Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1988, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1988, Blaðsíða 35
MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 1988. 43 Fréttir Patreksfjörður: Hraðfrystihúsið illa statt - starfsfólM fækkað úr 120 1 40 á 5 mánuðum Siguijón J. Sigarösson, DV, Vest§öröum; „Ástandiö er hreint hörmulegt. Við höfum þurft aö draga saman seglin og fækka starfsfólki úr 120 í 40 síðan í maí til þess að halda í horfinu. Það eru Utlar líkur á að úr rætist eins og málin standa í dag,“ sagði Jens Valdimarsson, framkvæmdastjóri Hraöfrystihúss Patreksflarðar, í samtali við DV, aðspurður um íjárhagsstöðu fyrir- tækisins. „Þaö er ýmislegt sem veldur, vaxtabyröi og lækkun afúröa. Þær hafa lækkað svo mikiö í verði, mið- að viö þaö gengi sem við höfúm í dag, að það er varla nokkur leið að standa í fiskframleiöslu á ís- landi. Við vorum aö fá nýtt verð og verðfalliö á karfa er um 20%. Aðrar afturðir, eins og til dæmis blokk, hafa líka lækkað mikið. Viö skiluöum 26 milljóna króna hagnaði árið 1986 en síöan þá hefur allt verið á hraðri niðurleið. Við erum þvi svartsýnir og sjáum ekki aö landinu sé stjómaö þannig að nokkurt vit sé í,“ sagði Jens Valdi- marsson á Patreksfirði. Jens Valdimarsson, framkvæmdastjóri á Patreksfirói. Nýr Páll Páls- son á heimleið Siguijón J. Sigurðsson, DV, ísafirði: Togarinn Páll Pálson frá Hnífsdal, sem verið hefur í gagngerðum breyt- ingum híá skipasmíöastöðinni í Gdynia í Póllandi, lagði af stað frá PóUandi áleiðis til íslands 4. október sl Stansað var í Kaupmannahöfn til að taka olíu en síðan lá leiðin heim til ísafjarðar. ■ Togarinn var lengdur um 8,8 metra. Skipt var um brú, aðalvél og ýmis tæki. Má segja að það verði að mestu nýtt skip sem kemur til ísa- fjarðar. Þar til Páll Pálsson kemur úr fyrstu veiðiferöinni eftir breyting- amar munu togaramir frá Þingeyri halda áfram að sjá Hnífsdælingum fyrir hráefni til vinnslu í hraöfrysti- húsinu. Gjaldþrohjm fjölgar í ísa- fjarðarsýslum Sigurjón J. Sgxirðœon, DV, fsafiröi: Gjaldþrotabeiðnum í ísafjarð- arsýslum hefúr fjölgað nokkuð frá síðastaári. Fyrstuníumánuði þessa árs hefúr 31 beiðni um gjaldþrotaskipti borist frá 25 aðil- um, þar af þremur fyrirtækjum. Búið er að taka 11 aðila til gjald- þrotaskipta. Allt árið 1987 bárast 18 beiðnir um gjaldþrotaskiptL Þar af voru þijú fyrirtækL Smurstöö Heklu hf. er í alfaraleið við Laugaveginn. Hún er skammt frá miðbænum og því þægilegt að skilja bílinn eftir og sinna erindum í bænum á meðan bíllinn er smurður. Nýlega var tekin í notkun fulíkomin veitingaaðstaða fyrir þá - viðskiptavini sem vilja staldra við á meðan bíllinn er smurður. Fljót og góð þjónusta fagmanna tryggir fyrsta flokks smurningu. Lítið við á Laugavegi 172 eða pantið tíma í símum 695670 og 695500. Veríðvelkomin. HEKLAHF Laugavegi 170 - 172 Sími 695500 STÖDIN SEM HLUSTSD ER ! ... Jt TOPPNUM/

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.