Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1989, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1989, Síða 12
12 Spumingiri FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1989. Spumingiii Ætlar þú að fagna 1. mars á einhvern hátt? Baldur Úlfarsson sölumaður: Ég ætla að keyra niður í bæ og virða fyrir mér örtröðina við bjórkrámar. Ég drekk sjálfur ekki bjór. Jóhann Bj. Ármannsson, bóndi og sölumaður: Ég var búinn að fá leyfi hjá konunni til að kaupa einn kassa af hverri tegund. En ég bý úti á landi svo hátíðahöldum verður trúlega að fresta. Konráð Ingi Torfason húsasmíða- meistari: Ég á ekki pantað borð neins staðar og býst við aö láta þetta allt afskiptalaust. Baídvin Garðarsson atvinnulaus: Nei, það stendur ekki til að fagna bjómum neitt sérstaklega. Árni Sveinsson húsasmiður: Ég skil eklci þetta tilstand út af þessum bjór sem er ekkert sérstakur. Þetta er óþarfa nýjungagimi í íslendingum. Jóhanna Tryggvadóttir húsmóðir: Nei, það verður engin þjóðhátíð þó bjórinn sé að koma - þetta er ekki svo merkilegt. Lesendur Staðreynd að undirmálsfiskur berst að landi bæði hérlendis og erlendis, segir hér m.a. Kópadráp og karp um staðreyndir Árni hringdi: „Ég mótmæli þvi að við höfum ver- ið með ólögleg veiðarfæri en viður- kenni hins vegar að við vorum með 135 millímetra net í hluta pokans," sagði netagerðarmeistari og eigandi báts sem tekinn var fyrir landhelgis- brpt úti fyrir Suðurlandi fyrir stuttu. - Ég tel að svona staðhæfingar lýsi best karpinu um það hvort hér við land sé stundað dráp á kóðum eða smáfiski eða ekki. Hvað sem menn vilja lýsa mikilh furðu á því að varðskip skuli taka báta og skip, sem stunda ólöglegar veiðar hér við land, þarf' enginn að efast um að hér er stundað smáfiska- dráp og af engum öðrum en sjómönn- um sjálfum sem ættu að vita betur og eru í raun að slátra mjólkurkú sinni, fiskistofnunum. Þetta hefur verið mikið karp um staðreyndir sem ekki verða umflún- ar, karp um það t.d. hvort vörpur hafi verið „klæddar" með fínt riðn- um netum eða ekki. Staðreynd máls- ins er sú að fiskur berst að landi bæði hérlendis og erlendis sem er undirmálsfiskur gagnvart lögum og enginn getur varið þaö með því að skjóta sér bak við þá fáránlegu skýr- ingu að kolinn hafi hindrað út- streymi smáfisksins eða aðrar enn fáránlegri sem gera menn bara að kjánum þegar þeir fara að tjá sig opinberlega til varnar smáfiska- drápi. Eins er það með alla þessa „áfrýj- endur“ sem lýsa furðu sinni á dómi vegna smáfiskadrápsins og vilja skjóta dómnum til Hæstaréttar. Auð- vitað er þeim frjálst að gera svo en jafn fáránlega verka þær hótanir á mann engu að síður. Og loks eru það dómarnir yfir hin- um seku. Það er til fyrirmyndar hversu fljótt þetta allt gengur fyrir sig. - Það væri óskandi að dómar yfir óþokkunum á eiturlyfja- og smyglmarkaðinum væru fram- kvæmdir jafn fljótt. En þar er nú ekki verið að birta myndirnar eða ræöa við hina seku. Það gerist aðeins í sjávarútveginum! Bjórmálin: Gimbrótt tegundaval Garðar Hinriksson skrifar: Eftir hverju skylduþeir háu herr- ar hjá ÁTVR hafa farið þegar þeir ákváðu hvaöa bjórtegundir yrðu fyrir valinu þegar loksins að því kemur að sala á áfengum bjór verð- ur leyfð hér á landi? - Var það happa- og glappaaöferð eða var ein- hver klíkuskapur þar á bak við? Frá mínum sjónarhóli séð finnst mér þetta tegundaval vera ákaflega gimbrótt en þar á ég sérstaklega viö valið á þessum mjög svo óþekkta Kaiser bjór sem enginn sem ég hefi rætt þessi mál við hefur nokkurn tíma heyrt nefhdan. Ég bjó erlendis í 18 ár og ferðað- ist mikið um Skandinavíu og meg- inland Evrópu (vestan jámtjalds) í fríum minum og neytti að jafnaði bjórglass með máltíðum. Ekki íeitt einasta skipti var þessi Kaiser bjór á boðstólum - meira að segja ekki í Austmríki! Ekki hafa þeir sem þessum mál- um ráöa hér leitaö álits almenn- ings. Þó heföi þeim verið í lófa lag- ið að kanna hvaða bjórtegundir eru vinsælastar hér heima því að sölu- skýrslur um hinar óáfengu tegund- ir tala sínu máli og ýmsar þeirra eru seldar hér, svo sem Egilsöl, Sanitas, Royal, Carlsberg, Tuborg og Pripps, svo að einhvetjar séu nefndar. Hvaða tegund trónar svo hæst á neytendalistanum? Þaö er sænska gæðavaran Pripps. Ég hefi áreiðan- legar heimildir fyrir því að neysla á Prippsbjór er í yfirgnæfandi meirihluta hér eöa yfir 50% á móti öllum hinum. Þetta talar sínu máli og sannar hvaða tegunda lands- menn helst neyta. Vonandi sjá ráðamenn þessara mála að sér og leyfa innflutning fleiri tegunda og alla vega á þeirri tegund sem án nokkurs tvimælis er langvinsælust hér. Án efa verð- ur þungur róður forráðamanna þess fyrirtækis sem flytur inn Pripps að sanna fyrir kerfinu að þeir hafi vinsælustu vöruna. Von- andi samt ekki eins þungur og hjá Skúla Pálssyni á Laxalóni foröum þegar hann þurfti að berjast í ára- tugi við kerfið til að sigrast á rang- lætinu gagnvart sér og sinni fram- leiðslu. Sjálfsagt er þó ekki sáð fræi í frjó- an svörö þegar venjulegur borgari er að fetta fingur út í það sem ráða- menn kerfisins eru aö gera. Góð Glenn Miller-mynd „Ánægður“ skrifar: Það var sannarlega ánægjuleg til- breyting að sjá og heyra prýðilegan tónlistarþátt í ríkissjónvarpinu á fimmtudagskvöldið í síðustu viku, nefnfiega þáttinn um hljómsveitar- stjórann Glenn Miller, þar sem kvik- myndaleikarinn Van Johnson kynnti og lýsti aðalatriðum úr tón- listarferli hins vinsæla hljómsveitar- stjóra. Það voru áreiðanlega margir sem biðu með eftirvæntingu eftir þættin- um sem var auðvitaö auglýstur fyrir- fram. Ég var búinn að klippa út úr blaði minnisatriði um að þátturinn yrði sýndur umrætt kvöld og lima minnismiðann á ísskápinn hjá mér svo aö hann færi nú örugglega ekki i fram hjá mér. Þama var ágætis hljómsveit sem tók fyrir allflest gömlu lögin sem þekkt eru fyrir sitt sérstaka Miller- „sound“. Það náðist náttúrlega ekki eins og hjá Miller sjálfum en varla var hægt að komast nær upprunan- um. Þarna komu fram söngvararnir Tex Beneke og Marion Hutton og Johnny Desmond sem sungu með hljómsveit Glenns Miller. Vissulega era þessir söngvarar nokkuð við ald- ur en þetta var nú einu sinni heimild- arþáttur um hljómsveitina og hér er viljinn tekinn fyrir verkið. Söngvarinn Johnny Desmond kom þó þægilega á óvart með mjög hrein- um og óskertum raddblæ og náði fyllilega að túlka lögin eins og í gamla daga. - Það má að ósekju endursýna svona þátt við tækifæri, að ekki sé nú talað um að reynt sé að viða að sér fleiri álíka heimildarþáttum um liðna tíma í djass- og dægurlagaheim- inum. Nóg er af stórhljómsveitunum sem hafa verið festar á filmu sem eru áreiðanlega til leigu á kvikmynda- markaðinum. - Og ekki vantar áhugasama áhorfendur hér. söngkonan Marion Hutton sem byrj- aði sinn söngferil 17 ára gömui. Spádómar: Framtíðin er ávallt hulin þoku Konráð Friðfinnsson skrifar: Sagt er að spákonur geti rýnt í framtíðina. Á miðöldum voru konur þessar nefndar nornir. Fólk óttaðist þær. Það taldi, sökum fáfræði, að ill- ir andar heföu tekið sér bólfestu í líkama umræddra kvenna. í þann tíð voru galdrakerlingar brenndar á báli og þótti gjörningur sá vera land- hreinsun mikil. Þegar að því kom að örlagagyðjurnar skyldu líflátnar mætti gjarnan múgur og margmenni til að berja aftökuna augum. Þegnarnir röðuðu sér hringinn í kringum aftökustaðinn. Þá var bor- inn eldur í bálköstinn er umlukti hina dauðadæmdu. Lýðurinn horfði með athygli á logana læsa sig í klæði hennar og hold. Að lokum kom dauð- inn í líknarformi. Torgið tæmdist og lítilsháttar reyk lagði upp frá stað dauðans. - Atvikið var hins vegar skráð á spjöld sögunnar. í dag hafa aftur á móti nokkrir dágóðar „tekjur“ af spámennsku. Ásókn viðskiptavina er sögð jöfn og þétt. Ég dreg ekki í efa að hér í heimi leynist einstaklingar er yfir slíkri þekkingu ráða. Hrapparnir eru samt ansi margir á bænum þeim eins og sjónvarpsmyndin er bar fyrir augu okkar fyrir fáeinum dögum vitnar kannski best um. - Þar var hvert vigið á fætur öðru fellt með braki og brestum frammi fyrir áhorfendum. Eigi að síður heldur fólk áfram að kaupa þessa þjónustu. Kaffibollar og spil eru notuð við áðurgreinda iðju. Pappaspjöldin og kaffilöggin ku segja spáfólkinu hvort viðskiptavinir öðlist hina sönnu ást á lífsleiðinni ellegar grípi þrefaldan lottóvinning næsta laugardag, o.s.frv. En framtíðin kemur til mín og til þín og færir okkur gleði eða sorg og allt þar á milh. Ókomnir dagar og ár verða ávallt sveipaðir þoku sem enginn mannlegur máttur fær greitt úr. Góð kvikmynd í Regnboganum Gunnar Sverrisson skrifar: Kvikmyndir eru misjafnar að gæð- um, sumar betri, aðrar verri eins og gengur. Þrátt fyrir það virðist mis- munur á svokölluðum góðum mynd- um og hinum verri ganga í fólk, ein- mitt vegna þess að smekkkurinn er misjafn og margvíslegur. - Þetta kom mér í hug þegar ég brá mér fyrir stuttu í kvikmyndahúsið Regnbog- ann í sal A, þar sem myndin Sept- ember er sýnd. Myndin fjallar um margvísleg vandamál sem fjölskylda ein á við að etja. Ég ætla svo sem ekki að rekja söguþráðinn hér þar sem ég myndi þá spilla ánægjunni fyrir annars sönnum aðdáendum góðra kvik- mynda eins og mér finnst að segja megi að þessi sé. í henni er valinn maður í hverju hlutverki og sérlega góð leikstjórn gerir það að verkum að mér kæmi ekki á óvart þótt myndin fengi góð verðlaun (ef hún er þá ekki búin að fá þau). En leikstjóm og handrit er ekki úr lakari höndum en hins vin- sæla Woody Allens, sem mér finnst eiga mikið lof skilið fyrir stjórn myndarinnar. Það er afar athyglivert hve góðum tökum hann nær á sam- leik og þess vegna finnst mér myndin fá aukið gildi. Hvað snertir Woody Allen þá finnst mér leikstjórn hans og handrit allt eins geta átt við þau ummæli að myndin sé eins og lífið er, sem stund- um kemur, sér og sigrar sem betur fer. - Með hækkandi sól má búast við að margur sem sér þessa mynd fái tvöfalda birtu í sálina, komi betri út en hann fór inn. Ég mæli eindreg- iö með kvikmyndinni September. - Góða skemmtun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.