Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1989, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1989, Síða 9
FÖSTUDAGUR 17. MARS 1989. 9 Utlönd Gríska stjórnin segir af sér Andreas Papandreou, forsætisráö- herra Grikklands, mun í dag kynna nýja stjóm eför aö hafa rekið alla ráöherra sína í gær. Uppstokkunin er höur í tilraun Papandreous til aö vinna á ný traust landsmanna fyrir kosningamar í júní en það hefur far- ið ört minnkandi vegna hneykslis- mála sem stjórn hans hefur veriö viðriðin. Papandreou stóð af sér van- traustsyfirlýsingu á þingi fyrr í vik- unni. Þetta er í sextánda sinn sem Pap- andreou stokkar upp í stjórn frá því að hann komst til valda 1981. í gær sögðu allir ráðherrar stjómarinnar af sér til að forsætisráðherrann fengi frjálsar hendur við nýja stjórnar- myndun. Á þriðjudaginn sagði hægri hönd forsætisráðherrans, Agam- emnon Koutsoyorgas, af sér embætti í annað sinn frá því í haust. Hann var sagður hafa verið í sam- bandi við hvarf bankasvindlarans George Koskotas frá Grikklandi sem ákærður haíði verið fyrir að hafa svikið til sín milljónir dollara úr Krítarbanka sem hann átti sjálfur. Koskotas var handtekinn í'Bandarík- unum og hefur í fangelsinu sakað Sósíahstaflokkinn um að hafa ráð- gert fjárdrátt. Reuter Papandreou, forsætisráðherra Grikklands, bað í gær alla ráðherra sína, 54 talsins, að segja af sér. Símamynd Reuter Fleiri ásakanir um símahleranir Hlera átti síma sænska ráðuneyt- isstjórans Pierres Schoris í sam- bandi við einkarannsókn bókaút- geíandans Ebbe Carlssonar á Palmemoröinu. Við hlerunina átti að nota tæki sem smyglaö var til Sviþjóðar. Ráöherrann Bengt Jo- hansson tilkynnti. þetta í gærkvöldi en fyrr í þessari viku hafði Jan Danielsson tilkynnt ráðherranum um máhð. Ástæðan til þess aö hlera átti síma Schoris er sögö vera sú að sænska leyniþjónustan hafi fengið viðvömn frá frönsku öryggislög- reglunni um aö Schori hafi reglu- bvmdiö heimsótt konu sem grunuð var um hryðjuverk þegar hann kom til Parísar, að því er segir í blaöinu Arbetet Það var í marsbyijun sem það upplýstist að ríkissaksóknarinn hefði fengið upplýsingar um aö hlera heföi átt síma háttsetts sænsks stjómmálamanns. Hann fór fram á aö þurfa ekki að néfna nafn hans og leyfið var veitt Samkvæmt blaðinu Arbetet var franska skýrslan komin í hendur sænsku leyniþjónustunnar í fyrra- vor. Bengt Johansson rannsakaði upplýsingamar í gær og sagðist honum svo frá að þaö sem gæti leg- ið til grundvallar væri að 1978 hefði Schori fengið heimsókn af konu sem seinna hefði svo orðið virkur meðlimur í kúrdisku samtökunum PKK. Ráðherrann segir að sá fund- ur hafi átt sér stað í Stokkhólmi. Konan hafi beðið um að fá að hitta Palme en fengið að ræða við Schori í staðinn. Á laugardaginn í síðustu viku tál- kynnti Sten Andersson, utanríkis- ráðherra Svíþjóðar, að simi sinn heföi verið hleraður. Komið hefur í Ijós að símahleranimar hafa ekki einungis tengst rannsókninni á Palmemoröinu eins og fyrst var álitið heldur hafi sænska leyni- þjónustan ámm saman hlerað sima nokkurra sljómmálamanna. TT Japanskir fiskibátar kyrrsettir í Chile Chilenski flotinn kyrrsetti fimm jap- anska fiskibáta í höfnum í gær í hefndarskyni vegna innflutnings- bann Japana á ávöxtvun frá Chile. Yfirmaður flotans sagði að þeim yrði ekki leyft að halda til veiða fyrr en Innflutningur á ávöxtum frá Chile er nú bannaður í mörgum löndum, með- al annars Japan. Simamynd Reuter Japanir opnuðu aftur markaði sína fyrir ávexti frá Chile. Japan hefur ásamt Bandaríkjun- um, Kanada og ýmsum Evrópulönd- um bannað innflutiúng á ávöxtum frá Chile eftir að blásýra fannst í tveimur vínbeijum þaðan í Banda- ríkjunum. Bátamir, sem um ræðir, eru í eigu japanskra útgerðarfélaga en sigla undir fána Chile í landhelginni þar. Talsmaður utanríkisráðuneytisins í Japan sagði í morgun að ólíklegt væri að stjómin kæmi með athuga- semdir á þessu stigi málsins. Sagði hann að tilkynning hefði komið frá Chile til Tokýo um að nokkrum jap- önskum bátum væri haldið í höfn af öryggisástæðum og að Japan gæti ekki skipt sér af því þar sem um land- helgi Chile væri að ræða. Reuter Dísilvélar - Utboð Fyrir hönd eins viðskiptavinar okkar er hér með leitað eftir tilboðum í 180-240 hestafla dísilvél, á vélinni skal vera startari, kælir og gangráður. Vélinni er ætl- að að knýja tvær glussadælur. Tilboðum skal skilað Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen hf., Glerárgötu 30, 600 Akureyri, fyrir 1. apríl 1989 og þar eru einn- ig veittar frekari upplýsingar. Hreinlætis- tækjahreinsun -Hreinsa kísil og önnur óhreinindi af hreinlætis- tækjum og blöndunartækjum. Sértilboð á stykkjafjölda. Fljót og góð þjónusta. Verkpantanir daglega milli kl. 11 og 19 í síma 72186. Hreinsir hf. Barna- og unglingavika 12.-18. mars 1989 Háskólabíó kl. 14.00 Fjölskylduhátíð. Niöurstööur kynntar. Ókeypis aögangur. Foreldrar hvattir til að mæta meö börn sín. Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, Alþvðusamband íslands, Kennarasamband íslands, Félag bókaaerðarmanna, Bandaíag háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna, Starrsmannafélaa ríkisstofnana, Fósturfélag íslands, Sókn, Hið íslenska kennarafélag, laja GLUGGAR • UTIHURÐIR • SVALAHURÐIR • BILSKURSHURÐIR • • £ K | GLUGGAR OG f ! HURÐIR Á \ 1 HÁLFYIRÐI I Útsalan hefst á laugardaginn kl. 10.00. Við erum að laga til á lagernum og seljum því gamlar ósóttar sérpantanir og lítið gallaðar vörur með sérstaklega góðum afslœtti. s co .ri n % o o D Ö "V J_L ÖQBSBIDSQHCT Hamratún 1 Mosfellsbæ, sími: 666606 n P' w » • HIGHÍIHVTVAS • HIGHÍlHIin • HIGHÍIH HVGVNNVHH3S •

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.