi eða magni þessi skattheimta
verður.“
- Liggur einhver ákvöröun fyrir um
nýja skattheimtu?
Borgarspítalinn var opinn öllum almenningi í gær i tilefni af Norrænu tækniári. Mikili mannfjöldi kom til að kynna sér starfsemi spítalans. Gestunum
gafst kostur á að sjá hvernig Landhelgisgæslan ber sig að við björgun með þyrlu. DV-mynd S
Gjaldþrota menn:
Stofnuðu
G-sam-
tökin
Félag gjaldþrota einstaklinga
var stofnaö formlega á fúndi í gær
og ákveðið að kaUa þaö G-sam-
tökin. Af 69 manns, sem höföu
skráð sig á lista hjá Grétari
Kristjánssyni, aðalhvatamannin-
um aö stofnun samtakanna,
mættu 22 á stofnfundinn.
„Miöað viö aö fólk á skrá er frá
öllu landinu þykir mér mætingin
góö. Þetta var langur fundur og
mér þótti mjög athyglisvert að
hver einasti fundarmaöur tók til
raáls og sumir oftar en einu
sinni," sagöi Grótar viö DV í
raorgun.
Á fundinum var kosin bráða-
birgöastjóm og ákveðið að halda
framhaldsstofnfund eftir hálfan
mánuð. Á bráðabirgðastjórnin að
gera drög að lögum fyrir félagið
í núlhtíðinni. ’ *
,Á fundinura í gær kom mjög
ákveðiö fram bjá fundargestum
aö allt sera fram mun fara á fund-
um félagsins og félagaskrá veröi
fullkomiö trúnaðarmál. Ef þess-
um atriöum verði flíkað á opin-
berum vettvangi muni það standa
G-félaginu fyrir þrifum."
-hlh
Snögg fæöing í Borgarfiröi:
Bóndinn tók sjáifur
á móti baminu
„Bóndinn náöi aldrei að stressa sig
upp því þetta gerðist svo snöggt.
Bamið fæddist á kortéri og allt gekk
eins og i sögu. Eftir á hafði hann á
oröi að þar sem hann hefði tekið á
móti svo mörgum kálfum undanfarið
væri hann í ágætis æfingu. Það hefur
gert gæfumuninn,“ sagði heimilis-
maður á bænum Síðumúlaveggjum í
Borgarfirði í samtali við DV.
Guðjón Kjartansson bóndi tók þar
sjálfur á móti bami sínu aöfaranótt
fimmtudags og mun bæði móður og
barni heilsast vel.
Agnes Guðmundsdóttir, kona Guö-
jóns, hafði ætlað í athugun á Akra-
nesi á fimmtudeginum. Um nóttina
fær hún allt í einu verki og vatnið
fer. Þá er rokið upp til handa og fóta
og ferö á sjúkrahús undirbúin. En
barnið var ákveðið í að koma í heim-
inn og því ekki um annað að ræða
fyrir Guðjón en taka sjálfur á móti.
Það gekk mjög vel eins og áður sagði
og fæddist þeim hjónum um 15
marka stúlkubarn. Stuttu eftir að
fæöingin var afstaöin kom hjúkrun-
arkona frá Borgarnesi og nokkru
seinna læknir og ljósmóðir frá Akra-
nesi.
Agnes er nú ásamt dótturinni á
sjúkrahúsinu á Akranesi og væntan-
leg heim til bónda síns seinna í vik-
unni.
-hlh
Olympíumót í bridge:
íslendingar í tólfta sæti
Ólympiumótið í bridge, sem fram
fer í Feneýjum, hófst í gær og voru
þá spilaðar 3 fyrstu umferðimar. ís-
land á tvö liö í keppninni, í opna
flokknum og kvennaflokknum. ís-
land tapaði fyrir Thailandi, 9-21, í
opna flokknum í fyrstu umferð en
vann síöan Finna, 22-8, og Egypta,
19-11, í næstu umferöum.
Keppni í opna flokknum er skipt í
tvo riðla og eru íslendingar í 12. sæti
af 28 í sínum riðli með 49,25 stig.
Þeir fengu á sig refsistig (0,75) fyrir
að fara fram yfir tíma í leiknum vlð
Finna. Efstir eru Ungverjar með
59,25 stig, Brasilíumenn koma næstir
með 59 og Danir með 56,05.
í hinum opna flokknum gerðist það
helst að Pólveijar unnu Bandaríkja-
menn næsta örugglega í töfluleik,
21-9. Austurríkismenn leiða þann
riðil með 70,5 og Pólverjar koma
næstir með 69,5. Konunum gengur
ekki eins vel, þær fengu 18 stig fyrir
yfirsetu í fyrstu umferð en töpuðu
svo fyrir Kína og Spáni, 6-24 og 8-22.
Þær eru í 10. sæti af 12 í sínum riðli.
Þijár umferðir verða spilaðar í dag.
í opna flokknum er spilað næst við
Frakka, síðan yfirseta og Ungveijar
verða síðastir á dagskrá í kvöld.
ÍS
„Viö erum enn aö vinna að þessu.“
- Er ekki hætt við að hún leggist
þyngst á tekjuskattinn?
„Ég vil ekkert um það segja. En
svarið við því er auðvitað nei,“ sagði
Ólafur Ragnar.
-gse
Hveragerði:
Fannst láthm
í húsagarði
Maður um fimmtugt, sem bú-
settur var í Reykjavík, fannst lát-
inn í húsagarði í Hverageröi á
fóstudag. Ljóst þykir að maður-
inn hafi fallið á steinstétt á
fimmtudagskvöld og orðiö úti um
nóttina. Vitað er að hann kom til
Hveragerðis á fimmtudagskvöld.
Maðurinn var ölvaöur þegar
hann kom þangað. Hann raun
hafa ætlaö að hitta félaga sinn.
Enginn var heiraa í húsi því sem
félagi raannsins býr í.
Þaö var eftir hádegi á fóstudag
sera maöurinn fannst í húsagarö-
inum. Hann var þá látinn. Rann-
sóknarlögregla var kölluö til en
ekkert hefur komið fram sem
bendir til að dauða mannsins
hafi borið að með óeðlilegum
hætti. Hinn látni var giftur og
tveggja barna faöir. Ekki er unnt
að birta nafn hans að svo stöddu.
-sme
Selfoss:
Fjórir teknir
á öðru
hundraðinu
Tveir voru teknir á öðru hundr-
aðinu í Selfossbæ um helgina.
Annar ökumaöurinn var tekinn
á 105.km hraða og hinn á 114 km
hraöa.
Að sögn lögreglunnar á Selfossi
hefur hún veriö með sérstakar
aðgerðir 1 gangi síöan á föstudag.
Ómerktir bílar hafa veriö víöa í
bænum og á þjóövegum til aö
herða efhrlit með umferöarlaga-
brotum. Auk þeirra tveggja öku-
manna, sem teknir voru í bæn-
ura, var einn tekinn á 135 km
hraöa á þjóövegi og annar á 105
km hraða í Þorlákshöfn.
Alls hafa 61 verið teknir fyrir
of hraðan akstur síöan á fóstudag
og yfir 40 fyrir önnur umferðar-
lagabrot. Þau brot varða notkun
á öryggisbeltum, brot á stöðvun-
arskyldu, Ijós á bílum og rang-
stöður, auk margs annars.
Ljóst þykir að ekki veitir af
hertum aögerðum ómerktra lög-
reglubíla til að draga.úr umferö-
arlagabrotum og miklum hraö-
akstri á Selfossi og nágrenni
-JJ
Játar íkveikju
í lögreglustöð
Fanginn, sem var í fanga-
geymslu í lögreglustöðinni í Vest-
mannaeyjum þegar eldur varð
laus þar í síðustu viku, hefur ját-
að að hafa kveikt eld í rúmdýnu
í fangaklefa. Ljóst er að eldurinn
í dýnunni varö til þess að lög-
reglustööin gjöreyðUagðist af
eldi, vatni og reyk.
Fanginn var fluttur tU Reykja-
vUiur. Hann er nú vistaður á geð-
sjukrahúsi. _sme