Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1988, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1988, Page 11
MÁNUDAGUR 10. OKTÖBER 1988. 11 Útlönd Palestínumenn skotnir til bana Öryggissveitir skutu til bana þijá Palestínumenn á vesturbakkanum og Gazasvæöinu í gær. ísraelskir hermenn létu til skarar skríða í þijá- tíu þorpum á vesturbakkanum í gær og handtóku Palestínumenn grunaöa um aðgerðir gegn ísraelsmönnum. Þorpsbúar voru neyddir til að taka niður palestínska fána og þurrka út þjóðemisleg slagorð. í þorpinu Yatta nálægt Hebron voru tveir Palestínumenn skotnir er tugir þorpsbúa réðust á öryggissveit- irmenn. Þriðji Palestínumaðurinn hafði ráðist með hníf á öryggisvörð og var þá skotinn. Efnt var til allsherjar- verkfalls á herteknu svæðunum í gær í tilefni þess að þá voru liðnir tíu mánuðir frá því að uppreisnin hófst. Alls hafa nú þrjú hundruð og tveir Palestínumenn beðið bana í uppreisninni og sex ísraelsmenn. Reuter Konu hafnað sem flokksformanni Gizur Helgasan, DV, Reeisnæs: Það munaði aðeins þrettán at- kvæðum að frjálslyndir demókratar í V-Þýskalandi fengju fyrstu konuna í embætti flokksformanns. Tilraunir til þess að koma í veg fyrir að Lambs- dorff greifi kæmi aftur í stjórnmálin, með því að setja konu í framboð til flokksformanns, tókust ekki. Lamb'sdorff greifi, fyrrum við- skiptaráðherra, var dæmdur sekur af v-þýskum dómstóli í fyrra fyrir mútuþægni í svonefndu Flick-máli. Frjálslyndir demókratar völdu hann í formannsembætti síðastliðinn laug- ardag og fékk hann 211 atkvæði af 400 mögulegum. Frú Irmgard Adam Schvaetzer var og í framboði til formanns og fékk 187 atkvæði. Hún átti erfitt með að leyna vonbrigðum sínum og fékk í sárabætur eitt af þremur varafor- mannsembættum. Frakkar og Spánverjar þinga Pétur L. Pétursson, DV, Barcelona: Níu franskir ráðherrar og sex spænskir hafa þingað í León alla helgina. Tilefnið er það að næsta ár munu ríkin tvö skipta með sér for- sæti Evrópubandalágsins, fyrst Spánveijar og svo Frakkar. Þetta markar þáttaskil í samskiptum ríkj- anna en þau hafa ekki alltaf verið sem best. Á þinginu hafa ýmis mál verið rædd. Ofarlega á baugi hafa verið samskipti ríkjanna í baráttunni við hryðjuverk og nýjar lestarleiðir milli landanna. Ríkin hafa komist að samkomulagi um að næsta ár innan Evrópubanda- lagsins komi til með að einkennast af hugsjóninni um sameinaða Evr- ópu. Hafa ríkin skuldbundið sig að hafa þessa hugsjón að leiðarljósi þann tíma sem þau leiða bandalagið. Sévardnadse til Frakklands Bjami Hmriksson, DV, Bordeaux: Utanríkisráðherra Sovétríkjanna, Edvard Sévardnadse, kemur í opin- bera heimsókn til Frakklands í dag. Sovétmenn telja að samband þeirra við Frakka hafi batnað frá því sem áður var og mun ráðherrann meðal annars ræða afvopnunarmál, sérs- taklega varðandi efnavopn, og svæð- isbundin átök í heiminum í dag. Meðan á dvöl ráðherrans stendur munu kannski skýrast mál varðandi væntanlega heimsókn Mitterrands forseta til Moskvu en talað hefur verið um hún verði áður árið er úti. Roland Dumas, utanríkisráöherra Frakka, telur að nú sé kominn tími til að Frakkland auki samskipti sín við lönd í Mið- og Austur-Evrópu. Barcelona tekur við ólympíufananum Pétur L. Pétursson, DV, Barcelona: Ólympíufáninn kom til Barcelona um helgina og tóku borgarbúar við honum með mikilli hátíð. Borgarstjórinn, Pacual MaragaR, kom með fánann frá Seoul og var hann dreginn að húni við höfnina í Barcelona í gær. Þar með hófust svo- kallaðir menningarólympíuleikar í Barcelona en þeir eiga að standa næstu fjögur árin, eða þar til hinir raunverulegu ólympíuleikar hefjast í borginni. Um leiö var gangsett klukka sem telur niður þær sekúnd- ur sem eftir eru að upphafi ólympíu- leikanna í Barcelona 1992. Næstu fjögur árin verður mikið um dýrðir í menningarlífi Barcelona. Sem dæmi má nefna að Ingmar Berg- man mun setja upp nýtt leikrit og Pina Bausch kemur til með að frum- sýna nýtt dansleikrit. Federico Fell- ini mun einnig gera stutta kvikmynd um borgina. ísraelskur hermaður kveikir i vindlingi fyrir ungan Palestínumann sem hefur verið handtekinn. Simamynd Reuter Hjá Húsasmiðjuimi dugar eldd að biðja kassadömuna um fittings! Heimilisverslun Húsasmiðjunnar er með sérstaka deild fyrir pípu- lagnir. Þar kennir ýmissa grasa, sem eru sérstaklega áhugaverð fyrir áhugamenn um ofna, eldhúsvaska og krana. Par eru líka pípulagninga- menn til leiðbeininga fyrir þá sem ætla sér að leggja út á hálar brautir pípulagna heimilisins. Þess vegna köllum við nýju verslunina okkar heimilisverslun. Á hinn bóginn eru pípulagnir vandasöm iðngrein, sem oftast nær er heppilegast að fela fagmönrium. Þess vegna er pípulagnadeild Húsa- smiðjunnar að mestu leyti sniðin að þörfum atvinnumanna, — pípulagningamanna, sem vita hvað þeir vilja og þurfa atvinnu sinnar vegna. Þeir geta gengið beint að hlutunum í pípulagnadeild okkar, — og fengið afgreiðslu á einfaldan og snöggan hátt. Heimilisverslun Húsasmiðjunnar Pípulagnadeild — með réttan skrúfgang! HUSA SMIDJAN SKÚTUVOGI 16 SÍMI 6877 00

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.