Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1988, Blaðsíða 6
LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 1988.
Aumingja Gummi er búinn aö týna öllum lyklunum sínum átta. Hann kemst ekki inn í
húsiö sitt. Geturðu hjálpað honum að fmna alla 8 lyklana? Sendið lausn til: Barna-DV.
Framhald af „Sagan mín“:
Æ-Æ-Æ
Kristinn og Bára voru systkini. í gær var ofboðslega mikið rok. Þau gátu ekki verið úti.
En nú var kominn nýr dagur og þau voru á göngu með pabbá. Þá komu þau að húsinu
hans Jóns gamla eða það er að segja rústunum af húsinu hans Jóns.
Þau sáu ekkert annað en spýtur, þakplötur og rör. En til allrar hamingju var Jón ekki
heima þegar þetta gerðist.
„Æ, æ, æ,“ heyrðist í gömlum manni sem var enginn annar en hann Jón.
„Allt í steik,“ sagði hann. „Nú er allt ónýtt.“
„Þú getur búið hjá okkur meðan pabbi gerir við húsið,“ sagði Bima.
„Takk fyrir,“ sagði Jón. „Svona boði verð ég að taka,“ bætti hann við. Síðan fóru þau
heim.
Sigrún Bima Björnsdóttir, 11 ára,
Hæðagerði 5 c, 730 Reyöarfirði.
* mmw 9
Framhaldssaga 1. hluti:
Höfundur: Svava Þ. Einarsdóttir, 13 ára,
Hlíðargötu 6, Fáskrúðsfirði.
Bestivinurminn
Þegar ég var sjö ára átti ég góðan vin. Hann hét Plútó.
Það var hundur. Hann var alltaf góður við mig þegar ég
átti bágt eða erfitt. Eitt sinn, þegar ég var í skólanum, var
mér strítt og það vildi enginn vera með mér. Þá fór ég
heim grátandi. Plútó kom á móti mér og við lékum okkur
saman allan daginn. Um kvöldið fórum við upp í rúm og
við sofnuðum brátt.
Daginn eftir fórum við út 1 garð að leika okkur. Við
stukkum um og lékum dátt. Svo þurftum við að fara inn
að borða og ég svo í skólann. Krakkamir í skólanum
stríddu mér alltaf en ég var aldrei einmana því ég átti
Plútó sem var alltaf svo góður. Pabbi og mamma vom
ánægð með hvað við vorum alltaf góð að leika okkur,
bæði inni og úti. Við sváfum alltaf saman. Mamma og
pabbi voru búin að gera grind fyrir skottið á bílnum svo
Plútó kæmi ekki fram í til okkar en grindin var svo tekin
burt svo hann gæti verið hjá mér.
Svo kom sumar og ég var búin í skólanum. Við fórum í
ferðalag um landið og Plútó kom með og var hjá mér í
aftursætinu. Hann svaf hjá mér í tjaldinu okkar þar sem
við tjölduðum.
Einu sinni sváfum við í bílnum af því að það var rigning
og rok og mamma og pabbi sváfu í framsætunum og ég
og Plútó í aftursætinu. við sofnuðum svolítið seint og þeg-
ar klukkan var að verða tólf á hádegi næsta dag vaknaði
ég við að Plútó var að ýlfra. Þá var hann að vekja okkur
því klukkan var orðin það margt og allt orðið bjart og
sólskin og blíða.
Við fórum út og lékum okkur með bolta. Hann beit alltaf
í hann og kom með hann til mín. En allt í einu sprakk
boltinn og Plútó brá svo að hann kom hlaupandi til mín
og stökk á mig og ég datt um koll og hann byrjaði að
sleikja á mér andlitið. Við fórum inn í bíl aftur. Mamma
og pabbi voru ekki vöknuð svo við vöktum þau og sögð-
um þeim frá sprungna boltanum. Svo fengum við morg-
unmat og héldum síðan af stað.
(Framhald í næsta Barna-DV.)
Hvað geturðu fundið mörg verkfæri á þessari mynd?
Veistu hvað þau heita?
Sendið svar til: Barna-DV.