Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1988, Blaðsíða 36
-44
MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 1988.
REYKJMJÍKURBORG
Aautevi Sttoáin
ÞJÓNUSTUÍBÚÐIR ALDRAÐRA
DALBRAUT 27
Starfsfólk óskast við þrif á íbúöum.
Upplýsingar gefur forstóðumaður í síma 685377.
s
FREEPORTKLÚBBURINN
Fyrsti fundur vetrarins verður fimmtudaginn 13. okt.
kl. 20.30 í Bústaðakirkju. Kaffi og eitthvað til að
kýla út vömbina að vanda.
Skemmtiatriði.
Fjölmennið.
Baldur og félagar
^ Húsnæðisstofnun ríkisins
TÆKNIDEILD
Simi 696900
Útboð
Hreppsnefnd Fellahrepps óskareftirtilboðum í bygg-
ingu eins einnar hæðar einbýlishúss, byggðu úr
steinsteypu, verk nr. A.18.006, eða úr timbri, verk
nr. A.18.008, úr teikningasafni tæknideildar Hús-
næðisstofnunar ríkisins.
Brúttóflatarmál húss 127 m2.
Brúttórúmmál húss 429 m3.
Húsið verður byggt vió götuna Miðfell nr. 6, Fellabæ,
Fellahreppi, og skal skila fullfrágengnu, sbr. útboðs-
gögn.
Afhending útboðsgagna er á skrifstofu Fellahrepps,
Heimatúni 2, Fellabæ, Fellahreppi, og hjá tæknideild
Húsnæðisstofnunar ríkisins frá fimmtudeginum 13.
október 1988 gegn kr. 10.000,- skilatryggingu.
Tilboðum skal skilað á sömu staði eigi síðar en þriðju-
daginn 25. október 1988 kl. 11.00 og verða þau þá
opnuð að viðstöddum bjóðendum.
F.h. hreppsnefndar Fellahrepps,
Tæknideild Húsnæðisstofnunar ríkisins.
Fréttir
Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri í ræðustól á fjórðungsþinginu.
Fjórðungsþing Vestfirðinga:
Aðgerða strax krafist
fyrir fiskvinnsluna
Sigmjón J. Sigurðsson DV, ísafirði:
Þing Fjórðungssambands Vestfirð-
inga fór fram í liinu nýja Stjórnsýslu-
húsi á ísafirði fyrir stuttu. Aðalmál
þingsins voru byggðaáætlun fyrir
Vestfirði og skógræktarmál.
Sérstök ályktun var gerð um fjár-
hagsvanda fiskvinnslunnar og alvar-
legum áhyggjum lýst vegna þeirra
þrenginga sem flest helstu fisk-
vinnslufyrirtæki búa nú við. Þá segir
í ályktuninni að fjórðungsþingið
krefjist þess að stjómvöld skapi þess-
um fyrirtækjum eðhleg starfsskil-
yrði þegar á næstu dögum.
Samþykktar voru ýmsar ályktanir,
sem m.a. lúta að samgöngum, og
fagnaði þingið því að hafin skuli
rannsókn á brúar- og vegstæði yfir
Gilsfjörð og undirbúningur að jarð-
göngum undir Breiöadals- og Botns-
heiðar.
Þá var samþykkt tillaga um að
heimila framkvæmdastjóra sam-
bandsins að greiða kostnað vegna
gjaldheimtu á Vestfjörðum. Þingið
hvatti til þess aö hraðað yrði bygg-
ingarframkvæmdum við nýja Fjórð-
ungssjúkrahúsið á ísafirði svo unnt
yrði að taka það í notkun hið allra
fyrsta. Þá var þeim tilmælum beint
til stjórnvalda að skógræktarfræð-
ingur yrði ráðinn til starfa í Vest-
fjarðakjördæmi.
Þingið gerði einnig þá kröfu til Al-
þingis og ríkisstjómar að nú þegar
yrðu gerðar ráðstafanir til að jafna
og lækka húshitunarkostnað lands-
manna.
Húsavlk:
Framkvæmdir við heilsu-
gæslustöð hafnar
Jóhannee Siguijónsson, DV, Húsavik:
Hinn 26. september sl. var tekin
fyrsta skóflustunga að byggingu
heilsugæslustöðvar á Húsavík og þar
með virðist langþráður draumur
starfsfólks Heilsugæslustöðvar
Húsavíkur vera að rætast. Heilsu-
gæslustöðin á Húsavík er ein sú elsta
á landinu og má segja að Húsvíking-
ar hafi verið brautryðjendur á þessu
sviði. Hins vegar hafa þeir þurft að
bíða lengur en flestir eftir húsnæði
fyrir starfsemina.
Heilsugæslustöðin hefur notað
húsnæði sjúkrahússins og þar með
þrengt verulega að starfsemi þess og
að sjálfsögðu hafa þrengsh einnig
háð starfsfólki heilsugæslustöðvar-
innar.
Það er Stefán Óskarsson á Rein
sem er verktaki að 1. áfanga bygging-
arinnar sem gert er ráð fyrir að ljúki
1. september á næsta ári. Byggingin ogheildarbyggingarkostnaðurásamt
er á tveimur hæðum og tengist stofnbúnaðieráætlaðurl25milljónir
sjúkrahúsinu. Húsið er alls 1290 m2 króna.
Gisli G. Auðunsson læknir, til hægri, hefur tekið fyrstu skóflustunguna og
Egill Olgeirsson óskar honum til hamingju með þennan áfanga. Starfsfólk
Heilsugæslustöðvar Húsavíkur fylgist með. DV-mynd Jóhannes
Aukinn gámaútflutningur frá Bfldudal
Sigurjón J. Sigurðsson, DV, ísafirði:
„Staðan lagast eitthvað með.síð-
ustu aðgerðum stjórnvalda þótt það
sé ekki nærri því nóg og alls ekki
nóg til að það sé hægt að snúa .sér
eingöngu að frystingu. Ef það er
betra að sigla með aflann en vinna
hann hér heima þá gerum við það.
Við verðum að velja þann kostinn,
sem gefur meiri peninga,“ sagði Jak-
ob Kristinsson, framkvæmdastjóri
Fiskvinnslunnar á Bíldudal, í sam-
tali við DV i síðustu viku. Þar hefur
verið ákveðiö aö auka 'til muna
gámaútflutning til Bretlands og
Þýskalands.
„Það voru allt önnur rekstrarskil-
yrði í fyrra. Á þessu ári hafa kostnað-
ur og vextir rokið upp um leið og.
afuröaverðið hefur lækkað og gengið
hefur nánast verið fast,“ sagði Jakob
og hélt áfram. „Við vorum með góða
afkomu fyrri hluta ársins 1987 en svo
fór að halla undan fæti þannig að það
verður tap á þessu ári. Núna er aö-
eins lágmarksvinna. Við höfum ekki
ráðiö neitt fólk í staðinn fyrir skóla-
fólkið og þurfum því ekki að segja
neinum upp. Núna eru 40-50 manns
í vinnu hjá okkur. Við eigum kvóta
fram undir miðjan desember og verð-
um þá líklega að taka langt jólafrí,"
sagði Jakob Kristinsson að lok-
um.