Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1988, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1988, Blaðsíða 5
20 29 CELEBRITY Til sölu Chevrolet Celebrity árg. 1986, ekinn 56.000 mílur, svartur, sjálfskiptur, rafm. í rúð- um, sportfelgur o.fl. o.fl. Bíll í sérflokki. æ BILASALAN BUK Skeifunni 8, símar 68-64-77 og 68-66-42 CedoVit Mél VotbVW b'SL\ Hvidlegs- perler Uden lugt og smag Ekstra stærke HVÍTLAUKS PERLUR ÁN LYKTAR OG BRAGÐS HVER PERLA INNI- HELDUR 66mg. AF NÁTTÚRULEGUM HVÍTLAUK Jólatilboð 20% afsláttur á öllum skóm í versluninni fram til jóla FRANCO MARTINI kvenskór Mjög fallegir og vandaðir kvenskór frá Ítalíu sem fást aðeins hjá okkur. Mikið úrval Eigum líka fallega kvenskó í mörgum breiddum. Hjá OKKUR færðu góða skó GÓÐU VERÐI NÝTT kreditkortatímabil SKt ÍBLIÐ 1 GÍS FEI Ll ?DlMANbSS ON HF í 1-1 1 Lækjargötu 6a, Reykjavik, simi 91-20937 ATH. Viö gerum við skóna þína meðan þú bídur FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1988. i FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1988. - ■ t - rf • i -r r :>tr hwii Kjarvalsstaðir: Fjórar árstíðir II Hörður Karlsson listmálari opn- aði um síðustu helgi sýningu á verkum sínum aö Kjarvalsstöð- um. Á sýningunni eru nafnlausar Hörður Karlsson við eitt verka sínna. akrýlmyndir og nefnist sýningin Fjórar árstíðir II. Er þetta þriöja einkasýning Harðar hér á landi en hann er búsettur í Washing- ton. Hörðu’r er fæddur í Reykjavík 1933. Hann fór til Bandaríkjanna tii framhaldsnám, var fyrst viö Corcoran listaskólann í Was- hington og síðan við háskólann í Mexíkóborg. Hörður var forstöðumaður myndsmíðadeildar Alþjóðagjald- eyrissjóðsins í mörg ár og hafa myndir hans verið sýndar í mörg- um löndum, meðal annars í Bandaríkjunum og á Spáni. Hörður er einnig þekktur frí- merkjateiknari og hefur fengið mörg verðlaun og orðið sigurveg- ari í samkeppnura um gerð frí- merkja. Sýningin á Kjarvalstöð- um er opin 14.00-22.00 dagiega og stendur til 24. desember. Gallerí Undir pilsfaldinum Tilraunamyndir í kvikmyndafomii Edda Hákonardóttir heldur sýn- ingu á tilraunakvikmyndum sínum í gallerí Undir pilsfaldinum, Hlað- varpanum, á laugardagskvöld kl. 20.00. Þetta eru stuttar kvikmyndir sem líkja má við myndlist í formi kvikmyndar. Edda hefur haldið sýningar í Par- ís og New York ásamt sýningum hér heima. Fyrst umdeild mynd- listarsýning í Grjótaþorpi 1972 og svo sýning í Tjarnarbíói 1979. Hún hefur einnig gefið út ljóðabók í New York. Kópíur aö tilraunakvikmyndun- um sem sýndar verða eru til sölu. Edda Hákonardóttir. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Lestur úr nýjum bókum Lesið verður úr sex nýútkomnum bókum í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar á Laugar- Séra Rögnvaldur Finnbogason les úr Trú- in, sálin og efinn eftir Guðberg Bergsson. nestanga á sunnudaginn. Á milli atriða leikur Hlíf Sigurjónsdóttir á fiðlu. Dagskrá- in hefst klukkan 15.30 og stendur yfir í eina og hálfa klukkustund. Þeir sem lesa úr bókum sínum eru Einar Már Guðmundsson sem les úr nýju smá- sagnasafni, Leitinni að dýragarðinum. Jó- hamar les úr bók sem nefnist Bygging. Séra Rögnvaldur Finnbogason les ú Trúin, ástin og efmn eftir Guðberg Bergsson. Matthías Johannessen les úr ljóðabókinni Dagur af degi. Sigurður A. Magnússon les úr bók sinni um ævi Sigurbjöms Einars- sonar biskups. Þá les Gísli Halldórsson úr skáldsögu Þórarins Eldjáms, Skuggaboxi. Kynnir á þéssari bókmennta- og tónlistar- dagskrá er Erlingur Gíslason leikari. í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar, sem nýlega var vígt, eru til sýnis fimmtíu lista- verk eftir hann. Safnið er opið á laugardög- um og sunnudögum frá klukkan 14.00-17.00 og er kafílstofa safnsins þá einnig opin. Ráðgert er að áframhald verði á bók- mennta- og tónlistardagskrám með svip- uðu móti í Listasafninu eftir áramót. Gallerí Guðmundar frá Miðdal: Esjan í vatnslitum og olíu Jörandur Pálsson heldur sýningu á verk- um sínum í Gallerí Guðmundar frá Miðd- al. Á sýningunni eru vatnslitamyndir og olíumálverk. Verk Jörundar á sýningunni eiga það sameiginlegt að Esjan er í bak- grunni á öllum myndunum. Þetta er áttunda einkasýning Jörundar en hann hefur einnig tekið þátt í nokkrum samsýningum, meðal annars sýningu Vest- ur-íslendinga í Kanada. Sýningin er opin alla daga frá kl. 14.00- 19.00 og lýkur henni 20. desember en þá verður Jörundur 75 ára. Jörundur Páisson. Geróuberg: Úr námum íslensku hljómsveitarinnar Þriðja eftiisskráin úr námum Is- lensku hljómsveitarinnar verður flutt í menningarmiðstöðinni Gerðubergi á sunnudaginn kl. 16.00. Jóhanna V. Þórhaflsdóttir alt- söngkona, Viðar Gunnarsson bassasöngvari og íslenska hljóm- sveitin munu þá frumflytja Klukkukvæði eftir John Speight við samnefnt og frumort kvæöi Hannesar Péturssonar. Á undan tónhstarflutningnum verður afhjúpað málverk sem Guómundur Emilsson, stjórn- andi íslensku hljómsveitarinnar. Einar Hákonarson hefur gert og nefnir Við Klukkukvæði og á rót að rekja til Ijóðs Hannesar líkt og nafngiftin ber með sér. í Klukkukvæði beinir Hannes Pétursson sjónum að ónefndum reiðmanní er áir í fomum eyðidal i Skagafiröi og dreymir draum um kiukku eina er áður var trölla- og djöflafæla á hinum afvikna stað og þykir honum sem klukkan tali til sín. Kvæði þetta er aö sögn Hannesar smíðað með frjálslegu móti upp úr orðum í sjálfsævisögu Jóns prófasts Steingrímssonar er uppi var á átjándu öld. Tónleikum þessum er einnig ætlað annað hlutverk. Þeir era haldnir til heiðurs tveimur tón- skáldum sem eiga merkisafmæli, þeim Jórunni Viðar og Jóni Ás- geirssyni. Viðar Gunnarsson og Þóra Fríða Sæmundsdóttir munu flytja sönglög eftir aftnælisbörnin. Að lokum veröur frumflutt nýtt verk eftir Mist Þorkelsdóttur, Smalasöngvar. Söngvarnir eru samdir að tilhlutan hljómsveitar- innar, Aðventuhátíð á Stöðvar- firði og í Heydölum Aöventuhátíðir í Heydalaprestakalli verða næstkomandi laugardag, 17. desember, í barnaskólanum á Stöðvarfirði og í Heydalakirkju sunnudag- inn 18. desember og hefjast á báðum stöðum klukkan 20.30. Kirkjukórar Heydalakirkju og Stöðvarfjarðarkirkju munu syngja saman á hátíðunum aðventu- og jólasálma undir stjórn Ferenc Utassy. Þá munu kóramir flytja sérstakt tónverk helgað aðventunni, aðventusöng eftir Zoltán Kodally. Fermingarbörn munu flytja helgileik og sunnudagaskóla- börn syngja við kertaljós. Þá verður ljóðalestur og bænastund. Ræðumaður á báðum aðventuhá- tíðunum verður séra Kristján Róbertsson, sóknarprestur á Seyðisfirði. Séra Gunniaugur Stefánsson, Heydölum. Messur Guðsþjónustur í Reykjavíkur- prófastsdæmi sunnudag 18. desember1988. Árbæjarprestakall. Barnasamkoma í Foldaskóla í Grafarvogshverfi laugardag kl. 11 árdegis. Sunnudagur: Barna- og fjölskylduguösþjónusta í Árbæjarkirkju kl. 11 árdegis. Skólakór Árbæjarkirkju syngur jólalög undir stjórn Áslaugar Bergsteinsdóttur tónmenntakennara. Sr. Guðmundur Þorsteinsson. Áskirkja. Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Árni Bergur Sig- urbjörnsson. Breiðholtskirkja. Jólasöngvar fjölskyld- unnar kl. 11. Þriöjudag: Bænaguðsþjón- usta kl. 18.15. Sr. Gísli Jónasson. Borgarspítalinn. Guðsþjónusta kl. 10. Sr. Sigfmnur Þorleifsson. Bústaðakirkja. Jólasöngvar kl. 14. Börn úr Breiðagerðisskóla syngja og börn úr Fossvogsskóla flytja helgileik. Kór og hljómsveit Nýja tónlistarskólans flytja jólalög. Saga og almennur söngur. Organ- isti Guöni Þ. Guömundsson. Guðrún Ebba Ólafsdóttir. Ólafur Skúlason. Digranesprestakall. Barnasakoma í safnaöarheimilinu við Bjarnhólastíg kl. 11. Guðsþjónusta í Kópavogskirkju kl. 11. Sr. Þorbergur Kristjánsson. Dómkirkjan. Laugardag: Barnasam- koma í kirkjunni kl. 10.30. Öll böm vel- komin. Egill og Ólafía. Sunnudag: Barna- guðsþjónusta kl. 11. Börn úr kirkjuskól- anum sýna helgileik undir stjóm Egils Hallgrímssonar og Ólafíu Sigurjónsdótt- ur. Lúðrasveit Laugarnesskóla leikur undir stjórn Stefáns Stephensen. Sr. Hjalti Guðmundsson. Elliheimiiið Grund. Guðsþjónusta kl. 10. Sr. Anders Josephsson. Fella- og Hólakirkja. Fjölskvlduguðs- þjónusta ki. 14. Ungir og aldnir koma saman og syngja jólalög. Börn úr sunnu- dagaskólanum. Kór aldraðra í Gerðu- bergi. Kór Fjölbrautaskólans i Breiðholti syngur og börn úr Völvukoti sýna helgi- leik. Organisti Guðný Margrét Magnús- dóttir. Prestar Guömundur Karl Ágústs- son og Hreinn Hjartarson. Kaffí, djús og smákökur eftir guðsþjónusta. Mánudag- ur: Jólafundur Æskulýðsfélagsins kl. 20.30. Sóknarprestar. Fríkirkjan i Reykjavík. Messa kl. 14.00. Orgelleikari Pavel Smid. Sr. Cecil Har- aldsson. Grensáskirkja. Jólabarnasamkoma kl. 11. Messa kl. 14. Altarisganga. Organisti Árni Arinbjarnarson. Prestarnir. Hallgrimskirkja. Laugardag: Samvera fermingarbarna kl. 10. Sunnudag: Barna- samkoma og messa kl. 11. Sr. Sigurður Pálsson. Ensk jólamessa kl. 16. Sr. Ragn- ar Fjalar Lárusson. Þriðjudag: Fyrir- bænaguðsþjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Miövikudag: Náttsöngur kl. 21.00. Mótettukór Hallgrímskirkju syng- ur, stjórnandi Hörður Áskelsson. Landspítalinn. Messa kl. 10. Sr. Jón Bjar- man. Háteigskirkja. Kirkjudagur Háteigs- kirkju. Barna- og fjölskylduguðsþjónusta kl. 11 í samvinnu við æskulýðsstarf þjóö- kirkjunnar. Leikhópurinn sýnir og barnakórinn syngur. Sr. Torfi H. Stefáns- son æskulýðsfulltrúi talar við börnin. Kristín Þórunn og Pétur Björgvin. Messa kl. 14. Við messu afhendir kvenfélag Há- teigssóknar söfnuðinum altaristöflu aö gjöf og listamaðurinn Benedikt Gunnars- son lýsir boðskap myndarinnar. Að- ventusöngvar við kertaljós kl. 21. Kór og kammersveit Háteigskirkju flytja kirkju- tónlist. Hjörtur Pálsson flytur hugleið- ingu. Almennur söngur. Kvöldbænir og fyrirbænir eru í kirkjunni á miðvikudög- um kl. 18. Sóknarprestar. Hjallaprestakall í Kópavogi. Almenn guðsþjónusta kl. 14 í messuheimili Hjalla- sóknar, Digranesskóla. Dr. Einar Sigur- björnsson, prófessor í trúfræði við guð- fræðideild Háskóla íslands, messar. Kór Hjallasóknar syngur. Organisti Solveig Einarsdóttir. Allir velkomnir. Sóknar- prestur. Kársnesprestakall. Barnasamkoma i safnaöarheimilinu Borgum kl. 11. Jóla- tónleikar Tónlistarskóla Kópavogs í Kópavogskirkju kl. 14. Sr. Árni Pálsson. Laugarneskirkja. Barna- og fjölskyldu- guðsþjónusta kl. 11. Barnakór Laugar- nesskólans syngur nokkur lög. Kveikt veöur á fjórum kertum aðventukransins og sögð jólasaga. Fimmtudagur 22. des. Helgistund í hádeginu með altarisgöngu og fyrirbæn. Sóknarprestur. Neskirkja. Jólasamvera aldraðra laugar- dag kl. 15. Jólahugleiðing, einsöngur, happdrætti, helgileikur og kaffiveitingar. Sunnudagur: Barnaguösþjónusta kl. 11. Munið kirkjubílinn. Húsiö opnar kl. 10. Jólaföndur. Jólasöngvar fjölskyldunnar kl. 14. Félagar úr barnakór Melaskóla syngja undir stjóm Helgu Gunnarsdóttur og ungar stúlkur syngja þrísöng. Börn úr kirkjustarfinu sýna helgileik. Sr. Guðni Gunnarsson skólaprestur hefur hugleiðingu. Miðvikudag: Fyrirbæna- messa kl. 18.20. Þorláksmessa: Orgel- stund kl. 17-18. Reynir Jónasson organ- isti kirkjunnar leikur á orgel hennar. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Seljakirkja. Barnaguðsþjónusta kl. 11. Síðasta barnaguðsþjónusta fyrir jól. Guðsþjónusta kl. 14. Skólakór Kársness- skóla í Kópavogi syngur undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur. Seltjarnarneskirkja. Barnasamkoma kl. 11. Messa kl. 14. Skólakór Seltjarnarness (9-13 ára börn) leiöir kirkjusöng undir stjóm Helgu Bjarkar Grétudóttur. Org- anisti Sighvatur Jónasson. Þriðjudag: Starf fyrir KF-12 ára börn kl. 17-19. Sr. Guðmundur Örn Ragnarsson. Frikirkjan í Hafnarfirði. Ferming kl. 11. Fermdur verður Pálmi Geir Konráösson, búsettur í Ástralíu. Aðventusamkoma kl. 14 á 75 ára vígsluafmæli kirkjunnar. Börn úr Tónlistarskóla Hafnarfjarðar sýna helgileik. Magnús Gíslason syngur ein- söng. Flautuleikur: Linda Hreggviðsdótt- ir flautuleikari ásamt blokkflautusveit Tónlistarskóla Garðabæjar. Ræðumaður: Guðm. Árni Stefánsson, bæjarstjóri. Hiö nýja safnaðarheimili að Austurgötu 24 verður til sýnis að lokinni samkomunni. Einar Eyjólfsson. Garðasókn. Barnasamkoma í Kirkju- hvoli sunnudag kl. 13. Guösþjónusta í Garðakirkju sunnudag kl. 14. Skólakór Garöabæjar syngur. Stjórnandi Guðfinna Dóra Ólafsdóttir. Organisti Þröstur Ei- riksson. Bænastund og biblíulestur er í Kirkjuhvoli alla laugardaga kl. 11. Sr. Bragi Friðriksson. Sýningar Árbæjarsafn, simi 84412 Opið laugardaga og sunnudaga kl. 10-18. Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74 Opið laugardaga og sunnudaga kl. 13.30- 16.00. Bókakaffi, Garðastræti 19 Margrét Lóa sýnir í Bókakaffi. Myndirn- ar em flestar unnar á þessu ári. Sýningin er opin á venjulegum afgreiðslutíma kaffihússins frá ki. 10-18.30 og á laugar- dögum kl. 10-16. Bókasafn Kópavogs Nú stendur yfir sýning á verkum Svav- ars Ólafssonar í listastofu Bókasafns Kópavogs. Sýningunni lýkur í kvöid kl. 9. Þá stendur einnig yfir sýning á bibbum á ýmsum málum og stendur hún til ára- móta. FÍM-salurinn, Garðastræti 6 í desember og janúar verður galleríiö eingöngu starfrækt sem sölugallerí og veröur skipt um upphengi viku- til hálfs- mánaðarlega. Sýningartími gallerísins er kl. 12-18 virka daga en í desember frá kl. 12 þar til verslunum er lokað. Laugar- daga er opið frá kl. 14-18 nema í desem- ber, þá er opið jafnlengi og verslanir eru opnar. Lokað á sunnudögum. Gallerí Borg, Pósthússtræti í Gallerí Borg stendur nú yfir hið árlega jólaupphengi. Þar eru til sölu og sýnis verk gömlu meistaranna, einnig teikn- ingar, vatnsbta- og pastelmyndir eftir hina ýmsu höfunda. Auk þess er úrval gler- og leirmuna, bæði í Pósthússtræti og grafíkgallerí Borg, Austurstræti 10. í Kringlunni hefur Gailerí Borg opnað jólasölusýningu á þriðju hæð. Þar era til sölu grafíkmyndir, teikningar, vatnslita-, pastel- og oliumyndir, auk leirmuna. Opiö er á venjulegum afgreiðslutíma verslana í desember. Gallerí undir pilsfaldinum, Hlaðvarpanum Ásgeir Smári Einarsson heldur sina 6. einkasýningu hérlendis. Þar sýnir „Móri“ myndverk sín unnin á þessu og síðasta ári. Myndirnar eru olíumálverk og vatnshtamyndir og eru allar myndirn- ar til sölu. Sýningin er opin virka daga kl. 14-20 en um helgar kl. 14-18. Henni lýkur 18. desember. Listasafn Einars Jónssonar er lokaö í desember og janúar. Högg- myndagarðurinn er bpinn daglega kl. 11*47. Listasalurinn Nýhöfn, Hafnarstræti 18, í Nýhöfn stendur nú yfir jólasýning. Þetta er mjög fjölbreytt samsýning á listaverkum eftir lifandi og látna lista- menn og eru öll verkin til sölu. Laugar- daginn 17. desember kl. 13-15 mun söng- konan Anna Sigríður Helgadóttir syngja nokkur lög við hljómborðsundirleik Jó- sefs Gíslasonar gestum til ánægju og yndisauka í jólaannríkinu. Nýhöfn er opin á afgreiðslutíma verslana og frá kl. 14-18 á sunnudögum fram að jólum. Galleri Guðmundar frá Miðdal, Skólavörðustíg 43 Þar stenduryfir afmælissýning Jörundar Pálssonar. Á sýningunni em bæði vatns- litamyndir og olíumálverk og eru þau öll af Esjunni. Jörundur verður 75 ára þann 20. desember og er sýningin haldin í til- efni af því. Hún er opin kl. 14-19 alla daga til 20. desember. Gallerí Grjót, Skólavörðustíg Þar stendur yfir jólasýning á verkum þeirra 9 listamanna sem að galleriinu standa. Verkin em öll til sölu. Galleriið er opið virka daga kl. 12-18 og á laugar- dag kl. 14-22. Gallerí Langbrók, Bókhlöðustíg 2, textílgallerí, er opið þriðjudaga til föstu- daga kl. 12-18 og laugardaga kl. 11-14. Gallerí List, Skipholti 50b Nýtt og mikið úrval listaverka. Nýjar grafík- og vatnslitamyndir. Galleríið er opið frá kl. 10.30-18. Gallerí Svart á hvítu, Laufásvegi 17 í listaverkasölu gallerísins (efri hæð) em til sölu verk ýmissa myndlistarmanna. Kjarvalsstaðir v/Miklatún Hörður Karlsson listmálarí sýnir á Kjarvalsstöðum. Sýningin nefnist „Fjór- ar árstíðir II“. Hörður er Reykvíkingur sem fór ungur vestur til Bandaríkjanna og Mexíkó til listnáms. Hann var i mörg ár forstöðumaöur myndsmíðadeildar Al- þjóðagjaldeyrissjóösins í Washington. Málverk og myndverk Harðar hafa veriö «ýnd víða um lönd. Þetta er þriöja einka- sýning hans í Reykjavík. Sýningin er opin daglega kl. 14-22 fram til 24. desem- ber. Listasafn ASÍ, Grensásvegi 16 Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá sýnir verk sín. Á sýningunni em myndverk úr ull gerð á sl. tveimur árum. Þetta er fyrsta einkasýning Kristínar í Reykjavík en hún hefur haldið einkasýningu á Ak- ureyri og tekið þátt í fjölmörgum sam- sýningum hér á landi og erlendis. Sýning- in er opin virka daga kl. 16-20 og um helgar kl. 14-20. Listasafn Háskóla íslands í Odda, nýja hugvísindahúsinu, er opið daglega kl. 13.30-17. Þar em til sýnis 90 verk í eigu safnsins, aöallega eftir yngri lista- menn þjóðarinnar. Aðgangur að safninu er ókeypis. Listasafn íslands, Fríkirkjuvegi 7 Sýningarsalir og veitingastofa Listasafns íslands verða lokuð frá 15. des. til 15. jan. nk. Skrifstofa safnsins ásamt afgreiðslu korta veröur opin virka daga frá kl. 8-16. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Laugarnestanga 70 í tilefni af opnun safnsins og 80 ára af- mæli listamannsins er haldin yfirlitssýn- ing á 50 verkum Siguijóns, þar á meðal em myndir sem aldrei hafa áöur verið sýndar á íslandi. Safnið og kaffistofan em opin laugardaga og sunnudaga kl. 14-17. Tekið er á móti hópum eftir samkomu- lagi. Mokkakaffi, Skólavörðustíg Ríkey Ingimundardóttir sýnir þessa dag- ana nokkur verka sinna á Mokka. Þetta em postulínslágmyndir og málverk. Rík- ey hefur haldiö margar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum hér heima og erlendis. Öll verkin eru til sölu. Myntsafn Seðlabanka og Þjóðminjasafns, Einholti 4, er opið á sunnudögum kl. 14-16. Norræna húsið Thor Vilhjálmsson og Örn Þorsteinsson opna á morgun kl. 14 sýningu sem þeir kalla „Sporrækt". Sýningin stendur til 31. desember og opin alla daga kl. 14-19. Stofnun Árna Magnússonar Handritasýning Stofnunar Árna Magn- ússonar er í Árnagarði við Suðurgötu á þriðjudögum, fimmtudögum og laugar- dögum kl. 14-16. Póst- og símaminjasafnið, Austurgötu 11 Opið á sunnudögum og þriöjudögum kl. 15-18. Aðgangur ókeypis. Sjóminjasafn íslands, Vesturgötu 8, Hafnarfirði Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-18. Til sýnis og sölu postulínslágmyndir, málverk og ýmsir litlir hlutir. Opiö á verslunartíma þriðjudaga, miðvikudaga, fimmtudaga og fóstudaga og á laugardög- um kl. 10-16. Þjóðminjasafn íslands Safriið er opið þriðjudaga, fimmtudaga, laugardaga og sunnudaga kl. 11-16. SÝNINGAR Á LANDSBYGGÐINNI Listkynning Alþýðubankans Menningarsamtök Norðlendinga (Menor) og Alþýðubankinn á Akureyri kynna að þessu sinni áhugaljósmyndar- ann Hörð Geirsson. Kynningin er í af- greiðslusal Alþýðubankans á Akureyri, Skipagötu 14, og henni lýkur 6. janúar 1989. j

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.