Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1989, Page 2
2
FÖSTUDAGUR 17. MARS 1989.
Fréttir
Leif Blaidel um áströlsku kvikmyndina sem Greenpeace sver af sér:
Eg fékk myndina í
gegnum Greenpeace
þeir eru ekki svo vitlausir að lögsækja mig
„Greenpeacemenn eru ekki svo
vitlausir aö fara aö lögsækja mig.
Þeir vita að ég hef mitt á hreinu,“
sagði Leif Blaidel, blaðamaður í Dan-
mörku við DV.
Talað er við Leif í myndinni Lífs-
björg í norðurhöfum þar sem hann
fjallar um Greenpeace sem áróðurs-
og mótmælafyrirtæki þar sem til-
gangurinn helgi meðalið. Séu allar
aðferðir notaðar til að koma áróðri
til skila. Fylgist leiðitamur hópur
blaðamanna með aðgerðum samtak-
anna í þeim tilgangi einum að fá góöa
frétt.
„Ég fékk myndina „Goodbye to
Joey“ í gengum Grenpeace. Þó þeir
sverji hana af sér þá dreifa þeir henni
og sýna þingmönnum í Evrópu. í
myndinni eru mjög gróf atriði, atriði
sem ekki koma fram í mynd Magnús-
ar. Þar á meðal er atriði þar sem
kengúra er skorin upp lifandi á
brjóstinu og hengd á staur. íslend-
ingar hafa ekki séð allt.“
Leif hefur dóminn frá Ástralíu
undir höndum þar sem tveir Astralir
eru dæmdir fyrir verk sem hann seg-
ir Greenpeace dreifa í áróðursskyni.
„Varðandi ásakanir Greenpeace
um að fá ekki að tjá sig um atriði
myndar Magnúsar vil ég bara segja
að ég þekki ekki til þess að slíkar
aðferðir séu í heiðri hafðar hjá Gre-
enpeace. Menn fá ekki tækifæri til
að svara fyrir sig þegar Greenpeace
gerir áróöursmyndir."
Leif var ekki hissa að heyra af orð-
bragði yfirlýsingar Greenpeace-
manna eftir að mynd Magnúsar hafði
verið sýnd. „Samtökin hafa verið
hrelld með sýningu myndarinnar í
svo öflugum fjölmiðh sem sjónvarp
er og hafa eiginlega veriö felld á eig-
in bragði.“
Leif sagðist spenntur að sjá mynd
Magnúsar og sagði áhugann vera
töluverðan í Danmörku. Hvort TV-2
muni sýna myndina vissi hann ekki.
-hlh
Magnús Guömundsson:
Sverja af sér
óþverrann en dreifa
honum
Kengúrudráp í Ástraliu: Myndinni með hinum umdeildu atriðum er dreift
af Greenpeacemönnum að sögn Magnúsar Guðmundssonar og Leifs Blaid-
„Þessar útskýringar Greenpeace
eru ekkert annað en yfirklór. Ef þess-
ir umtöluðu myndbútar, sem ég nota,
eru ekta og hafa verið teknir upp á
vegum Greenpeace verða þeir að
gangast við því. Greenpeace verður
þá að svara fyrir dómstólum á við-
komandi stöðum. Það þýðir ekkert
að láta einhvem mann í London
Ijúga fyrir sig og ég ætla ekki að
munnhöggvast við hann. Green-
peacemenn era í ójafnvægi eftir
þessa afhjúpun. Þeir sverja af sér
óþverrann en dreifa honum um allt,“
sagði Magnús Guðmundsson, höf-
undur myndarinnar Lífsbjörg í norð-
urhöfum, í samtali við DV.
„Hvað varðar myndina þegar sels-
unginn er dreginn efdr ísnum þá er
hún rækilega sviðsett og það klaufa-
lega í þokkabót. Það má heyra fyrir-
skipanir leikstjórans í bakgrunni og
með því aö stækka kyrrmyndir af
fólkinu má þekkja einn fyrrum æösta
mann Greenpeace. Tæknin fellir þá.
Hvað kengúrumyndina varðar eru
þar á ferð sams konar atriði og í
um allt
myndinni Goodbye to Joey. Mér
finnst afar furðuleg heppni að Green-
peace skuli akkúrat vera á staðnum
með myndavélar og ljóskastara þeg-
ar einhverjir sadistar taka sig til og
pína dýr, hvort sem það er úti á ísn-
um eða á komakri í Ástralíu. Sadist-
amir gera ekkert til að fela sig sem
gerir myndimar enn furðulegri. Gre-
enpeace kom hvergi nærri þegar
Gustav Pourier fláði selinn lifandi
eða þegar atriðin í Goodbye to Joey
vora tekin upp. Þaö er rétt. En þeir
era mjög duglegir við að dreifa þess-
um myndum. Ég og Leif Blaidel feng-
um áströlsku myndina frá Green-
peace. Það var auðsótt mál. Það er
kjami málsins. Þeir nota falsanir sér
til framdráttar í áróðursstríðinu,
fullyrða hástöfum aö selir séu fláðir
lifandi þó það hafi aðeins gerst í þetta
eina skipti."
Eins og stafur á bók
Magnús segir skýringar Grenpeace
ekki breyta innihaldi sinnar myndar,
það standi eins og stafur á bók. Hann
el.
segist hvergi í mynd sinni segja að
Greenpeace hafi staðið á bak við sels-
drápið eða misþyrmingu kengúr-
anna í áströlsku myndinni, aðeins
að þeir noti myndimar.
- Hvaö um málssókn Greenpeace á
hendur þér?
„Þetta era bara hótanir ennþá, í
raun ekkert annað en reykslör. Gre-
enpeace hefur alls ekkert í mál gegn
mér. Mér finnst öllu alvarlegra að
Greenpeacemenn skuli hóta íslensku
þjóðinni vegna myndarinnar. Þeir
skjálfa greinilega á beinunum eftir
að hafa komist í rækilega varnar-
stöðu í fyrsta skipti." -hlh
,,Það er ftdlkominn grundvöll-
ur fyrir gagnsókn í formi meið-
yrðamáls á hendur Greenpeace
og lögfræöingur minn er við-
búinn slíku. Islenska rikissjón-
varpið er ábyrgt gagnvart birt-
ingu yfirlýsingar Greenpeace en
ég hef engan áhuga á aö höfða
mál gegn því,“ sagði Magnús
Guðmundsson um málsókn á
hendur Greenpeace vegna yfir-
lýsingarinnar sem lesin var eftir
sýningu myndarinnar á þriðju-
dagskvöld.
„Það er erfitt að lögsækja Gre-
enpeace þar sem hreyfingin er
ekki í landinu. Ef Greenpeace-
menn koma hingaö til lands til
að lögsæKja mig þá er auövelt að
stefha þeim. Ég er fullviss um að
Edda Sverrisdóttir hefur fullan
hug á því líka. Það sem fram kom
í yfirlýsingunni var mjög æra-
meiðandi. .
-hlh
Málssókn Greenpeace:
Hafa ekki
lögfræðing
Greenpeace hafa ekki lögfræð-
ing á íslandi til að vinna fyrir sig
þegar þeir hefja málssókn á hend-
ur Magnúsi Guðmundssyni eða
Sjónvarpinu.
Martin Leeburn, talsmaður
samtakanna, benti fyrst á Róbert
Áma Hreiðarsson í samtali við
DV. Þegar óljóst var um áfram-
haldandi störf hans fyrir samtök-
in gat hann ekkert Ijáð sig um
hver lögfræðingur samtakanna á
íslandiyrði. -hlh
Róbert Árai Hreiðarsson:
Ekki verið haft
„Greenpeacemenn hafa ekki
haft samband viö mig vegna
málssóknar á hendur Magnúsi
Guðmundssyni eða Síjónvarpinu.
Get ég ekkert tjáð mig um hvað
verður ef þeir gera það,“ sagði
Róbert Ámi Hreiðarsson við DV.
Hann var lögfræðingur fyrir Gre-
enpeace þegar samökin reyndu
að fá lögbann á myndina Lífs-
björg í norðurhöftun.
„Ég tók aðeins þetta einstaka
verkeöú að raér fýrir samtökin
og hef þannig lokiö viöskiptum
mínum við þau í bili. Ég er ekki
lögfræðingur Greenpeace á ís-
landi eins og margir virðast
halda.“ -hlh
Talsmaður Greenpeace sá Lífsbjörg í norðurhöfum í gær:
Myndir okkar eru ekki falsaðar
„Það hefur verið tekin ákvörðim
um að lögsækja bæði Magnús Guð-
mundsson og íslenska ríkissjónvarp-
ið eftir öllum mögulegum leiðum
vegna myndarinnar. Nákvæmlega
hvemig og hvenær er í höndum lög-
fræðilegra ráðunauta okkar. Ásak-
anir þær á hendur Greenpeace, sem
fram koma í myndinni, era lygar.
Við getum hrakið allar þessar lygar.
Þetta á ekki síst við um myndbútana
um seladrápið og misþyrmingu
kengúranna. Við vöraðum Sjón-
varpið við því að sýna myndina
vegna þessa. En þeir virtust vita allt
betur á þeim bæ. Því er málið komið
í þennan farveg og þannig mun fara
fyrir öllum sjónvarpsstöðvum sem
taka myndina til sýningar," sagði
Martin Leebum, talsmaður Green-
peace, í samtali við DV.
Martin Leeburn sá mynd Magnús-
ar Guðmundssonar um miðjan dag í
gær. Fannst honum myndin van-
sæmandi og furðaði sig á því hvemig
aðstandendur hennar gætu ásakað
Greenpeace um áróður.
Myndir Greenpeace ekta
„Það sem varðar okkur er grand-
vallað á lygum. Það sem skaðar okk-
ur þó mest era ásakanir um að not-
ast viö falsaðar kvikmyndir um sela-
dráp og misþyrmingar á kengúram.
Gustav Poirer, 'sem vitnað er til í
myndinni, kom hvergi nærri þessari
selamynd okkar sem Magnús Guð-
mundsson notaðist við. Hann viður-
kenndi frammi fyrir kanadískri
þingmannanefnd að mönnum hafði
verið borgað af umhverfisvemdar-
hópi fyrir að selja seladráp á svið. í
þeirri játningu er ekki minnst orði á
Greenpeace auk þess sem hún á sér
staö 1971. Greenpeace var stofnað
1971. Þessi mynd sem Magnús notar
var hins vegar gerð 1978. Hún er
ekta. Klukkutíma eftir að ég sá
myndina var ég kominn í samband
við kandadíska embættismenn í
Ottawa og fékk þetta á hreint. Við
erum að leita þá, sem vora viðstadd-
ir upptökur á mynd okkar, uppi til
að votta það sem gerðist. Hvað varð-
ar fullyrðingar Inúítakonunnar þá
var hún ekki á staðnum þegar mynd
okkar var tekin. Orð hennar era
vangaveltur sem sanna alls ekki
neitt.
Á vegum bænda
Hvað varðar misþyrmingar á keng-
úranum þá era þar enn lygar á ferð.
Myndbúturinn sem Magnús notaði
var tekinn á vegum Greenpeace og
er hluti myndarinnar „Kangaroos
under fire“. Allt sem á sér stað í
henni gerðist í raun og vera. Hún er
ekki fölsuð.
Sá dómur, sem sagt er frá, að tveir
Ástralir hafi fengið vegna misþyrm-
ingar á kengúram er vegna allt ann-
arrar myndar sem var sviösett og
kemur Greenpeace alls ekkert við.
Það yar þannig að bændur höfðu
áhuga á að sýna fram á skaðsemi
kengúra gagnvart þeirra starfsemi.
Þá var hafist handa við gerð myndar
þar sem kengúrur voru meðal ann-
ars dregnar út á akur og þeim mis-
þyrmt hrottalega. Bændunum var
ráðlagt að notast ekki við þessar
upptökur og þær því lagðar á hill-
una. Aftur á móti komst framleið-
andi og leikstjóri myndarinnar „Go-
odbye to Joey“, Peter Cunningham,
yfir upptökumar og notaðist við þær
í mynd sinni. Þetta vakti úlfaþyt í
Ástralíu. Tveir menn vora dregnir
fyrir dómstóla þar sem þeir játuðu
að hafa framkvæmt þessi voðaverk
á kengúrunum gegn greiðslu frá að-
standendum upptakanna í Queens-
land. Vora mennimir dæmdir í fjár-
sektir og fangelsi fyrir vikið. Afrit
af dómnum, frá 15. mars 1983, höfum
við undir höndum. Sviðsetningar
vora á vegum bændanna, okkar
mynd er alveg ekta.“
Tóm vitleysa
Martin Leebum undirstrikar að
Magnús Guðmundsson hafi notað
filmubúta Greenpeace án leyfis og
hafi því gerst brotlegur við höfundar-
réttarlög. Sagði hann ennfremur að
ef Magnús hefði borið sig eftir þeim
upplýsingum, sem Greenpeace hafði
þegar eða fékk á klukkustund, hefði
útkoman orðið ööravísi.
„Ef Magnús Guðmundsson ætlast
til að vera tekinn alvarlega sem
blaðamaður, hvar sem er í heimin-
um, verður hann í það minnsta að
bera ásakanimar undir þá sem eiga
hlut að máh. Hann gæti bjargað and-
htinu með því að biðjast afsökunar
en það bjargar honum ekki frá máls-
sókn. Hvað varðar danska blaða-
manninn, sem fæðir Magnús á þessu
kengúrumáh, þá má hann hafa
hvaða skoðanir sem er. Og hvað
varðar myndina í heild þá er hún
vafasöm og við ánægð að geta fuhyrt
fuhum fetum aö hún sé tóm vit-
leysa.“
-hlh