Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1989, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1989, Qupperneq 14
14 FÖSTUDAGUR 17. MARS 1989. Frjálst, óháð dagblaö Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÖLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aöstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 900 kr. Verð í lausasölu virka daga 85 kr. - Helgarblað 100 kr. Skammtímasamningar? Kjarasamningar til skamms tíma hafa verið mjög á döfmni. Líkur benda til, að helztu foringjar Alþýðusam- bands og Vinnuveitendasambands hafi ætlað sér að stefna að skammtímasamningum. En babb kom í bát- inn. Meirihluti Verkamannasambandsins taldi í gær, að semja bæri til ekki skemmri tíma en eins árs. Ætlun forystumanna var að semja til fyrsta septemb- er. Launþegar fengju á tímabihnu 6-7 prósent kaup- hækkun. Vinnuveitendur munu hafa sætt sig við 6 pró- sentin en Alþýðusambandið vildi teygja sig einu pró- sentustigi lengra. Svo vill til, að flestir iðnaðarmenn hafa samninga til fyrsta september. Iðnaðarmenn þessir eiga eftir að fá 3,5 prósent kauphækkun fram til fyrsta september, auk þess sem þeir fengu tveggja og hálfs prósent kauphækkun í fyrrahaust, sem aðrir fengu ekki. Þetta eru gróft reiknað sex prósent. Samkvæmt hug- myndunum um skammtímasamning mundu kaup- hækkanir til launþega almennt því haldast í hendur við hækkunina til iðnaðarmanna. Ríkisstjómin átti að koma inn í slíka skammtíma- samninga. Ríkisstjórnin átti að lofa hækkun bamabóta. Lengja átti greiðslur atvinnuleysisbóta og hækka skatt- leysismörk. En Verkamannasambandið hefur aðra skoðun. Rétt er að undirstrika, að launþegahreyfingin er klof- in í þessu máli. Sá klofningur kann að verða skýrari en nú er. En meirihluti í Verkamannasambandinu vill semja til eins ár. Ríkið sjái þá um lækkun vaxta, eflingu atvinnulífs og hækkun skattleysismarka. Ríkisstjómin hefur enn ekki svarað slíkum tilmælum. í raun mundi ríkisstjómin vilja kjarasamninga til lengri tíma. Ýmsir forystumenn stjómarflokkanna óttast, ef samið yrði til fyrsta september, að þá spryngi blaðran og stjórnin fengi ekki við neitt ráðið. Samningar flestallra yrðu því laus- ir allir í einu. Vissulega er skammtímasamningur neyðarlausn. En á hitt ber að líta, að samningar til fyrsta september með lítilli kauphækkun mundu koma sér vel fyrir efnahag- inn, af því að þá yrði okkur í bili forðað frá hörðu kjara- stríði. Því er rétt að líta svo á, að skammtímasamningar af þessu tagi væm alls ekki slæmur kostur. Áður en DV greindi frá tilburðum forystumanna til skammtímasamnings, var gert ráð fyrir, að kjarasamn- ingar drægjust fram eftir árinu. Þetta gæti nú gerzt. Raddir em um, að meðal annars Verkamannasamband- ið kunni að draga sig út úr ASÍ-samflotinu. Launþega- hreyfingin er illa klofin. Sumir vilja að mestu fara að ráðum ríkisstjómarinnar og þola verulega kjaraskerð- ingu. Aðrir hafa hátt og vilja meðal annars tryggmgu kaupmáttar. Skiljanlegt er, að margt alþýðufók teljí sig eiga um sárt að binda. Verðbólgan er orðin mikil, og kaup hefur nánast ekki hækkað. Sorglegt er, að hið opinbera hefur gengið á undan öðmm með verðhækkan- ir. Flokkspólitík ræður miklu um afstöðu sumra verka- lýðsforingja nú. Sumir vilja einkum vera góðir við ríkis- stjómina. Tvímælalaust er rökrétt, að fók taki á sig kjaraskerðingu. Efnahagur þjóðarinnar útheimtir það. En ríkisstjómin á að bjóða betur en hún hefur enn gert. Meðal annars á stjómin að bjóðast til að vinda ofan af matarskattinum. Stjómin hefur ekki mætt á verðugan hátt heiðarleg- um tilraunum sumra verkalýðsforingja til lausnar. Haukúr Helgason Hjá Borgarfógetaembættinu; þingað um lögbann á hvalamynd Magnúsar Guðmundssonar. „Áróðursgildi myndarinnar erlendis er að mínu viti minna en ekki neitt,“ segir greinarhöfundur m.a. Grænir hvalir Svo er Gorbatsjov fyrir að þakka, eða þannig lítur mikill hluti heims- byggðarinnar ámálin, að gjöreyð- ingarstyrjöld með kjamorkuvopn- um er ekki lengur sá heimsendir sem vofir yfir veröldinni. Nú er það annars konar heimsendir sem heimsendaspámenn óttast: 'eyði- legging mannsins á umhverfi sínu. Á síðustu árum hafa nýjar hætt- ur verið uppgötvaöar og þeim flölg- ar þvi meir sem kjamorkuhættan minnkar. Þessar heimsendaspár virðast uppfylla einhverja innri þörf. Spár um heimsendi hafa breyst í tímans rás, nú er það ekki lengur Guð sem í reiði sinni yfir syndum mannanna lætur eldi og brennisteini rigna yfir Sódómur og Gómormr, nú em það menn sjálfir sem em að skapa sér sinn eigin heimsendi með því að gera jörðina óbyggilega. Þessi hugsunarháttur hefur jafn- vel á sér trúarlegt yfirbragð, menn em í milljónatah famir að trúa á jörðina og náttúruna eins og ein- hvem guðdóm sem mennimir séu að fordjarfa. Því meir sem fólk í iðnríkjunum fjarlægist náttúmna og hrærist 1 mannfjandsamlegu umhverfi stórborga því meira að- dráttarafl hefur hugmyndin um hina hreinu óspilltu náttúm sem æ færri þekkja af eign raim en allir þrá í eðli sínu. Hugmyndir manna um veröldina mótast af nánasta umhverfi. Þeir sem búa alla ævi við stórfelld nátt- úmspjöll og eitmn umhverfisins af mannavöldum trúa ekki öðra en öll samskipti manna við náttúruna séu sama marki brennd. í iðn- væddum ríkjum Vesturlanda er það liðin tíð að menn lifi í sátt við náttúruna. Nú er komið bakslag í þá þróun sem verið hefur óstöðv- andi síðustu hundrað ár og hin svokölluðu grænu mál em þau pólitísku stórmál sem fyrirsjáan^ lega mxmu setja stöðugt meira mark á þróunina. Sífellt fleiri stjómmálamenn gera sér grein fyrir þessu, jafnvel Marg- aret Thatcher, sem verið hefur tals- maður hins óhefta einkaframtaks og látiö sig náttúmspjöll Iitlu skipta þegar efnahagsuppbygging er annars vegar, er farin að tala eins og grænfriðungur um ósonlag- ið og regnskógana í Suður-Amer- íku. Aö berjast gegn heimsfriði Hvalavemd er aðeins einn angi af þessari vakningu. Baráttan fyrir vemdun hvala er fyrstjog fremst táknræn. Þeir sem beijast fyrir þessu kæra sig kollótta um tölur um stofnstærð eða röksemdir um að hvalir séu ekki í útrýmingar- hættu, hvalir era tákn um þá óspjölluðu, heilögu náttúm sem maðurinn er í skammsýni sinni að eyðileggja. Barátta fyrir hvalveiðum er einna líkust baráttu á móti heims- friðinum, sá sem er á móti friöi er ekki tekinn alvarlega. í þessari að- stöðu era íslendingar núna og þverskallast viö aö skilja það. í stað Kjallariim Gunnar Eyþórsson fréttamaöur þess að gera sér grein fyrir ástaeð- unum fyrir því að hvalveiðar ís- lendinga era svo harðlega for- dæmdar í viðskiptalöndum okkar einbeita menn sér að nokkrum ein- staklingum sem hafa af því lifi- brauð að reka áróður fyrir mál- staðnum. Sá mannskapur er ekki allur geðfelldur og vísindalegur sannleikur skiptir það fólk litlu máli. En málið snýst ekki um vísinda- legan sannleika. Þaö er í sjálfu sér auðvelt að hrekja mál grænfrið- unga með rökum en andstaðan gegn hvalveiðum byggist ekki á rökum heldur tilfinningum. Taka má Suður-Afríku til samanburðar. Mjög fáir hafa nokkra hugmynd um raunverulegt ástand mála þar í landi, andstaðan gegn stjóminni byggist eingöngu á því að réttlætis- kennd manna er misboðið. Á sama hátt er tilgangslaust fyrir íslend- inga að rökstyðja mál sitt í hvala- málinu, öllum rökum er fyrirfram hafnað. Þessari staöreynd er erfitt að kyngja. íslendingar vita mæta vel að hvalveiðar okkar em engin rán- yrkja og það vita rétt yfirvöld í út- löndum líka en almenningur kærir sig kollóttan. Andstaðan gegn hval- veiðum kemur frá almenningi, ekki yfirvöldum, og hvort sem okk- ur líkar betur eða verr Uggja ís- lendingar ákaflega vel við höggi, miklu betur en nokkur önnur stærri og stórtækari hvalveiðiþjóð. Áróöur Myndin, sem sýnd var í sjón- varpinu á þriöjudag, fellur íslend- ingum eflaust vel í geð enda sýnir hún að friðunarsinnar geta verið óvandir að meðulum. En áróðurs- gildi myndarinnar erlendis er að mínu viti minna en ekki neitt. Lák- legra þykir mér þvert á móti aö þaö sem eftir situr í huga útlendinga séu einmitt þau atriði, sviðsett eða ekki, þar sem dýrum er misþyrmt og tilfinningaviðbrögðin verði ekki samúð með hvalveiðum íslendinga eða selveiðum íbúa norðurhjarans heldur streymi fjárframlög frá al- menningi til grænfriðunga og þús- undir manna finni hjá sér hvöt til að ættleiða nafngreindan hval fyrir lítið gjald. Ég gæti trúað að mynd þessi yrði Greenpeace beinlínis til framdrátt- ar ef hún væri sýnd erlendis. Hún er heldur ekki nógu vel gerð sem kvikmynd og í henni em of margar hæpnar fullyrðingar sem auðvelt er að snúa út úr. Það er líklegra aö hún verði vopn í höndum græn- friöunga en skýring á málstað ís- lendinga. Grænfriðungar hafa haft sérstakt lag á því að snúa árásum sér 1 hag. Skemmst er að minnast þeirrar reginskyssu Frakka að sökkva Ra- inbow Warrior 1 höfxúnni í Auck- land á Nýja-Sjálandi, aðra eins himnasendingu hefur Greenpeace aldrei fengið enda neyddust Frakk- ar til að hætta kjamorkutilraunum á Suöur-Kyrrahafi fljótlega upp úr því. Ég man vel eftir væminni kvik- mynd sem Greenpeace gerði um þetta píslarvætti og sýnd var í ís- lenska sjónvarpinu fyrir tveimur eða þremur árum. Sú mynd kom efnahag samtakanna á græna grein enda kunna þeir vel til verka í áróðri. Kvikmynd þeirra Magnúsar Guð- mundssonar og Eddu Sverrisdóttur stenst engan samanburð sem áróð- ur sem skírskotar til tilfinning- anna. Hvað sem því líður þykir mörgum sjálfsagt gott að hafa kom- ið þama höggi á grænfriðunga enda þótt það sé vindhögg að mínu viti. Það léttir á sálinni að bíta frá sér og sjálfsagt era einhveijir þeirrar skoðunar að nú hijóti um- heimurinn að taka sönsum og láta hvalveiðar okkar afskiptalausar. En í þessu máh stöndum við á móti straumi sem er of þungur. Þaö er sjálfsblekking að halda aö viö getum farið okkar fram án tillits til sjónarmiða umheimsins rétt eins og Rússar. Hvalavemd snýst aðeins að hluta um hvalina sjálfa, sú barátta er sama eðlis og barátta gegn eyðingu regnskóganna í Bras- ilíu, sem ógnar súrefnisframleiðslu í andrúmsloftinu, hún er barátta gegn heimsendi af mannavöldum. Hvalir em tákn þeirrar baráttu og íslendingar hafa þegar verið ofur- liði bomir. Gunnar Eyþórsson „Það er í sjálfu sér auðvelt að hrekja mál grænfriðunga með rökum en and- staðan gegn hvalveiðum byggist ekki á rökum heldur tilfinningum.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.