Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1988, Qupperneq 34
42
MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 1988.
PERMANENT
Ef þú ert að
hugsa um að fá
permanent hafðu
þá samband við
okkur.
Við munum með
ánægju leið-
beina þér.
Opið til kl. 7 á
föstudögum og
til hádegis á
laugardögum.
w IMW uAi w -V tlARQREIÐSLUSTOFA
VALnOLLd . ooi,n
óÐinsGöTu 2, reyhjavík ■ Slr1I*2213o ■
c§3Húsnæðisstofnun ríkisins
TÆKNIDEILD
Simi 696900
Útboð
Stjórn verkamannabústaða í Bolungarvík óskar eftir
tilboðum í byggingu fjögurra íbúða í tveimur par-
húsum, byggðum úr steinsteypu. Verk nr. U.19.01,
úr teikningasafni tæknideildar Húsnæðisstofnunar
ríkisins.
Brúttóflatarmál hvers húss 190 m2.
Brúttórúmmál hvers húss 733 m3.
Húsin verða byggð við Bakkastíg 6 og 8 í Bolungar-
vík og skal skila fullfrágengnum skv. útboðsgögnum.
Afhending útboðsgagna erá bæjarskrifstofu Bolung-
arvíkur, Aðalstræti 12, og hjá tæknideild Húsnæðis-
stofnunar ríkisins frá fimmtudeginum 13. október
1988 gegn kr. 10.000,- skilatryggingu.
Tilboðum skal skila á sömu staði eigi síðan en þriðju-
daginn 25. október 1 988 kl. 11.00 og verða þau þá
opnuð að viðstöddum bjóðendum.
F.h. Stjórnar verkamannabústaða í Bolungarvík,
tæknideild Húsnæðisstofnunar ríkisins
^Húsnæðisstofnun ríkisins
HEIMILISIÐNAÐARSKÓLINN
LAUFÁSVEGUR 2 - 101 REYKJAVlK
INNRITUIM STENDUR YFIR
Bótasaumur ...11. okt. Bótasaumur m. jan
Þjóðbúningasaumur ..14. okt. Tuskubrúðugerð
Baldýring ..17. okt. Tóvinna 16. jan.
Leðursmíði ..20. okt. Prjóntækni 18. jan.
Knipl ..21. okt. Knipl 21.jan.
Tuskubrúðuqerð ..25. okt. Fatasaumur 21.jan.
Tauþrykk Útskurður 25. jan.
Prjóntækni Spjaldvefnaður 26.jan.
Námsk.fyrir leiðb. aldraðra.. ....7. nóv. Þjóðbúningasaumur 27. jan.
Dúkaprjón, hyrnur og sjöl ....9. nóv. Jurtalitun .30. jan.
Vefnaður, glit, krossvefn ..14. nóv. Tauþrykk 31.jan.
Námsk. fyrir leiðb. aldraðra.. ..14. nóv. Tuskubrúðugerð 14. febr.
Útskurður Krirfnnerð Ifi fehr
Barnafatasaumur ..19.nóv. Námsk. fyrir leiðb. aldraðra....20. febr.
Námsk. fyrir leiðb. aldraðra.. ..21. nóv. Myndvefnaður 21. febr.
Myndvefnaður Vefnaður, uppsetning,... 23. febr.
Leðursmíði Baldýring 27. febr.
Vefnaður, almennur Leðursmíði 27. fehr.
Körfugerð Námsk. fyrir leiðb. aldraðra....27. febr.
Innritun fer fram á skrifstofu skólans, Laufásvegi 2, II.
hæð, frá kl. 16.15-19.00 daglega. Nánari upplýsingar i
sima 17800 á sama tima. Utan skrifstofutíma tekur sím-
svari við skráningu. Námskeiðaskrá afhent við innritun
og hjá Islenskum heímílisiðnaði, Hafnarstræti 3.
Fréttir
Kvenfólkið í Dögun gefur körlunum ekkert eftir og nýlega voru fjórar þeirra í löndunarliðinu þegar skipað var upp
frosinni rækju úr Þresti frá Bíldudal. DV-mynd Þórhallur
Sauðárkrókur:
Öllu starfsfólki rækju-
vinnslunnarsagt upp
Þórhallur Ásmundsaon, DV, Sauöárkróki:
Um síðustu mánaðamót var öllu
starfsfólki Dögunar á Sauðárkróki,
18 að tölu, sagt upp. Allt er nú óvíst
með framtíð rækjuvinnslunnar eftir
að fiskveiðasjóður neitaði vinnsl-
unni um lán út á endurbætur á Röst-
inni, 150 tonna skipi í hennar eigu.
Búið var að bjóða endurbætumar
út og semja við Slippstöðina á Akur-
eyri. Garðar Sveinn Ámason, fram-
kvæmdastjóri Dögunar, segir þetta
einkennilegt mál. í vor þegar þeim
var neitað um lán vegna kaupa á
nýju skipi hafi starfsmenn sjóðsins
bent þeim á að gera endurbætur á
Röstinni þó að skipið sé orðið 30 ára
gamalt. Þeir hafi síðan allan tímann
fylgst með hönnun endurbótanna.
Neitun barst síöan frá stjórn sjóðsins
á dögunum.
Garðar Sveinn segir að líklega ráð-
ist nú í mánuðinum hver framtíð
fyrirtækisins verður. Helsta vonirí
sé að eitthvað verði um innfjarðar-
rækju.á firðinum þó svo að hún hafi
ekki verið síðan 1984-1985. Heima-
bátarnir fara að leita í næstu viku.
Fjórir bátar auk Rastar hafa lagt
upp hjá Dögun í sumar og eru þeir
hættir veiðum. Aðeins vantaöi 60
tonn upp á 800 tonna kvóta vinnsl-
unnar.
ísaQöröur:
Beðið eftir tækjum í
Fjórðungssjúkrahúsið
Öll tæki í Fjórðungssjúkrahúsið á ísafirði eru komin í pöntun. Flutt verður
í húsið strax og þau berast.
Siguijón J. Sigurðsson, DV, ísafirði:
„Innkaupastofnun ríkisins segir að
búið sé að panta og staðfesta pöntun
á öllum tækjunum sem voru á lista
tækjakaupanefndar og nú erum við
bara að bíða eftir að þau komi til
landsins. Þaö er misjafn afgreiöslu-
frestur á þeim og því ómögulegt að
gefa ákveðna dagsetningu á flutning-
um yfir í nýja sjúkrahúsið," sagði
Eríkur Kristófersson, formaður
byggingarnefndar Fjórðungssjúkra-
hússins á ísafirði, í samtali við DV
þegar hann var spurður um nýjustu
dagsetningu á flutningum úr gamla
sjúkrahúsinu yfir í það nýja.
„Pöntunin var gerð fyrir tveimur
mánuðum og hún var sett í gang er-
lendis fyrr en staðfesting og greiðsia
inn á hana barst fyrir mánuði þegar
sveitarfélögin voru búin að útvega
15 milljóna króna lán til kaupanna.
Heildarverðmæti allra tækjanna,
sem keypt hafa verið og veriö er að
kaupa í 4. áfanga, er um 33 milljónir
og þó er búið að setja fjölda tækja á
biðlista."
Hvers vegna var sagt að flutningar
færu fram 16. september þegar ljóst
var að tækin yrðu ekki einu sinni
komin til landsins á þeim tíma?
„Sú dagsetning var sett af Inn-
kaupastofnun ríkisins og ég get ekki
svarað fyrir það. Það vantaði líka inn
í fjármögnunina framlag ríkisins og
það fékkst með aukafjárveitingu al-
veg nýlega. Þaö er líka önnur skýr-
ingin á seinaganginum að það hefur
ekki verið hægt að ganga frá mörgu
á stjórnarheimilinu undanfarnar
vikur.“
Hvenær lýkur 5. áfanga, frágangi
legudeildar?
„Það er ekki ákveðið hvenær hann
verður boðinn út. Það eru 30 rúm í
4. áfanganum þennig að við getum
flutt þótt 5. áfanga sé ólokið. En nú
á að fara að gera fjárlög, þá verður
ákveðið hvað hver fær og þá er hægt
að taka afstööu til fimmta áfanga."
Verður rampurinn brotinn niður,
eins og rætt hefur verið um?
„Það er engin spurning að þetta er
ónothæfur gripur og hann verður
brotinn niður en hvort það verður
gert fyrir flutning er ekki ljóst í
dag,“ sagði Eiríkur Kristófersson.