Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1989, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1989, Side 7
FÖSTUDAGUR 17. MARS 1989. 7' Fréttir Fjárhagsáætlun Keflavíkur samþykkt: Skuldar hátt í 500 milUónir Fjárhagsáætlun Keflavíkur var samþykkt á bæjarstjómarfundi á þriðjudag. Þá kom fram að skuld bæjarins var 436 milijónir króna um síðustu áramót. Minnihlutinn í Keflavík gagnrýndi á fundinum skuldastöðu bæjarins. Að sögn Guðfinns Sigurvinsson- ar, bæjarstjóra Keflavíkur, er eng- in ástæða til svartsýni í upphafi nýs fjárhagsárs. Hann sagði að um 100 milljónir af bókfærðri skuld bæjarins væm vegna félagslegra íbúða aldraðra. Byggðar hefðu ver- ið íbúðir fyrir aldraða sem þeir greiddu upp með kaupleigu. Því þyrfti bærinn ekki að greiða neitt af þessu. Guðfinnur sagði að því mætti líta svo á að skuldir bæjarins næmu aðeins 330 miiljónum. Að sögn Guðfinns er gert ráð fyr- ir því í fjárhagsáætlun að skuldir bæjarins verði greiddar niöur um 29 milljónir á þessu ári. Fjárhagsáætlun síðasta árs fór fram úr áætlun en tekjur einnig. „Því má segja aö á heildina litið standist fjárhagsáætlun nokkuð vel,“ sagði Guðfinnur. Gert er ráö fyrir framkvæmdum upp á um 200 milljónir í nýsamþykktri fjár- hagsáætlun. -SMJ Stefán Stefánsson að gefa hrossunum á Gýgjarhóli í Skagafirði nýlega í éljaveðri. DV-mynd Þórhallur Jarðbönn og hestar á gjöf Þórhallur Ásraimdssan, DV, Sauaðárkróki: Vetm-inn, sem vonandi er senn á enda, hefur verið mjög gjafafrekur fyrir hrossabændur í Skagafirði og Húnavatnssýslum sem víðar og jarð- bönn að mestu frá því fyrir áramót. Bændur á þessu svæði eru margir komnir með heyvagnana út á tún og á bæ einum í Vatnsdal eru sögð 100 hross á gjöf á einum bæ. Meinatæknar: Vilja mikla hækkun AUGLÝSING Laus staða heilsugæslulæknis á Hellu. Laus er til umsóknar staða heilsugæslulæknis á Hellu. Staðan veitist frá og með 31. júlí 1989. Umsóknir, ásamt ítarlegum upplýsingum um læknis- menntun og læknisstörf, sendist ráðuneytinu fyrir 10. apríl 1989 á sérstökum eyðublöðum sem þar fást og hjá landlækni. í umsókn skal koma fram hve- nær umsækjandi getur hafið störf. Æskilegt er að umsækjendur hafi sérfræðileyfi í heimilislækningum. Nánari upplýsingar um stöðuna veita ráðuneytið og landlæknir. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, 10. mars 1989. Skrifborð Úrval af skrifborðum, verð frá 4.800 kr., og skrif- borðsstólum, verð frá 3.850 kr. Skrifborðið á mynd- inni kostar 8.400 kr. Hillusamstæður sem eru tilvaldar í unglingaher- bergið. Þær kosta 14.800 kr. Hillusamstæður Húsgögn og innréttingar Suðurlandsbraut 32 sími 686900 „Félag meinatækna er nýtt félag, sem er að gera kjarasamninga í fyrsta sinn. Þess vegna verðum við að semja um allt sem að okkur snýr, alveg frá grunni," sagði Marta Hjálmarsdóttir, formaður félagsins, í samtah við DV. Kröfur meina- tækna, sem og nokkurra annarra stétta sem stofnuðu félög í fyrra og eru að semja í fyrsta sinn, þykja nokkuð háar. „Kröfur okkar eru einfaldlega þær að við viljum sambærileg laun og aðrar stéttir háskólamenntaðra manna hafa“, sagði Marta. Hún nefndi sem dæmi að laun al- mennra meinatækna eru nú á bihnu 54 til 65 þúsund krónur á mánuði. Meðahaun viömiðunarstéttanna eru á mihi 80 og 90 þúsund krónur. Það er ef til vih vegna þessara viðmiðun- arbreytinga sem kröfur hinna nýju félaga eru sagðar háar. Marta sagði að meinatæknar væru ekki búnir að leggja sínar kröfur formlega fram en þær væru að mestu leyti fullmótaðar. S.dór Mál Árbæj arlæknisins: Kröfunni vísað á bug Lögmaður læknisins, sem nýverið var dæmdur vegna fjársvika, skjala- fals og brota í opinberu starfi, hefur vísað á bug kröfu Tryggingastofnun- ar á hendur lækninum. Trygginga- stofnun krafðist þess að læknirinn greiddi um eina milljón vegna meintra fjársvika. Hhmar Ingimundarson hæstarétt- arlögmaður, sem er lögmaöur lækn- isins, hefur vísað greiðslukröfunni á bug. Hann segir kröfuna vera stað- lausa og hreinan tilbúning. Fyrir sakadómi var læknirinn sak- fehdur fyrir að hafa dregið sér tæpar sextán þúsund krónur. Hhmar Ingi- mundarson segir að engar forsendur séu fyrir kröfunni og því hafi henni verið vísað á bug. -sme M) DÚNÚLPUR á börn og unglinga og fullorðna Verð frá Sendum í póstkröfu SPORTBÚÐIN Ármúla 40, Rvík, sími 83555. Eiðistorgi 11, 2. hæð, Seltj. sími 611055.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.