Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1989, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1989, Síða 4
4 FÖSTUDAGUR 17. MARS 1989. Fréttir Ríkisstjórnin bætir fyrir grænfriðunga Ríkisstjómin hefur ákveðið stuðn- ingsaðgerðir til handa lagmetisiðn- aðinum. Þessi stuðningur er tilkom- inn vegna aðgerða grænfriðunga gegn sölu á íslensku lagmeti í Vest- ur-Þýskalandi. Almennur stuðning- ur við lagmetisiðnaðinn mun kosta ríkissjóð rúmar 16 milljónir. Eftir er aö ákveða með hvaða hætti ríkissjóð- ur mun síðan styðja við þau fyrir- tæki sem urðu fyrir mestum áfollum vegna þessara aðgerða en viljayfir- lýsing um slíkan stuðning liggur fyr- ir. Almennar aðgerðir ríkissjóðs eru þrenns konar. í fyrsta lagi mun ríkis- sjóöur taka á sig aukinn vaxtakostn- að á afurðalánum hjá lagmetisfyrir- tækjum sem framleitt hafa fyrir Þýskalandsmarkað. Þessi styrkur er áætlaður á um 7 milljónir króna. Þá mun ríkissjóður veita Sölustofnun lagmetis og Útflutningsráði 7 milljón króna styrk til að finna nýja markaði í stað Þýskalandsmarkaðs. í þriðja lagi mun utanríkisráðuneytið í sam- ráði viö hagsmunaaöila leita til Aust- ur-Evrópuríkja og annarra landa þar sem stjómvöld stjóma markaðinum til að tryggja ömgga framtíðarmark- aði. Kostnaður vegna þessa er áætl- aður rúmar 2 milljónir. Ríkisstjómin hefur einnig gefið út yfirlýsingu þess efnis aö þeim fyrir- tækjum sem verst urðu úti vegna aðgerða grænfriðunga verði hjálpað. Ekki liggm- fyrir með hvaða hætti það verður gert og því óvíst hver verða útgjöld ríkissjóðs vegna þess. Þessi yfirlýsing er einkum gefin vegna Hik sf. á Húsavík en það fyrir- tæki framleiddi nær eingöngu fyrir Þýskalandsmarkað. -gse Sjö skólahljómsveitir - 150 krakkar - léku vel og kröftuglega á sameiginlegum tónleikum. DV-mynd Sigurgeir Akranes: Sjö skólahljómsveitir á tónleikum Sigurgeir Sveinaaan, DV, Akranesi; Mót skólahljómsveita var haldið á Akranesi helgina 10.-12. mars og vora hljómsveitimar frá Kópavogi, Seltjamamesi, Vestmannaeyjum og Melaskóla í Reykjavík. Þetta vora unglingar á aldrinum 9-18 ára sem vora í æfingabúðum ásamt þremur skólahljómsveitum héðan frá Akra- nesi. AUs vora þátttakendur 150 þar af 90 gestir. Æft var mjög stíft alla helg- ina og einnig bragðið á leik á laugar- dag með kvöldvöku. Á sunnudag vora síðan haldnir sameiginlegir tónleikar, sem tókust mjög vel. Það var foreldrafélag skólahljómsveitar Akraness sem stöð fyrir þessu móti. Ástin sigrar á Skagaströnd ÞórhaUur Ásmundsson, DV, Sauðárkróki' Leikklúbbur Skagastrandar sýnir um þessar mundir gamanleikinn Ástir sigrar eftir Ólaf Hauk Símonar- son, í leikstjóm Harðar Torfasonar. Leiknum hefur verið vel tekið og aðsókn verið sæmileg á þær tvær sýningar sem búnar era á Skaga- strönd og sýningin á Blönduósi sl. flmmtudagskvöld var mjög vel sótt. Þær sýningar, sem ákveðnar hafa verið, era á Skagaströnd í kvöld og á Hvammstanga á laugardaginn. Þetta er 12. verkefni Leikklúbbs Skagastrandar og sjöunda íslenska leikverkið sem klúbburinn sýnir. Gaman og alvara hafa skipst á í verk- efnavali. En það er gleðin og ástin sem ráða ríkjum að þessu sinni. Stærsta hlutverkið í leiknum, Her- mann, er leikið af Þorvaldi Skafta- syni. Með önnur hlutverk fara Dóra Sveinbjörnsdóttir, Einar Haukur Arason, Elin Helga Njálsdóttir, Guð- jón Ámason, Kristín Jónsdóttir, Þór- dís Skúladóttir, Óskar Óskarsson og Skúli Tómas Hjartarson. Frá æfingu á leikritinu. Þrotabú Kjötmiðstöðvarinnar: Langur timi til endanlegs uppgjörs ,,Þetta var mun meira verk en þar sem deilt er um hvað fylgdi í mighafðióraðfyrir,“sagðiHlöðver kaupunum og tæki á kaupleigu Kristjánsson, bústjóri í þrotabúi vora seld með. Kjötmiöstöðvarhmarhf.,enskipta- HalldórKristinsson,einneigenda fundur var haldinn í dómsal bæjar- Kjötmiðstöðvarinnar, keypti Kjöt- fógetaembættisins í Hafharfirði í söluna á Vitastíg í desember á 40 fyrradag. Þar vora mættir fulltrúar milfjónir. Áttu 12 milljónir að kröfuhafá en 450 kröfur hafa verið greiðast i skuldabréfúm sem að geröar í búið. sögn skiptaráðanda hafa annað Samkvæmt kröfulista vora settar hvort aldrei verið gefin út eöa gefin fram kröfúr í þrotabúiö upp á alls útogveriökomiðundanáeinhvem um 525 miftjónir. Skiptaráöandi hátt dagana fyrir gjaldþrotið. Lag- hefúr hafnaö mörgum kröfunum erinn átti að greiðast með víxlum og enn er eftir aö koma í Ijós hvort sem eru í vanskilum og sagði skipt- krafa Hrafns Bachmann upp á 107 aráðandi að þeir hefðu mögulega milljónir vegna ábyrgðar hafi þeg- veriö notaöir til greiöslu á öðra. ar komið fram í öðram kröfúm. Um Bókhaldið mun hafa verið í mik- 400 milljóna kröfúr munu því vera illi óreiðu og enn á huldu hverjar nærri lagi. eignir Kjötmiðstöðvarinnar vora. Sala Kjötmiðstöðvarinnar á Veit- Endurskoðandi hefur meö höndum ingamannínum,rekstriíKópavogi, rannsókn á bókhaldinu sem ekki Garðabæ og við Laugalæk nam 235 er komin langt á veg. miUjónum. Greiðslu skuldabréfa ÞannigeraaUsekkiöllkurlkom- vegna sölunnar lýkur ekki fýrr en in tíl grafar í gjaldþrotí Kjötmið- 1995þannigaðlangurtímimunlíða stöðvarinnar en næsti skiptafund- til endanlegs uppgjörs. Sala rekstr- ur verður haldinn 13. aprfl. arins er ekki endanlega frágengin -hlh ikki króna Þrátt fyrir að reglugerð um Hlutafjársjóð Byggðastoftiunar hafi verið birt í Stjórnartíðindum er ekki enn Ijóst meö hvaða hætti þessi sjóöur mun fá fé til ráðstöf- unar. í flárlögum þessa árs er ekki gert ráð fyrir að hann fái neitt framlag frá ríkissjóði. Stjóm Byggðastofnunar hefur heldur ekki tekiö afstöðu til hvort stofn- unin muni nota eitthvað af ráö- stöfunarfé sínu til aö koma þess- um sjóö á laggirnar. Stjórnvöld bíða eftir slikri ákvöröun. Það veltur á því hvemig hún fellur hvort ríkisstjórnin muni leggja fé til sjóðsins úr ríkissjóði. I reglugerö sjóðsins er ekki til- greint hversu háar fjárhæðir hann hefúr úr að spila. Þó er til- greint aö heimilt sé aö tryggja hlutdeildarbréf í sjóðnum fýrir 600 milljónir raeð ríkisábyrgð. Auk þess er gert ráð fyrir aö sjóö- urinn gefl einnig út bréf án ríkis- ábyrgðar. Samkvæmt þessu er ljóst að umtalsverðar fjárhæðir vantar í Hlutafjársjóð ef hann á að geta staðið undir ákvæðum reglugerðarinnar. Vinnuveitendur: á sjávarútveg Samkvæmt könnun, sem Vinnuveitendasambandið hefur gert, leiddu skattabreytingarnar um áramót til þess að fyrirtæki greiða nú almennt 56,6 prósent hærri fjárhæðir í skatta en þau hefðu gert samkvæmt óbreyttum skattalögum. Samkvæmt útreikningiun Vinnuveitendasambandsins leggjast skattabreytingamar þyngst á fýrirtæki í sjávarútvegi. Þau greiða nú um 62,9 prósent meira i skatta til ríkisins en þau hefðu gert samkvæmt eldri skattalögum. Fyrirtæki í verslun- arrekstri koma einna best út úr þessum skattabreytingum en þau greiöa samt 46,8 prósent meira til rikisins en annars heföi orðið. Samkvæmt athugun Vinnu- veitendasambandsins er virkur skattur á fyrirtæki nú oröinn svipaður og í Danmörku og Nor- egi en mun hærri en Svíþjóð og Finnlandi. -gse Seyöisflörður: Gullver Jíáann Jónœem, DV, SeyöiafiiOi: Togarinn Gullver kom inn á miðvikudagsmorgun með um 160 tonn eftir tæplega viku veiðiferð. Aflinn skiptist þannig að í grófum dráttum vora 80 tonn af þorski og afgangurinn að miklu leyti grálúða. Aflinn verður að mestu unninn hér. Akureyri: 3500 titlar á Gyifi KriatjánflBan, DV, Akureyn; Um 3500 titlar verða á bóka- markaði Félags íslenskra bókaút- gefenda sem hefst á Akureyri nk. laugardag og mun þetta vera stærsti bókamarkaður sem fram hefur fariö hér á landi utan Reykjavíkur. A markaðnum verða m.a. bæk- ur sem ekki hafa fengist á Akur- eyri í áratugi og taka flestir eða allir bókaútgefendur á landinu þátt í markaönum sem verður að Glerárgötu 36 og stendur til 2.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.