Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1989, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1989, Side 8
8 FÖSTUDAGUR 17. MARS 1989. Utlönd - segja skæruliðar Bresk lögregluyfirvöld, sem rann- saka sprenginguna í Pan Am þot- unni, sem fórst yfir Lockerbie í Skot- landi í desember síðastliðnum með þeim afleiðingum að tvö hundruð og sjötíu manns biðu bana, vita nú hver kom sprengjunni fyrir í véhnni, að sögn breskra dagblaða í morgun. Fréttimar komu í kjölfar þess að Paul Channon, samgöngumálaráð- herra Bretlands, neitaði ásökunum um að breska ríkisstjórnin hefði ekki varað flugfélög við því fyrirfram að hætta væri á sprengjuárásum. Áður hafði Pan Am sagt að breska stjómin heföi sent aðvörun tveimur dögum áður en flugvélin fórst, þar sem sagði að mögulegt væri að sprengja væri fahn í kassettutæki en að bréfið hefði tafist í jólapóstinum. Eftir aö þær fregnir bámst sögðu margir ættingjar þeirra sem fómst með vélinni að breska stjórnin ætti að segja af sér. í morgun sagði skoska dagblaðið The Daily Record frá því aö rann- sóknaraðilar hefðu komist að því hvaðan sprengjan kom, hvemig hún var gerð og í hvaða ferðatösku hún hefði verið. Að sögn blaðsins kom sprengjan með farangri úr flugvél sem kom frá Miö-Austurlöndum til Frankfurt. Tahð er víst að þeir sem komu sprengjunni fyrir séu nú ömggir í Mið-Austurlöndum. The Times og The Guardian höfðu það eftir háttsettum breskum emb- ættismanni að lögreglan vissi deili á manninum sem kom sprengjunni fyrir í véhnni og einnig hvar hann héldi sig nú. The Times sagði að Channon hefði rætt rannsóknina við Jurgen Wamke, samgöngumálaráðherra Vestur-Þýskalands, og að hann myndi tilkynna nafn sprengju- mannsins í næstu viku. Talsmaður samgönguráðuneytisins sagðist ekki vita til þess að tilkynning væri fyrir- huguð. Lögregluyfirvöld í Skotlandi, þar sem miðstöð rannsóknarinnar er, neituðu því í gær að tilræðismaður- inn væri í vörslu réttvísinnar ein- hvers staðar í Evrópu. Bandarísk stjórnvöld skýrðu frá því í gær að þau hefðu í nóvember gefið út aðvömn um að sprengjur kynnu að leynast í kassettutækjum, einum mánuði fyrir sprenginguna í Pan Am þotunni. Þeir fengu upplýs- ingar um slíkt eftir að shk sprengja fannst við leit, sem gerð var í tengsl- um við handtöku á palestínskum hryðjuverkamönnum í Frankfurt í Október. Reuter Vita hver sprengdi Pan Am vélina Afganskur skæruliði í Pakistan hughreystir félaga sinn sem situr fyrir framan gröf bróður síns. Bróðirinn féll í bardögum við Jalalabad. Símamynd Reuter Flýtir fyrir sigri „Það er enginn vafi á að þessi ákvörðun mun gegna hlutverki í sambandi við friðsamlega lausn á vandamálinu í Afganistan," sagði Hekmatyar. „Stjórnin í Afganistan neyðist til að komast aö þeirri niður- stöðu að ekki aðeins er hún einangr- uð í Afganistan heldur hka í öhu samfélagi múhameöstrúarmanna." Hekmatyar sagði að stjórn skæru- hða vildi eiga góð samskipti við Sov- étríkin á þeim grunni að hvorugt rík- ið hlutaðist til um innanríkismál hins. Hann aftók með öllu að skæru- hðar myndu eiga beinar viðræður við Sovétmenn fyrr en þeir hefðu náð fuhum völdum í Afganistan. Hann lofaði því að stuðningsmönn- um Najibuhahs yrði ekki refsað og sagöi að skæruliðastjórnin myndi ekki erfa þaö við múhameðstrúarríki sem ekki hefðu stutt skæruliða hehs hugar. „Við vhjum gleyma fortíðinni og öhum þeim löndum sem ekki gátu veitt okkur stuðning vegna sérstakra kringumstæðna. Við viljum byija nýjan kafla vináttu og skilnings mihi okkar og þessara landa. “ Reuter Foringi í afganska hernum sýnir fréttamönnum vopn sem lagt hefur verið hald á i Kabúl. Símamynd Reuter Vestur-þýska lögreglan sendi í gær frá sér þessa mynd af kassettutæki af Toshiba gerð sem í er falið plastsprengiefni. Það sést neðst til hægri. Þessi sprengja fannst við handtöku á Palestínumönnum i Frankfurt í október síð- astliðnum. Símamynd Reuter Háttsettur meðlimur bráðabirgða- útlagastjórnar skæruhða í Afganist- an sagði í gær að aðild að Samtökum múhameðstrúarríkja hefði bætt mjög möguleika hennar á að ná völd- um í Kabúl. Guhuddin Hekmatyar, utanríkis- ráðherra skæruhðastjómarinnar, sem mynduð var í síðasta mánuði í kjölfar brottfarar sovéska hersins frá Áfganistan, sagði á fréttamanna- fundi: „Það er enginn vafi á því að aðhdin að Samtökum múhameðstrú- arríkja er mikh viðurkenning á stjóminni.“ Saud Al-Faisal prins, utanríkisráð- herra Saudi Arabíu, tilkynnti fyrr í gærdag að samtökin, sem í voru fjörutíu og sex ríki, hefðu ákveðið að veita skæruhðastjórninni sæti í samtökunum. Það sæti hefur verið autt síðan skömmu eftir innrás Sov- étmanna í Afganistan 1979. „Það var nauðsynlegt að gefa Afg- önum færi á að tjá sig um málin inn- an samtakanna og ákveðið var að veita bráðabirgðastjóminni, sem tal- ar máli fólksins í Áfganistan, aðhd,“ sagði hann. Einungis fulltrúar Sýrlands og Suður-Yemen, sem hæði hafa mjög náin samskipti við Sovétríkin, lýstu yfir efasemdum sínum vegna aðhd- arinnar. írak, PLO og Norður-Yemen sátu hjá. Hekmatyar sagði að þessi ákvörð- un myndi flýta fyrir falh stjórnarinn- ar í Kabúl, sem væri óhjákvæmilegt. Urval Tímcirit fyrir alla - MARS 1989 3. HEFTI - 48. ÁR Efnisyfirlit Skop......................................2 Skyssur nýbakaðra forseta.................5 Sjúkdómurinn sem konur óttast mest.......13 Einu sinni var þjóð......................18 Vetrarakstur með stæl....................24 Morðóður þijótur á flótta................28 Hugsun í orðum...........................34 Fellibylurinn mikli 1938.................36 Sigurganga kartöflunnar..................43 Biblían og páskamir......................54 Peugeot í meira en 100 ár: Frá vindmyllu til hátækni................56 Tómstundastarf...........................67 Vísindi fyrir almerming: Háan blóðþrýsting svertingja má rekja til þrælaskipanna...............77 Þáttur Sögu-Guðmundar...................81 Drífðu þig í bað!........................89 Gerið aftur gaman að geta verið saman...92 Náðu þér í hefti strax á næsta blaðsölustað. Áskriftarsíminn er 27022 Endurski í skam

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.