Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1989, Page 10
10
FÖSTUDAGUR 17. MARS 1989.
Utlönd
Stríðsaðilar
styrkja
stöðu sína
Bardagar héldu áfram í Beirút og
nágrenni í gær og kom eldur upp í
skipi sem varð fyrir skotárás í höfn-
inni í Beirút. Báðir stríðsaöilar,
kristnir og múhameðstrúarmenn,
eru sagðir hafa styrkt stöðu sína og
íbúar Beirút segja að sýrlenskir her-
menn, sem verið hafa í Líbanon síðan
1976, hafi dregið sig til baka frá ýms-
um varðstöðvum í vesturhluta Beir-
út í gær.
Þjóðvarðliðar múhameðstrúar-
manna eru staðráðnir í að halda
höfnum sínum sem verið hafa lífs-
björg þeirra undanfarin íjórtán ár á
meðan borgarastyrjöld hefur geisað
í Líbanon. Segjast þeir ætla að halda
áfram árásum sínum á höfnina í
Beirút þar til herforingi kristinna
leyfi aftur umferð um hafnir múha-
meðstrúarmanna.
Sérfræðingar segja að þjóðvarðlið-
ar múhameðstrúarmanna setji sem
skilyrði fyrir vopnahléi að umferð
um hafnimar verði leyfð á ný. Aoun,
herforingi kristinna, segir hins vegar
að einungis brottför Sýrlendinga frá
Líbanon geti leitt til friðar.
Reuter
Höfnin í Beirút er oröin skotmark múhameóstrúarmanna og kom eldur upp
í skipi þar í gær.
Simamynd Reuter
Vörubílstjórar í El Salvador kröfðust sumir hverjir 400 prósent hærri fargjalda í gær en venjulega vegna hótana
skæruliöa um aö ráðast á farartæki á vegum úti. Nær engir strætisvagnar voru í umferð og þurftu þúsundir að
ganga til vinnu sinnar. Simamynd Reuter
Ongþveiti í
El Salvador
Vinstri sinnaðir skæruliðar í E1
Salvador ollu öngþveiti í gær er þeir
reyndu að hindra umferð um landið
í tilefni kosninganna á sunnudaginn.
Hótun þeirra um að ráðast á farar-
tæki lamaði nær alla umferð úti á
landsbyggðinni og umferð í höfuð-
borginni Santiago var litil.
Skæruliðar hafa meö skemmdar-
verkum sínum valdið því að nær allt
landið hefur verið rafmagnslaust og
hafa aögerðir þeirra skyggt á vænt-
anlegar kosningar.
Nær engir strætisvagnar vom í
umferð í gær og gengu þúsundir
manna til vinnu sinnar. Hermenn
vom á verði á götum úti og við bens-
ínstöðvar. Átök urðu sums staðar úti
á landsbyggðinni.
Boði skæruliða í janúar um að þeir
létu kosningarnar ótruflaðar gegn
því að þeim yrði frestað svo að þeir
gætu undirbúið kosningabaráttu var
hafnað og hvetja þeir nú landsmenn
til aö taka ekki þátt í kosningunum.
Reuter
Krefjast afsagnar þingf orseta
Forseti danska þingsins, Erik
Ninn-Hansen, sem áður var dóms-
málaráðherra Danmerkur, sætir nú
vaxandi gagnrýni stjórnarandstöð-
unnar. Er þess krafist að hann segi
af sér vegna aðgerða hans í málefn-
um tamílskra flóttamanna í Dan-
mörku.
Ninn-Hansen er sagður hafa, á
meðan hann gegndi embætti dóms-
málaráðherra, tafið í nokkra mánuði
umsóknir frá flóttamönnunum um
spieiningu fjölskyldna. Hann er
einnig sagður hafa gefið þingnefnd
rangar upplýsingar um möguleika
tamílanna um að snúa aftur til Sri
Lanka þrátt fyrir að stjómin hefði
fengiö upplýsingar frá Sameinuðu
þjóðunum um að hætt hefði verið um
stundarsakir að senda tamfiska
flóttamenn heim vegna vaxandi óró-
leika á Sri Lanka.
Margir stjómmálamenn segja að
þetta megi aðeins túlka á þann hátt
að dómsmálaráðherrann hafi með
þessu brotið lög.
Ritzau
MINOLTA
Kynning
verður á morgun,
laugardag, kl. 10-14
Viðgerðarmaður MINOLTA
verður á staðnum og
yfirfer vélar fyrir
fólk.
>■ iiniiiiiii]
LJOSMYNDAÞJONUSTAN HF
LAUGAVEGI 178 - REYKJAVIK - SIMI 685811
■ ■■■■■■ iiiiiiinim