Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1988, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1988, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1988. Dansstaðir Abracadabra, Laugavegi Bigfoot sér um tónlistina um helgina. Amadeus, Þórscafé, Brautarholti, sími 23333 Sálin hans Jóns míns leikur fyrir dansi fostudags- og laugardags- kvöld. Benson sér um fjörið á neðri hæðinni. Ártún, Vagnhöfða 11 Gömlu dansarnir fostudagskvöld kl. 21-3 og laugardagskvöld kl. 22-3. Hljómsveitin Danssporið leikur fyrir dansi bæði kvöldin. Bíókjallarinn, Lækjargötu 2, sími 11340 Diskótek um helgina. Broadway, Álfabakka 8, Reykjavík, sími 77500 Diskódúndrið „Gæjar og glanspíur" á fostudags- og laugardagskvöld. Casablanca, Skúlagötu 30 „Hip-hop house acid“ danstónlist fostudags- og laugardagskvöld. Duus-hús, Fischersundi, sími 14446 Diskótek föstudags- og laugardags- kvöld. Glæsibær, Álfheimum Hljómsveitin í gegnum tíðina leikur gömlu og nýju dansana fostudags- og laugardagskvöld. Hollywood, Ármúla 5, Reykjavík Hljómsveitir leika fyrir dansi fóstudags- og laugardagskvöld. Hótel Borg, Pósthússtræti 10, Reykjavik, sími 11440 Diskótek fóstudags- og laugardags- kvöld. Hótel Esja, Skáíafell, Suðurlandsbraut 2, Reykjavik, sími 82200 Dansleikir fostudags- og laugardags- kvöld. Lifandi tónlist. Tískusýningar öll fimmtudagskvöld. Opiö frá kl. 19-1. Hótel ísland Stórsýning íslenska jazzballett- flokksins á „All that jazz“ í kvöld. Hótel Saga, Súlnasalur, v/Hagatorg, Reykjavík, sími 20221 Stjörnukvöld laugardagsköld. Hljóm- sveit Andra Bachmann leikur fyrir dansi. Q, Borgartúni 32 ball fóstudags- og laugardagskvöld. Rétt hjá Nonna Diskótek fostudags- og laugardags- kvöld. Tunglið, Lækjargötu 2, sími 621625 Diskótek fóstudags- og laugardagskvöldið. Vetrarbrautin, Brautarholti 20, sími 29098 Opið um helgina. Zeppelin „rokkklúbburinn“, Borgartúni 32 Royal Rock, húshljómsveit, leikur fyrir dansi um helgina. Ölver, Álfheimum 74, s. 686220 Opið fimmtudags-, fóstudags-, laugar- dags- og sunnudagskvöld. Hörður Torfason. Siðan skein sól. Súlnasalur, Hótel Sögu: Stjömukvöld Um síðustu helgi var haldið Stjörnukvöld í Súlnasal á Hótel Sögu. Komu þar fram margir af þeim tónlistarmönnum sem gefa út plötu fyrir jóiin. Kvöldið heppn- aöist þaö vel að ákveðið er að end- urtaka það annað kvöld. A undan skemmtikröftunum leikur hljómsveit Andra Bach- mann. Sérstakur gestur hljóm- sveitarinnar er gítarleikarinn Hörður Friðþjófsson. Sjálf skemmtidagskráin hefst klukkan 24.00. Þar koma fram Haukur Sveinhjarnarson harmón- íkuleikari ásamt söngvurunum Ara Jónssyni, Barða Ólafssyni og Hjördisi Geirsdóttur, karlakórinn Fóstbræður ásamt stjórnandanum, Gylfa Gunnarssyni, Magnús Ólafs- son, Hörður Torfason, Geiri Sæm og Hunangstunglið, Síðan skein sól, Jóhann G. Jóhannsson og Sverrir Stormsker. Auk þessara skemmtikrafta munu rokkdansar- ar sýna rokkið eins og það gerist best. Kynnir er Ragnar Bjarnason. Linda Pétursdóttir. Hótel ísland: Iindu Péturs- dóttur fagnað Linda Pétursdóttir, ungfrú heim- ur, kemur til landsins í dag. Á morgun verður henni fagnað á Hótel íslandi á sigurhátíð henni til heiðurs. Þar verður jólaglögg og óvæntir gestir troða upp. Linda verður heima í þrjár vikur en síðan munu taka viö ferðalög um allan heim sem er hluti starfs- ins sem fegursta kona í heimi. Jól á Þjóð- minjasafni Jólasýningunni á Þjóðminjasafn- inu verður fram haldið þar til jólin eru gengin í garð. Á hverjum degi kl. 11.00 ko'ma jólasveinarnir í heimsókn. í morgun kom Potta- skefill. Á morgun kemur Askas- leikir og á sunnudag er það sjálfur Hurðaskellir sem lítur inn. Á sýningunni má sjá ýmislegt forvitnilegt um jólahald fyrri tíma og jólasveinar af öllum gerðum og tegundum verða sýndir. Það er nefnilega ekki sama hvar jóla- sveinninn hefur orðið til. Kringlukast í dag og á morgun munu Samtök um byggingu tónhstarhúss halda áfram með hlutaveltuna „Kringlu- kast“ á annarri hæð í Kringlunni. Mörg fyrirtæki í húsinu hafa lagt til vinninga. Á meðan kringlukast stendur yfir munu hljóðfæraleik- arar og söngvarar láta til sín heyra. Strengjakvartettinn Serenada leikur Vínartónlist í dag og kl. 17 kemur Dómkirkjukórinn ásamt stjórnanda sínum, Marteini H. Friðrikssyni. Á morgun kl. 15 kem- ur gítarleikarinn Pétur Jónasson og leikur fyrir gesti í Kringlunni. All That Jazz nefnist sýning ís- lenska jassballettflokksins. Hótel ísland: All That Jazz íslenski jassballettflokkurinn endurtekur stórsýningu sína, All That Jazz, í kvöld á Hótel íslandi. Fyrsta sýningin var 6. desember og tókst með ágætum. Miðaverð er 1000.00 kr. og er hægt að panta miða og borð í síma 68111. Sýningin hefst kl. 21.00. Séð inn eftir Langholtskirkju. Langholtskirkja: Jóla- söngvar Síðasta föstudag fyrir jól hefur kór Langholtskirkju ávallt sungið jólasöngva og verður engin breyt- ing á þetta árið. Efnisskrá tónleikanna sem verða í Langholtskirkju í kvöld eru inn- lend og erlend jólalög og jólasálm- ar. Stjórnandi kórsins er Jón Stef- ánsson. Eins og oftast áður gefst tónleikagestum tækifæri til að taka undir í almennum söng. Á jólatón- leikunum kemur fram auk kórsins barnakór Árbæjarskóla. Kirkjan verður upplýst með kert- um meðan á tónleikunum stendur. í hléi verður tónleikagestum boðið upp á heitt kakó. Þetta eru þriðju tónleikar kórsins á þessu hausti. Sem fyrr segir verða jólasöngv- arnir í Langholtskirkju og hefjast kl. 23.00. Miöar verða seldir við innganginn. Ókeypis er fyrir böm.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.