Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1989, Qupperneq 8
8
FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1989.
Svæðameðferðog létt rafmagnsnudd
ásamt acupunchurmeðferð með lacer
Sérhæfing við bólgu í herðum, baki og höf-
uðverk.
ELSA HALL,
Langholtsvegi 160, sími 68-77-02.
Nú er hægt að hringja inn
smáauglýsingar og greiða
Þú gefur okkur upp:
Nafn þitt og heimilisfang,
síma, nafnnúmer og
giidistíma og númer
greiðslukorts.
E_>
Hámark kortaúttektar
í síma kr. 5.000,-
•
SMÁAUGLÝSINGADEILD
ÞVERHOLTI 11
SÍMI 27022
Utlönd
Þjóðhöfðingjar
þyrpast til Tokýo
Þjóðarleiðtogar þyrptust til Japans
í gær til að vera viðstaddir útfor
Hirohitos Japanskeisara. Virðist sem
margir ætli sér að nota þetta einstaka
tækifæri, þar sem verða saman
komnir um eitt hundrað og sextíu
þjóðhöfðingjar, til að gera samninga
og útvega sér aðstoð frá öðrum ríkj-
um.
George Bush, forseti Bandaríkj-
anna, er í sinni fyrstu ferð til annarr-
ar heimsálfu síðan hann tók við emb-
ætti forseta Bandaríkjanna. Strax
eftir komuna tii Tokýo í gær hélt
hann til hádegisverðarfundar með
Mitterrand Frakklandsforseta. Að
þeim fundi loknum átti hann viðræð-
ur við Takeshita, forsætisráðherra
Japans.
Að sögn Japana féllst Hans-
Dietrich Genscher, utanríkisráð-
herra Vestur-Þýskalands, á þá skoð-
un á fundi sínum með Sosuke Uno,
utanríkisráðherra Japans, að hin
pólitíska breyting, sem oröið hefur í
Sovétríkjunum, væri til mikilla bóta
fyrir samskipti austurs og vesturs.
Mitterrand, sem flaug til Japans
með Concorde þotu frá Air France,
mun á fundum sínum með Bush og
Takeshita í Tokýo ræða leiötoga-
fundinn um efnahagsmál sem fyrir-
hugaður er í París í júlí. Einnig mun
hann ræða brottflutning Sovét-
manna frá Afganistan og friðarhorf-
ur í Mið-Austurlöndum.
Takeshita sagði í gær að hann hefði
nú mestar áhyggjur af því að veðrið
yrði ekki eins og best yrði á kosið.
Spáð er rigningu eða jafnvel snjó-
komu.
Þjóðarleiðtogarnir munu sitja á
sérstökum palli við útfórina og verð-
ur gólfið á pallinum sérstaklega upp-
hitað. Einnig fá leiðtogarnir efnaíút-
ara í vasa sína til að koma í veg fyr-
ir að vindurinn mæði á þeim meðan
á athöfninni stendur, en hún mun
verða nokkuð löng.
Flestar verslanir og veitingastaðir
verða lokaðir á morgun þegar útförin
fer fram. Stjómvöld beindu þeim til-
mælum til fólks að það sýndi minn-
ingu keisarans látna tilhiýðlega virð-
George Bush, forseti Bandarikjanna, og Barbara kona hans við komuna
til Haneda flugvallar í Tokýo í gær.
Símamynd Reuter
ingu og stillti sig um að syngja og
dansa á morgun.
Nú þegar hefur verið boðað til eitt
hundrað og tuttugu dansleikja á
morgun og enn fleiri tónleikar eru
fyrirhugaðir. Það er því greinilegt að
ekki finnst öllum Japönum mikið til
hins látna keisara koma.
Hirohito fer ekki allslaus í gröfina.
í kistu hans verða eitt hundrað per-
sónulegir munir, þar á meðal uppá-
haldssverðið hans, sem hann svaf
með við hlið sér alla ævi. Þýska smá-
sjáin, sem hann notaði til að rann-
saka sjávarlífverur, fylgir eiganda
sínum líka. Einnig ”má nefna að
prentuð dagskrá fyrir Sumo glímu-
keppni verður með. Sumo glíma var
uppáhaldsíþrótt keisarans.
Reuter
Tveir til viðbótar setlir inn
Tveir tékkneskir andófsmenn voru
í gær dæmdir í fangelsi, fundnir sek-
ir um skrílslæti. Fimm aörir andófs-
menn fengu skilorðsbundna dóma.
Þessir dómar komu í kjölfarið á dómi
yfir leikritaskáldinu Vaclav Havel,
sem á þriðjudag var dæmdur í níu
mánaða fangelsi.
Ota Veverka, þrjátíu og tveggja
ára, var dæmdur í eins árs fangelsi
og Jana Petrova, tuttugu og tveggja
ára, var dæmd í níu mánaða fang-
elsi. Réttarhöldin stóðu í tvo daga.
Sjömenningarnir og Havel voru
einnig sökuð um að trufla opinberan
embættismann í starfi. Þau voru
handtekin 16. janúar þegar þau
reyndu að minnast þess að liöin eru
tuttugu ár frá því að námsmaðurinn
Jan Palach framdi sjálfsmorð. Hann
kveikti í sér til aö mótmæla innrás
Sovétríkjanna og leppríkja þeirra inn
í Tékkóslóvakíu 1968.
Vestræn ríki hafa þegar mótmælt
harðlega dóminum yfir Havel. Bret-
land, Austurríki og Holland segjast
ætla að taka mannréttindabrotin í
Tékkóslóvakíu upp á fundi í Vín þar
sem verður farið yfir árangur af sam-
komulaginu sem þrjátíu og fimm
ríki, þar á meðal Tékkóslóvakía,
skrifuðu undir í janúar um öryggi
ogsamvinnuíEvrópu. Reuter
.,óo9-'Æ<^ena^dS
sA^oPt SahÍlinífÉ
Ármúla3-108 Reykja vik - Sími 91-680988