Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1989, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1989, Side 5
FÖSTUDAGUR 17. MARS 1989. 5 pv___________________________________________________Fréttír Viðskiptabankamir tapa 2 miUjörðum af tekjum sínum: Versnandi af koma bankanna rekur þá til sameiningar - Útvegsbankiim verðlaun viðskiptaráðherra til þeirra fljótustu Bæði Alþýðubankinn og Iðnaðarbankinn biðla nú til Verslunarbankans með hugsanlega sameiningu í huga. Sá sem hreppir hnossið getur vonast eftir Útvegsbankanum sem „morgungjöf" frá viðskiptaráðherra. Þrátt fjuir að flestir viðskiptaban- kanna háfi haft góða aíkomu á síð- asta ári bendir margt til þess að yfir- standandi ár verði þeim þungt í skauti. Tekjur þeirra af vaxtamun inn- og útlána eru nú ekki nema um helmingur þess sem þær voru í fyrra. Flestir bankanna afskrifuðu útlán í fyrra fyrir umtalsvert hærri fjár- hæðir en árið þar á undan. Þeir búa sig nú undir enn frekari áföli á þessu ári. Það eru ekki síst þessi umskipti í rekstri bankanna sem ýta þeim nú til þess að kanna þá hagræðingu sem hafa má af sameiningu. Það er einnig hætt við því að sá einkabanki, sem verður útundan í hugsanlegri sam- einingu og kaupum á hlutabréfum ríkisins í Útvegsbankanum, geti átt erfiða framtíð. Vaxtamunurinn helmingi minni en áður Valur Valsson, bankastjóri Iðnað- arbankans, sagði í samtali við DV að á síðustu mánuðum ársins 1988 hefðu orðið veruleg umskipti varðandi tekjur bankanna af vaxtamun. Vaxtamunurinn heföi þá lækkað svo að bankamir fengu helmingi minni tekjur af honum en fyrr á árinu. „Við búumst við því að tekjur bankans af vaxtamuninum á árinu 1989 verði um þriðjungi lægri en í fyrra,“ sagði Valur. Tekjur Iðnaðarbankans af vaxta- mun vora í fyrra um 660 milljónir króna. Bankinn stendur því frammi fyrir um 220 milljón króna tekjusam- drætti. Valur sagði að þegar heföi verið gripið til aðhaldsaðgerða. Meðal ann- ars heföi yfirvinna starfsmannanna verið dregin umtaisvert saman. Bankastjórnin reiknaði með því að þessar aðhaldsaðgerðir gætu sparað allt að 100 milljónum. Það má því búast við að afkoma Iðnaðarbankans verði um 120 milljónum verri á þessu ári en í fyrra þótt ekki sé tekið tillit til annars en minni tekna af vaxta- mun. 400 milljónir í töpuð útlán Til viðbótar við minni tekjur standa bankarnir nú frammi fyrir meiri áföllum vegna tapaðra útlána en þeir hafa gert um langan aldur. Á árinu 1987 afskrifaði Landsbankinn 106 milljónir vegna tapaðra útlána. í fyrra voru hins vegar um 187 milljón- ir afskrifaðar. Aukingin nemur um 42 prósentum þegar tillit hefur verið tekiö tii verðbreytinga. Sé miðað við að viðskiptabankarn- ir allir hafi afskrifað jafnstóran hluta af útlánum sínum og Landsbankinn má gera ráð fyrir að í heild hafi bank- amir tapað um 400 milljónum á síð- asta ári. Framlag Landsbankans í afskrift- arsjóð var í fyrra um 384 milljónir. Landsbankinn hefur því undirbúið sig undir frekari áföU á þessu ári vegna tapaðra útlána. Ef aðrir við- - skiptabankar hafa lagt álíka hiutfall af útiánum sínum í afskriftarsjóði sína jafngiidir það um 800 milljónum yfir bankakerfið allt. Töpuð útlán í bankakerfinu eru afleiðing versnandi afkomu í at- vinnulífinu. Opinberir sjóðir hafa heldur ekki farið varhluta af afleiö- ingum þess. Þannig afskrifaði Byggðasjóður um 33,5 milljónir í fyrra en leggur hins vegar til hiiðar um 200 miiljónir til að mæta frekari áföllum. Þá upphæð hefur sjóðurinn til að afskrifa töpuð útlán fyrir utan þau sem hann mun breyta í hlut- deildarskírteini í Hlutafjársjóði sín- um. Búast má við að Byggðasjóður muni breyta útlánum í hlutdeildar- skírteini fyrir umtalsverðar fjár- hæðir þar sem sjóðurinn er djúpt sokkinn í taprekstur þeirra fyrir- tækja sem Hlutafjársjóði er ætlað að bjarga. Fréttaljós Gunnar Smári Egilsson Sveiflur í afkomu uppá þriðja milljarð Ef spá Vals Valssonar, bankastjóra Iðnaðarbankans, um að bankarnir muni í ár fá um þriðjungi minni tekj- ur vegna vaxtamunar, ganga eftir má gera ráð fyrir að viðskiptabank- amir þurfi að mæta tekjutapi í ár sem getur numið allt að 2,3 milljörð- um króna. Tii viðbótar þessu má búast við að bankamir muni tapa enn hærri upphæðum í ár vegna glat- aðra útlána en raunin varð á í fyrra. Umskiptin milli áranna 1988 og 1989 geta því kostað viðskiptabankana vel á þriðja milljarð. Það mun verða erfitt fyrir stjórn- endur bankanna að mæta þessu tekjutapi með hagræðingu innan bankanna án þess að til komi sam- eining og sú hagræðing sem hún á að geta leitt af sér. Þar sem hugsanleg sameining banka tekur langan tíma er ekki ólík- legt að þegar fer að hða á árið muni eigendur einkabankanna horfa upp á að tap muni verða á rekstri bank- anna í ár. Þótt ekki sé lengra síðan en 1985 að allir viðskiptabankarnir voru reknir með tapi er nokkuð Ijóst að taprekstur muni ýta undir hug- myndir um sameiningu einhverra einkabankanna og þá ekki síður fyrir það að viðskiptaráðherra hefur í raun boðið Ötvegsbankann sem verðlaun fyrir þá banka sem fyrstir verða til að sameinast. Verslunarbankinn fær bónorð úr tveimur áttum í febrúar síöasthðnum sendi bankaráð Iðnaðarbankans bréf th bankaráös Verslunarbakans þar sem óskað var eftir viöræðum um hugs- anlegan samrana þessara banka. Þá höföu staöið yfir viðræður milh Verslunarbanka og Alþýðubanka í nokkum tíma um sameiningu og síð- ar kaup á Útvegsbankanum í sam- vinnu við einhvem af bönkum Al- þýðusambandanna á Norðurlönd- unum. Nokkrir hluthafar í Verslunar- bankanum era jafnframt hluthafar í Iðnaðarbankanum. Á meðal þessara hluthafa era sterkir aðilar eins og Eimskip og Lífeyrissjóður verslunar- manna. Strax í haust létu þessir aðil- ar í ljós þá skoðun við bankaráð Verslunarbankans að þeir teldu sameiningu við Iðnaðarbankann eðlilegasta kostinn ef til sameiningar kæmi á annað borð. Þessi afstaða er skiljanleg þar sem með slíkri samein- ingu yrðu hlutabréf þessara aöila í báðum bönkunum tryggð. Ef Versl- unarbankinn sameinast hins vegar Alþýðubankanum er hætt við að Iðn- aðarbankanum væri þar með snið- inn þröngur stakkur. En meðal hluthafa Verslunarbank- ans era einnig þeir sem vilja samein- ast Alþýðubankanum og jafnframt aðrir sem vilja að Verslunarbankinn haldi áfram óbreyttum rekstri. Innan bankans eru aðhar sem í samtali við DV bentu á að Iðnaðarbankinn ætti við alvarleg útlánavandamál að stríða og þar á bæ væri hætt við umtalsverðum áföllum innan tíðar. Valur Valsson, bankastjóri Iðnaðar- bankans, hafnaði þessu algerlega í samtali við DV og sagði að Iðnaðar- bankinn hefði dreift áhættu sinni mim meira en flestir aðrir bankar. Á aðalfundum þessara tveggja banka um helgina mun koma fram hver hugur hluthafti þeirra er í sam- einingarmálum. Hver niðurstaðan verður á aðaifundi Verslunarbank- ans getur skipt miklu - ekki bara fyrir þann banka heldur einnig fyrir Alþýðubankann og Iðnaðarbankann. Norskt blað um EFTA-samkomuiagið: Steingrímur sleipur fiskur Björg Eva Erlendsdóttir, DV, Osló: Steingrímur Hermannsson fær einkunnina útsmoginn samninga- maður og sleipur fiskur í norska blaðinu Dagens Næringsliv í gær. Steingrímur tefldi djarft fyrir hönd íslands og vann sigur, segir blaðið. Spurningin um fiskinn, sem hefur verið þrætuepli í EFTA í meira en tuttugu ár, leystist vegna þess að Steingrími tókst að koma máhnu á framfæri núna. Málið var síðast tekið upp í Tamm- ersfors í fyrrasumar og hefði átt að liggja um kyrrt fram að ráðherra- fundinum í Christianssand í Noregi í júni. Opið stríð í fiskimáhnu hefði litið fáránlega út í lokayfirlýsingu EFTA fundarins. Fremur en að verða sér til athlægis lögðu hinir ráðherrar Norðurlandanna niður vopnin. Þó að lokayfirlýsing EFTA fundar- ins eigi eftir að rykfalla á nokkrum árum geta íslendingar unað glaðir við sitt því þeir fengu sínu mikilvæg- asta máli framgengt, skrifar Dagens Næringsliv. Af réttarlönd eins og jökull Þórhállur Ásmundsson, DV, Sauðárkróki: Mikinn snjó er nú að sjá á heiðar- löndum allt frá Blöndu og vestur að Víðidalsá og þau sem jökull á að líta. Sérstaklega á þetta við um Víðidals- tungu- og Haukaghsheiðar. Þar eru aðeins skálar og alstærstu steinar upp úr snjónum. Öll gil virðast full af snjó og hvergi sést móta fyrir þeim mörgu stööu- vötnum sem á heiðunum eru. Snjó- léttara er norðan th á Grímstungu- heiði og Auðkúluheiði. Þetta er í stuttu máli ástandið eins og það blasti við þegar flogið var yfir heiðarnar nýlega. Veður var bjart og skyggni frábært. AF: SVÉFNPOKUM jr vnrkinTIVr DJLm jLi JC%» Jl▼JL SJÓNAUKUM VEIÐISTÖN GUM VEIÐIHJ ÓLUM FLUGNAHNÝT- jr cr.mmTnvyr JLX\ jStSLöJl> ; JL Jl X# X» Jl Sendum í póstkröfu LAUGAVEGI 178 Sími 16770 - 84455

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.